Morgunblaðið - 09.02.1996, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 09.02.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 11 FRETTIR Qlafur Jóhannesson lagaprófessor í grein um prentfrelsi og nafnleynd Bæði réttur og skylda til trúnaðar við heimildarmenn NAUÐSYNLEGT er að blaðamenn hafi rétt til að neita að segja til heim- ildarmanna sinna, sagði Olafur heit- inn Jóhannesson, lagaprófessor, í grein sem hann ritaði í Ulfljót, tíma- rit Orators, félags laganemat árið 1969. í greininni ieggur Ólafur áherslu á, að ftjálsræði blaðanna sé hyrningarsteinn eiginlegs prentfrels- is. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir vitnaði til greinar Ólafs á þingi á þriðjudag, þegar þingmenn ræddu þingsályktunartillögu um að nefnd endurskoði gildandi löggjöf um vernd trúnaðarsambands ijöímiðlamanna og heimildarmanna. Grein Ólafs nefnist „Prentfrelsi og nafnleynd" og í henni rekur hann m.a. þau lagaákvæði sem snerta við- fangsefnið. Ólafi verður tíðrætt um rétt höfunda prentaðs efnis til nafn- leyndar og segir að þó að nafnleynd- arréttur sé að vísu ekki óhjákvæmi- leg lögfylgja prentfrelsis, sé slíkur réttur samt óneitanlega talsverður þáttur í raunverulegu prentfrelsi, a.m.k. að því er til blaðanna taki. Prentfrelsi sé ekki aðeins dýrmætt fyrir hvern einstakling, heldur sé það einnig ásamt öðrum stjórnarskrár- vemduðum pólitískum réttindum, eins og t.d. almennum kosningarétti, fundafrelsi og félagafrelsi, nauðsyn- leg forsenda lýðræðislegra stjórnar- hátta. Eigi það ekki hvað síst við um hið svokallaða „pressufrelsi", þ.e. ritfrelsi blaðamanna og fréttaritara. Sé prentfrelsi á því sviði takmarkað sé lýðræðið í hættu. Ólafur segir, að í fljótu bragði mætti ætla, að blaðamönnum væri ekki mikil þörf á nafnleyndarrétti í lýðfijálsu landi, eða að slíkur réttur gæti a.m.k. ekki verið þeim mikils virði þar. Ennfremur mætti segja sem svo, að blaðamenn væru þar, jafnt og aðrir, ekki ofgóðir til að standa fyrir skoðunum sínum og birta þær undir nafni: „En ef betur er að gáð, verður nafnleyndarréttur ekki afskrifaður umsvifalaust á þennan hátt. í iýðræðislandi er ýmis- konar aðstöðumunur. Menn geta þar verið í minnihlutaaðstöðu; menn geta verið öðrum háðir á ýmsan hátt; menn vilja ekki koma fram á opinber- um vettvangi og blanda sér þar í deilur o.s.frv. Samt sem áður geta þeir menn, sem þannig er ástatt um, haft vitneskju eða upplýsingar, sem eiga erindi til almennings og æski- legt er að birtist í blöðum. Blöð gegna mikilvægu hlutverki í lýðræðislandi. Þau eiga að vera fijálsir fréttamiðl- ar, halda uppi gagnrýni á það, sem miður fer í þjóðfélaginu, og veita stjórnvöldum og öðrum forráða- mönnum aðhald. Góð blöð eiga að leita sannleikans og segja hann, þeg- ar við á, hver sem í hlut á. Fyrir greinarhöfunda í dagblöðum og heimildarmenn blaðamanna getur því nafnleyndarréttur haft sitt að segja. Hann getur meira að segja verið forsenda fyrir því, að blöðin geti rækt hlutverk sitt til fullnustu. Ef hann væri ekki fyrir hendi, fengju blaðamenn stundum alls ekki þær upplýsingar, sem þeim eru nauðsyn- legar, eða þær gagnrýnisgreinar, sem erindi eiga á prent. Segja má, að þessar röksemdir eigi öllu fremur við um þá, sem senda blöðum grein- ar, og heimildarmenn blaðamanna heldur en blaðamennina sjálfa. En fyrir blaðamenn getur verið mikils virði að hafa rétt til að neita að segja til heimildarmanna sinna. Þess vegna eru margir, sem segja, - að vísu ekki hvað síst blaðamenn, - að nafn- leyndarréttur a.m.k. að vissu marki sé nauðsynlegt skilyrði fyrir því, að prentfrelsi fái_ notið sín til fulls,“ segir í grein Ólafs. Ólafur segir' að prentlögin frá 1956, sem enn eru í gildi, séu augljós- lega byggð á þeirri reglu, að höfundi efnis sé óskylt að nafngreina sig og leiði það af ákvæðum um ábyrgðar- menn prentaðs efnis. Um það ábyrgðarkerfi sagði svo í gi-einargerð með frumvarpinu til prentlaga, að því væri ætlað að slá vörð um prent- frelsið, með því að sporna við eftir- grennslan yfirvalda um það, hveijir kunni að eiga hlutdeild í því, sem ritað sé, að ná með skjótum og virk- um hætti til þess, sem teljist sekast- ur og loks sérstaklega að vernda nafnleynd höfundar og heimildar- mapns. Ólafur segir langtíðast, að ritstjór- ar (ábyrgðarmenn) beri ábyrgð á efni dagblaða og vikublaða, enda sé meginefni margra þeirra blaða birt, án þess að nokkur höfundur sé til- greindur. Ef blaðamaður skrifi undir nafni beri hann ábyrgð á skrifum sínum, en bann við nafnleynd blaða- manna myndi tæpast samrýmast hugmyndum manna í lýðræðislandi um eiginlegt prentfrelsi. „Sérstak- lega er nauðsynlegt, að blaðamenn hafi rétt til að neita að segja til heim- ildarmanna sinna. Er í siðareglum blaðamanna ... einmitt lögð rík áhersla á, að blaðamaður bregðist ekki trúnaði heimildarmanns síns,“ segir Ólafur og vísar þar til þeirrar greinar siðareglnanna, þar sem segir að blaðamanni beri að virða nauðsyn- legan trúnað við heimildarmenn sína og sama gildi um skjöl og önnur gögn, sem honum sé trúað fyrir. Ölafur segir að nafnleyndarrétt blaðamanna eigi löggjafinn að viður- kenna skýrt og ótvírætt og frá hon- um eigi ekki að gera aðrar undan- tekningar en almannahagsmunir krefjist. „Nafnleyndarréttur á ekki aðeins að taka til greina, sem ritaðar eru í blað, heldur og til þeirra heim- ildarmanna blaðamanna, sem gefa þeim munnlegar upplýsingar. Hér á ekki aðeins að vera um rétt að ræða heldur og skyldu til leyndar. Sá leyndarréttur og sú leyndarskylda á ekki að ná til blaðamanna einna held- ur einnig annarra, sem vegna starfa sinna við útgáfu blaðs geta fengið vitneskju um höfund eða heimildar- mann, án þess að þeim sé frá því sagt, t.d. setjara í prentsmiðju." Ólafur leggur á það ríka áherslu, að fijálsræði blaðanna sé hyrningar- steinn eiginlegs prentfrelsis. Fólk Erindreki SYFÍ á Vest- fjörðum •SLYSAVARNAFÉLAG íslands hefur ráðið Bjarka Rúnar Skarp- héðinsson sem erindreka félagsins á Vestíjörðum frá og með 1. febrúar. Markmið starfsins er að vinna að frekari uppbygg- ingu björgunar- sveita og slysa- varnastarfs á Vestfjörðum en þar eru rúmlega 30 deildir og sveitir starfandi. Meðal þess sem Bjarki mun beita sér fyrir er að efla og samræma innra starf björgunarsveita-, slysa- varna- og unglingadeilda á svæð- inu, yfírfara þjálfunarmál björgun- arsveita, huga að tækjabúnaði og viðhaldi hans, jafnframtþví sem hann mun vera félagsfólki til ráð- leggingar og áðstoðar. Erindreka er einnig ætlað að vinna að því að kynna starf og stefnu Slysavarnafé- lags Islands, vinna að aukinni þekk- ingu almennings á orsökum slysa, helstu ráðum til að afstýra þeim og skapa skilning á mikilvægi slysa- varna- og björgunarstarfa í landinu. Bjarki Rúnar Skarphéðinsson er formaður björgunarsveitar Slysa- varnafélags íslands á Þingeyri. Hann hefur í mörg ár starfað í björgunarsveitinni og sótt námskeið bæði hérlendis og erlendis. Einnig hefur Bjarki verið aðal- og varaum- dæmisstjóri Slysavarnafélagsins á svæðinu. ÞREKPALLUR-AEROBIC-STEP. Það nýjasta í þjálfun. Þrek, þol og teygjur fyrir fætur, handleggi og maga. Þrjár mismunandi hæðar- stillingar, stöðugur á gólfi, æfingaleiðbeiningar. Verð aðeins kr. 4.700, stgr. 4.495. ÞREKSTIGI - MINISTEPPER. Litli þrekstiginn gerir næstum sama gagn og stór, en er miklu minni og nettari. Verð með gormum kr. 2.095, með dempurum kr. 4.900, og með dempurum og tölvumæli kr. 6.300, stgr. 5.985. Einnig fyrirliggjandi stórir þrekstigar, verð frá kr. 23.900, stgr. 22.705. Greiðslukort og greiðslusamningar Símar: 553 5320 568 8860 Ármúla 40 HLAUPABAND - GÖNGUBAND. Fótdrifið með hæðar- stillingu og fjölvirkum tölvumæli, verð aðeins kr. 17.900, stgr. 17.000. Rafdrifið með hæðarstillingu og fjölvirkum tölvumæli, verð aðeins kr. 65.000, stgr. 61.750. ÞREKHJÓL. Verð aðeins frá kr. 14.500, stgr. 13.775. Þrek- hjól m/púlsmæli og 13 kg. kast- hjóli kr. 19.500, stgr. 18.525. Bæði hjólin eru með tölvumæli, sem mælir tíma, hraða og vega- lengd, stillanlegu sæti og stýri og þægilegri þyngdarstillingu. LÆRABANINN kominn aftur. Verð aðeins kr. 790 með æfingaleiðbeiningum. Margvís- legar æfingar fyrir læri, brjóst, handleggi, bak og maga. Þetta vinsæla og handhæga æfingatæki er mikið notað í æfingastöðvum. HEILSUDAGAR ÍÞRÓTTASKÓR, fyrir aerobic, hlaup, körfubolta og innanhúss frá Adidas, Nike, Puma, Reebok og fl. ÆFINGATÆKI FRÁBÆR TILBOÐ ÞREKSTIGI - KLIFURSTIGI Verð aðeins kr. 22.500, stgr. 21.375. Fjölvirkur tölvumælir og stillanlegt ástig. Fjölnota æfingabekkur Bekkpressa, niðurtog, fluga og tví- virkt fótaæfingatæki. 9 þungaþrep. Tilboð aðeins 13.650 stgr. 12.970. Handlóð og lóðasett á frábæru verði. Fjölbreytt úrval. 5% staðgreiðsluafsláttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.