Morgunblaðið - 09.02.1996, Síða 12

Morgunblaðið - 09.02.1996, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Samningur um fjárfestingarverkefni á Eyjafjarðarsvæðinu Unnið verði að kynningu svæð- isins meðal erlendra fjárfesta HERAÐSNEFND Eyjafjarðar, Iðn- þróunarfélag Eyjafjarðar hf. og At- vinnumálaskrifstofa Akureyrar hafa gert samstarfssamning við Fjárfest- ingarskrifstofu íslands um að unnið verði að kynningu Eyjaíjarðarsvæð- isins meðal erlendra íjárfesta sem valkost vegna fjárfestinga í mat- vælaiðnaði. Áætlað er að verkefnið standi yfir í rúmt ár og að kostnað- ur verði 12 milljónir króna, sem skiptist á milli heimaaðila og fjár- festingarskrifstofunnar. Samhliða þessu verkefni er fyrir- hugað að vinna að undirbúningi og skipulagi vegna annars konar iðn- aðar en matvælaiðnaðar. Er um að ræða vinnu við mörkun iðnaðar- Vinnuslys á Togara- bryggjunni VINNUSLYS varð á Togara- bryggjunni á Akureyri í gær. Starfsmaður Útgerðarfélags Akureyringa hf., sem var að vinna við útskipum, klemmdist á milli lyftara og gáms og marð- ist nokkuð. Maðurinn var flutt- ur með sjúkrabifreið á FSA til skoðunar en meiðsli hans voru ekki talin alvarleg. Fyrir regnið KVIKMYNDAKLÚBBUR Akureyrar sýnir makedónísku myndina Fyrir regnið í Borgar- bíói á sunnudag 11. febrúar kl. 17 og mánudag 12. febrúar kl. 18.30. Myndin fjallar um hörmung- ar ófriðarbrölts mannsins og átakanlegar afleiðingar þess. Hún er í þremur hlutum, en persónur og atburðir tengjast. MESSUR LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkjuskóli næstkomandi laug- ardag, 10. febrúar í Svalbarðs- kirkju kl. 11.00 og í Grenivíkur- kirkju kl. 13.00. Guðsþjónusta í Grenivíkurkirkju á sunnudag, 11. febrúar kl. 14.00. Biblíu- dagurinn, Bogi Pétursson for- stöðumaður á Ástjörn prédikar. Kyrrðar- og bænastund í Greni- víkurkirkju sunnudagskvöldið 11. febrúar kl. 21.00. stefnu, gerð svæðisskipulags, út- tekt á vinnumarkaði og aðstæðum í Eyjafirði vegnar kynningar á svæðinu fyrir erlenda fjárfesta. Gert hefur verið sérstakt samkomu- lag milli Héraðsnefndar Eyjafjarð- ar, Byggðastofnunar og Markaðs- skrifstofu iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar um þennan þátt málsins. Bjami Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar, sagði að sjónum yrði beint að matvælaiðnaði í víðustu merkingu, hvort sem um væri að ræða átöppun á vatni eða vinnslu á físki. „Ætlunin er að ná til er- lendra fjárfesta sem annaðhvort KOSTNAÐUR við snjómokstur á Akureyri í síðasta mánuði var um 700 þúsund krónur en í sama mánuði í fyrra var kostnaðurinn tæpar 7 milljónir króna. Kostnað- ur við hálkueyðingu var hins veg- ar mun meiri í janúar sl. en í jan- úar 1995, eða um 900 þúsund krónur í ár en 340 þúsund i sama mánuði í fyrra. Akureyrarbær hefur jafnan notað sand til hálkueyðingar en í vetur og fyrravetur hefur verið í gangi tilraunaverkefni með vilja stofna til nýrra fyrirtækja eða koma inn í þau fyrirtæki sem fyrir eru á svæðinu. Það hefur verið nefnt að ýmislegt annað er hægt að gera en leita að álverum," sagði Bjarni. í matavælaiðnaðarverkefninu felst m.a. að kynna sérvöldum hópi fyrirtækja í matvælaiðnaði mögu- leika til að fjárfesta í vinnslu mat- væla á öllum sviðum matvælafram- leiðslu með áherslu á notkun þess hráefnis og þeirrar þekkingar sem til staðar er. Einnig verður útbúið vandað kynningarefni um aðstæður hérlendis á þessu sviði. Markmiðið með verkefninu er að freista þess að auka erlenda fjár- festingu á íslandi á þessu sviði iðn- Mun minni í ár en í fyrra notkun vikurs til hálkueyðingar. Gunnar Jóhannesson, verkfræð- ingur hjá Akureyrarbæ, segir að notkun vikurs hafi komið það vel út í fyrravetur að ástæða hafi þótt til að nota hann áfram í vetur. Vikurinn er dýrari en sandurinn en Gunnar segir að menn vonist aðar en einnig mun hluti vinnunnar nýtast sem undirbúningur undir kynningu svæðisins vegna annars konar atvinnurekstrar. Eyjafjörður er þekkt matvæla- vinnslusvæði. Þar starfa nokkur stærstu matvælaframleiðslufyrir- tæki landsins og hefur velta þessar- ar greinar farið vaxandi undanfarin ár. Með sanni má segja að matvæla- vinnsla sér stóriðja á svæðinu því heildarvelta matvælaiðnaðarins á svæðinu eru upp undir 20 milljarðar króna á ári. Fjárfestingarverkefnið fellur því vel að þessari ímynd svæð- insins, segir í fréttatilkynningu frá Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar. til að hann hafi ekki eins slæm áhrif á lagnakerfi bæjarins og sandurinn. „Við teljum að tugir tonna af sandi hafi farið ofan í lagnakerfið í rigningunni sl. sunnudagskvöld. Þegar mikill straumhraði er á vatninu berst sandurinn fram en þegar straum- hraðinn er minni sest sandurinn í lagnakerfið og situr þar eins og steypa. Þannig að við erum aðeins að velta þessu fyrir okkur og fylgj- umst með því hvort vikurinn sest eins í lagnakerfið," segir Gunnar. Tónleikar í Safnað- arheimili MICHAEL Jón Clarke og Ric- hard Simm halda tónleika á vegum Tónlistarfélags Akur- eyrar í Safnaðarheimili Akur- eyrar á morgun, laugardaginn 10. febrúar, kl. 17. Á efnisskránni er verkið Dic- hterliebe eftir Robert Schum- ann og íslensk sönglög eftir Jórunni Viðar, Atla Heimi Sveinsson, Hjálmar H. Ragn- arsson, Árna Thorsteinsson og Sigfús Einarsson. Michael Jón Clarke hefur starfað sem fíðlu- og söngkenn- ari og kór- og hljómsveitarstjóri á Akureyri í röska tvo áratugi og komið fram sem einsöngvari við fjöldamörg tækifæri, heima og erlendis. Richard Simm hefur búið á íslandi frá árinu 1989 og stund- að tónlistarkennslu, fyrst í Skagafirði og síðan á Akureyri. Hann hefur komið fram á tón- leikum víða um heim og unnið til viðurkenninga fyrir píanóleik. Heimspeki- fyrirlestur PÁLL Skúlason heimspekingur flytur fyrirlestur, sem nefnist Umhverfing, í Deiglunni í Kaupvangsstræti á morgun, laujgardaginn 10. febrúarkl. 14. I fyrirlestrinum fjallar Páll um forsendur umhverfis- og náttúruverndar og hyggst hann skýra ýmsar grundvallarhug- myndir og viðhorf í rökræðum um umhverfismál, þar á meðal greinarmuninn á umhverfis- hyggju og náttúrverndar- hyggju. Félag áhugafólks um heim- speki á Akureyri efnir til fyrir- lestrarins og hefst starf þess á nýju ári með heimsókn dr. Páls. Kostnaður við snjómokstur í janúar Morgunblaðið/Kristján STARFSMENN Akureyrarbæjar þurftu að ræsa snjóruðningstæki bæjarins í gærmorgun en þá var 10-15 sm jafnfallinn snjór i bænum. Okumenn þurftu að taka fram sköfurnar og hreinsa bíla sína og á meðal þeirra var Hrafnhildur Eiríksdóttir, sem hér er að hreinsa af bíl sínum, fyrir framan íbúð sína við Vestursíðu. Tilmæli frá Morgunblaðinu til þeirra sem hafa borið út Morgunblaðið í afleysingum eða eru hættir! Hafið þið gleymt að skila pokum eða kerrum? Ef svo er vinsamlega hringið og látið okkur vita. Komum og sækjum. 56<? 1122 Slökkvilið Akureyrar Tvö útköll á tæp- um hálftíma SLÖKKVILIÐ Akureyrar var kallað út tvívegis á sama klukkutímanum í fyrrakvöld. Þegar mest var voru 11 slökkviliðsmenn að störfum í einu á þremur slökkviliðsbílum. Þrír menn eru á vakt hveiju sinni en allt liðið var kallað út þegar fyrra útkallið kom. Kl. 19.17 var tilkynnt um eld í þvottahúsi i kjallara húss í Víðimýri og á meðan unnið var að slökkvi- starfi þar, eða kl. 19.40, kom beiðni um aðstoð frá Kristjánsbakarí við Ilrísalund. Þar varð skammhlaup í rafmagnstöflu og myndaðist mikill reykur, samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins. Rafvirkjar, sem voru að vinna við rafmagnstöflu í Kristjánsbakaríi, misstu vírbút niður í töfluna og við það varð samsláttur og sprenging og myndaðist mikill reykur. Hluti slökkviliðsmanna, sem voru í útkall- inu í Viðimýri, svo og menn sem voru til taks á slökkvistöðinni fóru í Kristjánsbakarí. Þar var húsið reyklosað og gekk sú vinna vel. Einnig gekk vel að ráð niðurlögum eldsins í Víðimýri en eldsupptök eru ókunn. Farið var á tveimur slökkviliðsbíl- um í útkallið í Víðimýri en annar þeirra fór svo að Kristjánsbakaríi og einnig bíll af stöðinni. Þá var sjúkra- bifreið notuð til að flytja búnað á milli útkallsstaðanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.