Morgunblaðið - 09.02.1996, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
List myndnámsins
og lifandi tónlist
IONLISI
Iláskólabíö
KVIKMYNDATÓNLIST
Das Kabinet des Doktor Caligari
Tónlist eftir GuiseppeBecce leikin
af Sinfóníuhljómsveit Islands undir
stjórn Mark Andreas Schlingensieb
en. Miðvikudagurinn 7. febrúar
1996
ÞRÁTT fyrir þá staðhæfingu,
að tónlist sé í eðli sínu merkingar-
laus, nánar tiltekið fyrirbærið
tónninn, hefur fimmskipt eðli tón-
listar, þ.e. tónhæð, tónblær, styrk-
ur, hrynjandi og hraði, mikil áhrif
á tílfinningar manna og einnig er
hægt að líkja eftir stemmningum,
hreyfingum og auðvitað ýmsum
tilfinningalegum viðbrögðum. Það
er þessi eftirhermuhæfni tónlistar,
sem hefur frá upphafi tengt hana
leikhúsi og þá ekki síst verið mikil-
væg við gerð kvikmynda, list
myndnámsins, eins og vel má kalla
kvikmyndalist.
Tónlist sú sem ítalska tónskáld-
ið Guiseppe Becce (fæddur 1881)
samdi við kvikmyndina Sýning
doktors Cagliari, er að mestu glöt-
uð en það hefur verið fýllt í eyð-
urnar með öðrum tónsmíðum eftir
Becce en hann samdi kvikmynda-
tónlist, skemmtitónlist, sönglög og
slagara og naut töluverðra vin-
sælda í Berlín þar sem hann starf-
aði frá 1906. Sú tónlist sem leikin
var við kvikmyndina hefur trúlega
verið endurunnin af stjómandum
Schlingensieb en og þótt ritháttur
hennar sé í heild nokkuð þéttur
og kaflamir keimlíkir, féll tónlist-
in vel að viðburðarás myndarinn-
ar. Tónlistin er á köflum nokkuð
erfið og var leikur Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands góður og einstaka
einleiksstrófur vom sérlega vel
leiknar. Schlingensieben er frá-
bær stjórnandi og hélt hann vel
utan um samspil hljómsveitar og
myndar. Trúlega hefur Schling-
ensieben mótað tónlistina og gert
meira en að tína saman tónlist
eftir Guiseppe Becce enda er
Schlingensieben frábær fagmað-
ur.
Við eftirgrennsian um sögu
kvikmyndatónlistar kom fram, að
upphaflega hafi píanóleikarar eða
orgelleikarar spilað af fingrum
fram undir myndunum en fljótlega
var farið að gefa út með hverri
filmu sérstaka tónlist og fyrir
stærri kvikmyndahúsin yar samin
sérstök kvikmyndatónlist, oftast
fyrir litla hljómsveit. Fyrstu hljóm-
sveitarraddskrána fyrir kvikmynd
samdi Saint-Saéns árið 1908 við
kvikmyndina L’assassinat du Duc
de Guise, eftir Lavedan. og upp
úr 1920 var farið að taka kvik-
myndatónlist upp á svonefndan
“soundtrack", svo að Sýning dokt-
ors Caligari, sem er gerð um 1919,
er með síðustu myndunum sem
gerð er fyrir lifandi tónlist.
Kvikmynd og lifandi tónlist
eiga ótrúlega vel saman, svo sem
marka mátti af viðtökum áheyr-
enda og vaknar sú spurning hvort
ekki væri hugsanlegt að endur-
skapa þetta listform, þegar niður-
soðin tónlist, að ekki sé talað um
rafgerða tónlist, er að verða með
sárafáum undantekningum hreint
óþolandi formúlugarg.
Jón Ásgeirsson
KVIKMYNPIR
Iláskðlabfó
SÝNING DOKTORS
CALIGARI („Das Cabinet
des Dr. Caligari")
Leikstjóri Robert Wiene. Handrits-
höfundar Carl Meyer og Hans
Janowitz. Leiktjöld Walter Röhrig,
Walter Reimann og Hermann
Warm. Kvikmyndatökustjóri Willy
Hameister. Tónlist eftir Wagner,
Schubert ofl., flutt af Sinfóníu-
hljómsveit íslands undir stjóm
Marks A. Schlingensieben Aðalleik-
endur Wemer Kraus, Conrad
Veidt, Lil Dagover, Friedrich Fe-
her. Þýskaland 1919.
HÁTÍÐASÝNING á hinni sí-
gildu hrollvekju Sýning doktors
Caligari, stóð svo sannarlega und-
ir nafni sem hápunktur aldaraf-
mælis kvikmyndarinnar. Útslagið
gerði mögnuð samvinna við Sinf-
óníuhljómsveit íslands, sem flutti
verk eftir Wagner, Strauss, Schu-
bert og Giuseppe Becce, (höfund
upprunalegu kvikmyndatónlistar-
innar sem nú er að mestu glöt-
uð). Undir styrkri stjórn Marks
A. Schlingensiepen - sem er sér-
hæfður í tónlist við þöglar myndir
og hefur reynslu af því að stjóma
hljómsveitum við svipuð tækifæri.
Það kom eftirminnilega fram á
Hljóð og
mynd
þessari góðu sýningu hversu kvik-
myndin og tónlistin eru samrýmd-
ar og styðja hvor aðra þegar vel
er að staðið. Öllum kvikmynda-
unnendum er nauðsyn að sjá Sýn-
ingu doktors Caiigari og tónlist
meistaranna er ætíð stórfengieg.
Að fá að njóta þess að sjá hljóð
og mynd falla í faðma með slíkum
undramætti sem á sviðinu í Há-
skólabíó, er ómetanlegt. Um tón-
listina er fjallað annarsstaðar í
blaðinu.
Sýning doktors Caligari var
tímamótaverk í árdaga kvik-
myndalistarinnar, leiktjöldin, leik-
urinn, kvikmyndatakan og lýsing-
in voru undir expressjónískum
áhrifum, óvenju listræn og óhefð-
bundin, enda frægust slíkra
mynda. Dularfull persóna, doktor
Caligari (Wemer Krauss), ferðast
um Þýskalánd með sýningu á
svefngenglinum Sesar (Conrad
Veidt). Morð fylgja í kjölfarið og
er vinur söguhetjunnar, Francis,
(Friedrich Feher) verður nýjasta
fórnarlamb hins ókunna morð-
ingja, flettir hann ofanaf glæpum
Caligaris. Lokaatriðið leiðir hins-
vegar í ljós að Francis er vistaður
á geðveikrahæli og framvindan
hugarburður sjúks manns.
Með árunum eru það leiktjöldin
og lýsingin sem halda Sýningu
doktors Caiigari í heiðursflokki
kvikmyndanna, jafnógnvekjandi
(jafnvel stafagerðin) og frammúr-
stefnuleg og þau voru á öndverðri
öldinni. Óraunveruleg málverk
sem gefa bjagaða mynd af um-
hverfinu og túlka martraðar-
kenndan hugarheim geðsjúklings
af snilld. Lýsingin og sjónarhorn
tökuvéla bæta um betur í þessum
rökkurheimi þar sem hádramatísk
leiktúlkun, að hætti þöglu mynd-
anna, eiga ríkan þátt í áhrifum
heildarmyndarinnar. Eintakið sem
sýnt var hefur hlotið nokkra Iita-
meðferð á síðari tímum og til efs
hvort hún er til bóta. Umgjörðin
var hinsvegar til fyrirmyndar. í
forgrunni sveit hljómlistarmann-
anna, kvikmyndin spannaði tvo
innri fjórðunga tjaldsins, yst til
hægri birtist vel þýddur og
smekklega gerður textinn. Að-
standendur lokapunktsins, sem er
ein ánægjulegasta upplifun sem
undirritaður hefur notið lengi í
kvikmyndahúsi, geta sannarlega
verið ánægðir með sitt og eiga
mikið lof skilið.
Sæbjörn Valdimarsson
Morgunblaðið/Ásdís
HRAFNKELL vinnur að einu verkanna í nælonhúðun.
Stuðla-
berg með
dýfu
NÚ stendur yfir sýning.á nýjum
verkum Hrafnkels Sigurðssnar í
Ingólfsstræti 8.
Efniviðinn í verkin sækir Hrafn-
kell úr íslenskri náttúru, hefur
tekið stuðlaberg traustataki og
klætt í nælon.
Ingólfsstræti 8 er opið alla daga
frá kl. 14-18, nema mánudaga.
Sýningin stendur til 3. mars.
Antík-upp-
boðá
sunnudag
GALLERÍ Borg heldur uppboð
sunnudaginn 11. febrúar kl.
16. Uppboðið fer fram í nýjum
salarkynnum í Aðalstræti 6.
Boðin verða upp húsögn, smá-
vara og ekta handunnin pers-
nesk teppi.
Uppboðsmunirnir eru sýndir
í Aðalstræti í dag, föstudag,
og á morgun kl. 12-18, einnig
sjálfan uppboðsdaginn kl.
12-14.
Samstarfsverkefni Listaskólanna
Sagan af dátanum
eftir Igor Stravinsky
UNDIRBÚNINGUR hófst í síðasta
mánuði fyrir nemendauppfærslu fjöl-
listaverks eftir Igor Stravinsky sem
nefnist Sagan af dátanum. Það eru
þrír af listaskólunum, Leiklistarskóli
Islands, Listdansskóli íslands og
Tónlistarskólinn í Reykjavík sem
sameina krafta sína. Leikarar og
dansarar eru Gunnar Hansson, Hall-
dór Gylfason, Baldur T. Hreinsson,
Atli Rafn Sigurðarson og Sólrún
Þórunn Bjarnadóttir.
Sögumenn eru Þrúður Vilhjálms-
dóttir, Katla Þorgeirsdóttir, Hildi-
gunnur Þráinsdóttir og Inga María
Valdimarsdóttir. Hljóðfæraleikarar
eru Átfheiður Hrönn Hafsteinsdóttir,
Borgar Þór Magnason, Einar Jóns-
son, Snorri Heimisson, Birkir Freyr
Matthíasson, Mika Rythá og Kjartan
Guðnason.
Textahöfundur er C.F. Ramuzm
en Þorsteinn Valdimarsson íslenskaði
og studdist þá við norska þýðingu
Pauline Hall. Höfundur dansa er
Margrét Gísladóttir, leikstjóri Gísli
Alfreðsson, hljómsveitarstjóri Kjart-
an Óskarsson og ljósahönnuður
Benedikt Axelsson.
Síðasta sýning er í kvöld, föstu-
daginn 8. febrúar, kl. 20 í Lindarbæ.
Alvar Aalto húsgagna-
hönnuður 1920-40
ÁSDÍS Ólafsdóttir list-
fræðingur mun halda fyr-
irlestur í fyrirlestraröð-
inni Orkanens 0je í Nor-
ræna húsinu sunnudaginn
11. febrúar kl. 16, og mun
hún fjalla um arkitektinn
Alvar Aalto sem hús-
gagnahönnuð á milli-
stríðsárunum 1920-1940.
Ásdís er fædd árið 1961.
Að loknu stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
hélt hún til framhaldsnáms í
Frakklandi, fyrst til Montpellier
og síðan til Parísar, þaðan sem
hún Iauk doktorsprófi í listfræði
í mars 1995. Síðustu tíu árin hefur
hún sérhæft sig í sögu hönnunar
á 20. öld og fjallaði doktorsverk-
efni hennar um útbreiðslu hönn-
unar milli stríða með sérstaka
áherslu á húsgögn Alvars Aalto.
Ásdís starfar nú hjá frönskum list-
fræðingi í París, auk ýmissa rit-
starfa og fyrirlestrahalds.
Ásdís mun fjalla um það tíma-
bil í ferli Alvars Aalto þegar hann
hefur störf og hannar flest sín
húsgögn. Þetta voru jafnframt,
mikilvæg mótunarár fyrir
persónulegan stíl hans og
formþróun, ár sem hann
byggir á alþjóðlegan
starfsframa sirin eftir síð-
ari heimsstyijöld. Eitt af
sérkennum Alvars Aalto
er það sambland sem ríkir
í verkum hans milli hinnar
sterku finnsku arfleifðar
annars vegar og alþjóð-
legra nútímastrauma sem
hann tók sjálfur virkan þátt í að
móta hins vegar. Húsgögn hans,
sem hlutu verulega útbreiðslu um
allan heim á þessum tima, eru því
lýsandi dæmi um þessatvo þætti,
sem vert er að gaumgæfa nánar
til betri skilnings á verkum þessa
brautryðjanda nútímabygginga-
listar og hönnunar," segir í kynn-
ingu Norræna hússins.
Norræna húsið hefur látið
prenta fyrirlestur Ásdísar um Al-
var Aalto og mun hann liggja
frammi í anddyri Norræna hússins
án endurgjalds.
Allir eru velkomnir og aðgang-
ur er ókeypis.
Ásdis
Ólafsdóttir