Morgunblaðið - 16.07.1995, Side 8
8 B SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Hvab meb gömlu svertingjamyndimar?
Svartur hasar
ÞEIR sem sóttu hvað harðast bíóin hér á áttunda áratugn-
um muna sjálfsagt vel eftir svertingjahasarmyndunum
(„blaxploitation") sem hreinlega flæddu inn í landið og fjöll-
uðu um hetjuleg ævintýri ofurhuga á borð við Shaft og
Kleópötru Jones. Áratugurinn var teppalagður með þessum
myndum af svertingjahetjum, konum jafnt sem körlum,
sem fengið gætu Stallone og Schwarzeneggertil að blána
af öfund í dag. Sú fyrsta lagði línurnar fyrir þær sem á
eftir komu og nafnið segir allt sem segja þarf: „Sweet
Sweetback’s Baadasssss Song“.
MYNDIRNAR lifa í
minningunni fyrir
margra hluta sakir. Fram-
leiðendurnir, leikstjórarnir
og handritshöfundarnir voru
oft hvítir en
margir
helstu kvik-
myndaleik-
arar svert-
ingja á
tímabilinu
urðu stjöm-
ur í þessum
og Richard
Pam Grier,
eftir Amald indriðason
myndum eins
Roundtree og
sem var sannkölluð drottn-
ing svertingjamyndanna.
Hasarinn í þeim var oft
ágætlega útfærður (sundum
Nýsjá-
lendingur
í Holly-
wood
LEE TAMAHORI,
sem gerði nýsjá-
lensku myndina Eitt sinn
stríðsmenn sem Regn-
boginn sýnir, er þegar
farinn að vinna í Holly-
wood eins og flestir þeir
leikstjórar í heiminum
sem vekja athygli fyrir
myndir sínar.
Fyrsta verkefni Tama-
hori í kvikmyndaborginni
er að leikstýra Nick Nolte
og fleiri góðum í mynd-
inni „Mullholland Falls“
en hún er byggð á sönn-
um atburðum í lífí fjög-
urra einkaspæjara í Los
Angeles á sjötta áratugn-
um (sjónvarpsþættir hafa
einnig verið gerðir um
GOTT leikaralið;
Nick Nolte.
félagana). Með önnur
hlutverk fara Chazz Pal-
minteri, Michael Madsen
og Chris Penn ásamt
Melanie Griffith, John
Malkovich og Treat Will-
iams.
Framleiðendur eru þau
Riehard Zanuck og Lili
Fini Zanuck (Ekið með
Daisy) en Michael Mann
var eitt sinn orðaður við
leikstjórnina.
pínlega illa líka) og síðast
en ekki síst voru sumar
þeirra svo lélegar að maður
gleymir þeim aldrei eins og
„Dolomite", sem sýnd var í
Gamla biói og vekur enn upp
dásamlegar minningar af
bíói eins og það verst getur
orðið.
Svertingjamyndinar, sem
voru iðulega illa leiknar og
unnar upp úr lélegum hand-
ritum, hafa ekki verið hátt
skrifaðar en fengið nokkra
uppreisn æru í seinni tíð. 33
þeirra eru á sérstakri kvik-
myndahátíð í New York sem
nú stendur yfir undir heitinu
„Blaxploitation, Baby!“ og
eru þar til sýnis myndimar
um Shaft og Kleópötru ásamt
„Coffy“ með Grier og „Sup-
erfly“ svo fáeinar séu nefnd-
ar. Einnig „Sweet Swe-
etback’s“ sem hóf æðið árið
1971 og er eftir Melvin Van
Peebles (föður Marios). Hún
sagði af svertingja á flótta
undan lögreglunni til mexí-
kósku landamæranna eftir
að hann myrti tvo lögreglu-
þjóna sem __ drápu ungan
svertingja. í leit sinni að
manninum lemur og ber lög-
reglan svertingja af handa-
hófi og skýtur eyrun af fé-
laga hans við yfirheyrslur (Q.
Tarantino hefur ugglaust séð
myndina). „Sweetback" hef-
ur verið lýst sem „stríðsyfir-
lýsingu gegn Bandaríkjunum
hvítra manna“ og þótt þær
svertingjamyndir sem á eftir
komu hefðu ekki verið eins
harðar í horn að taka ein-
kenndust þær af stöðu svert-
ingja í landinu sem hvíti
maðurinn hafði beint á braut-
ir eiturlyijasölu, vændis og
glæpastarfsemi samkvæmt
boðskap þeirra. I öllum
myndunum voru lögreglu-
menn óvinur númer eitt og
ef kom fýrir í þeim lögreglu-
maður sæmilega af guði
gerður átti hann sér kollega,
sem við minnsta áreiti krytj-
aði svertingja í kebab.
Tónlistin skipaði háan
sess í myndunum og eitt
lagið, „Theme From Shaft“
hreppti Óskarinn. Og svart-
ar leikkonur voru ekkert síð-
ur í aðalhlutverkum en
kraftalegir karlarnir. Grier
og Tamara Dobson, sem lék
Kleópötru Jones, voru helstu
kynbombur myndanna og
sölluðu niður óvininn af ekk-
ert minni alúð en karlarnir.
Það eru enn gerðar svert-
ingjamyndir, síðast sáum við
Algjöran bömmer með Dam-
on Wayans, en þessar gömlu
standa 'alveg sér á báti og
að fá þær hér einhverntíma
sýndar aftur væri almenni-
leg hátíð.
HÖRKUSKUTLUR;
Tamara Dobson sem
Kleópatra Jones.
7000 hafa séð
Litlar konur
ALLS HAFA um 7000
manns séð Litlar kon-
ur í Stjörnubíói að sögn
Karls 0. Schiöth bíóstjóra.
Þá sáu 11.500 Vinda for-
tíðar, 6.500 hafa séð Beet-
hoven og um 3000 breska
tryllinn I grunnri gröf.
Sýningar hófust á ridd-
aramyndinnni „First
Knight" í Stjörnubíói og
Sambíóunum um þessa
helgi en Einkalíf Alexand-
ers eftir Þráin Bertelsson
KOMIN í bíó; Richard
Gere og Julia Ormond
í „First Knight“.
Meira af
„Reservoir Dogs“
MARGLITIR krimmar; ógleymanlegt leikaraliðið i „Dogs“.
ÞAÐ FÆRIST mjög í
vöxt að gefa út það
sem kallað er sérstök út-
gáfa leikstjórans af til-
teknum myndum. Þær inni-
halda meira efni en upp-
runalega útgáfan leyfði og
meiri uppfyllingu. Má nefna
myndir eins og „Aliens“,
„Blade Runner“ og Dansar
við úlfa í þessu samhengi.
Sú nýjasta í hópinn er „Res-
ervoir Dogs“ Quentins Tar-
antinos en hún verður end-
urútgefin í Bandaríkjunum
í sumar með talsverðu af
efni sem lenti í klippunum
í fyrstu umferð.
Ekki er enn vitað ná-
kvæmlega hvað kemur inn
verður frumsýnd í Stjörnu-
bíói þann 9. ágúst. V^strinn
„The Quick and the Dead“
með Sharon Stone verður
sýnd á eftir henni og aðrar
væntanlegar myndir eru
„The Net“ með Söndru
Bullock og „Desperados“,
framhald „E1 Mariachi“.
Nýtt hljóðkerfi hefur
verið sett upp í Stjörnubíói,
svokallað SDDS-kerfi, og
var Æðri menntun fyrsta
myndin, sem sýnd var í hinu
nýja kerfí. „Það er ekkert
sem tapast á Ieiðinni í þessu
kerfi heldur skilar það
hljóðinu eins og framleið-
andinn vill hafa það,“ sagði
Karl í samtali.
í myndina en talað er um
að persóna Tim Roth (Herra
Orange) fái meira pláss og
bætt sé inn atriði þar sem
glæpamennirnir fara yfir
stöður sínar í módeli af
ránsstaðnum. Það mun þó
víst, herma fréttir, að Mar-
vin fær ekki eyrað sitt aft-
ur.
ÍBÍÓ
GAGNGERAR endur-
bætur hafa nú verið
unnar á kvikmyndahúsinu
Regnboganum og má þá
segja að öll kvikmyndhúsin
í Reykjavík hafi gert
endurbætur á sölum sínum
enda eru þær nauðsynlegar
þar sem annarstaðar og í
kvikmyndaborg eins og
Reykjavík eru gerðar mikl-
ar kröfur til bfóanna.
Það, sem einkennir
kannski fyrst og frcmst
upplyftingu kvikmynda-
húsanna, eru endurbætt
hljóðkerfi og er nú keppst
við að auglýsa bestu hljóð-
in í kvíkmyndahúsunum og
hefur meira að segja komið
fram í erlendum blöðum
að hér séu bíóhljóðin á
heimsmælikvarða. Það má
segja kvikmyndahúsunum
til hróss að þau hafa fylgt
mjög vel þróun í gerð hljóð-
búnaðar og bjóða nú uppá
það besta sem fæst á þeim
markaði.
MNýjasta mynd Þráins
Bertelssonar verður frum-
sýnd þann 9. ágúst nk. í
Stjörnubíói. Hún heitir
Einkalíf Alexanders og
fer fjöldi þekktra leikara
með helstu hlutverk, m.a.
Egill Ólafsson, Tinna
Gunnlaugdóttir og sonur
þeirra Olafur Egilsson.
Aðrir leikarar eru m.a. Sig-
urður Sigurjónsson, Karl
Ágúst Úlfsson og Rand-
ver Þorláksson ásamt
Gottskálki Degi Sigurð-
arsyni og Dóru Takefusa.
Framleiðendur eru Þráinn
og Friðrik Þór Friðriks-
son.
MÍ bígerð er að kvikmynda
sögu Josephs Conrads,
„The Secret Agent“, og
mun breska leikskáldið
Christopher Hampton
leikstýra. Með hlutverk
fara Gerard Depardieu,
Rosanna Arquette og Bob
Hoskins, en myndin er
áætluð í bíó í byijun næsta
árs.
MÞá er einnig væntanlegt
framhald Krákunnar eða
„The Crow“, sem reyndist
síðasta mynd Brandons
Lees. Með aðalhlutverk fer
Vincent Perez.
MBandaríski leikstjórinn
Bob Rafelson er lagður af
stað með nýjan erótískan
trylli, en mynd hans Póst-
maðurinn hringir alltaf
tvisvar með Jessicu
Lange og Jack Nicholson
setur enn móðu á gleraug-
un. Sá nýi heitir Blóð og
vín, en ekki er vitað hveijir
fara með aðalhlutverkin.