Morgunblaðið - 09.02.1996, Síða 32

Morgunblaðið - 09.02.1996, Síða 32
S2 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ VALBORG BJÖRG VINSDÓTTIR + Valborg Björg- vinsdóttir fædd- ist að Ási í Fáskrúðs- firði 16. mars 1925. Hún lést á Sjúkra- húsi Neskaupstaðar 1. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru hjónin Oddný Sveinsdóttir og Björgvin Þor- steinsson kaupmað- ur, til heimilis að Ási í Fáskrúðsfirði, þau eru bæði látin. Val- borg var þriðja í röð fjögurra systra, sem lþngum hafa verið kenndar við Ás. Þær eru: 1) Gunnþóra (f. 11.1L 1916), búsett í Reykjavík, gift Oskari Björnssyni sem lést í júlí sl. 2) Ragnheiður (f. 6.3. 1921), búsett i Englandi, gift Richard Lee sem lést árið 1991. 3) Ása (f. 25.7. 1928) búsett í Reykjavík, gift Ásgeiri Samú- elssyni sem lést í ágúst sl. Auk þess ættleiddu Oddný og Björg- vin tvö börn Ragnheiðar: Oddnýju, búsett í Garðabæ; Björgvin, búsettur í Puerto Rico. Annan nóvember 1946 giftist Valborg eftirlifandi eiginmanni HJARTANS vina mín er gengin inn í fjallið heima, systirin góða á Fá- skrúðsfirði. Náttúrubarnið Valborg. Mannvinurinn Valborg. Dýravinur- inn Valborg. Fyrsta vorferð okkar Valborgar í fjallið, með litla Bögga og stóra Bögga, hafðj ávallt yfir sér vissan helgiblæ. Ákveðnum helgisiðum þurfti að fullnægja. Silfurtær fjalla- lækur var valinn, með góð sæti á steinum eða lækjarbakka. Þar dró Valborg skó af fótum sér, laugaði þá í ísköldu vatninu. Síðan var gengið á vit gróandans, horft með næmu auga á fyrstu brumhnappa viðkvæmra fjallajurta. Efst í fjallinu var numið staðar, hvílst á Stórasteini, og Valborg dró andann djúpt að sér. Vorsólin var komin yfir lognkyrran ljörð, og fjall- göngufólkið búið að ná friðhelgi fjallsins inn í sig. „Heldurðu, að ég komist upp í fjall í vor?“ sagði hún við mig, eftir að hún vissi að lífshlaupið væri senn á enda. Hún þráði svo mjög að lifa vorið. Ég játaði því, sé hana líka fyrir mér, þar, á þessari stundu - svo unga, fríska og fijálsa undan fjötr- um hins jarðneska líkama. Valborg vann erfiðisvinnu í frysti- húsi. Frístundirnar notaði hún í fjall- göngur. Steinasöfnun var hjartans áhugamál. Ófáa steinana báru þau hjónin heim úr fjallinu, ómetanlega, litríka kristalla, sem hlutu heiðurs- sess innan um blómin í stofunni hennar Valborgar - glitruðu þar ekki síður en dýrindis stofudjásn. Hennar yndi var að handleika þá og fægja. Hún þekkti þá alla, gaf þeim líka heiti. „Álfkonuskórinn" hennar Val- borgar er afar fíngerður og fer vel í lófa, með dökkum hneppslum yfir ristina, fóðraður glitrandi silfur- bergi, og sýnir dulúð steinaríkisins, þegar sólarljósið er látið falla í gegn- um hann. Ekki undarlegt, þótt álfkonan fagra og bjarta vitjaði hennar tveim- ur dögum fyrir andlátið, og hin sjúka kona segði: „Lítil álfkona er að kalla á mig inn í steininn, segir að ég komist ekki aftur út.“ Ljósverur náttúrunnar létu bæra á sér, þegar systirin góða stóð á skilum tveggja heima. - Er hægt að óska sér betri fylgd- ar yfir Iandamærin? Valborg og Baldur áttu sitt heima í Kaupvangi, einu elsta húsi Búða- kauptúns niðri í fj'örukambinum, þar sem flóðið kyssir upphleðsluna í stein- blómagarðinum hennar Valborgar, og fjaran fyllist af vorboðum, þegar sólin rís aftur yfir þröngum íjallahring. % sinum, Baldri Björnssyni (f. 14.7. 1921) fyrrverandi verslunarmanni og bankastarfsmanni. Valborg og Baldur eignuðust tvö börn: 1) Björgvin (f. 15.4. 1947) kvæntur Onnu Þóru Péturs- dóttur og eiga þau þrjú börn og fjögur barnabörn. 2) Birna (f. 30.4. 1964), maki Bæring B. Jónsson, og eiga þau eina dóttur. Heimili Valborgar og Baldurs var ávallt að Kaupvangi í Fá- skrúðsfirði, sem nú heitir Hafn- argata 15. Valborg lauk námi í bók- námsdeiid frá Kvennaskólanum í Reykjavík. Um árabil vann Valborg í verslun föður síns, Kompaníinu, og rak hana tíma- bundið ásamt eiginmanni sín- um, eftir andlát föður síns. En mestan hluta starfsævinnar stundaði hún frystihússtörf. Valborg verður jarðsungin frá Fáskrúðsfjarðarkirkju í dag, 9. febrúar. Athöfnin hefst klukkan 14. Faðmur fjarðarins umvafði Val- borgu, allt hennar líf, hvergi leið henni betur. Hún var með hafið, hina óijúfanlegu víðáttu, inni í stofu hjá sér - hún þurfti ekki að ferðast. Kaupvangur seiddi. Spegill var yfir öllu kauptúninu á einu vetrarsíð- degi æskunnar, og ófært á milli húsa. Þá var skautað til Valborgar, en steytt á steini í Kaupvangs- brekku. Skautaferðinni lauk samt vel. Stelpan fékk að sofa í stofunni hjá Valborgu sinni; heyra öldugjálfur og fuglagarg; sjá bátana sigla inn og út fjörðinn. Hlý geislun Valborg- ar læknaði mörg sárin. Valborg og Baldur voru með ein- dæmum gestrisin. Ástúð umvafði alla gesti í Kaupvangi. Heimsóknir þangað, heim í Fáskrúðsljörð, hafa verið mér heilsulind. Nú drúpa fjöll- in höfði, eftir að Valborg er gengin. Ófáar myndir líða fram í hugann: Valborg að klappa Gránu, sægráu kúnni okkar heima í Ási. Valborg að stijúka Kalla, litla kettlingnum sem hún og Baldur björguðu frá drukknun eina sumarnótt í tilhuga- lífinu. Litla stelpan horfði dáleidd, skildi ekki þá, hvernig öll dýr urðu eitt, í kærleika með Valborgu. í Kaupvangi voru alltaf heimilis- dýr. Ófáar kisur hafa gengið þar um garð, mjallhvítar, gular, gráar - stundum fleiri en ein - áttu svo vel heima, innan um blóm og steina. Valborg er eina systirin frá Ási, sem helgaði Fáskrúðsfirði allt sitt æviskeið, næstyngst af íjórum systr- um og sú fyrsta sem fellur í valinn. Hinar systurnar þijár fluttar að heiman, þegar Obba, kjördóttirin í Ási, var að alast upp. Valborg var gædd þeirri einstöku náðargáfu að hugsa fyrst um aðra - gleyma sjálfri sér. Hún var kona, sem kunni ekki að barma sér. Jafn- vel í veikindum hennar skiptu aðrir í fjölskyldunni meira máli en hún sjálf. Litlu börnin, sem eru að fæð- ast í heiminn, áttu óskipta athygli hennar. Hún vildi ekki tala um veik- indi sín, en reyndi að vera glöð og hress - hin sterka, sanna Valborg. Umvafin þeirri ástúð og hlýju, sem hún hafði sáð í kringum sig, bar fjölskyldan Valborgu á höndum sér síðustu vikurnar heima. Á jólun- um sameinuðust fjölskyldur Bögga og Birnu í Kaupvangi. Stóru ömmu- börnin, Pétur og Valborg, komin með litla langömmustráka, smáfólk sem gladdi ömmuhjartað ósegjan- lega - og Anna Björg, yngsta ömmubarnið Bögga megin. Lang- yngsta ömmubarnið, Birta, er þriggja ára þessa dagana. Sérstök tengsl voru á milli Birtu og ömmunnar. Kannski skynjaði Valborg, að Birta fengi aðeins að njóta ömmuhlýju í skamman tíma, og vildi gefa henni allt, á meðan hún gat. Birta átti vel heima í ömmu- fangi, annar ættliður í beinan kven- legg, sem ætlar að fá sterka svip- mótið hennar Valborgar - kastaníu- rauða, liðaða hárið og skásettu aug- Síðasta ósk Valborgar var í anda þess heilsteypta vinarþels, sem hún tileinkaði sér allt sitt líf: Hún óskaði þess, að kærleikurinn tengdi ávallt fólkið hennar saman, að þar yrðu engir brotnir hlekkir. Valborg er ekki horfin, andi henn- ar lifir. Fjallalækir, blóm og steinar munu hvísla nafn hennar - fjöll og fjörður bergmála - eins lengi og ástvinir hennar ganga í fjallinu heima. Megi ljósveran bjartg. frá huliðs- heimum náttúrunnar leiða systurina góðu inn í dýrð hins óþekkta. SöknUður mun breytast í fagra endurminningu, sorg í ljóðræna feg- urð. Oddný Sv. Björgvins. Svo alltof fljótt er á enda gengið æviskeið Valborgar Björgvinsdóttur, þar sem iðjað var af ærnu kappi alla tíð, þar sem hress lund og hlýja góð áttu ljúfa samleið. Á skömmum tíma hefur einn óvina lífsins lagt hana að velli, þessa hugumdjörfu og horsku konu. Örfá minningarorð skulu minni góðu vinkonu helguð nú við leiðarlok. Ég hafði af Valborgu nokkur kynni, þegar ég kenndi ungur maður á Búðum og fann strax að þar fór heillynd kona og hreinskilin vel, sem hvergi lá á skoðunum sínum, skelegg og einörð í málflutningi öllum og skóf ekki utan af hlutunum, ef henni hitnaði í hamsi. En ég fann líka mætavel aðra eðliskosti ekki síðri, þá innri hlýju sem skein í gegnum orðræðu hennar, ekki hvað sízt þeg- ar þeir áttu í hlut sem halloka höfðu farið í lífinu. Það var reisn yfir Val- borgu, víst um það. Með okkur Valborgu og hennar ágæta lífsförunaut tókust kynni góð og þau áttu síðar eftir að eflast og styrkjast, þegar ég átti við þau fund, heima eða að heiman og margt bar þá á góma sem gott væri að riíja upp, skoðanir stundum skiptar um einstök atriði, en ekki um meginmál þó, það samfélag samhjálpar sem bæði vildu sjá á vísri velferðarleið. Einhveijar beztu heimsóknir og um leið þær gjöfulustu sem ég átti á þingárum mínum voru í hraðfrysti- húsið á Fáskrúðsfirði og aldrei var þangað farið öðruvísi en að eiga góðan orðastað við Valborgu og fá um leið að heyra þann undirtón og þá undiröldu sem mér bar öðrum fremur skylda til að finna og fara eftir sem bezt. Hún Valborg lét sína skoðun tæpitungulaust í ljós og dró ekkert undan, en hún setti mál sitt fram með fullum rökum og ágæta- greind sem hún var og fylgdist vel með þá fór ekki hjá því að hollt væri að hlusta á hennar mál, það sem henni fannst að hveiju sinni, hvar betur skyldi á taka. Hreinskilni hennar sem fór saman við einlæga velvild í minn garð mat ég mikils, enda fór ekki milli mála að orð henn- ar voru af góðum og gefandi hug mælt og til hollráða gefin. Fyrir það allt er ég innilega þakk- látur og ekki síður ánægjustundir á hinu fallega heimili þeirra hjóna, þar sem hvergi var til sparað af húsráð- endum, þar sem hjartanlega var glaðzt yfir góðum áföngum eða mál reifuð og rædd, hversu ráðið skyldi fram úr sem farsælast. Aðrir munu eflaust gera lífshlaupi góðrar og sannrar konu verðug skil, en ég færi á kveðjustund kæra þökk fyrir öll samskipi áranna þar sem hún var hinn gjöfuli veitandi. Við Hanna sendum mínum kæra baráttufélaga, honum Baldri, og börnum þeirra hjóna, svo og að- standendum öðrum, innilegar sam- úðarkveðjur. Til heilla var gengið á gæfunnar braut og gefandi kærleiks þíns fjölmargur naut. Það birtir í hug við þau minningamál sem merla og tindra í þakklátri sál. Blessuð sé minning Valborgar Björgvinsdóttur. Helgi Seljan. SAMUEL JON SAMÚELSSON + Samúel Jón Samúelsson fæddist í Hnífsdal 11. október 1914. Hann lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 4. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Amalía H. Rögnvaldsdóttir, f. 7.9. 1880 á Uppsöl- um í Seyðisfirði, og Samúel J. Samúels- son, f. 14.12. 1884 í Hattadalskoti í Súðavíkurhreppi. Samúei var fjórði í röð systkina sinna, en þau eru: Hrefna, f. 30.3.1912 (látin); Elísabet, f. 18.8. 1913 (látin); Kristín, f. 18.8. 1913 (lát- in); Hulda, f. 6.1. 1916, búsett í Hveragerði; Kristjana, f. 12.5. 1918, búsett á ísafirði; og Guð- mundur, f. 15.5. 1921, búsettur í Reykjavík. Samúel giftist 11. október 1958 eftirlifandi eiginkonu sinni Guðrúnu Halldórsdóttur frá Arngerðareyri við Isafjarðardjúp. Guðrún átti dóttur sem Samúel gekk í föðurstað. Hún heit- ir Sigrún Jónsdótt- ir, gift Pétri Björns- syni, og eiga þau tvö börn, Guðrúnu Osp og Jón Helga. Samúel ólst upp á Isafirði og var nokkur sumur á Bakka í Ilnífsdal. Hann lærði bakara- iðn hjá Óla J. Hert- ervig á Siglufirði 1933-37, og fór síð- an í framhaldsnám til Kaup- mannahafnar 1938. Hann starf- aði í mörg ár við Brauðgerð Mjólkursamsölunnar og um tíma sem bakari á farþegaskip- inu Gullfossi. í seinni tíð starf- aði hann sem verkstjóri hjá Sölufélagi garðyrkjumanna. Útför Samúels fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Þú sæla heimsins svalalind, ó, silfurtæra tár, er allri svalar ýta-kind og ótal læknar sár. Æ, hverf þú ei af auga mjer, þú ástarblíða tár, er sorgir heims í burtu ber, þótt blæði hjartans sár. Mjer himneskt ljós í hjarta skin í hvert Sinn, er jeg græt, þvi drottinn telur tárin mín - jeg, trúi, og huggast læt. (Kristj. J.) Nú er hann elsku afi minn látinn. Það er svo erfitt að horfast í augu við það að fá ekki að njóta félags- skapar hans áfram og á þessari stundu minnist ég þeirra óteljandi ánægjustunda sem við áttum sam- an._ Ég man þegar ég var lítil og við fórum saman í langa göngutúra. Við gengum alltaf sömu leiðina, upp hitaveitustokkinn í Öskjuhlíð og síð- an í Sölufélagið þar sem afi vann. Þar sýndi hann mér allar stóru vél- arnar og mér fannst eins og ég væri komin inn í annan heim. Á sumrin dvöldumst við fjölskyldan oft í sumarhúsi við Bifröst. Þar átt- um við afi aðra uppáhaldsgönguleið og meira að segja uppáhaldsstein þar sem við settumst alltaf niður, sumar eftir sumar, og hvíldum okk- ur. Við afi höfðum bæði mikinn áhuga á bókum. Ég var fljót að eignast mínar uppáhaldsbækur og sögur sem afi þreyttist aldrei á að Iesa fyrir mig. Þessar sögur, Kið- lingarnir sjö og Heiða,_ræddum við afi svo fram og aftur. Ég man hvað Heiða átti góðan afa og hve henni þótti vænt um hann og ég hugsaði oft um samband þeirra eins og sam- bandið milli mín og afa míns. Þegar ég varð eldri breyttust uppá- haldsbækurnar og bókasmekkur Formáli minningar- greina ÆSKILEGT ér að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í greinunum sjálf- um. okkar afa varð líkari og umræðurn- ar heimspekilegri. Við afi höfum alltaf verið góðir vinir. Hann var alltaf til staðar fyrir mig ef eitthvað bjátaði á, hvatti mig áfram og sagði mér að láta draum- ana rætast. Elsku afi minn. Ég sakna þín svo mikið, _en ég veit að þér líður vel núna. Ég mun alltaf geyma stund- irnar okkar í hjarta mínu. Blessuð sé minning þín. Guðrún Osp. Þú áttir auð er aldrei brást, þú áttir eld í hjarta, sá auður þinn er heilög ást til alls hins góða og bjarta. Til meiri starfa guðs um geim þú gengur ljóssins vegi. Þitt hlutverk er að hjálpa þeim er heilsa nýjum degi. (H.T.) Með þessum ljóðlínum vil ég kveðja móðurbróður minn Silla sem er farinn heim eins og við skátar tökum gjarnan til orða. Ég var svo lánsamur að eiga með honum smástund fyrir nokkrum dög- um. Hann spurði frétta að vestan, honum var umhugað um okkur frændsystkinin og hann rifjaði upp æskuminningar þaðan. Það vakti hjá mér minningar þeg- ar ég var strákpúki og Silli frændi kom í heimsókn. Heimsóknir hans voru einsog sólarkoma. Brosleitt andlitið og glettnin lýstu upp um- hverfið. Þar var heimsmaður á ferð og lítill hnokki sóttist eftir því að vera í fanginu hans. Seinna þegar heimur unga mannsins stækkaði fór hann að heimsækja frænda sinn í bakaríið. Þar var undraheimur svo ekki sé talað um allt góðgætið sem fylgdi þeim- heimsóknum. Mér eru líka minnisstæð þau skipti sem móðurfjölskyldan kom saman. Þar ríkti söngur, glens og gaman og ekki voru þær verri sögurnar sem þar voru sagðar. Þar var Silli frændi gjarnan hrókur alls fagnaðar. Seinna þegar ég stálpaðist bauð hann mér sumarstarf hjá.sér í bak- aríinu á Raufarhöfn. Þar kynntist ég nýrri hlið á honum. Það var verk- lagni hans og aldrei hef ég síðar séð aðra eins hamhleypu til verka og hann. Samt var alltaf tími til að leið- beina og kenna ungum manni til verka. Ég naut líka umhyggju hans þegar unglingurinn var að misstíga sig á fyrstu skrefunum til fullorðins- ára. I þessum kveðjuorðum dvel ég við æskuminningarnar. Ég er Silla frænda afar þakklátur fyrir allt sem hann gaf mér og aldrei verður frá mér tekið, en það eru æskuminning- ar um kærleiksríkan frænda. Guðrúnu, Sigrúnu og fjölskyldu bið ég líknar drottins. Jón Tynes.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.