Morgunblaðið - 09.02.1996, Page 2

Morgunblaðið - 09.02.1996, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Fjórir sjálfstæðismenn með frumvarp um sjávarútveg Vilja leyfa allt að 49% erlenda fjárfestingn ERLENDIR aðilar mega eiga allt að 49% hlut í fyrirtækjum, sem stunda fiskveiðar og fiskvinnslu, samkvæmt frumvarpi sem Kristján Pálsson og þrír aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram á Alþingi. Þriðja frumvarpið Þeir segja í greinargerð að því fyrr sem stór skref verði stigin í átt til frjálsari samskipta við er- lenda fjárfesta og íslenskum fyrir- tækjum sé gefínn kostur á að til- einka sér breytingar sem nú eiga sér stað í hinum vestræna heimi, þeim mun betur muni ganga að bæta kjör almennings á Islandi. Tvö önnur lagafrumvörp um er- lenda fjárfestingu í sjávarútvegi liggja fyrir Alþingi. Annað er frá þingmönnum Þjóðvaka um að heim- ila útlendingum að eiga allt að 20% í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækj- um. Hitt er stjórnarfrumvarp um erlenda fjárfestingu en þar er að- eins gert ráð fyrir óbeinni eignar- aðild útlendinga, allt að 25%. Oryggi landsins ekki stefnt í hættu Þingmennirnir fjórir segja í greinargerðinni að með tilkomu samninga um Evrópska efnahags- svæðið hafí verið gert ráð fyrir að fjárfesting aðila innan þess yrði heimil á Islandi með undantekning- um í orkufyrirtækjum, flugi og sjáv- arútvegi. í frumvarpi ríkisstjórnar- innar um erlenda fjárfestingu sé gert ráð fyrir að bein fjárfesting erlendra aðila sé allt að 49%. Ekki sé hægt að sjá nein rök fyrir því að mismuna fyrirtækjum á íslandi að þessu leyti. Ástæður eins og að sjálfstæði landsins sé stefnt í hættu eigi ekki við lengur enda sé örygg- isákvæði í stjórnarfrumvarpinu, sem heimili viðskiptaráðherra að stöðva erlenda f árfestingu ef hún ógnar öryggi landsins eða gengur gegn allsherjarreglu, almanna- öryggi eða almannaheilbrigði. Flutningsmenn með Kristjáni Pálssyni eru Pétur H. Blöndal, Vil- hjálmur Egilsson og Guðjón Guð- mundsson. Byggðastofnun styrkir Skagfirðinga Nokkrir bændur fá 100 minka Gullnáman Ungur mað- ur fær Gull- pottinn MAÐUR á þrítugsaldri hlaut 12 millj- ón króna Gullpott í spilakassa Gull- námunnar aðfaranótt fimmtudags. Ungi maðurinn fékk upp tákn fyr- ir Gullpottinn í spilakassa á vegum Gullnámunnar á veitingastaðnum Ölveri í Glæsibæ rétt eftir miðnætti á miðvikudag. Hann fékk kvittun fyrir Gullpottinum á veitingastaðn- um og er nú 12.069.700 kr. ríkari. Um leið og táknin birtust á spilakass- anum bárust merki um að vinningur hefði komið fram hjá Happdrætti Háskóla íslands. ------♦ » ♦---- Saulján árekstrar á einum degi SAUTJÁN árekstrar höfðu orðið á svæði lögreglunnar í Reykjavík frá kl. 8 í gærmorgun til kl. 10 í gær- kvöldi. Lögreglan aðstoðaði ökumenn í 15 tilvikum við að fylla út tjónstilkynn- ingar. Hins vegar voru aðeins fylltar út tvær skýrslur vegna umtalsverðs eignatjóns. Ekki er vitað um meiðsl á fólki. Lögreglan telur að fjölda árekstra megi fyrst og fremst rekja til þess að ökumenn hafi ekki hagað akstri miðað við aðstæður. Hún minnir á hversu mikilvægt sé að hafa gott bil á milli bíla og ekki síst þegar hálka leggst á götumar. Morgunblaðið/Ari Hafliðason Þyrla stað- sett á Pat- reksfírði í til- raunaskyni Patreksfirði. Morgunblaðið. ÞYRLA af gerðinni BELL 206 Long Ranger II í eigu Þyrluþjón- ustunnar hf. í Reykjavík lenti á gamla fótboltavellinum á Pat- reksfirði í gær. Stefnt er að því að þyrlan verði staðsett á Pat- reksfirði í þijá mánuði. Upphafið að þessu máli er erindi sem forráðamenn Þyrlu- þjónustunnar hf. sendu Vestur- byggð um að boðið væri upp á þjónustu sem þyrlan getur veitt á Patreksflrði og myndi hún þjóna Vestfirðingum öllum, sem öryggistæki eða til útleigu fyrir fyrirtæki. Vesturbyggð setti þriggja manna nefnd í málið sem m.a. sendi öllum sveitarfélögum á Vestfjörðum og stærri fyrir- tækjum bréf og óskaði eftir fjárstuðningi við rekstur vélar- innar á staðnum. Ólafur Örn Ólafsson, einn nefndarmanna, sagðist vona að áframhald yrði á þessu verk- efni. „Þetta er gífurlegt öryggis- atriði fyrir svæðið og fyllti menn öryggistilfinningu," sagði hann. Jón Kjartan Björnsson flug- stjóri, sem flaug vélinni vestur ásamt Kristni Unnarssyni, sagði að vélin hefði verið á Grænlandi og þjónað svæðinu í kringum Scoresbysund. Flugþol vélarinn- ar er þrjár og hálf klukkustund og tekur hún sex farþega og flugmann eða einar sjúkrabörur og tvo farþega. BYGGÐASTOFNUN hefur ákveð- ið að veita 4 milljónum kr. í nýtt tilraunaverkefni í atvinnuþróun í Skagafirði. 8-10 bændum verður hjálpað til að hefja loðdýrarækt með því að leggja þeim til 100 minkalæður hveijum eða samsvar- andi fjölda refalæða. Bændur í öðrum héruðum hafa sótt um sam- bærilega fyrirgreiðslu en ekki fengið afgreiðslu. Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar, segir að stór og góð fóðurstöð sé rekin á Sauðárkróki og í héraðinu sé töluvert af tómum loðdýra- skálum og búrum. Loðdýraræktendur framleiði stærri og betri skinn en víð- ast hvar sé mögu- legt og sé það meðal annars rakið til þess hvað fóðrið er gott. „Við viljum reyna að nýta betur þessa fóðurstöð ogfjárfestinguna í sveit- unum þar sem sauðfjárræktin stendur höllum fæti,“ segir Guð- mundur. Umsóknir úr öðrum héruðum Ekki er búið að úthluta þessum styrkjum en það verður gert í sam- ráði við Búnaðarsamband Skaga- fjarðar. Þá segir Guðmundur að það sé forsenda þessa verkefnis að Kaupfélag Skagfírðinga geti selt nýju bændunum fóðrið á sama verði og þeim loðdýrabændum sem fyrir eru. Þeir hafa notið fóðurnið- urgreiðslu Framleiðnisjóðs land- búnaðarins en ekki er gert ráð fyrir því að nýju loðdýraræktend- urnir njóti hennar. Eftir að fréttist um þessa ákvörðun Byggðastofnunar hefur um tugur manna af öðrum svæð- um óskað eftir sambærilegri fyrir- greiðslu til að heija loðdýrabú- skap. Guðmundur segir að um- ræddar 4 milljónir séu teknar af fé sem ákveðið var í búvörusamn- ingi að Byggðastofnun fengi til að styðja við atvinnu í sveitum. Ekki sé meira fé til ráðstöfunar. Spurður að því hvort ekki gætu verið svipaðar aðstæður til loð- dýraræktar í öðrum héruðum seg- ir Guðmundur að svo geti verið, en það hafí ekki verið kannað.enn. Farþega synjað um bætur vegna ölvunar ökumanns HÆSTIRÉTTUR hefur'synjað um skaðabæt- ur manni sem slasaðist alvarlega í Svíþjóð þegar bíll sem hann var farþegi í valt. Hæsti- réttur telur sannað að slysið hafi mátt rekja til ölvunar ökumannsins. Gullkortatrygging sem krafíst var bóta samkvæmt bæti ekki tjón sem rakið verði til áfengisneyslu og al- menn slysatrygging ekki tjón sem rakið verði til gáleysis en hvort tveggja þótti eiga við í málinu. Maðurinn hafði verið í sumarbústað kunn- ingja síns í Svíþjóð og höfðu báðir neytt áfeng- is. Þeir fóru saman í ökuferð um miðja nótt sem lauk með því að bíllinn hafnaði út af veginum. I Svíþjóð var ökumanninum refsað fyrir ölvunarakstur en ekki fyrir gáleysi í umferð þar sem líkur þóttu benda til að slysið mætti rekja til sprungins hjólbarða. Hæstiréttur taldi hins vegar ósannað að slysið yrði rakið til sprungins hjólbarða heldur sé langlíklegast að það hafí orðið vegna ölvun- ar ökumannsins sem hafi verið svo ölvaður að hann hafi verið óhæfur til að bregðast við hinu óvænta sem upp á kunni að koma við aksturinn. Með því að taka áhættu á að fara í ökuferðina hafi farþeginn undanskilið sig ábyrgð samkvæmt tryggingunum. Honum var því synjað um bætur en hann hafði krafíst rúmlega 26 milljóna króna í bætur annars vegar samkvæmt slysatrygg- ingu og hins vegar samkvæmt gullkortstrygg- ingu. Viðræðu- nefnd um sölu sjón- varpshússins HEIMIR Steinsson útvarpsstjóri hefur ákveðið að svara beiðni ís- lenska útvarpsfélagsins hf. um viðræður vegna hugsanlegra kaupa félagsins á sjónvarphúsinu við Laugaveg 176, með því að til- nefna þriggja manna könnunar- viðræðunefnd sem í eiga sæti Hörður Vilhjálmsson, fjármála- stjóri Ríkisútvarpsins, Markús Örn Antonsson, framkvæmdastjóri Út- varps, og Pétur Guðfinnsson, framkvæmdastjóri Sjónvarpsins. Björn Bjarnason menntamála- ráðuherra hefur ekki viljað tjá sig um afstöðu sína til húsnæðismála Ríkisútvarpsins þótt hann segist hafa ákveðnar skoðanir á því hvaða kostir séu hentugastir. Hann vilji bíða eftir tillögum nefndar sem hann skipaði á vor- mánuðum til að fjalla um málið. í bréfi sem Ríkisútvarpinu barst frá menntamálaráðherra segir: „Verði það niðurstaða forráða- manna Ríkisútvarpsins eftir at- hugun málsins, að stefna beri að sölu húseignarinnar, ber að senda menntamálaráðuneytinu erindi þess efnis. Þyki rétt að fallast á þá niðurstöðu mun verða óskað eftir því við fjármálaráðuneytið að það annist söluna í samráði við Ríkiskaup.“ Útvarpsstjóri, sem á sæti í áður- nefndri húsnæðisnefnd, sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær geta fullyrt að ennþá.lægi ekkert fyrir um afstöðu nefndarinnar enda hefði hún haldið fáa fundi. Nefndin hefði ætlað að skila tillög- um fyrir síðustu árslok en sam- kvæmt nýjustu upplýsingum er von á þeim með vorinu. > > > > > > i i I ; I l I I I I I \

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.