Morgunblaðið - 09.02.1996, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 17
ERLENT
dSf stutt
Þingið
víkur
Slezevic-
ius frá
ÞING Litháens samþykkti í
gær að víkja forsætisráðherra
landsins, Adolfas Slezevicius,
frá með miklum meirihluta
atkvæða. 94 þingmenn af 123
voru hlynntir brottvikningu
forsætisráðherrans, sem sætti
gagnrýni fyrir að notfæra sér
sér vitneskju um slæma stöðu
banka, sem var lokað fyrir jól-
in, til að taka út sparifé sitt
úr honum í tæka tíð. Ekki er
vitað hver tekur við af honum.
Zhírínovskíj
býður „hafsjó
af vodka“
RÚSSNESKI þjóðernissinninn
Vladímír Zhírínovskíj hyggst
halda upp á silfurbrúðkaup
sitt á sunnudag með því að
bjóða heimilislausum Rússum
til veislu sem keisari væri full-
sæmdur af. „Við höfum eytt
mörgum milljónum rúblna í
hafsjó af vodka, víngeyma og
bjórtunnur. Það verður flug-
eldasýning. Gestirnar fá bökur
að borða og öllu heimilislausa
fólkinu hefur verið boðið,“
sagði talsmaður Zhírínovskíjs.
Hann bætti við að fólkið yrði
leyst út með gjöfum. Veislan
er liður í kosningabaráttu
Zhirínovskíjs vegna forseta-
kosninganna í júní.
Ferja losnar
af strandstað
FINNSK farþegafeija, sem
strandaði skammt frá Stokk-
hólmi í fyrrakvöld, losnaði af
strandstað í gær og kom til
hafnar í sænsku höfuðborginni
með 1.300 manns innanborðs.
Talsmaður Silja Line, sem rek-
ur ferjuna, sagði að farþegana
hefði ekki sakað og ekki hefðu
orðið miklar skemmdir á skip-
inu.
Kosið í Israel
28. maí
SHIMON Peres, forsætisráð-
herra Israels, hefur skýrt
Warren Christopher, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, frá
því að efnt verði til þingkosn-
inga í ísrael 28. maí. Þetta var
haft eftir ónafngreindum
heimildarmanni í fyrradag.
Kosningarnar áttu að fara
fram í október.
Óveður í
Frakklandi
TVEIR menn biðu bana í vest-
urhluta Frakklands í fyrra-
kvöld þegar stormur og úr-
helli olli miklum usla. 24 ára
ýtustjóri fórst í aurskriðu ná-
lægt Bayonne og 73 ára kona
varð fyrir tré sem féll niður í
Bordeaux. Tugir fjölskyldna
urðu að yfirgefa heimili sín og
vegir eyðilögðust þegar ár
flæddu yfir bakka sína. Bátar
og brýr skemmdust í stormin
um og rafmagnslaust var á
heimilum 140.000 manna í
grennd við Bordeaux í gær þar
sem rafmagnslínur slitnuðu
Niðurskurður
í Finnlandi
Hclsinki, Morgunblaðið.
PAAVO Lipponen, forsætisráðherra
Finnlands, hefur tilkynnt um allt að
16 milljarða marka (um 230 milljarða
króna) niðurskurð ríkisútgjalda á
næstu þremur árum. Tilkynning for-
sætisráðherrans kom öðrum stjórn-
arliðum á óvart enda sætir jafnaðar-
maðurinn Lipponen vaxandi gagn-
rýni, einkum frá vinstri. Stjórnin
hefur þegar dregið mikið úr útgjöld-
um ríkissjóðs, m.a. til velferðarmála,
en nú er talað um að ganga lengra.
Vaxandi útgjöld, sem m.a. má
rekja til aukins stuðnings við banka-
kerfið, hafa leitt til sex mílljarða
marka (90 milljarða króna) halla
umfram áætlun. Þar sem stjómin
hafði boðað að skuldasöfnun ríkis-
sjóðs yrði stöðvuð á kjörtímabilinu
þurfti að grípa til róttækari aðgerða
en ráðgert hafði verið. Þegar fimm
flokka stjórn Lipponens tók átti að
skera útgjöld ríkissjóðs niður um 20
milljarða marka (um 300 milljarða
króna) á kjörtímabilinu.
Minni framlög til sveitarfélaga
Sparnaðurinn mun einkum koma
niður á sveitarfélögum. Framlag rík-
issjóðs til þeirra mun a.m.k. dragast
saman um einn milljarð marka (um
15 milljarða króna) umfram áætlun.
Þetta getur valdið vanda ekki síst
þar sem útgjöld sveitarfélaga. til
skólamála eru nú þegar komin niður
á svipað stig og fyrir 15 árum. Heil-
brigðis- og menntamál eru helstu
kostnaðarliðir sveitarfélaga.
Nýskipaður fjármálaráðherra,
Sauli Niinist, telur að rétta megi fjár-
lagahallann að hluta með sölu ríkis-
fyrirtækja, en ekki megi draga frek-
ar úr framlögum til velferðarmála.
Pertti Paasio, formaður þingflokks
jafnaðarmanna, gagnrýndi starfsað-
ferðir Lipponens en ýmsum þykir
sem hann hafi ekki haft eðlilegt sam-
ráð áður en hann kynnti tillögur sín-
ar. Paasio kvað þetta ekki vænlegt
til að tryggja stuðning þingmanna.
JÓHANNES Páll páfi á bæn í dómkirkjunni í Managua
aragua áður en hann hélt til EI Salvador.
Reuter
Nic-
Páfi hvetur til
sátta í E1 Salvador
San Salvador. Reuter.
JÓHANNES Páll páfi kom til E1
Salvador í gær til að hvetja til
sátta í landinu eftir langvinnt stríð
vinstrisinnaðra uppreisnarmanna
og hægrisinnaðra einræðisherra
sem kostaði 75.000 manns lífið.
Samkomulag náðist um frið í
E1 Salvador árið 1992 en ofbeldið
heldur áfram að setja mark sitt
á þjóðlífið. „ Við erum þjóð sem
hefur undirritað friðarsamning
en býr ekki við frið. Við búum
við ofbeldi, atvinnuleysi og mikla
fátækt,“ sagði Gregorio Rosa
Chavez aðstoðarbiskup.
Kirkjan klofin
Stríðið setti einnig mark sitt á
kaþólsku kirkjuna í E1 Salvador
og páfi fór ekki varhluta af því.
Hundruð vinstrisinnaðra náms-
manna söfnuðu undirskriftalist-
um til að hvetja páfa til þess að
NOATUN
I
GOÐ VORUKAUP!
taka Oscar Arnulfo Romero, um-
deildan biskup o'g þekktasta fórn-
arlamb stríðsins, í dýrlingatölu.
Romero aðhylltist frelsunarguð-
ræði og dauðasveit hægrisinna
skaut hann til bana árið 1980.
Sljórn landsins og íhaldsamir
prestar taka ekki í mál að hann
verði tekinn i dýrlingatölu.
Rosa Chavez kvaðst vona að
páfi gæti jafnað ágreininginn inn-
an kirkjunnar milli þeirra, sem
aðhyllast frelsunarguðfræði, og
hinna, sem hallast að hefðbundn-
ari kenningu núverandi erkibisk-
ups, Fernandos Saenz Lacalle.
Talið er að páfi hafi vígt hann
erkibiskup til að aðskilja kirkjuna
og stjórnmál og draga úr lang-
vinnri spennu milli kirkjunnar og
stjórnvalda.
Áður var páfi í Nicaragua og
í dag heldur hann til Venezuela.
TORO
SPAGETTISÓSA
FYLGIR HVERJU
KÍLÓI AF
KINDAHAKKl
Lambahrygg
ir
pr.kg.
Kintiah
akk
pr.kg.
NAGGAR
frá Húsavík
400 gr-
399.
■■ -- ' ...-
Frosin Ýsuflök
299
Frosin Ýsuflök
Roðlaus, beinlaus
349r
Gróft
Samlokubrauð
99.-
Sunquik 1 W-
appe\sinuþVkkni
,JSSÍ—
229.
MönHnu Pi»ut
600 9-
Verslanir Nóatúns eru opnar til kl. 21, öli kvöld
NÓATÚN