Morgunblaðið - 28.04.1996, Page 12

Morgunblaðið - 28.04.1996, Page 12
12 B SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYIMDIR 17.000 höfðu séð Brotna ör Alls höfðu um 17.000 manns séð spenn- utryllinn Brotna ör í Regn- boganum eftir síðustu sýn- ingarhelgi. Þá höfðu um 27.000 manns séð gamanmyndina Níu mánuði og 6.000 manns myndimar For- dæmd með Demi Moore og Á förum frá Vegas með óskarsverðlaunaleikaranum Nicholas Cage. Regnboginn hefur nú byrjað sýningar á nýjustu mynd Woody Allens, „Mig- hty Aphrodite“, en næstu myndir bíósins eru m.a. Sýnd á næstunnl Úr „Cutthroat Island". Jackie Chan myndin „Rumble in the Bronx“, gamanmyndin Apaspil eða „Dunston Checks In“ og loks „From Dusk Tiil Dawn“ með George Cloon- ey og Quentin Tarantino. Einnig mun von á „Down Periscope", „Thinges To Do In Denver" og „Cutthroat Island". Stóra sumarmynd Regnbogans verður svo geimvísindatryllirinn „Inde- pendence Day“. MÁ síðustu kvikmyndasíðu gætti nokkurs misskilnings við útreikning á aðsókn í Reykjavík 1995. Hver íbúi á Stór-Reykjavíkursvæð- inu, sem telur 156000 manns, fór að jafnaði tæp- lega átta sinnum í bíó á síðasta ári en ekki ríflega Ijórum sinnum. Er beðist velvirðingar á mistökun- um. MBreski leikstjórinn Adr- ian Lyne sem áður gerði m. a. Hættuleg kynni og Stiga Jakobs (sjaldséð meistaraverk), mun á næstunni gera myndina „La femme infidele". Ekki hefur verið ráðið í hlutverkin en handritið gerir Alvin Sargent sem skrifaði „Ordinary Pe- ople“ og fjallar það um framhjáhald og afbrýði- semi, nokkuð sem Lyne þekkir bráðvel. MLoksins mun ráðist í framhald myndarinnar Amerískur varúlfur í London, sem gerði John Landis frægan fyrir margt löngu. Framhaldið heitir Amerískur varúlfur í París og óþekktur breskur leikstjóri Antohny Waller að nafni hefur verið ráðinn leikstjóri. Það eina sem hann hefur gert hingað til og vakið hefur athygli er Sögur úr Barrytown O’Kelly og Meaney í Söluvagninum. Söluvagninn eflir Doyle Einhveijar skemmtileg- ustu bíómyndir íra eru gerðar eftir sögum írska rithöfundarins Roddy Doyles eins og „The Comm- itments" eftir Álan Parker og Króginn eða „The Snap- per“ eftir Stephen Frears. Nýjust þeirra er Söluvagn- inn eða „The Van“. Eftir að Frears, einn fremsti leikstjóri Evrópu, lauk við Hollywoodstór- myndina „Mary Reilly“, sem væntanleg er í Stjörnu- bíó, ákvað hann að snúa sér að einhverju nær heima- högum sínum, mynd sem væri minni í sniðum og per- „Mute Witness", einstak- lega ódýr en haganlega gerður tryllir sem gerist í Moskvu og segir af ungri konu sem lendir í vondum málum þegar hún flækist í aðgerðir rússnesku maf- íunnar. Mafíósinn er leik- inn af Alec Guinness, sem ékki hefur leikið í bíómynd árum saman. MHeitið gæti átt við gaml- an hefndartrylli með Char- les Bronson en nýjasta mynd Sally Field heitir Auga fyrir auga eða „Eye for an Eye“. Það er spennumynd um móður sem eltir uppi morðingja dóttur sinnar. Kiefer Sut- herland fer með hlutverk hans og er enn einn góð- leikarinn sem tekur að sér að vera óþokkinn í sögunni. Bertolucci með nýja mynd Italski leikstjórinn Bern- ardo Bertolucci vinnur nú við gerð nýrrar myndar ásamt framleiðanda sínum, Jeremy Thomas. Hún heitir „Stealing Beauty" og er með Jeremy Irons í aðal- hlutverki. Með önnur hlut- verk fara Sinead Cusack, Donald McCann og Liv Tyler. Handritið er eftir Susan Minot en Tyler leikur konu að nafni Lucy Harmon sem heldur til Ítalíu þar sem hún ætl- ar að eyða sumarfríinu með fjöl- skylduvinum sínum. Nær- vera hennar hefur mikil áhrif á gest- gjafann og Enn nýr tangó Ástamálin í brenni- depli. aðra gesti staðarins en sak- leysi hennar minnir þá á sársaukann og lífsgleðina sem aðeins æskufólk fær upplifað. Frægastur er Bertolucci fyrir Síðasta tangó í París en ein af nýrri myndum hans, Síðasti keisarinn, raðaði á sig Óskurum fyrir nokkrum árum. í BÍÓ ENN er blásið til Stuttmyndadaga í Reykjavík og áhuga- menn um kvikmynda- gerð jafnt sem at- vinnumenn beðnir um að senda inn stutt- myndir sínar til sýn- inga og keppni seinni part maímánaðar. Stuttmyndadagar hafa sannað gildi sitt á marga vegu. Nýlega hreppti ein stuttmynd- anna í keppninni í fyrra, Klósettmenn- ing, fyrstu verðlaun í flokki tilraunamynda á hátíð í Danmörku. Kvikmyndagerðar- menn miðla af fróðleik sínum, reynslu og þekkingu I fyrirlestrum sem haldnir eru í tengslum við Stutt- myndadaga og fyrst og firemst er þar sýnt hið fjölbreyti- legasta safn mynda hvað- anæva að af land- inu. Þegar hafa I um 160 myndir I verið sýndar á hátíðunum, sém sýnir gróskuna í gerð stuttmynda hér á landi og mikilvægi þess að hafa vettvang fyr- ir þær. sónulegri. Söluvagninn varð fyrir valinu, enn ein Barrytownsagan úr Dyflinni. Colm Meaney fór með stórt hlutverk í Króg- anum og er í aðalhlutverki hér sem annar eigandi sölu- vagns þar sem boðið er upp á fisk og franskar. Félagi hans í kaupsýslunni er leik- inn af Donal O’Kelly en myndin er um vinskap þeirra og hvemig allt fer á versta veg í þeirra gróða- bralli. Með önnur hlutverk fara Ger Ryan, Caroline Rot- hwell, Brendan O’Carroll og Stuart Dunne. Hvad ef geimverur réóust á jörbina? Nýinnrás SKÁLDSAGA H. G. Wells, Innrásinfrá Mars, hefur getið af sér margt skemmtiefnið líklega þeirra fræg- ast og alræmdast útvarpsleikrit Orson Welles, sem tryllti bandaríska hlustendur svo að enn er í minnum haft. Skáldsögur, sjónvarpsþættir, popptónlist og bíó- myndir hafa verið samdar undir áhrifum þessarar sögu. Nýjasta útgáfa hennar er 60 milljón dollara bíómynd eftir Roland Emmerich sem eflaust á eftir að mala gull í sumar og heitir Þjóðhátíðardagurinn eða „Independ- ence Day“. eftir Amald Indríðason Fleiri innrásarmyndir eru á leiðinni; Tim Burton hefur eina í undir- búningi og í „Alien 4“ nálgast sýruslefandi wm^mmmmmmm geim- slaýmslin með stál- skoltana jörðina óðfluga. í Þjóðhá- tíðar- deginum segir af heljarinnar óvinaflota úr geimnum sem dreifir sér um jörðina í þeim eina til- gangi að þurrka út mann- kynið. Árásarskipin eru 20 kílómetra löng og skjóta frá sér eldgeisla sem samkvæmt einu sýn- ishomi sprengir m.a. upp Hvíta húsið í tannstöngla. Svo vill til að skelfingin ríður yfir á þjóðhátíðar- degi Bandaríkjanna, þann 4. júlí. Lítill hópur ein- staklinga undir forystu Bandaríkjaforseta, sem Bill Pullman leikur, reynir að hvað hann getur að finna léiðir til að stöðva verurnar en aðrir í hópn- um eru Will Smith og Jeff Goldblum, enn einu sinni sem sérvitur vísindamað- ur. Með önnur hlutverk fara Mary McDonnell, Randy Quaid og Robert Loggia. Hugmyndin að Þjóðhá- tíðardegi varð til á blaða- mannafundi af öllum stöð- um ef marka má orð höf- undanna, Emmerich og Dean Devlin, í breska kvikmyndatímaritinu Empire. Þeir voru að kynna mynd sína Stjörnu- hlið og blaðamaður spurði hvort þeir héldu að mögu- leiki væri á innrás utan úr geimnum. Ekki aldeilis, sögðu þeir en Emmerich hallaði sér að félaga sín- um og sagði: Ég held ég Innrásin frá Mars Úrgeimvísindatryllinum „Independence Day.“ sé kominn með næstu mynd í kollinn. Þeir fluttu sig að sögn til Mexíkó og skrifuðu þar kvikmynda- handrit á fjórum vikum. Níu kvikmyndaver gerðu tilboð tveimur dögum eftir að þeir létu handritið í hendur á umboðsmanni sínum og áður en fimm dagar voru liðnir hafði undirbúningur að gerð myndarinnar hafist en 20th Century Fox hreppti hnossið og hraðaði kvik- myndagerðinni eins og kostur var til að ná sum- arfrumsýningu. Búast má við tæknib- relluati miklu en höfund- arnir segja að brellurnar séu hinar margbreytileg- ustu allt frá því nýjasta í tölvuteikningum til gam- aldags víratækni. „Eitt af því sem við lærðum þegar við gerðum Stjörnuhlið var að dýrustu og erfið- ustu tæknibrelluatriðin eru ekki endilega þau áhrifamestu. Nú lögðum við áherslu á að fá mestan hvellinn fyrir sem minnst- an pening. Útkoman eru atriði sem hafa aldrei sést áður í bíó.“ Geimverurnar sjálfar voru hannaðar eft- ir þeim goðsögnum sem poppmenningin hefur skapað og við þekkjum úr bíómyndum og sjón- varpsþáttum en stigið er skrefi lengra í sköpun þeirra, hvað sem það nú þýðir. „Annars fjallar myndin í raun ekki um vondar geimverur heldur þá spurningu hvernig við- brögð okkar yrðu við inn- rás og hvernig við reynd- um að komast af,“ segir Devlin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.