Morgunblaðið - 16.07.1995, Blaðsíða 16
16 B SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN N U A UGL YSINGA R
Birgðaskráning
- framtíðarstarf
Óskum að ráða vanan starfskraft í birgða-
skráningu og almenn skrifstofustörf hjá
traustu innflutnings- og smásölufyrirtæki.
Um er að ræða heilsdagsstarf.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt,
vera þjónustulundaður og samviskusamur.
Umsóknir óskast sendar afgreiðslu Mbl.
fyrir 21. júlí nk. merktar: „B - 5875“.
M
Ahugavert starf
Prentsmiðjan H-prent hf. á ísafirði óskar að
ráða setjara til starfa. Um er að ræða ákaf-
lega fjölbreytta og skemmtilega tölvuvinnu
sem felst í uppsetningu og hönnun prent-
gagna. Viðkomandi þarf að vera jákvæður,
skapandi, hugmyndaríkur, geta unnið sjálf-
stætt og hafa frumkvæði, sem og góða
íslensku- og tölvukunnáttu.
Upplýsingar veita Sigurjón J. Sigurðsson og
Halldór Sveinbjqrnsson í síma 456 4560.
Kennarar
- Siglufjörður
Kennara vantar til starfa á næsta skólaári.
Meðal kennslugreinar eru; almenn kennsla,
sérkennsla, heimilisfræði, náttúru- og samfé-
lagsfræði.enska. stærðfræði og umsjón
tölvustofu.
Húsaleigu- og flutningsstyrkur í boði.
Upplýsingar veita skólastjóori í síma 467
1184(vs) og formaður skólanefdar í símum
467 1700(vs) og 4671171 (hs).
Grunnskóli Siglufjarðar.
ÍIS FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Ibd Á AKUREYRI
Öldrunarlækninga-
deild
Við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri verður
hafin ný starfsemi í öldrunarþjónustu í haust,
en 1. október tekur til starfa öldrunarlækn-
ingadeild. í fyrstu verður starfsemi deildar-
innar staðsett á báðum deildum Kristnesspít-
ala. Núverandi öldrunardeild breytir um nafn
og mun verða hluti af öldrunarlækningadeild.
Hlutverk deildarinnar er að veita sérhæfða
þjónustu í öldrunarlækningum, hjúkrun, end-
urhæfinu og félagsráðgjöf. Einnig að vinna
að fyrirbyggjandi aðgerðum, rannsóknum og
kennslu. Markmið öldrunarlækningadeilda
er að vera leiðandi afl við að koma á fót
nútímalegri öldrunarþjónustu og fjölbreyttu
meðferðarformi. Lögð er áhersla á teymis-
vinnu. Starfsmenn við þjálfun heyra stjórnun-
arlega undir endurhæfingardeild en aðrir
starfsmenn undir öldrunarlækningadeild.
Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar og
er umsóknarfrestur til 31. júlí nk. Ráðið verð-
ur í allar stöðurnar frá 15. september.
1. Verkefnastjóri hjúkrunar
Staðan er 50% og er veitt í eitt ár. Verk-
efni: Sjá um þátt hjúkrunar í undirbúnings-
vinnu og framkvæmd við stofnun öldrunar-
lækningadeildar á Kristnesi og vinna í öldr-
unarlæknisfræðilegu teymi. Við ráðningu
verður tekið tillit til faglegrar þekkingar,
reynslu og menntunar umsækjenda. Nán-
ari upplýsningar gefur Ólína Torfadóttir
hjúkrunarforstjóri í síma 463 0271. Um-
sóknir sendist hjúkrunarforstjóra.
Rafvirki
Óskum eftir vönum rafvirkja til þjónustu-
starfa. Upplýsingar gefur Sigurður í síma
455 4553 milli kl. 8.00 og 12.00.
Kaupfélag Skagfirðinga,
RKS Raftækni.
Atvinnurekendur
35 ára rekstrartæknifræðingur óskar eftir at-
vinnu. Hefur víðtæka reynslu af matvælafram-
leiðslu, inn- og útflutningi og markaðs- og
sölumálum. Góð tungumála- og tölvukunnátta.
Er hugmyndaríkur, jákvæður og tilbúinn að
vinna að erfiðum og tímafrekum verkefnum.
Áhugasamir sendi skilaboð til afgreiðslu
Mbl., merkt: „Á - 7812“.
Leikskólakennarar, þroskaþjálfar,
kennarar og annað uppeldismenntað
fólk
Okkur vantar áhugasamt, uppeldismenntað
starfsfólk á leikskólana í Hornafirði, en þar
eru tveir ieikskólar. Lönguhólar er vel búinn,
þriggja deilda leikskóli og Óli prik er lítill,
heimilislegur, einnar deildar leikskóli í sveitaum-
hverfi. Veitum fúslega allar nánari upplýsingar.
Leikskólastjóri Lönguhóla er í vinnusíma
478-1315 og í heimasíma 478-1084. Leik-
skólastjóri Óla prik er í vinnusíma 478-2075
og í heimasíma 478-2119. Einnig veitir fé-
lagsmálastjóri Hornafjarðar upplýsingar í
síma 478-1702.
Bæjarfélagið útvegar hagstætt leiguhús-
næði og greiðir ferðastyrk.
2. Félagsráðgjafi
Staðan er 75%.
Verkefni: Félagsráðgjöf fyriri öldrunarlækn-
ingadeild og endurhæfingardeild FSA.
Þekking og reynsla á sviði öldrunarþjónustu,
tryggingamála og réttinda fatlaðra eru mik-
ilvæg, auk reynslu í samskiptum við að-
standendur og starfsmenn heilbrigðis-
stétta. Nánari upplýsingar veita Halldór
Halldórsson, yfirlæknir öldrunardeildar og
Stefán Yngvason, yfiræknir enduhæfingar-
deildar í síma 463 1100. Umsóknir sendist
yfirlækni öldrunarlækningadeildar.
3. Sjúkraþjálfi
Staðan er 100%.
Verkefni: Stjórn sjúkraþjálfunar á öldrunar-
lækningadeild. A FSA eru fyrir 6,5 stöðu-
gildi sjúkraþjálfa. Nánari upplýsingar veita
Lucienne ten Hoeve, yfirsjúkraþjálfi í síma
463 0100 og Stefán Yngvason, yfirlæknir
endurhæfingardeildar í síma 463 1100.
Umsóknir sendist yfirsjúkraþjálfara.
4. Iðjuþjálfi.
Staðan er 100%.
Verkefni: Stjórn iðjuþjálfunará öldrunarlækn-
ingadeild. Á FSA eru fyrir 2 stöðugildi iðju-
þjálfa. Nánari upplýsingar veita Ólöf Leifs-
dóttir, yfiriðjuþjálfi og Stefán Yngvason
yfirlæknir endurhæfingardeildar í síma 463
1100. Umsóknir sendist yfiriðjuþjálfa.
5. Aðstoðarmaður iðjuþjálfa
Staðan er 100%.
Verkefni: Aðstoð og vinna með iðjuþálfa á
öldrunarlækningaeild. Reynsla í samskipt-
um við sjúklinga nauðsynleg. Starfið er
heppilegt fyrir þá, sem hafa áhuga á námi
í iðjuþjálfun.
Nánari upplýsingar veita Ólöf Leifsdóttir, yfir-
iðjuþjálfi og Stefán Yngvason, yfirlæknir
endurhæfingardeildar í síma 463 1100.
Umsóknir sendist yfiriðjuþjálfa.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Öryggisbúnaður
Óskað er eftirframtakssömum og handlögn-
um manni til uppsetninga á öryggisbúnaði.
Sveinspróf eða meistararéttindi í rafvirkjun
eða rafeindavirkjun æskileg, en þó ekki skil-
yrði. Umsækjendur skulu hafa hreint
sakavottorð.
Starfsumsóknum skal skilað í lokuðu umslagi
til Mbl., merktum: „Öryggi - 7811“, eigi síð-
ar en nk. föstudag, 20. júlí.
Lagerstarf -
Utkeyrsla
Heildverslun (ekki þungavara) óskar eftir
starfskrafti í fullt starf. Vinnutími frá 8.30-
17.00. Æskilegur aldur 20-40 ára. Viðkom-
andi þarf að vera heiðarlegur, duglegur,
stundvís, eiga gott með að umgangast fólk,
heilsuhraustur, nákvæmur og þarf að geta
hafið störf eigi síðar en 1. ágúst nk. Farið
verður með allar upplýsingar sem trúnaðar-
mál og öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir sendist til afgr. Mbl. merkt:
“Lager - 7813“ fyrir 21. júlí.
Framtfðaratvinna í
boði fyrir hörkudug-
lega einstaklinga
Bónus sf. hefur falið mér að leita að nokkrum
einstaklingum til framtíðarstarfa við ýmis
störf í verslunum þess.
Leitað er að hörkuduglegum einstaklingum
sem geta unnið undir miklu álagi, unnið lang-
an og erilsaman vinnudag, ásamt því að
vera heiðarlegir, stundvísir og eiga gott með
að umgangast og vinna með öðru fólki.
Væntanlegir umsækjendur þurfa að vera á
aldrinum 22-30 ára.
í boði er starf hjá kraftmiklu og lifandi öguðu
fyrirtæki, ágætir tekju- og framtíðarmögu-
leikar fyrir þá aðila sem standa sig vel.
Umsóknareyðublöð ásamt öllum frekari upp-
lýsingum um störf þessi veiti ég á skrifstofu
minni á venjulegum skrifstofutíma.
Teitur Lárusson,
atvinnuráðgjöf - starfsmannastjórnun,
Austurstræti 14 (4. hæð).
101 Reykjavík.
Svæðisskrifstofa
málefna fatlaðra,
Suðurlandi
auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður á
Meðferðarheimilinu Búhamri í Vestmanna-
eyjum. Annars vegar er um að ræða stöðu
forstöðumanns, sem er afleysingastarf til
eins árs, og hins vegar stöðu
meðferðarfulltrúa.
Á Búhamri eru fötluð börn og unglingar á
aldrinum 2-14 ára í dagvistun alla virka daga
og í skammtímavistun 1 helgi í mánuði.
Starf forstöðumanns gerir kröfur um:
- Fjölbreytileg samskipti.
- Sveigjanleika.
- Ákveðni.
- Fagleg vinnubrögð.
Æskilegt er að umsækjandi hafi þroskaþjálfá-
menntun eða aðra sambærilega uppeldis-
menntun og hafi góða þekkingu á málefnum
fatlaðra.
Ráðningartími forstöðumanns er frá og með
15. sept., en ráðningartími meðferðarfulltrúa
frá og með 1. sept.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma
481 2127, til 21. júlí, eða í síma 482 1839.