Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI * Ohagstæð þróun viðskiptajafnaðar framan af ári veldur áhyggjum hjá Þjóðhagsstofnun Innfíutningvr að auk- ast meira en spáð var FLEST bendir til að viðskiptajöfn- uður verði ekki jafn hagstæður á þessu ári og búist var við. Þetta stafar bæði af meiri innflutningi en gert var ráð fyrir og minni út- flutningi. Aukinn innflutningur á m.a. rætur sínar að rekja til vax- andi kaupmáttar og aukinnar bjart- sýni um efnahagshorfur en sam- dráttur í útflutningi skýrist af minni sjávarafurðaframleiðslu en reiknað var með. Þetta kemur fram í riti Þjóðhagsstofnunar, Hagvís- um. Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs jókst almennur innflutningur um 13% að raungildi frá sama tima í fyrra en almennur útflutningur Vaxtalaus bíla- lán hjá B&L BIFREIÐAR og landbúnaðarvélar hf. bjóða í dag og alla næstu viku vaxtalaus lán til allt að tveggja ára vegna kaupa á notuðum bflum. Lánaðar eru að hámarki 600 þús- und krónur að viðbættum lántöku- kostnaði sem þýðir 26.313 króna fastar afborganir á mánuði miðað við tveggja ára lánstíma. Vaxtalausu lánin er einn af þremur valkostum sem kaupendum notaðra bíla standa til boða. í stað lánskjaranna geta þeir valið bensín- kort frá Esso að verðmæti allt að 50 þúsund krónur eða allt að 200 þúsund króna afslátt. Karl S. Oskarsson, sölustjóri notaðra bíla hjá Bifreiðum og land- búnaðarvélum, segir að ákveðið hafí verið að bjóða þessi hagstæðu kjör vegna mikillar sölu á nýjum bílum að undanförnu. Reynslan af tilboðum um vaxtalaus lán hafi verið mjög góð og viðbrögðin ekki látið á sér standa. Að jafnaði hafí 50-60 bílar selst á vikutíma. minnkaði um 5%. Innflutningur fjárfestingarvöru hefur aukist mest eða um 21% á föstu verði og var bílainnflutningur t.d. um 17% meiri en í fyrra. Þá jókst innflutningur á neysluvörum um 7,2% en þar af jókst innflutningur á mat og drykkjarvöru aðeins um 2,2%. Hins vegar jókst innflutningur heimilis- tækja, fatnaðar og fleiri slíkra liða mun meira. Telur Þjóðhagsstofnun að þessar tölur bendi til þess að innflutningur verði heldur meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Hvað útflutning snertir vekur Þjóðhagsstofnun athygli á því að þrátt fyrir samdrátt í útflutningi í heild hafi verið mikil gróska í _al- mennum útflutningsiðnaði. Út- flutningur hans jókst um 55% á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Þetta nægir hins vegar ekki til að vega upp samdráttinn í sjávarútvegi og stóriðju. Lyfjafyrirtækið Delta ber höfuð og herðar yfir almenn iðnfyrirtæki hvað árangur í útflutningi snertir. Þannig skilaði útflutningur fyrir- tækisins á hjartalyfinu Katopril til Þýskalands um 400 milljónum króna fyrstu fjóra mánuði ársins. Þessi markaður opnaðist í bytjun ársins í kjölfar þess að einkaleyfi framleiðenda þar í landi til tuttugu ára rann út. Þá hefur orðið mikil aukning í útflutningi umbúða, steinullar og ýmissar iðnaðarvöru, eins og sést á myndinni. Þróun viðskiptajafnaðarins veldur áhyggjum Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, segir þróun viðskiptajafnaðarins á þessu ári vera nokkurt áhyggjuefni. „Það er fyllsta ástæða til að fylgjast vel með því hver verður þróun innflutn- ings núna á næstu mánuðum. Það er meira að gerast á því sviði en við reiknuðum með. Það er afar Útívístar og skógardagur í Esjuhlíðum í dag • Rannsóknarstarf Skógræktar ríkisins á Mógilsá kynnt og m.a. gerð grein fyrir tilraunum með nýjar trjá og runnategundir og birkifræræktin kynnt sérstaklega. • Boðið upp á gönguferðir um skógarreitina undir leiðsögn fagmanna. • Ráðgjöf veitt um ræktun nýrra skóga o.fl. • Ferðafélag íslands verður með leiðsögn um söguslóðir í Esjunni. • Á gönguleiðum býður Rolf Johansen upp á E1 Marino ketilkaffi; Danól býður upp á Macintosh; Bergdal býður Homewheat kex og Emmess-ís býður bömunum upp á sumarglaðning. Taktu þátt í útívistar og fræðsludegí í fögru umhverfí Frá kl. 13:00-17:00 Skógrækt meö Skeljungi mikilvægt við þær aðstæður sem blasa við núna að áfram verði af- gangur á viðskiptajöfnuði og hon- um ekki stefnt í tvísýnu. Vöxturinn í einkaneyslu og innflutningi er því óþægilega mikill á fyrri hluta árs.“ Aðspurður um hvaða hagstjórn- artækjum mætti beita til að bregð- ast við þessari þróun benti Þórður á að innflutningur hefði verið til- tölulega lítill á árinu 1993 og fyrst á árinu 1994. „Við erum að bera saman tölur þar sem við gætum hugsanlega verið að nálgast ein- hvern topp núna. Ef þessi þróun sem hefur verið undanfarið verður áfram staðfest með talnaefni fyrir júní, júlí og ágúst þá er auðvitað mikilvægt að menn taki mið af því við íjárlagagerðina og mótun ríkis- fjármála og peningamálastefnu fyrir næsta ár. Það er augljóst að ef þjóðarútgjöldin, sérstaklega einkaneyslan, eru að aukast það hratt að það samræmist ekki viðun- andi jafnvægi í viðskiptum við önn- ur lönd, þá er mikilvægt að taka í aðhaldstaumana með haustinu og í byijun vetrar.“ Viðskiptajöfnuðurinn fpá 1993 milljónir króna —: Almennur innflutningur 12 mánaða breyting 15 Utflutningiir nokkunra iðnaðarvara janúar til apríl 1994 og 1995, milljónir króna '94 '95 '94 '95 '94 '95 '94 '95 '94 '95 '94 '95 ‘94 ‘95 Morgunblaðið/Þorkell NAFNARNIR Jón Sigurðsson í NIB og Jón í Járnblendinu þeg- ar hinn síðarnefndi innti síðustu afborgunina af hendi. Lánveitingar Norræna fjárfestingabank- ans til íslands aukast verulega Gertráðfyrir tvöföldun útlána, Gert er ráð fyrir því að lánveitingar Norræna fjárfestingabankans (NIB) til íslenskra aðila muni nær tvöfald- ast í ár miðað við árið 1994. Nú þegar hafa verið veitt lán upp á rúm- lega 4 milljarða króna en heildarlán- veitingar bankans hingað til lands námu 3,5 milljarði króna árið 1994. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem NIB hélt ásamt íslenska Járn- blendifélaginu í tilefni þess að fyrir- tækið hefur greitt að fullu fyrsta lánið sem bankinn veitti. Auknar lánveitingar til einkafyrirtælga I máli Jóns Sigurðssonar, aðalbanka- stjóra NIB, kom fram að lánveitingar bankans til einkafyrirtækja hér á landi hafí færst í vöxt og nemi þær nú 7% af útistandandi lánum hér á landi. Veitt hafa verið lán til 13 fyrir- tækja í iðnaði og sjávarútvegi að upphæð 2,3 milljörðum íslenskra króna. Ríkissjóður er stærsti einstaki lántakandinn á þessu ári með tæp- lega hélming veittra lána. Útistand- andi skuldir ríkissjóðs við NIB nema nú rúmlega 7 milljörðum króna og vega þar lán vegna gangagerðanna á Vestfjörðum þyngst. Utistandandi lán NIB hér á landi nema nú alls 32,7 milljörðum króna og er það um 10% af heildarlánveitingum bankans, en þess má geta að eignarhlutur ís- lands er 1%. Hagnaður NIB á síðasta ári nam um 13% eigin fjár bankans, sem er mesti hagnaður í sögu bankans. Áætlanir fyrir 1995 gera ráð fyrir svipaðri aflcomu. Járnblendið greiðir upp lán íslenska Jámblendifélagið var fyrsti lántakandi hjá Norræna fjár- festingabankanum og fjármagnaði bankinn um helming af stofnkostn- aði fyrirtækisins, en lánsfjárhæðin nam um 2,6 milljörðum íslenskra króna. í gær átti sér stað sá tíma- mótaatburður að félagið innti af hendi síðustu afborgun af þessu láni. í tilefni þess ræddi Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins lítl- lega um framtíðarhorfur í rekstri fyrirtækisins. Hann sagði endur- skipulagningu þá sem fyrirtækið gekk í gegnum fyrir nokkrum árum hafa skilað góðum árangri. Árið 1994 var rekstrarhagnaður fyrirtæk- isins 280 milljónum króna og hagnað- ur það sem af er þessu ári væri ná- lægt 200 milljónum króna og stefndi í aukinn hagnað á síðari hluta ársins. Koparverð með því hæsta í 6 ár London. Reuter. VERÐ á kopar komst nálægt hinu hæsta í sex ár í vikunni og verð á öðrum málmum hækkaði um leið. Sérfræðing- ar eru þó ekki sammála um hvort verð á hrávöru muni halda áfram að hækka öllu lengur. Hveiti hækkaði einnig í verði. Koparverðið komst í 3.038 dollara tonnið í London, heldur lægri upphæð en í janúar, þegar tonnið seldist á 3.081 dollar - hæsta verði síðan 1989. Birgðir í London minnk- uðu í innan við 180.000 tonn og hafa ekki verið minni síðan í janúar 1991. Þó hafði minna gengið á birgðir í gær en búizt hafði verið við þannig að dálít- ið dró úr verðhækkuninni. Á! og nikkel hækkuðu nokkuð í verði um leið og kop- ar; nikkel meðal annars vegna spár um birgðaskort í ár. Verð á gulli komst ekki enn yfír 390 dollara únsan. Olía lækkaði í verði eftir ráðherrafund OPEC, samtaka olíusöluríkja, þar sem látin var í ljós óánægja með mikla framleiðslu seljenda á borð við Norðmenn, sem standa utan samtakanna. Ekki er loku fyr- ir það skotið að OPEC-ríki undir forystu Saudi-Arabíu auki framleiðslukvóta á næsta ári. Viðmiðunarverð á verði hráolíu úr Norðursjó til af- hendingar eftir um mánuð lækkaði úr um 17,45 dollurum tunnan í um 16,50 dollara. Verð á hveiti í Chicago hækkaði, þar sem líkur eru áframhaldandi kaupum Kín- vetja á í Bandaríkjunum. Lík- ur eru á að uppskera í Kansas valdi vonbrigðum. Miklir hitar eru í Rússlandi og skortur á vélum. Samkvæmt sumum heimildum er gert ráð fyrir að uppskeran í Kína verði inn- an við 455 milljónir lesta (sem stefnt hefur verið að) vegna þurrka og flóða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.