Morgunblaðið - 17.09.1995, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 17.09.1995, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ________________________LISTIR Ekki hægt að koma í veg fyrir að fólk lesi Jason Epstein vinnur við útgáfu hjá banda- ríska forlaginu Random House. Karl Blöndal komst að því að hann er óttalaus um framtíð bókarinnar, en fínnst hins vegar vera skortur á góðum rithöfundum um þessar mundir. JASON Epstein er matargat. Hann er einnig innsti koppur i búri eins stærsta útgáfufyr- irtækis Bandaríkjanna, Ran- dom House, og hafði um langt skeið yfirumsjón með öllum bókaforlögum þess. Epstein hyggst á næstunni gefa út Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness í Bandaríkjunum og hefur ekki áhyggjur af því að bókin verði ekin niður á upplýsingahraðbraut- inni, hvað sem öllum hrakspám líður. „Það hvarflar ekki að mér eitt augnablik að hætta sé á að bókin verði úrelt,“ sagði Epstein yfir morg- unverði með digran vindil skagandi upp úr bijóstvasa skyrtu sinnar. „Það sem er framleitt er ekki jafn gott og það var, rithöfundar þessarar kynslóðar standa sig ekki jafn vel og maður hafði búist við. Sá rithöf- undur er vandfundinn í mínu heima- landi, eða Englandi, sem mun kom- ast hjá því að hverfa með næstu kynslóð. En það kemur rafmiðlum (electronic media) ekkert við, heldur einhveiju^ öðru, sem ég veit ekki hvað er. Ég held að þessir ijölmiðlar eigi ekki eftir að breyta neinu um það hvernig bækur eru skrifaðar eða framleiddar. Ég get ekki ímyndað mér að fólk eigi eftir að lesa bækur á tölvuskjám." í mótsögn við mannlegt eðli Þaðan af síður getur hann ímynd- að sér að fólk hætti einfaldlega að lesa: „Slíkt væri í mótsögn við mann- legt eðli,“ sagði Epstein. „Fólk les rétt eins og það borðar og andar. Það er ekki hægt að koma í veg fyrir að fólk lesi. Það er þess vegna, sem auglýsingar hafa áhrif: það er hægt að trana fram fáránlegasta efni og fólk les það.“ Epstein kvaðst þeirrar hyggju að mest lesnu bækurnar væru verri en áður. „Ástæðan er sjónvarp," sagði hann. „Ákveðið fólk kemur fram í sjónvarpi og bækur þessa fólks verða mjög vinsælar. Bókin, sem nú trónar á toppinum, er eftir einhvem sjón- varpsmann, sem ég hef aldrei heyrt á minnst. Um leið og einhver verður vinsæll í sjónvarpi er rakið metsö- luráð að setja nafn hans á bó- kakápu. Svo skrifar einhver annar bókina." Hann er ekki hrifnari af metsölu- listanum yfir skáldsögur: „Hann er til skammar. Þar er ekki að finna alvarlega skáldsögu." Epstein sagði að þetta hefði verið á annan veg fyrir tveimur áratugum. Þá var viss tegund vinsælla sagna aðeins gefin út í pappírskilju. Þær voru ekki taldar nógu mikilvægar til að koma út í hörðu bandi. Höfundar þessara bóka urðu hins vegar marg- ir eftirsóttir og gátu farið fram á meira fyrir sinn snúð. Það voru tak- mörk fyrir því hvað hægt var að hækka kilju í verði, en sá vandi var leystur með því að gefa þessa höf- unda út í hörðu bandi. „Margar þessara bóka á-vinsælda- listunum hefðu verið gefnar út í pappírskilju og hent fyrir tuttugu árum,“ sagði Epstein. Random House Random House hefur fjölda bóka- forlaga á sínum snærum: þar má KVIKMYNPIR Háskólabló, Sagabíó og Borgarbíó Aku rey ri CASPER Leikstjóri Brad Silberling. Handrits- höfundar Sherri Stoner og Deanna Oliver. Tónlist James Horner. Kvik- myndatökustjóri Dean Cundy. Sjón- rænar brellur ILM. Aðalleikendur Christina Ricci, Bili Pullman, Cathy Moriarty, Eric Idle. Bandarísk. Uni- versal 1995. CASPER er hreinræktað ævin- týri enda úr smiðju Amblin fyrir- tækis Stevens Spielberg með dæmalaust góðri brellugerð, ætt- aðri úr galdraverksmiðju George Lúcas, Industrial Light and Magic. Þegar þessir tveir töframenn leiða saman alla sína kunnáttu er öllum hindrunum rutt úr vegi, hver ný mynd er nýr sigur í brellutækni Casper og Kata nútíma kvikmyndagerðar. Myndin reynir að vera e.k. E.T. að handan en nær því ekki en er hinsvegar dúndurskemmtileg rússíbanareið fyrir alla fjölskylduna, að ekki sé talað um smáfólkið. Kvenskass (Cathy Moriarty) erfir sannkallað draugabæli norður í Maine og er það hið eina sem hún fær eftir karl föður sinn. Hún og félagi hennar (Eric Idle) komast að því að fjársjóður er falinn í hjallin- um og ennfremur að þar er kol- reimt. Ráða því draugabanann Harvey sér til fulltingis og mætir hann á staðinn ásamt Kötu (Christ- ina Ricci) dóttur sinni. Hún vingast við góða drauginn Casper en karl faðir hennar á fullt í fangi með að yeijast þrem, öllu illvígari aftur- göngum. Og skassið fylgist með framvindunni. Brellusmiðirnir eru fremstir og skapa sannkölluð stórvirki, hreint makalausan draugagang þar sem öll áherslan er lögð á gamansemina enda minnir Casper óneitanlega á fjölskyldumynd frá Disney-verk- smiðjunum. Allt á léttum ævintýra- nótum; góðir draugar og slæmir og gott mannfólk og vont. Eric Idle og Cathy Moriarty sprella konung- lega fyrir litla fólkið en Pullman nær sér ekki vel á strik. Það er hinsvegar Christina Ricci sem stelur senunni í hópi leikpersóna af holdi og blóði. Bamastjarnan úr Addams fjölskyld u-myndunum er orðin bráðefnileg, ung leikkona. Fjöl- skyldugamni í þessum gæðaflokki er fyrirgefin dulítil væmni undir lokin. Hún skaðaði ekki ánægju yngstu áhorfendanna og þá er til- ganginum náð. Sæbjörn Valdimarsson Smábréf til forseta Bandalags íslenskra listamanna Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld ÞAR sem þú ert málsvari og í raun eins konar réttar- gæslumaður íslenskra lista- manna, vil ég skjóta til þín máli, er varðar meðferð á hugverki. Svo er mál með vexti, að ég hef unn- ið úr þjóðlagi nokkru tónverk, sem þekkt er undir nafninu Vísur Vatnsenda-Rósu. Verkið er í þrí- skiptu formi og er A hluti þess íslenskt þjóðlag, en B hluti mín tónsmíð. Þá er einnig þess að geta, að í niðurlagi þjóðlagsins, Enginn lái öðrum frekt, eins og það er á blaðsíðu 831 í þjóðlaga- safni Bjama Þorsteinssonar, breytti ég tveimur síðustu töktun- um (af átta töktum lagsins). Höf- undarréttur minn nær því yfir breytinguna á þjóðlaginu, frum- gerð miðhlutans og samskipan þessara laga, sem mynda þá heild, er nefnast Vísur Vatnsendá-Rósu en hennar er aðeins getið í megin- máli á bls. 813, í safni Bjarna. í kvikmyndinni Tár úr steini eru þessar tónhendingar notaðar, það er, laglínan óbreytt, eins og ég útbjó hana og samdi en með annarri hljómskipan. Tónlist kvik- myndarinnar er gefin út á geisla- diski og er gerð mín á þjóðlaginu notuð í nr. 7 og í nr. 11 er lagið í heild, fyrst leikið á píanó, þá af blásurum og síðan af fullri hljóm- sveit í raddsetningu þinni og skrá- ir þú þig sem höfund tónlist- arinnar. Það skal tekið fram, að geisladiskurinn er gefinn út af Islenskri tónverkamiðstöð, fyrir- tæki, sem Jón Leifs og ég ásamt öðmm félögum í Tónskáldafélagi íslands stofnuðum, til hagsbóta fyrir íslensk tónskáld og til að vernda fjölföldunarétt þeirra á eigin hugverkum. Mörgum kann að þykja hér mikið gert úr litlu en höfundarétt- ur tekur ekki mið af því en hefur sömu stöðu, er gildir um allar eignir manna, stórar og smáar. Varðandi tónlistarhugverk er lagt bann við því að taka það upp sem heild, eða að hluta til, útsetja eða fjölfalda með einhveijum hætti án leyfis höfundar. Varðandi þetta lag má skipta umhugsunaratriðunum í sex þætti, að mínu mati; 1) breytinginguna á þjóðlaginu og miðlagið notar þú óbreytt án leyfis, 2) raddsetur án leyfis, 3) hljóðritar án leyfis, 4) notar það í kvikmynd án leyfis, 5) gefur það út á geisladisk án leyfis og síðast en ekki síst, 6) eignar þú (úsetjari) þér allt hugverkið. Þrátt fyrir að þú eigir að vaka yfir rétti samlistamanna þinna, ætla ég ekki að setja þig í sömu stöðu og Salomon, að dæma í eig- in sök, heldur senda Stefi ósk um að þetta mál verði tekið til athug- unar, því of oft hafa höfundar orðið að þola misnotkun verka sinna, án þess að réttur þeirra hafí verið virtur og er mál að linni, því svona gerir maður ekki. Reykjavík, 15. september 1995, Jón Asgeirsson. Morgunblaðið/Þorkell JASON Epstein vinnur að bókaútgáfu hjá stærsta forlagi Bandaríkjanna. nefna bókaforlögin Pantheon, Knopf, Vintage, New York Times Books, Ballantine, Fawcett og Crown svo eitthvað sé nefnt. Epstein var rit- stjóri þeirra allra, en lét endanlega af því starfí fyrir ári. Nú kvaðst hann aðeins fást við það, sem honum þætti áhugavert, auk þess sem hann feng- ist við matargerðarlist af mikilli elju. Sér hefði meira að segja tekist að leggja eldhús eitt í Reykjavík undir eldamennsku sína eina kvöldstund. Hann kvað ábyrgðina á því hvað bækur um þessar mundir væru rislitl- ar ekki liggja hjá forlögunum: „Við fáum einfaldlega ekki góð handrit." Epstein ,er útgefandi Ólafs Jó- hanns Ólafssonar og finnst mikið til hans verka koma. Hann hefur einnig lesið enska þýðingu á Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness, sem nú er aðeins fáanleg í fornbókaverslun- um vestan hafs. Epstein hyggst gera þar breytingu: „Mér fínnst það yndis- leg bók,“ sagði Epstein. „Hún verður gefin út í kilju með formála eftir Brad Leithauser, sem er ljóðskáld og á stóran þátt í þessari útgáfu.“ Nýjar bækur Hollensk verð- launaskáldsaga EINN vinsælasti og um leið virtasti rithöfundur Hollendinga, Cees Nooteboom, er gestur á bókmenntahátíð 1995 sem nú stendur yfir. Hann hlaut Evrópsku bókmenntaverðlaunin árið 1993 fyrir bók sína Sagan sem hér fer á eftir sem kom út í gær hjá Vöku-Helgafelli. Cees Nooteboom fæddist í Haag í Hol- landi árið 1933. Hann missti föður sinn í síð- ari heimsstyrjöld í loftá- rás á Haag og varð fjöl- skyldan að flytja út í sveitir landsins eftir það. Hann hlaut menntun sína meðal munka en það gekk ekki þrautalaust fyrir sig því að hann var fjórum sinnum rekinn úr skóla. Frá árinu 1953 hefur hann ferðast um heiminn og skrifað um ferðir sínar. Nooteboom gat sér fyrst orð sem skáldsagnahöfundur árið 1980 með bók sinni Rituelen, en frægasta bók hans er Sagan sem hér fer á eftir og er hún sjöunda skáldsaga No- otebooms, en hann hef- ur hlotið fjölmargar við- urkenningar fyrir bæk- ur sínar. Sagan sem hér fer á eftir hefur hvarvetna fengið lofsamlega dóma. Marcel Reich- Ranicki, sem varð fræg- ur fyrir það á dögunum að rífa nýjustu bók Gúnters Grass í sig á forsíðu Spiegel, sagði í umsögn sinni um Nooteboom og Söguna sem hér fer á eftir: „Einn merkasti rithöfundur Evrópu og kannski ein merkasta bók sem ég hef lesið á þessu ári.“ Utgefandi er Vaka-Helgafell. Kristín Waage þýddi bókina sem er 125 blaðsíður. Bókin kostar 1.990 kr. Cees Nooteboom Göngnlag tímans ÚT ER komin skáld- sagan Göngulag tímans eftir þýska rit- höfundinn Sten Na- dolny, sem nú er gestur Bókmenntahátíðar. Sagan Ijallar um hinn fræga enska sæ- fara og landkönnuð John Franklin (1786- 1847). Sá Franklin sem Nadolny hefur skapað er að mörgu leyti frá- brugðinn hinni sögu- legu fyrirmynd. Hann er einkennilega hægur í tali og hugsun og öll- um viðbrögðum og leggur annan mæli- kvarða á timann en flestir i kringum hann. Er öll sagan sögð frá sjónar- homi hins hægláta. Segir hér frá æsku Franklins þar til hann gengur í sjóherinn. Hann tekur þátt í blóðugum sjóor- ustum við Kaupmanna- höfn og Trafalgar. Eftir að ferli hans í sjóhemum lýkur gerist hann land- könnuður og leggur upp í erfíða leiðangra í leit að siglingaleið í norðri frá Atlantshafí til Kyrra- hafs. Loks gerist hann nýlendustjóri í Tasma- niu. Þessi sögulega skáldsaga heitir á frum- málinu Die Entdeckung der Langsamkeit og kom fyrst út árið 1983. Síðan hefur hún verið þýdd á fjölda tungumála. Útgefandi er Mál og menning. Arthúr Björgvin Bollason þýddi bók- ina sem er 310 blaðsíður. Bókin kost- ar 3.480 kr. Sten Nadolny

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.