Morgunblaðið - 28.04.1996, Side 14
14 B SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
DÆGURTÓNLIST
ÞAÐ GETUR tekið tíma að
koma frá sér efni þó viljinn
sé eflaust fyrir hendi hjá
flestum sveitum frá fyrsta
degi. Leiksvið fáránleikans
er tíu ára um þessar mund-
ir, en fyrsti diskur Leik-
sviðsins kom út fyrir fáum
dögum og framundan hljóm-
sveitarfrí.
Leiksvið fáránleikans
heldur upp á tíu ára
afmæli sitt um þessar mund-
ir, en á þéim tíma hafa fjöl-
margir komið við sögu sveit-
arinnar þó segja megi að
kjarninn hafi að mestu verið
sá sami. Undanfarið hefur
verið venju fremur hljótt um
Leiksviðið, sem skýrist með-
al annars af því að liðsmenn
eru tvístraðir um allar jarðir.
Afmæli Leiksvið fáránleikans.
Þungar
pæl-
ingar
Það aftrar sveitinni þó ekki
frá því að gefa út breiðskífu,
meðal annars í tilefni af af-
mælinu, en sú skífa hefur
verið nokkur ár í vinnslu.
„Við höfum eytt löngum
tíma til að taka plötuna upp
en ekki löngum tíma í hljóð-
veri,“ segja þeir félagar.
„Við höfum unnið þetta í
rólegheitunum og fyrir vikið
gefur platan góða mynd af
þróun Leiksviðsins."
Morgunblaðið/Ásdís
Þeir félagar segja að þó
nýjustu lögin á plötunni séu
þyngri og flóknari en þau
eldri séu ekki yfir þeim neinn
drungi.
Þeir Leiksviðsmenn segj-
ast hafa tekið upp tólf lög
sem úrval af tugum laga sem
þeir áttu í fórum sínum frá
ferlinum, en bæði var að að
ekki kemst endalaust fyrir á
geisladisk, og svo hitt sem
áður er getið að liðsmenn
hafi sumir flust búferlum,
jafnvel á milli landa.
Leiksvið fáránleikans er á
leið í frí eins og áður er get-
ið, því einn liðsmaður til við-
bótar á leið til útlanda. Sveit-
in heldur þó eina tónleika
áður en til þess kemur, sem
verða um leið útgáfutónleik-
ar, og verða í maí.
Spírandi baunarokk
Spírandi baunir eru um
það bil tveggja ára
hljómsveit, stofnuð uppúr
hljómsveitinni Kuski, sem
reyndar er starfandi enn-
þá. Mannaskipan er með
öðrum hætti, því gítar-
leikari Kusks er söngvari
Spírandi bauna, tónlistin
er einfaldari og kraftmeiri,
svo kraftmikil reyndar að
sumir vildu kalla hana pönk.
„Við lítum þo ekki á okkur
sem pönkara, megnið af því
sem við erum að leika er
alls ekki pönk að okkar mati;
þetta er bara baunarokk."
Þeir félagar segjast hafa
verið að fást lítillega við að
leika keyrslulög á Kusksæf-
ingum og smám saman vatt
það upp á sig, þeir fóru að
semja og allt í einu var orðin
til hljómsveit. „Það má
segja að hljómsveitin hafí
þó ekki farið að mótast
fyrr en frá áramótum,
þegar við ákváðum að taka Baunar Liðsmenn
þátt í tilraununum og fór- Spírandi bauna.
semja tólf lög, eiga nokkrar
hugmyndir, og stefna á að
taka upp breiðskífu og gefa
út í sumar. „Kusk er búin
að vera í gangi það lengi að
það er kominn tími á "að
gefa út og Baunirnar eru á
svipuðu róli Það er aftur á
móti ódýrara fyrir Spirandi
baunir að gefa út, þó þetta
Morgunblaðið/Sverrir
Á NÝLIÐNUM Músíktil-
raunum vakti meðal annars
athygli lífleg sviðsframkoma
og groddalegt keyrslurokk
hljómsveitarinnar Spírandi
bauna. Liðsmenn voru íjör-
lega klæddir, sérstaklega
söngvari sveitarinnar, aukin-
heldur sem textarnir vöktu
hrifningu fyrir einfaldleika
og kímni. Þegar upp var
staðið voru Spírandi baunir
valdar athyglisverðasta
hljómsveit tilraunanna.
um að semja og æfa fyrir
þær.“
Sem stendur er Kusk í
salti, en Baunaliðar stefna á
tónleikahald í sumar. „Það
er gaman að spila með
Kuski, en þetta er allt öðru-
vísi, gefur svo miklu meiri
útrás.“ Þeir eru búnir að
Björk tormelt, en annað,
þar á meðal fyrirtaks lag
sem Terry Hall fer á
kostum í, er nánast
grípandi, þó ekki telj-
ist það útvarpsvænt
á öld sölumennsku
og meðalmennsku.
Tricky leggur
áherslu á að
Nearly God
sé til-
rauna-
verkefni
umfram
allt, en
nýja nafnið
er valið vegna
þess meðal annars
að Island-útgáfan
vildi ekki gefa
út með honum
tvær plötur á
innan við ári.
Hann hefur þó
leyfi til þess
að gefa út
það sem
hann vill á
sínu eigin
merki, Durban
Poison, sem betur
fer fyrir tónlistarunn-
endur. Á plötunni er
Tricky enn að ryðja
nýjar brautir, en hann
segir að þriðja breið-
skífan, sem gefin verður
út síðar á árinu, verði öllu
venjulegri og villtari, enda
verði sú gefin út undir
gamla nafninu.
Gott dæmi um þetta
mátti heyra á breið-
skífu Trickys Maxinquaye,
einni bestu breiðskífu síð-
asta árs, að hann var að
teygja sig
í ýmsar
áttir, sem
gerði plöt-
una fjöl-
breytta og
ögrandi,
ekki síður
en dægi-
lega og
grípandi á
köflum. Fyrir skemmstu
kom síðan út ný breiðskífa
frá Tricky, ekki síðri en sú
fyrri, en undir öðru nafni,
Nearly God.
eftir Árno
Matthíosson
Næstum
guð
TÍSKUBYLGJUR eru yfirleitt dauðar eða dauðans mat-
ur þegar fjölmiðlar taka við sér. Slíkt er eðli þeirra að
þrífast best á meðan þær eru athvarf takmarkaðs hóps
listamanna sem eru að móta eitthvað nýtt án tillits til
söluvænleika eða framadrauma. Þannig var það til að
mynda með Bristol-bylgjuna, sem sumir vildu kalla trip-
hop, en þegar hún komst í hámæli voru brautryðjendurn-
ir, furðufuglinn Tricky þar á meðal, farnir að leita í
aðrar áttir til að finna sköpun sinni farveg.
Tricky hefur ekki farið
troðnar slóðir, eins og sjá
má af mörgu því sem á
Maxinquaye er að finna,
og unnið með ýmsum ólík-
um listamönnum. Flestir
muna eflaust að Ragn-
hildur Gísladóttir söng
inn á plötuna fyrir hann,
sem var reyndar tekin
að hluta upp á íslandi,
en einnig hefur hann
unnið með Björk
Guðmundsdóttur
sem sér stað á Post
hennar.
Nearly God er
einskonar útrás
Tricky fyrir sitt-
hvað samstarf
og ýmsir gestir eru á plöt-
unni, þar á meðal Björk
enn, en einnig kemur við
sögu Terry Hall, sá gamli
refur, Alison Moyet, Neneh
Cherry og Cath Coffey,
sem sungið hefur með
Stereo MC’s. Til viðbótar
er svo söngkonan Martina
sem Tricky hefur starfað
með undanfarin misseri.
Sérkennileg
blanda
Tónlistin er sérkennileg
blanda af þungri danstón-
list, ambienthljómum og
hreinræktaðri framúr-
stefnu. Sérstaklega eru
lögin sem hann vinnur með
wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm