Morgunblaðið - 09.02.1996, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
_____________________________________FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 25
AÐSEIMDAR GREIIMAR
Framhaldsskólafrumvarpið
og framtíðarsýn í menntamálum
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
hefur lýst því yfir að áhersla verði
lögð á að afgreiða frumvarp til
nýrra laga um framhaldsskóla á
Alþingi í vor. Framhaldsskólafrum-
varpið er afrakstur af starfi Nefnd-
ar um mótun menntastefnu er starf-
aði að mestu í tíð Ólafs G. Einars-
sonar, fyrrverandi menntamálaráð-
herra. Hið íslenska kennarafélag
hefur ásamt Kennarasambandi ís-
lands tvisvar gefið umsögn um
frumvarpið og í bæði skiptin gert
fjölmargar rökstuddar athuga-
semdir við grundvallaratriði er
varða stjórnun og stefnumörkun
framhaldsskóla, faglegt sjálfstasði
þeirra, hugmyndir um breytingar á
skipan kennslu og prófa og breyt-
ingar á ráðningarkjörum kennara
og skólameistara. í
umsögn HÍK og KÍ frá
27. nóvember síðast-
liðnum er send var
menntamálanefnd og
menntamálaráðherra
segir m.a.: „Hið ís-
lenska kennarafélag
og Kennarasamband
íslands eru sammála
um að veigamiklar
breytingar þurfi að
gera - á fyrirliggjandi
frumvarpi til laga um
framhaldsskóla til þess
að sátt geti ríkt um það
milli yfirvalda og
starfsmanna skólanna
og til þess að það verði
framhaldsskólum og
nemendum þeirra til hagsbóta."
En hvers vegna er framhalds-
skólafrumvarpið ekki það spor í
framfaraátt fyrir íslenskan fram-
haldsskóla sem af er látið?
Framhaldsskólalög sett 1988
Gildandi lög um framhaldsskóla
kveða skýrt á um að framhaldsskól-
inn skuli bjóða öllum nemendum
námsleiðir við hæfi að loknum
grunnskóla. Þessi ákvæði hefur
ekki tekist að uppfylla. Lögin sem
eru frá 1988 voru á sínum tíma
sett eftir áralanga umræðu um þörf
slíkrar lagasetningar fyrir fram-
haldsskólann. Framhaldsskólinn
tók afar stórstígum breytingum á
nokkurra ára bili frá lokum 7. ára-
tugarins og fram á þann áttunda.
Sú skoðun varð viðtekin í þjóðfélag-
inu að allir ættu að eiga möguleika
á námi að loknum grunnskóla,
áfangakerfið var tekið upp á þess-
um tíma og drífa þurfti upp fram-
haldsskóla eða framhaldsdeildir
víða um landið. Þessi ár voru tími
grósku og nýsköpunar og nokkurs
konar sokkabandsár hins nýja
framhaldsskóla með breyttum hug-
myndum um rétt ungmenna til
menntunar og lýðræðislegri
kennslu- og starfsháttum. Þegar
loks var orðin pólitísk samstaða um
að setja lög um framhaldsskólann
var mesta umrótið að baki og hinn
nýi framhaldsskóli búinn að festa
sig nokkuð í sessi. Ástæða þess að
skólasagan er hér riíjuð upp í litlu
broti er sú að hiklaust má halda
því fram að lögin sem sett voru
1988 voru smíðuð utan um skóla-
starf sem nokkuð almenn sátt var
um bæði hvað varðar innra starf
og ytra skipulag. Gildandi lög eru
ekki gallalaus en hins vegar er ekk-
ert tilefni til að setja ný lög nema
með því séu stigin ákveðin skref í
átt til þess að leysa brýnustu vanda-
mál framhaldsskólans í dag og að
með þeim sé einnig sköpuð sýn til
framtíðar.
Ný lög fyrir framhaldsskólann
þyrftu þá með öðrum orðum að
tryggja rétt allra til náms að lokn-
um grunnskóla, skapa leiðir til
lausnar á brottfallsvanda fram-
haldsskólans, tryggja með skýrum
hætti stóraukna fjölbreytni náms-
framboðs bæði í verknámi og bók-
námi. Ný lög þyrftu sömuleiðis að
hafa að leiðarljósi að ganga ekki í
berhögg við þá þætti í starfsemi
og skipulagi framhaldsskóla sem
almenn sátt er um. Síðast en ekki
síst er vert að undirstrika það sem
ætti að vera skylda þeirra er flytja
lagafrumvörp um skólastarf nefni-
lega að sýna fram á að fjármagn
fýlgi með svo að lagabókstafurinn
standi ekki dauður og merkingar-
laus eins og alltof algengt er og
dæmi má finna um bæði í starfi
grunn- og framhaldsskóla í dag.
Faglegt sjálfstæði
framhaldsskóla minnkar og
rekstrarlegt sjálfstæði eykst
ekki að nokkru marki
Fyrirliggjandi frumvarp til nýrra
laga er ekki spor í þá átt að tryggja
betur að framhalds-
skólinn verði fyrir alla.
Gert er ráð fyrir að
þrengja möguleika
framhaldsskólanna á
að skipuleggja starf
sitt sjálfir og dregið úr
sveigjanleika í námi og
námsframboði sbr. 16.
og 17. grein VII. kafla
frumvarpsins um
námsskipan. Síðar-
nefnda greinin ber þess
einnig glöggt vitni að
frumvarpshöfundar
hafa ekki hugsað til-
lögur sínar út frá for-
sendum og hugmynda-
fræði áfangakerfisins
þar sem mikið er lagt
upp úr samþættingarmöguleikum
og greiðum leiðum milli brauta og
sviða. Niðurstaðan eftir skoðun á
kaflanum um námsskipan er því sú
að faglegt sjálfstæði framhalds-
skóla minnkar og miðstýring á
námsframboði og námsskipan boð-
ar meiri afskipti af innra starfi
framhaldsskóla en tíðkast hafa.
Rekstrarlegt sjálfstæði fram-
haldsskóla eykst sömuleiðis óveru-
lega og geta ákvæði um frelsi skóla-
nefnda framhaldsskóla til að milli-
færa fé af rekstrarlið fjárlaga til
launaliðar og af launalið til rekstr-
arliðar (sbr. 39. gr. frv.) varla tal-
ist skipta sköpum fyrir framhalds-
skóla sem um árabil hafa mátt
sæta árvissri aðför á Ijárlögum og
eru reknir fyrir minna fé en skyn-
samlegt getur talist eigi þeir að
geta uppfyllt gildandi lög.
Minna lýðræði við stjórnun og
stefnumörkun framhaldsskóla
Verði frumvarpið að lögum dreg-
ur stórlega úr áhrifum kennara á
stjórnun og stefnumótun fram-
haldsskóla. Þessi stefna birtist t.d.
í IX. kafla frumvarpsins um starfs-
nám þar sem kennarar og skóla-
stjórnendur eiga saman 2 fulltrúa
af 18 í samstarfsnefnd um starfs-
nám á framhaldsskólastigi (26. gr.)
og í 28. grein frumvarpsins um
starfsgreinaráð þar sem enginn
fulltrúi tilnefndur úr hópi kennara
á að sitja.
Frumvarpið gerir ráð fyrir því
að kennarar og nemendur verði
ekki lengur fullgildir fulltrúar í
skólanefndum. Þetta er skref aft-
urábak og stríðir gegn nútímahug-
myndum um þátttöku og ábyrgð
starfsmanna í rekstri og stefnumót-
un stofnana og fyrirtækja. Þessi
skipan mála torveldar skólanefnd-
um milliliðalaus tengsl við starfs-
menn skólanna
Framhaldsskólafrumvarpið
og verkaskipting milli
framhaldsskóla
í tillögum nefndar um mótun
menntastefnu var á sínum tíma lagt
til að ákveðnari áhersla yrði lögð á
verkaskiptingu milli framhaldsskóla
og stofnaðir yrðu svokallaðir
kjarnaskólar sbr. 31. grein frv. til
laga um framhaldsskóla. Á haust-
dögum var skólameisturum fram-
Alvarlegur ágreiningur
er um framhaldsskóla-
frumvarpið, segir Elna
K. Jónsdóttir, milli
stjórnvalda og kennara.
haldsskóla aflient plagg er hafði
yfirskriftina Um skipan náms á
framhaldsskólastigi. Tillögur til
umræðu ásamt bréfi menntamála-
ráðherra dagsettu 23. október 1995
með yfirskriftinni Verkaskipting
milli skóla á framhaldsskólastigi. I
bréfinu er þess m.a. óskað að skóla-
meistari ásamt skólanefnd veiti
umsögn um verkaskiptingartillögur
milli framhaldsskóla. í grein
menntamálaráðherra í Morgunblað-
inu 30. janúar kemur ennfremur
fram að verkaskiptahugmyndirnar
hafi verið kynntar á Alþingi um
leið og fyrsta umræða fór fram um
framhaldsskólafrumvarpið.
Við þessa kynningu er tvennt
að athuga: Tillögurnar hafa ekki
verið kynntar fyrir samtökum
kennara og er J)að undarlegt þar
sem HÍK og KI eru bæði stéttar-
og fagfélög framhaldsskólakenn-
ara og skólameistara og um-
sagnaraðilar bæði um tillögur
nefndar um mótun menntastefnu
og framhaldsskólafrumvarpið. Til-
lögur um breytingar á starfsemi
framhaldsskóla varða auk faglegra
sjónarmiða beint hag félagsmanna
kennarafélaganna. I annan stað
skal bent á að í 10. grein laga um
framhaldsskóla er fjallar um kenn-
arafundi segir: „Almennur kenn-
arafundur í framhaldsskóla fjallar
um stefnumörkun, um námsskip-
an, kennsluhætti og aðra starf-
semi.“ Kennarafundir í framhalds-
skólum eiga því tvímælalaust að
fjalla um áform yfirvalda í mennta-
málum um breytingar á starfsemi
skóla og verkaskiptingu milli
þeirra og hefði verið eðlilegt að
slíkt kæmi fram í bréfi ráðherra.
Tillögurnar virðast hafa fengið
mismikla umfjöllun í framhalds-
skólum og sums staðar alls ekki
verið teknar á dagskrá kennara-
funda.
Að lokum þetta
Þeim er þetta les má vera Ijóst
að alvarlegur ágreiningur er stað-
festur milli flytjenda frumvarps til
nýrra laga um framhaldsskóla og
kennara.. Kennarar og samtök
þeirra telja frumvarpið í ýmsum
greinum vega að faglegu sjálfstæði
framhaldsskóla, boða óþarflega
mikla ihlutun um innra starf og
draga verulega úr möguleikum
kennara til þátttöku í stefnumörkun
og stjórnun. Menntamálaráðherra
ijaliar um framhaldsskólafrum-
varpið í áðurnefndri grein í Morgun-
blaðinu 30. janúar og gefur þar til
kynna að ekki sé ástæða til átaka
um þær greinar framhaldsskóla-
frumvarpsins er varða ráðningar-
kjör kennara og víst má taka undir
það að eðlilegra sé að bíða almennr-
ar stefnumörkunar í starfsmanna-
málum ríkisins enda fækkar við það
ágreiningsmálum er snúa að flutn-
ingi frumvarps til laga um fram-
haldsskóla. Hér skal að lokum ítrek-
uð sú ósk kennarafélaganna að
frumvarpið verði endurskoðað í
samstarfi við kennarafélögin svo
sátt megi nást um starfsemi fram-
haldsskóla í landinu.
Höfundur er formaður Hins
íslenska kennarafélags.
Quelle Quelle Quelle
NÝR STÓR USII!
Kynntu þér vor- og sumar
tískuna í Evröpu
Stór númer
í kvenfatnaði
Eurokids
- barnalisti
Búsáhaldalisti
Gerðu það sjálfur
Image
- fyrir ungt fólk
Senioren
- fyrir miðaldra
Raftækja- og
tæknilisti
FRÁ ÞÝSKALANI
VERSLUNARHÚS ^JiUELLE - KÖPAVOGSDAL^
Fallegir kvenjakkar frá kr. 3.900
Leðurjakkar hálfsíðir kr. 7.900
Ullarkápur síðar kr. 5.900
! Utanyfirjakkar, ýmsar gerðir kr. 1.900 j
Blússur-Peysur frá kr 990
Hálfsíðir ullarjakkar frá kr. 2.900
| Úlpur með skinnhettu kr. 2.900 |
3 A l . A
VIÐ SETJUM ALLAN OKKAR FATNAÐ A UTSOLU, AÐEINS NY OG GOÐ VARA
L I S T A
KHUP
VERSLUNARHÚSIÐ DALVEGI 2
SÍMI 564 2000
Frábser
gasð i!
Gott verð.
Elna Katrín
Jónsdóttir