Morgunblaðið - 09.02.1996, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 39
FRÉTTIR
Biblíudagnrinn
á sunnudag
Jurtate kynnt
í Hveragerði
SUNNUDAGINN 11. febrúar og
sunnudaginn 18. febrúar gefur
Græna smiðjan í Hveragerði þeim
sem koma í heimsókn kost á að
bragða á mismunandi teblöndum úr
villtum íslenskum jurtum. Sýnt verð-
ur hvernig jurtirnar líta út þurrkaðar
og á veggspjöldum hanga ítarlegar
upplýsingar um útlit og innihald
hverrar jurtar.
Sá sem kaupir fimmtugasta tepok-
ann fær verðlaun og tíundi hver við-
skiptavinur fær glaðning frá Grænu
smiðjunni. Auk þess er Smiðjan opin
alla daga vikunnar frá kl. 13-18.
Módelbílar
í Kolaportinu
RC MÓDELKLÚBBURINN og Smá-
bílaklúbburinn heimsækja Kolaport-
ið um helgina og sýna fjarstýrða
rafmagns- og bensínbíla.
Bæði laugardag og sunnudag
verður í gangi þrautakeppni þar sem
félagsmenn reyna með sér á íjar-
stýrðum rafmagnsbílum. Um helg-
ina verða hátt í 200 seljendur í Kola-
portinu og teiknikeppni Kolaportsins
er í fullum gangi.
Flóamarkaður
FEF
FLÓAMARKAÐUR Félags ein-
stæðra foreldra verður haldinn í
Skeljahelli, Skeljanesi 6, Reykjavík,
laugardaginn 10. febrúar kl. 14-17.
Seldur verður góður fatnaður á
alla fjölskylduna, skartgripir og
fleira. Flóamarkaður hefur verið
haldinn á vegum FEF um áraraðir
og er ásamt jólakortum félagsins
eina helsta fjáröflun þess.
Bryndís og Berg-
lind á Café Óperu
BRYNDÍS Ásmundsdóttir leikur á
Café Óperu föstudagskvöld ásamt
þeim Þórði Högnasyni og Þóri Bald-
urssyni.
Á laugardagskvöld syngur Berg-
lind Björk ásamt þeim Þórði Högna-
syni, Pálma Sigurhjartarsyni og
Björgvin Ploder.
ÁRLEGUR Biblíudagur verður
haldinn næstkomandi sunnudag,
11. febrúar. Guðsþjónusta, sér-
staklega helguð Biblíudeginum,
verður í Háteigskirkju kl. 11 f.h.
í fréttatilkynningu frá Hinu ís-
lenska Biblíufélagi segir að fram
að aldamótum sé eitt meginverk-
efni félagsins ný þýðing Biblíunn-
ar. Gamla testamentið hefur verið
í þýðingu undanfarin ár og miðar
því verki vel. Nú hefur verið ákveð-
ið að hefja einnig þýðingu Nýja
testamentisins.
Auk starfs á innlendum vett-
vangi tekur Hið íslenska Biblíufé-
lag þátt í alþjóðlegu samstarfi
Biblíufélaga. Á síðasta ári var
safnað fé til biblíustarfs í Kína. Á
þessu ári er ætlunin að safna fé
■ í TILEFNI af áttræðisafmæli
Gunnars Bjarnasonar hrossa-
ræktarráðunauts hefur Ásgeir Ás-
geirsson, í versluninni Hestamann-
inum við Ármúla í Reykjavík,
ákveðið að lækka verð bókarinnar
um Gunnar Bjarnason, Kóngur um
stund, um 500 kr. eintakið auk
þess sem verslunin sér um áritun
Gunnars á bókina sé þess óskað og
póstsendingar út á land. Auk þess,
í tilefni afmælis Gunnars, hefur
útgefandi bókarinnar, Ormstunga,
til biblíustarfs í Eþíópíu. í janúar
sl. kom Nýja testamentið út í
Konsó í Suður-Eþíópíu en prentun
þess var kostuð af Hinu íslenska
Biblíufélagi. Sameinuðu Biblíufé-
lögin hyggjast gera átak í út-
breiðslu Biblíunnar í Eþíópíu á
næstu árum en eftirpurn þar eftir
Biblíum er margfalt meiri en fram-
boðið. Þess má geta að Haraldur
Ólafsson kristniboði hefur um ára-
bil unnið að þýðingu Biblíunnar á
ákveðið að gefa bækling sinn
Skálavísi með hverri bók Gunnars
í Hestamanninum, en í Skálavísin-
um má finna upplýsingar um alla
fjallaskála á íslandi. Einnig hefur
útgefandi bókarinnar ákveðið að
efna til happdrættis af þessu tilefni
meðal verðandi kaupenda bókarinn-
ar í Hestamanninum fram til miðs
febrúar nk. og verða veittir ú'órir
bókavinningar, bókin Litafbrigði
íslenska hestsins eða bókin Jeppar
á ijöllum.
mál Borana-þjóðflokksins í Suður
Eþíópíu og er það starf nú á loka-
stigi.
Á Biblíudaginn mun Hið ís-
lenska Biblíufélag, í samvinnu við
Listvinafélag Hallgrímskirkju,
gangast fyrir flutningi á frásagn-
arleik fyrir eina rödd eftir Knud
Seibæk. Þátturinn er um Söru,
konu ættföðurins Abrahams, er
rifjar upp á gamals aldri ljúft og
sárt á liðinni ævi. Margrét Guð-
VEGNA fréttar í Morgunblaðinu 7.
febrúar sl. þar sem borin voru saman
föst laun hjúkrunarfræðinga og
heilsugæslulækna vill Félag ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga taka eft-
irfarandi fram:
Það er mjög villandi að bera sam-
an laun hjúkrunarfræðinga og
heilsugæslulækna á þann hátt sem
gert er í áðumefndri frétt. Heilsu-
gæslulæknar fá auk fastra launa sem
greidd eru af ríkinu, greitt sérstak-
lega fyrir unnin læknisverk á
dagvinnutíma. Þannig fá heilsu-
gæslulæknar greitt sérstaklega fyrir
hvert viðtal samkvæmt samningi við
Tryggingastofnun ríkisins sem greið-
ir þennan hluta af launum heilsu-
gæslulækna. Hjúkrunarfræðingar fá
eingöngu sín föstu laun sama hve
mörgum skjólstæðingum þeir sinna
í sínum vinnutíma. Réttara væri að
bera saman föst laun hjúkrunarfræð-
inga og föst laun auk greiðslna fyrir
læknisverk á dagvinnutímabili hjá
heimilislæknum.
í frétt Morgunblaðsins kemur
fram að hæstu laun almennra hjúkr-
unarfræðinga séu 125.399 kr. á
mánuði. Byrjunarlaun hjúkrunar-
fræðinga eru nú 82.154 kr. á mán-
uði. Laun í starfsheiti almenns
hjúkrunarfræðings i hæsta launa-
mundsdóttir, leikkona, flytur þátt-
inn, leikstjóri er Steinunn Jóhann-
esdóttir en tónlistarflutning ann-
ast Kolbeinn Bjarnason. Sýning
þessi verður í Háteigskirkju og
hefst kl. 17.30. Aðgöngumiðar
fást við innganginn.
Við útvarpsguðsþjónustu sem
hefst í Háteigskirkju kl. 11 verður
starf Biblíufélagsins sérstaklega
minnst. Sr. Sigurður Pálsson,
framkvæmdastjóri félagsins, pred-
ikar og sr. Helga Soffía Konráðs-
dóttir þjónar fyrir altari. Kirkjukór
Háteigskirkju ásamt organistan-
um Pavel Manásek annast tónlist-
arflutnihg. Aðalfundur félagsins
hefst síðan í safnaðarheimili kirkj-
unnar kl. 15.30.
þrepi (eftir 20 ára prófaldur) eru
nú 105.020 . kr. á mánuði. Hluti af
almennum hjúkrunarfræðingum
eiga síðan möguleika á að hækka
um 1-5 launaflokka (3-15%) vegna
sérstakrar hæfni í starfi og vegna
mikillar viðbótarmenntunar (t.d. fær
hjúkrunarfræðingur með doktors-
gráðu 3 launaflokka eða 9% launa-
hækkun). Laun almennra hjúkr-
unarfræðinga geta því hæst orðið
121.747 og eru það aðeins fjórir
almennir hjúkrunarfræðingar af um
500 almennum hjúkrunarfræðing-
um sem fá greidd þessi taxtalaun
frá starfsmannaskrifstofu fjármála-
ráðuneytisins. Flestir almennir
hjúkrunarfræðingar eru með föst
laun um og undir 100.000 kr. á
mánuði.
í frétt Morgunblaðsins kemur
fram að hæstu föstu laun deildar-
stjóra séu 157.959 kr. á .mánuði.
Föst laun deildarstjóra yfír stórri
deild (þar sem eru 24 starfsmenn eða
fleiri) í hæsta launaþrepi eru nú skv.
kjarasamningi 121.747 kr. á mán-
uði. Deildarstjórar eiga síðan mögu-
leika á að hækka í 157.959 kr. á
mánuði.
Vigdís Jónsdóttir, hagfræð-
ingur Félags íslenskra
lijúkrunarfræðinga.
ÁSGEIR Ásgeirsson, kaupmaður í Hestamanninum, fylgist með Gunn-
ari Bjarnasyni árita bók sína, Kóngur um stund.
Athugasemd
Laun h j úkrunar fr æ ð i nga
og heilsugæslulækna
RAÐAUGi YSINGAR
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 1,
3. hæð, mánudaginn 12. febrúar 1996 kl. 14.00 á eftirfarandi eignum:
Auðunn (S-110, ásamt öllu fylgifé og veiðiheimildum, þingl. eig. Ið-
unn hf. útgeröarfélag, gerðarbeiðendur Ari Björnsson, Byggöastofn-
un, Búnaöarbanki íslands, Erlingur Hjálmarsson, Gjaldtökusjóður,
Glitnir-Féfang hf., Hafnarfjarðarhöfn, Kæling hf., Lífeyrissjóður Vest-
firöinga, Rafboði Reykjavík hf., Sjómannafélag Reykjavíkur, Sjó-
mannafélag (sfirðinga, Sjóvá-Almennar og Ábyrgðarsjóður launa.
Aðalgata 32, Súðavík, þingl. eig. Hilmar Guðmundsson, gerðarbeið-
andi Lífeyrissjóður Vestfirðinga.
Brautarholt 6, (safirði, þingl. eig. Kristján B. Guðmundsson, gerðar-
beiðendur Bæjarsjóður Isafjarðar og Lífeyrissjóður Vestfirðinga.
Brekkugata 44, Þingeyri, þingl. eig. Sigurður Jónsson, gerðarbeið-
andi Lffeyrissjóður Vestfirðinga.
Eyjalín, sknr. 6753, þingl. eig. Djúpferðir hf., gerðarbeiðandi Islands-
banki hf., ísafirði.
Fjarðargata 30, 0202, Þingeyri, þingl. eig. Þingeyrarhreppur, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Fjarðargata 30, 0204, Þingeyri, þingl. eig. Þingeyrarhreppur, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Lúna IS., sknr. 1539, þingl. eig. Jón Ólafur Þórðarson, Sigurður
Ásgeirsson, Sverrir Örn Sigurjónsson, Tómas G. Ingólfsson og Þórð-
ur Júlíusson, gerðarbeiöendur sýslumaðurinn í Hafnarfirði og Toll-
stjórinn í Reykjavík.
Seljalandsvegur 40, Isafirði, þingl. eig. Guðmundur Helgason og
Steinunn M. Jóhannsdóttir, gerðarbeiöandi Ríkissjóður.,
Túngata 17, efri hæð, Isafiröi, þingl. eig. Hlynur Þór Magnússon,
gerðarbeiðandi Landsbanki Islands.
Túngata 9, Suðureyri, þingl. eig. Suðureyrarhreppur, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Hjallavegur 7, Suðureyri, þingl. eig. Benedikt J. Sverrisson, Margrét
Þórarinsdóttir og Islandsbanki hf. 0556, gerðarbeiðendur Byggingar-
sjóður ríkisins, húsbréfadeild, Siglufjarðarkaupstaður og Islands-
banki hf., lögfræðideild, 12. febrúar 1996 kl. 13.30.
Smárateigur 6, ísafiröi, þingl. eig. Trausti M. Ágústsson, gerðarbeið-
endur Olíufélagið hf. og Plastprent hf., 12. febrúar 1996 kl. 10.15.
Stórholt 31, 0101, (safirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Isafjarðar,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður verkamanna og Bæjarsjóður Isa-
fjarðar, 12. febrúar 1996 kl. 09.30.
Sýslumaðurínn á ísafirði,
8. febrúar 1996.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum 1, Sel-
fossi, þriðjudaginn 13. febrúar 1996 kl. 10.00 á eftirf arandi eignum:
Arnarheiði 16, Hveragerði, þingl. eig. Hveragerðisbær, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður verkamanna.
Borgarheiði 11, Hveragerði, þingl. eig. Theodóra Ingvarsdóttir, gerð-
arbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Fossheiði 50, íbúð á n.h., Selfossi, þingl. eig. Elín Arnoldsdóttir,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, Lífeyrissjóður sjómanna,
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og S. (DA hf.
Halakot, Hraungerðishreppi, þingl. eig. Vilborg Kristinsdóttir, gerðar-
beiðendur Búnaðarbanki Islands 0301 og Stofnlánadeild landbúnað-
arins.
Heiöarbrún 24, Stokkseyri, þingl. eig. Guðjón Már Jónsson, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóöur ríkisins, Stokkseyrarhreppur og Vátrygg-
ingafélag Islands.
Heiðarvegur 4, Selfossi, þingl. eig. Hreiðar Hermannsson, gerðar-
beiðandi Steypustöð Suðurlands.
Hrauntunga 18, Hveragerði, þingl. eig. Ásmundur Ólafsson, gerðar-
beiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík.
Laufhagi 9, Selfossi, þingl. eig. Ásgrímur Kristófersson, gerðarbeiðend-
ur Búnaðarbanki Islands, Byggingarsjóður rikisins, Bæjarsjóður Sel-
foss, Lífeyrissj. verslunarmanna og Sparisj. Akureyrarog Arnarneshr.
Lóð nr. 132, Öndveröamesi, Grimsnesi, þingl. eig. Valdimar Þórðar-
son, gerðarbeiðendur Grímsneshreppur og Vátryggingafélag Islands hf.
Lóð nr. 14 úr landi Reykjabóls, Hrun., þingl. eig. Jón Karlsson, gerðar-
beiöandi Vátryggingafélag Islands hf.
Lóð nr. 50 úr landi Snorrastaða II, Laugardalshr., þingl. eig. Pétur
H. Friðriksson og Jóna Sveinsdóttir, gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Lóð nr. 36 úr Hólaspildu, Hallkelshólum, Grímsnesi, þingl. eig. Bettý
Guðmundsdóttir, gerðarbeiðendur Húsfélagiö Dalseli 24-48, Reykja-
vík og Sveinn Sveinsson.
Lóð úr landi Klausturhóla, Grfmsnesi, þingl. eig. Litsjón hf., gerðar-
beiðandi Búnaðarbanki (slands.
Mörk, lóð úr Skálmholti, Villingaholtshreppi, þingl. eig. Jónfna G.
Færseth, gerðarbeiöandi Sparisjóðurinn í Kelfavík.
Neðristígur 2, sumarbúst. í landi Kárastaða, Þingvallahreppi, þingl.
eig. Baldur H. Jónsson, gerðarbeiðandi Gjaldskil sf.
Sumarbústaður á lóð nr. 70, öndverðarnesi, Grímsnesi, þingl. eig.
Sigurjón B. Ámundason, gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í Reykjavík
og Grímsneshreppur.
Sumarbústaður og lóð nr. 12A, Þórisstöðum, Grímsnesi, þingl. eig.
Guðrún Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Vogur hf.
Unubakki 21, Þorlákshöfn, þingl. eig. S.P. fiskvinnsla hf., gerðarbeið-
andi S.G. Einingahús hf.
Víðigerði, Bisk., þingl. eig. Ólafur Ásbjörnsson og Ásrún Björgvins-
dóttir, gerðarbeiðendur Biskupstungnahreppur og Stofnlánadeild
landbúnaðarins.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
8. febrúar 1996.