Morgunblaðið - 09.02.1996, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 23
AÐSEIMDAR GREINAR
Eiginhagsmuna
ástarkærleikur
Hátt gellur í herrans vini,
honum Sverri Hermannssyni.
Og nú blæs á okkar fróni,
úr nösum Jens í Kaldalóni.
í Tímanum blasir glæsileg mynd
laugardaginn 6. janúar af góðum
dreng, þar sem fyrirsögn á veglegu
samtali við Sverri Hermannsson
bankastjóra Lands-
bankans þar sem hann
segir: Það sem er mik-
ilsverðast við breyt-
ingu á bönkunum er
að menn viti vegferð-
ina á enda. Það leggja
erlendir ráðgjafar okk-
ar áherslu á. Hér er
mælt af svo magn-
þrunginni visku að
með eindæmum er un-
aðskenndur hreimur í
þessari rödd, og svo
má segja að framhald-
ið í þessu samtali sé,
sem og fyrirsögnin:
„Hákarlarnir komnir í
kjölfarið
Að rekja þau skrif
öll sem búið er að rispa út af þess-
ari sölu bankanna er svo skelfileg
og vitlaus, að það er ekki á nokk-
urs siðaðs manns færi að leggja sig
niður við að ræða til hlítar um þau
mál. Þau rista einnig svo djúpt og
tilfinningalega inní vitund og tilveru
þeirra sem best vita, t.d. hvernig
ástand banka- og peningamála var
háttað og fyrirkomið, og verður
ekki frá þeim tekið um reynslu
þeirra sem við máttu búa allan sinn
tilveruþátt bæði til lands, sjávar,
iðnaðar og allra hluta. Ríkisbank-
arnir eru fótfesta og stærsti undir-
stöðugrunnurinn undir velferð og
tilveru þjóðarinnar, og hafa verið
það alla sína tíð, enda ekki stofnað
til þeirra af neinu fálmi eða fumi.
Salan á íslandsbanka verður aldrei
þessari þjóð bætt á nokkurn máta.
Hún var eiginhags-
muna ástarkærleikur
til þeirra sem mesta
möguleikana höfðu til
þess að sölsa undir sig
öll þau helstu auðævi
sem nokkur leið var til
að sér að draga og þær
litlu einingar sem þar
með soguðust með í
farteskið voru björgun-
arverk þeirra blá-
snauðu einstaklinga og
félagasamtaka, sem
hvergi áttu höfði sínu
að halla í ijármálaleg-
um þrengingum þeirra
tíma, og er svo ennþá
í mörgum tilvikum.
En svo er eins og
bankastjórinn misstígi sig í annan
fótinn þegar hann í greinarskrifi
sínu 9. þ.m. í Morgunblaðinu er að
bera hönd fyrir Hákarlana vegna
íjármagnstekjuskattsins svokall-
aða, og telur þá eina möguleika þar
um að bjarga að bankarnir borgi
þann skatt fyrir gamla fólkið, seiri
svo mikið eigi af sparisjóðsbókum
í bönkunum. Ekki vantar nærgætn-
ina í drenginn þann arna, en svo
eru nú allar tölvurnar orðnar tölu-
Salan á íslandsbanka
var mistök, segir Jens
Guðmundsson
í Kaldalóni, sem telur
ríkisbanka undirstöðu
velferðar.
stafamargar, að einhver ráð ættu
að vera til þess að draga frá svona
fyrstu milljónirnar. En þeir sem eru
nú með um og yfir 100 milljónirnar
í fjármagnstekjur ættu nú að þola,
án bóta, að leggja eitthvað af mörk-
um, svona í einhveijum takti við
það sem bankastjórinn má gera af
sínum tekjum, eða hvað.
En svona frómt frá sagt er ekki
annað hægt að segja en að bankarn-
ir í dag reki eina þá hroðalegustu
fjárplógsstarfsemi sem nokkurn-
tíma hefur þekkst á landi hér þegar
ekki er hægt að fá millifærzlu á
peningum í banka nema borga sér-
stakt gjald fyrir. Gjalda verður sér-
staklega fyrir hvern einstaka tékka
til skráningar o.s.frv. En hroðaleg-
ast af öllu illu er svo hitt, að fleiri
þúsundir barna og gamalmenna,
sem á langri ævi margt hefur dreg-
ið saman aura í sparisjóðsbók hefur
ekki haft hugmynd um að aðeins
eitt prósent væri borgað af því á
ári í vexti, en þetta fé gamalmenn-
anna hans Sverris míns, lánar hann
svo út ásamt öðrum hæstvirtum
bankastjórum allt uppí 12% á ári
já, og ekki nema rúmt ár síðan
vextir voru uppí 18%. Og þarna er
n.l. sá dulúðgi skattur tekinn með
því hroðalegasta drottinvaldi sem
til er í nokkrum viðskiptum manna
af alsaklausum b'örnum og gamal-
mennum. Með því að binda peninga
í banka til margra ára til þess að
fá eitt eða tvö prósent hærri vexti
af þeim er engum manni bjóðandi,
enda sem enginn maður nennir að
standa í öllum þeim földu skilmálum
sem uppá er boðið. En svo hélt
maður líka að vaxtamunurinn á
inn- og útlánsvöxtum væri til þess
að standa undir rekstrarkostnaði
bankanna að ekki þyrfti að taka
aukagjald fyrir hveija einustu
færslu þar að auki sem gerir ótald-
ar milljónir eða milljarða í tekjur
þessara stofnana.
En svo tekur nú steininn úr, þá
er íjármálaráðherran kemur með
andlitið útum dyrnar í sjónvarpið
fyrir alþjóð með þá hágöfugu visku
sína að það væri nú ágætt að selja
Búnaðarbankann til að rétta af rík-
issjóðshallann á þessu ári, sem sé
svona 4-5 milljarðar. Slíkir höfð-
ingjar eða hitt þó heldur ættu að
segja sem fyrst af sér ábyrgðarstöð-
um fyrir þjóðina, sama hvaða flokki
þeir tilheyra, því í slíkum sálum blas-
ir ábyrgðarlaus einsemdin og mátt-
vana úrræði til þeirra verka sem á
öllu þó ríður að séu veglega gerð.
En svo kemur hið mikilsverðasta
gullkornafóður á jötur landans frá
höfðingjanum honum Sverri í Morg-
unblaðinu 18. janúar sem vissulega
átti erindi á borð þjóðarinnar, sem
sýnir líka bestu úrræðin á verðgildi
þeirra dýru eigna sem þjóðin hefur
byggt upp sér til bjargar í áranna
rás, og á kannski eftir að þurfa að
taka á þeim málum aftur í sama
formi, hver veit. En þessum málum
er ekki lokið, og verða gerð betri
skil þó síðar verði.
Höfundur er fyrrverandi bóndi.
Sókn gegn vágesti
EITT allra stærsta
og alvarlegasta vanda-
mál sem íslenska þjóðin
heur staðið frammi fyr-
ir um langt árabil er
hið ört vaxandi alvar-
lega ástand í vímuefna-
málum unga fólksins.
Að undanfömu hafa
komið fram ógnvekj-
andi upplýsingar um
það hve vímuefnaneysla
meðal ungs fólks hefur
aukist gífurlega á síð-
ustu misserum. Einnig
hafa komið fram upp-
lýsingar um það hve
alvarlegar afleiðingar
fylgja þessari vímu-
efnaneyslu og það er hreint út sagt
sorglegt að horfa upp á það hvað
er að gerast meðal æsku landsins í
þessum efnum. íslensk ungmenni
eiga mikla framtíðarmöguleika, við
búum við eitt besta menntakerfi í
heimi þar sem allir eiga möguleika
til menntunar, íslenska þjóðin byggir
á auðugri arfleifð á ýmsum sviðum
og nú er allt útlit fyrir mikla framþró-
un og uppbyggingu á ýmsum sviðum
atvinnulífs og menningar á allra
næstu árum, ef okkur tekst að halda
rétt á okkar málum. Það væri sorg-
leg og mikil harmasaga ef æska
landsins villist frá þessari braut og
út í aukna áfengis- og vímuefna-
neyslu, sem dæmin sanna að leggur
líf allt of margra einstaklinga og fjöl-
skyldna í rúst.
Ástæður þeirra vandamála sem
þjóðin öll stendur frammi fyrir á
þessu sviði eru eflaust margar og
margvíslegar. Það er deginum ljós-
ara að ef þetta ástand á ekki að
verða að meiriháttar þjóðfélags-
vandamáli, verður þjóðin öll í sam-
einingu að axla ábyrgðina og taka
höndum saman um að snúa vörn í
sókn gegn þeim hræðilega vágesti
sem vímuefnin eru. Það hefur kom-
ið fram að ríkisstjórnin hefur ákveð-
ið að ráðast í markvisst átak gegn
þessu vandamáli og ber
að fagna því, en jafn-
framt er hvatt til þess
að hinir ýmsu opinberu
aðilar sem láta sig mál-
ið varða verði samstiga
um aðgerðir, að öðrum
kosti dreifast kraftarn-
ir og hætt er við að fjár-
magn nýtist ekki eins
pg best verður á kosið.
í þessu sambandi er
rétt að rifja það upp að
í tengslum við breyt-
ingar sem gerðar voru
síðasta vor á lögum um
ÁTVR og innflutning á
áfengi, beitti Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra sér fyrir lagaákvæði um
sérstakan forvarnasjóð og er áætlað
að þetta skili um 50 milljónum króna
til forvarna á ári. Tilkoma þessa
forvarnasjóðs opnar algerlega nýja
Vímuefnin eru alvarleg-
asta vandamálið, segir
Magnús Stefánsson,
sem hvetur til þjóðará-
taks gegn þessari ógn.
möguleika á eflingu forvarna gegn
vímuefnaneyslu þar sem slíkt fjár-
magn hefur ekki verið til staðar til
þessa.
í þessari umræðu er óhjákvæmi-
legt að velta því fyrir sér hvort ekki
sé bráðnauðsynlegt að auka fjár-
framlög til eflingar löggæslu og toll-
eftirlits í landinu og hvort ekki hafí
verið gengið of langt í niðurskurði
íjárveitinga til þessa málaflokks. Það
má færa full rök fyrir því að sam-
dráttur í löggæslu hafi bein áhrif til
aukinna vímuefnavandamála óg að
útgjöld hins opinbera vegna þeirra
aukist á öðrum sviðum.
Þá er full þörf á því að taka upp
alvarlega umræðu um það hvort
ekki er rétt að hækka sjálfræðisald-
ur upp í 18 ár, þannig að foreldrar
geti lengur haft yfirráð og eftirlit
með börnum sínum í því skyni að
veita þeim vernd gegn þeim vanda
sem um er rætt. Loks hlýtur þessi
umræða að skila þeirri niðurstöðu
að hvorki sé raunhæft né rétt að
lækka aldursmörk til áfengiskaupa
úr 20 árum í 18 ár, en formaður
Þjóðvaka er fyrsti flutningsmaður
að slíkri tillögu á Alþingi.
Þrátt fyrir að forvarnir séu
grundvallaratriði í baráttunni gegn
vímuefnunum, þá má ekki gleyma
þeim sem hafa nú þegar orðið vímu-
efnum að bráð og þurfa aðstoð til
þess að snúa aftur til betra lífs. Þá
verður einnig að hampa þeim og
verðlauna sem staðist hafa freist-
ingarnar og hafnað vímunni, meðal
annars í því skyni að fullvissa æsk-
una um að sá lífsmáti sé „inn“ en
vímuefnið sé „út“ í samfélaginu.
Loks geta þeir einstaklingar sem
hafa náð að sigrast á vandanum
leikið lykilhlutverk í því að uppfræða
aðra um það hve vont líferni felst
í vímunni og að enginn ætti að verða
henni að bráð.
Átak og góður árangur í forvörn-
um byggist á þátttöku allra þjóðfé-
lagshópa. Góð reynsla af markviss-
um og öflugum áróðri gegn reyking-
um fyrir nokkrum árum sýnir að
markviss, stanslaus og endalaus
áróður gegn vímuefnaneyslu getur
skilað árangri. Þjóðinni allri ber
skylda til þess að taka höndum sam-
an og reka burt þann vágest sem
hefur knúið dyra og er nú kominn
inn á gafl á allt of mörgum íslensk-
um heimilum. Ég hvet til að svo
verði og okkur takist að forða efni-
legri íslenskri æsku frá villu vegar,
frá ógninni sem býr í vímuefnunum.
Höfundur er aiþingismaður Fram-
sóknarflokksins í Vesturlands-
kjördæmi.
Magnús
Stefánsson
Bílavö
SKEIFUNNI2, SÍMI 588-2550
Opið iaugard. kl. 10-17
sunnudaga kl. 13-18
Ath.: Tilboftsverft
á fjölda bifreiða.
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, sími
567-1800
Löggild bílasala
Toyota Corolla Hatsback XLI ’94, grás-
V.W Golf GLI ’95, blár, 5 g., ek. 18 þ.
km., 2 dekkjagangar. V. 1.070 þús.
Mazda 121 92, 5 dyra, rauður, 5 g., ek.
40 þ. km. Fallegur bíll. V. 750 þús.
Suzuki Sidekick JLXi 16v '93, 5 dyra,
hvítur, 5 g., ek. aðeins 38 þ. mílur, rafm.
í rúðum, samlæsingar, álfelgur, upphækk-
aður, ABS-bremsur. V. 1.690 þús.
Grand Cherokee Limited V-8 '94, ek. 15
þ. km., grænsans., einn með öllu, gullfal-
legur bíll. V. 3.950 þús.
MMC L-200 D.Cap diesil '91, grár, 5 g.,
ek. 98 þ. km. lengd skúffa, 32“ dekk, ál-
felgur, m/spili, kastarar o.fl. V. 1.350 þús.
Toyota Corolla XLi Hatsback 5 dyra '96,
grænsans., 5 g., ek. 4 þ. km. V. 1.250 þús.
MMC Lancer GLXi 4x4 station '92, blár,
5 g., ek. aöeins 28 þ. km., dráttarkúla,
samlæsingar o.fl. V. 1.170 þús.
Toyota Corolla Touring XL 4x4 station
'91, rauöur, 5 g., ek. aðeins 67 þ. km.
V. 1.050 þús.
Toyota Landcruiser VX T. diesel '93,
steingrár, 5 dyra, sjálfsk., ek. 77 þ. km.,
sóllúga, rafm. í öllu, þjófav. o.fl. V. 4.450
þús.
Suzuki Sidekick JLX ’90, 3ja dyra, hvítur,
5 g., ek. 83 þ. km. V. 980 þús.
Honda Civic DX '89, 3ja dyra, rauður, 5
g., ek. 87 þ. km. Góður biU V. 580 þús.
Tilboð: 490 þús. stgr.
Hyundai Elantra GLSi 1.6 Sedan '92,
grásans., 5 g., ek. 60 þ. km., rafm. í rúðum
o.fl. V. 980 þús.
V.W. Golf 1.4 CLi station ’94, blár, 5 g.,
ek. 32 þ. km. rafm. í rúðum, dráttarkúla
o.fl. V. 1.150 þús.
Mazda 626 GLX 2.0 ’91, steingrár, 5 g.,
ek. 69 þ. km., rafm. í rúðum, álfelgur, 2
dekkjagangar o.fl. Tilboðsv. 990 þús.
Toyota Hilux D. Cap m/húsi '94, 2.4 bens-
ín, 5 g., ek. 30 þ. km., 33“ dekk, bretta-
kantar o.fl. V. 2,2 millj.
Willys Koranda 2.3 diesil (langur) ’88, 5
g., ek. aöeins 30 þús. km. V. 980 þús.
Nissan Sunny SKX 4x4 ’91, rauöur, 5 g.,
ek. aðeins 35 þ. km., rafm. í rúðum, spoil-
er o.fl. V. 1.030 þús.
Cherokee Pioneer 4.0L '87, 5 dyra, blár,
sjálfsk., ek. 110 þ. km., rafm. í rúðum o.fl.
Gott ástand og útlit. V. 1.190 þús.
Níssan Sunny Sedan SLX 1.6 '93, hvítur,
5 g., ek. 50 þ. km., rafm. í rúðum, hiti í
sætum o.fl. V. 1.030 þús.
Volvo 740 GL '87, rauður, 5 g., ek. 103
þ. km. V. 750 þús.
Subaru Legacy 1.8 station '90, sjálfsk.,
ek. 98 þ. km. V. 1.080 þús.
BMW 316 '88, 4 dyra, vínrauður, 5 gíra,
ek. aðeins 54 þ.km. Toppeintak. V. -690
þús. Sk. ód.
Einnig: MMC L-300 Minibus 4x4 ’88,
grásans., 5 g., ek. 120 þ. km., vól yfirfarin
(tímareim o.fl). V. 1.050 þús. Tilboðsv. 990
þús. Mjög góö lánakjör.
Ford Bronco II XL ’88, 5 g., ek. 93 þ.
Gott eintak. V. 990 þús.
MMC Lancer EXE '91, hlaöbakur, sjálfsk.,
ek. aöeins 11 þ.km. Einn m/öllu. V. 940
þ. stgr.