Morgunblaðið - 17.09.1995, Qupperneq 38
38 SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Ferdinand
Smáfólk
Svo þetta er úlfaldi, er Ég hélt að það væri
það? svellslípari...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Vetrarstarf
í Bústaðakírkju
Frá Pálma Matthíassyni:
SUNNUDAGINN 17. september
hefst vetrarstarfið í Bústaðakirkju.
Þá breytist messutíminn og al-
mennar messur verða kl. 14.00.
Starfið verður fjölbreytt og líflegt
og leitast er við að allir megi fínna
eitthvað við sitt hæfí.
Barnaguðsþjónustur
Barnastarf verður alla sunnu-
daga kl. 11 árdegis og eru foreldr-
ar sérstaklega hvattir til þátttöku
með bömunum. Þar verður, auk
helgihaldsins, fræðsla, söngur og
leikir auk þess sem farið verður í
heimsóknir og vorferðalag. Sam-
starfsmenn í bamastarfi verða
Bára Elíasdóttir og Jóhann Þor-
steinsson auk sóknarprests og org-
anista.
Guðsþjónustur
Almennar guðsþjónustur verða
kl. 14. Félagar úr kirkjukórnum
munu syngja einsöng í messunum
í vetur. Þannig mun Kristín Sig-
tryggsdóttir syngja næstkomandi
sunnudag. Einnig mun barnakór-
inn syngja mánaðarlega í messun-
um.
Starf aldraðra
Starf aldraðra hefst með haust-
ferðalagi miðvikudaginn 27. sept-
ember og verður farið frá kirkj-
unni kl. 14.00. Samverur fyrir aldr-
aða verða síðan í vetur á miðvuiku-
dögum kl. 13.30 til 16.30 og er
starfið undir stjórn Aslaugar Gísla-
dóttur. Með henni starfar hópur
kvenna að fræðslu, handavinnu,
spilamennsku og að sjálfsögðu ilm-
andi veitingum.
Þá er öldruðum í sókninni boðið
upp á fótsnyrtingu á fímmtudags-
morgnum í Safnaðarheimilinu og
er skráning hjá kirkjuvörðum.
Mömmumorgnar
Mömmumorgnar hefjast
fímmtudaginn 29. september. Þar
koma mæður saman og eiga nota-
lega samveru með spjalli og kaffi-
sopa og einnig verða flutt fræðslu-
erindi. Enda þótt nafnið höfði
fremur til mæðra en feðra, þá eru
þeir að sjálfsögðu velkomnir. Um-
sjón með mömmumorgnum hafa
Kristín Sigurðardóttir og Þórunn
Helga Þorkelsdóttir.
Þá verður þriggja kvölda
fræðsla um sjálfstyrkingu kvenna
og verður fyrsta samveran 2. októ-
ber. Halla Jónsdóttir hefur fram-
sögu á námskeiðinu.
Þá hittist gönguhópur við kirkj-
una á þriðjudagskvöldum kl. 20.45.
Barna- og bjöllukórar
Barna- og bjöllukórar verða
starfandi í vetur undir stjórn
organistans, Guðna Þ. Guðmunds-
sonar og Erlu Þórólfsdóttur. Þessir
kórar verða þátttakendur í helgi-
haldi safnaðarins á margvíslegan
hátt. Starf þessar kóra hefur verið
mikil lyftistöng í öllu safnaðar-
starfinu og má þar ekki síst nefna
vakandi áhuga foreldra, sem hafa
fylgt börnum sínum dyggilega í
þessu starfi.
Kirkjukórinn
Þá er starf kirkjukórsins að hefj-
ast, en hann ber uppi safnaðarsöng
í almennum guðsþjónustum og
tekst auk þess á við stærri verk-
efni. Þeim er áhuga hafa á kór-
starfi er bent á að hafa samband
við organistann, Guðna Þ. Guð-
mundsson.
Þá er stefnt að því að halda
áfram með kirkjulega sveiflu með
líkum hætti og vinsæl var á síð-
asta vetri. Þá verða Purchell-tón-
leikar á dagskrá kirkjukórsins.
Einnig verða hljóðfæraleikarar
ungir sem eldri þátttakendur í
helgihaldinu í vetur.
Fermingarstarfið
Fermingarstarfið er nú að hefj-
ast og er skráning fermingarbarna
í kirkjunni milli kl. 16 og 18 mánu-
daginn 18. september. Þau ferm-
ingarbörn sem eru í Réttarholts-
skóla verða skráð í skólanum.
Unglingastarf
Æskulýðsstarf unglinga verður
í vetur starfrækt í fjórum deildum
yngri og eldri unglinga og eru
Halldór Elías Guðmundsson og
Sigurður Grétar Sigurðsson um-
sjónarmenn starfsins. Þeim til að-
stoðar verða Fríða Kristinsdóttir
og Jenný Brynjarsdóttir. Undan-
farna vetur hefur verið farið í
ferðalög og heimsóknir auk vor-
ferðálags. Þetta er þróttmikið starf
sem tengir unglingana helgihaldi
og kirkjustarfi. Þá verður í vetur
farið af stað með þá nýbreytni og
bjóða ungmennum á framhalds-
skólastigi til þátttöku í kristilegu
starfí kirkjunnar og mun Sigurður
Grétar annast þann hóp og annast
fræðslustundir.
Kvenfélag Bústaðasóknar
Kvenfélag Bústaðasóknar hefur
þróttmikið starf sitt með félags-
fundi 9. október. Síðan verða fund-
ir annan mánudag hvers mánaðar.
Starf félagsins hefur verið öflugt
og heilladrjúgt í starfí kirkjunnar
og eru konur sérstaklega hvattar
til þess að kynna sér starf félags-
ins.
Auk þess er að framan greinir
eru starfandi mörg samtök og hóp-
ar í kirkjunni, sem kalla fólk til
staraf. AA-samtökin eru með sam-
verur á miðvikudags- og föstu-
dagskvöldum og laugardags-
morgnum.
Það er von mín að sem flestir
finni sig heima í starfí Bústaða-
kirkju í vetur og njóti þar blessun-
ar Guðs til uppbyggingar í lífi sínu
og starfí.
PÁLMI MATTHÍASSON,
sóknarprestur í Bústaðaprestakalli.
Allt efni sem birtist ( Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.