Morgunblaðið - 09.02.1996, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 09.02.1996, Qupperneq 52
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Hæstiréttur um uppsögn þungaðrar konu Uppsögn stendur ef vinnuveitandi veit ekki af þungun HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær Rík- isútvarpið af kröfu konu, sem krafð- ist skaðabóta vegna uppsagnar. Kon- an var þunguð þegar henni var sagt upp störfum, en Hæstiréttur taldi að þar sem vinnuveitandinn hefði ekki vitað af þunguninni nyti konan ekki verndar lagaákvæðis um að óheimilt væri að segja bamshafandi konu upp starfi nema gildar ástæður væru fyrir hendi. Héraðsdómur hafnaði kröfu kon- unnar um skaðabætur, þar sem vinnuveitandinn hefði ekki vitað um þungunina. Konan mótmælti því ekki að ósannað væri að forsvarsmenn RÚV hefðu haft vitneskju um þung- un hennar þegar henni var tilkynnt um uppsögn. Hæstiréttur segir í dómi sínum að almennt þurfi atvinnurekandi ekki að greina ástæður fyrir upp- sögn úr starfi. í lögum 57/1987 hafi barnshafandi konum verið veitt sú réttarbót að vera verndaðar gegn uppsögn úr starfi nema af gildum ástæðum. „Eðlilegust skýring á lagaákvæði þessu, sem og á sér nokkra stoð í lögskýringargögnum, er að ekki megi láta konu gjalda þess að hún sé barnshafandi. Þung- un konu má því ekki vera ástæða uppsagnar heldur verða aðrar og gildar reglur að koma til. Ef vinnu- veitandi hefur ekki vitneskju um þungun konu þegar henni er sagt upp starfi getur þungunin ekki ver- ið ástæða uppsagnarinnar. Regian getur því ekki átt við þegar vitn- eskja vinnuveitandans er ekki fyrir hendi,“ segir í njðurstöðum Hæsta- réttar. Morgunblaðið/Ásdís Morgunblaðið/Ágúst Sprengdu nótina SKIPVERJAR á Jóni Kjartanssyni SU sprengdu djúpu nótina, er þeir fengu risakast á loðnumiðunum um 6 mílur austur af Hvalbak í fyrri- nótt. Þeir urðu því að skipta yfir á grunnu nótina eins og flest önn- ur loðnuskip, því að Ioðnan er nú að ganga upp á grynnra svæði að sögn skipverja á Jóni, sem segir óhenvjumikið af loðnu á miðunum. 42 síma- númer hleruð frá 1992 Á SÍÐUSTU þremur og hálfu ári hafa verið kveðnir upp 29 úrskurðir í héraðsdómstólum um heimild til að hlera sam- tals 42 símanúmer. Þar af voru 27 úrskurðir kveðnir upp í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrir- spurn Svavars Gestssonar, þingmanns Alþýðubandalags- ins. Svavar spurði hversu oft heimildir hefðu verið veittar til símahlerana síðasta ára- tug, en fram kemur í svarinu að tölvuskráning upplýsinga um dómsmál hafi fyrst hafist um mitt ár 1992, þegar hér- aðsdómstólarnir voru settir á stofn, og upplýsingar um símahleranir fyrir þann tíma séu svo brotakenndar að ráðu- neytið hafi ekki treyst sér til að taka þær saman. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað árið 1992 upp tvo úr- skurði um hlerun á tveimur símanúmerum, árið 1993 kvað dómurinn upp 8 úrskurði um hlerun á 10 númerum, árið 1994 9 úrskurði um hler- un á 16 númerum og á síð- asta ári voru úrskurðirnir 8 um hlerun á 12 númerum. Héraðsdómur Reykjaness kvað upp einn úrskurð, bæði árin 1992 og 1993, um hlerun á einu símanúmeri. Lengst hefur símahlerun staðið yfir í 2 mánuði en að meðaltali hafa þessar hleranir staðið í tæpa 30 daga. Ókunnugt um aðrar hleranir Svavar spurði sérstaklega hvort utanríkisráðuneytið hefði látið stunda símahleran- ir, en í svarinu kemur fram að dómsmálaráðuneytinu er ekki kunnugt um aðrar síma- hleranir en þær sem að ofan greinir. Framkvæmdum frestað við tvær skólpútrásir FRAMKVÆMDALOKUM við lagningu tveggja útrása frá hreinsistöð fyrir skólp út í sjó frá Ana- naustum, ásamt tengilögn meðfram Eiðsgranda og Ánanaustum að hreinsistöðinni, hefur verið frestað um eitt ár. Samkvæmt verkáætlun átti _ að ljúka framkvæmdunum á þessu ári. Heildar- kostnaður við þessi verkefni er áætlaður um 450 milljónir króna en á fjárhagsáætlun Reykjavíkur- borgar er 45 milljónum veitt til verksins. Á þessu ári eru tekjur Reykjavíkurborgar af holræsagjaldi áætlaðar 560 milljónir króna og tekjuáætlun fyrir síðasta ár nemur 555 milljónum króna. Sigurður Skarphéðinsson gatnamálastjóri segir að efnt verði til útboðs á þessu ári vegna þessara framkvæmda. „Við gefum þá verktökum góðan tíma til þess að undirbúa sig og verkið verður framkvæmt sum- arið 1997. Það kemur sér reyndar mjög vel fyrir okkur að verkefninu sé seinkað um eitt ár því það gefur okkur rýmri tíma. Það má búast við því að með þessu náist hagkvæmari innkaup og tilboð í framkvæmdirnar," sagði Sigurður. Framkvæmdir halda áfram við hreinsistöðina í Ánanaustum og á þessu ári verður framkvæmt fyrir 150 milljónir króna. Sigurður segir ráðgert að verkinu ljúki að mestu á árinu. Dælustöð hefur verið í gangi í Faxaskjóli í nokk- ur ár og dælir hún skólpi út frá Eiðsgranda uns hreinsistöðin hefur verið tekin í notkun. Við Eiðs- granda verður reist dælustöð sem mun dæla út skólpi, sem í dag er veitt út í fjöruborð við Eiðs- granda, til hreinsistöðvarinnar. „Það verður farið vel af stað með dælustöðina í Eiðsgranda og veitt er 60 milljónum króna tii framkvæmdarinnar á þessu ári,“ sagði Sigurður. Framkvæmt þegar fyrir rúma 2 milljarða Um síðustu áramót hafði Reykjavíkurborg veitt 2,2-2,3 milljörðum króna til endurnýjunar á aðal- holræsakerfi borgarinnar. Skólpi hefur verið dælt frá dælustöð við Laugalæk frá 1989 og búið er að leggja útrásir 100 metra út í sjó. Á þessu ári er veitt 20 milljónum króna til byggingu dælustöðvar við Sævarhöfða sem er þriðjungur af heildarkostnaði. Gert er ráð fyrir að ljúka framkvæmdinni á næsta ári og verður þá hægt að leggja af útrás sem fer í Elliðaárnar. Snjókast á Tjörninni í Reykjavík LANGÞRÁÐUR sryór hefur nú loks fallið í höfuðborginni undanfarna daga. Skíðafólk gladdist yfir því að lyftur voru opnaðar á skíðasvæðum höfuð- borgarsvæðisins og fjölmennti í brekkurnar til að stunda íþrótt og útiveru, margir hverjir eftir langa bið. Snjórinn í borginni er greinilega ekki aðeins skemmtun fyrir litlu börnin, sem fagna honum að sjálfsögðu og leika sér af lyst, heldur einnig fyrir þessa menntskælinga, sem fóru í alvöru snjókast á Tjörn- inni í Reykjavík. Þá varð handa- gangur í öskjunni eins og sést á myndinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.