Morgunblaðið - 17.09.1995, Side 1
88 SÍÐUR B/C
211. TBL. 83.ARG.
SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER1995
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Friðargæsluliðar efins um að umsátrinu um Sarajevo verði létt
Lítill hluti þungavopna
Serba fluttur á brott
Sarajevo. Reuter.
UMSÁTURSLIÐ Bosníu-Serba hafði aðeins
flutt tólf þungavopn frá Sarajevo í gær þegar
þriggja daga hlé á loftárásum Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) á víghreiður þeirra var
hálfnað, að sögn talsmanns friðargæsluliðs
Sameinuðu þjóðanna, Chris Gunness.
„yið erum enn efins um að Bosníu-Serbar
ætli að virða að fullu samkomulagið sem þeir
hafa gert,“ sagði Gunnéss. Frestur Serba til
að ljúka vopnaflutningunum og létta 3'A árs
umsátri um Sarajevo rennur út í kvöld sam-
kvæmt samkomulagi milli Richards Hol-
brooke, sendifulltrúa Bandaríkjastjórnar, og
leiðtoga Bosníu-Serba. Vestrænir ráðamenn
hafa varað við því að loftárásunum kunni að
verða haldið áfram.
Eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna sögðust
aðeins hafa séð tólf þungavopn flutt á brott,
fjögur stórskotavopn, þijá skriðdreka og fimm
sprengjuvörpur.
Friðarsamningur fyrir árslok?
Holbrooke hélt friðarumleitunum sínum
áfram í gær og ræddi við Slobodan Milosevic,
forseta Serbíu. William Perry, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, kvaðst vongóður um að
friðarviðræðurnar bæru árangur. „Það gæti
tekið nokkra mánuði en ef svo fer fram sem
horfir tel ég að friðarsamningur verði undirrit-
aður í ár.“
Perry staðfesti þessa bjartsýni með því að
falla frá áformum um að senda „Stealth“-orr-
ustuþotur til Ítalíu í því skyni að beita þeim
gegn Bosníu-Serbum.
Serbar sakaðir um fjöldamorð
Stjórnarher Bosníu og Króatar héldu sókn
sinni áfram í mið- og norðvesturhluta lands-
ins og hafa náð 2.000 ferkílómetra svæði á
sitt vald. Um 70-90.000 serbneskir íbúar
svæðisins hafa lagt á ftótta vegna átakanna.
Utvarpið í Sarajevo hélt því fram að serb-
neskir hermenn hefðu drepið 21 íbúa bæjar-
ins Donji Vakuf áður en stjómarherinn náði
honum á sitt vald í vikunni sem leið. Friðar-
gæsluliðar gátu ekki staðfest þetta og kvört-
uðu yfir því að bosníska lögreglan leyfði
þeim ekki að rannsaka málið.
Úrhelli og fellibylur í Kyrrahafi
Reuter
HITABELTISSTORMUR gekk yfir
Filippseyjar í gær og monsúnúrhelli olli
flóðum í höfuðborginni, Manila. Á mynd-
inni hjólar ungur Manila-búi framhjá
piltum sem ærslast í vatni á götunni.
Norðar á Luzon-eyju urðu 20.000 manns
að flýja heimili sín vegna flóða og aur-
skriða. Enn norðar í Kyrrahafi stefndi
fellibylurinn Óskar í átt að strönd Jap-
ans og búist er við að hann komi að
Tókýó í kvöld. Þetta er einn mesti felli-
bylur á þessum slóðum eftir stríð.
Hjónum greitt
fyrir tryggð?
KONUR í breska íhaldsflokknum hafa
lagt til að hjón, sem ná því að halda
upp á tíu ára brúðkaupsafmæli, fái
„tryggðarbónus", eða sérstakar
endurgreiðslur frá skattinum. Mark-
miðið með þessum greiðslum yrði að
fækka skilnuðum og hvelja fólk til að
hlúa að hjónabandinu. Hjónin fengju
þessar greiðslur á tíu ára fresti eftir
að þau ættust.
Konurnar vilja að skattkerfinu verði
breytt giftu fólki í hag. Þær beita sér
ennfremur fyrir því að heimavinnandi
mæðrum verði umbunað fyrir að ann-
ast sjálfar um börnin, að sögn dag-
blaðsins The Times.
Klám vinsæl-
ast á Alnetinu
KLÁM er vinsælasta efnið á Alnetinu,
samkvæmt könnun sem Harold
Thimbleby, prófessor í tölvurannsókn-
um við Middlesex-háskóla, kynnti á
þingi breskra vísindamanna á dög-
unum.
„Sumir hafa kallað Alnetið tölvu-
heimsþorp. Sé það rétt lýsing er þetta
þorp að stærstum hluta fjölfarið vænd-
ishverfi," hafði The Independent eftir
Thimbleby. „Of fáir bjóða upp á áhuga-
verða eða gagnlega þjónustu."
Prófessorinn segir að könnunin
bendi til þess að tæpur helmingur allra
leita á veraldarvefnum snúist um kyn-
líf. Ennfremur hafi komið fram að tí-
unda hver verslun, sem noti Alnetið,
selji klám- eða kynlífsefni.
Morðingi sýn-
ir nýja hlið
LJÓÐ eftir kanadískan fjöldamorð-
ingja komst í úrslit bandarískrar ljóða-
samkeppni en dómnefndin féll frá
ákvörðun sinni þegar hún komst að
því hver höfundurinn var.
Clifford Olson, sem var dæmdur
fyrir morð á átta stúlkum og þremur
drengjum árið 1982, orti ljóð sem hann
nefnir „Velgengni". í ljóðinu segir að
velgengnin felist í því að lifa „hreinu
Iífi“ og gera sitt besta.
„Þetta var mikið áfall fyrir okkur,
enda hefur þetta aldrei gerst áður,“
sagði talsmaður Kanadíska ljóðasafns-
ins, sem stendur fyrir samkeppninni.
Hann sagði að stofnunin, sem verð-
launar ljóð ársfjórðungslega, fengi
þúsundir ljóða í hverjum mánuði og
þetta væri í fyrsta sinn sem skáld
væri dæmt úr leik fyrir annað en rit-
stuld.
KINA
Á TÍMA-
MÓTUM
ÞETTA ER
BARDAGI
vmsmpniaviNNUiíF
ASUNNUDEGI
VILJl, ÞOR OG KRAFTUR
ER ALLTSEM TIL ÞARF