Morgunblaðið - 28.04.1996, Side 20

Morgunblaðið - 28.04.1996, Side 20
20 B SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ ATVIN N MMAUGL ÝSINGAR Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðíng vantar í sumarafleysingar á Heilsugæslustöðina Hólmavík. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í vinnu- síma 451 3188 og heimasíma 451 3435. KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA Viðskiptafræðingur forstöðumaður verslunarsviðs Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum óskar eftir að ráða viðskiptafræðing til starfa. Starfssvið: 1. Gerð fjárhags- og rekstraráætlana. 2. Gerð árs- og mánaðaruppgjöra. 3. Eftirlit með framkvæmd stefnumótunar í áætlunum. 4. Dagleg stjórnun verslunarsviðs. 5. Birgðaeftirlit. 6. Önnur óskilgreind verkefni. Við leitum að viðskiptafræðingi sem getur starfað sjálfstætt og skipulagt og stjórnað störfum annarra. Nauðsynlegt að viðkom- andi hafi góða tölvuþekkingu og reynslu í notkun algengustu tölvuforrita. Æskileg þekking á verslunarrekstri. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar „KHB 222“ fyrir 7. maí nk. Hagva ngurhf Skeifunni 19 Reykjavík Sími 581 3666 Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir Framhaldsskóla- kennarar bókasafnsfræðingar Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi augiýsir eftirfarandi störf: Kennarastöður í ensku, íslensku, stærðfræði og tölvufræði, sögu og þýsku (1/2) eru lausar. Einnig gefst kostur á að sækja um kennara- stöður í rafeinda- og rafvirkjun, sálfræði, við- skiptagreinum og stundakennslu í dönsku, raungreinum, grunnteikningu, sérkennslu og samskiptum og tjáningu. í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi staría áhugasamir kennarar í nútímalegum skóla með rúmlega 600 nemendum. Vinnu- aðstaða kennara í skólanum er ný og mjög góð. Ráðið verður í kennarastöðu frá 1. ág- úst nk. Bókasafnsfræðing vantar í fullt starf á safni skólans frá 1. september nk. Safnið er vel búðið gögnum og tölvuvætt. Það gegnir miklu og vaxandi hlutverki í skóla- starfinu. Leitað er að starfsmanni sem stjórn- að getur daglegri starfsemi safnsins og leitt þróun þess. Vistarstjóra vantar á heimavist skólans á Akranesi frá 1. september nk. Starfinu fylgir ágætt húsnæði og unnt er að tengja það öðrum störfum s.s. stunda- kennslu. Leitað er að manni sem á gott með að umgangast og stjórna unglingum. Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til 22. maí. Umsóknir skulu sendar Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akranesi, Vogabraut 5, 300 Akranesi. Skólameistari. Starfskraft vantar Lítið fyrirtæki vantar traustan starfskraft. Þarf að hafa sölumannshæfileika. Mikil erlend samskipti. Alm. skrifstofustörf, bókhaldsþekking (Tok), sjá um innheimtu og gjaldkerastörf. Starf sem krefst ákveðni, samviskusemi og snyrtimennsku. Æskilegur aldur 26-46 ára. Vinsamlegast sendið umsókn ásamt mynd, meðmælum og uppl. um yður til afgreiðslu Mbl. merkt: „Starfskraftur - 4256“. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar Síðumúla 39 • Sími: 588 8500 • Bréfasími: 568 6270 Hlutastörf við félagslega heimaþjónustu Heimaþjónusta Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar leitar eftir traustu og áreiðanlegu fólki til starfa sem fyrst. í Grafarvog vantar aðstoð við fimm fatlaða einstaklinga sem eru að hefja sjálfstæða búsetu í fimm nýjum íbúðum, með sérstakri starfsmannaaðstöðu. Áætlað er að þjónust- an verði tvískipt eða tvö 50% störf. Vinnu- tími er frá kl. 8-12 og frá kl. 15-19 alla virka daga. í vesturbæ vantar aðstoð við tvo einstakl- inga í íbúð, fimmtán tíma á viku, mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga frá kl. 17-19 og aðra hvora helgi frá kl. 10-13. í Hlíðahverfi vantar aðstoð í félagslega íbúð þar sem búa þrír einstaklingar. Vinnutími frá kl. 9-13 alla virka daga. Þeir, sem áhuga hafa á að taka þátt í skemmtilegri uppbyggingu að sjálfstæðri búsetu fatlaðra, hafi samband við Hlíf Geirs- dóttur, deildarstjóra félagslegrar heimaþjón- ustu fyrir 66 ára og yngri, á skrifstofu heima- þjónustunnar, Álfabakka 12, eða í síma 567 0570. Leikskólar Reykjavíkurborgar Óskum að ráða leikskólakennara eða annað uppeldismenntað starfsfólk í neðangreinda leikskóla: Allan daginn: Funaborg v/Funafold. Upplýsingar gefur Sigríður Jónsdóttir, leik- skólastjóri í síma 587 9160. Jöklaborg v/Jöklasel. Upplýsingar gefur Elín Pálsdóttir, leikskóla- stjóri í síma 557 1099. Rofaborg v/Skólabæ. Upplýsingar gefur Þórunn G. Björnsdóttir, leikskólastjóri í síma 567 2290. Vesturborg v/Hagamel. Upplýsingar gefur Árni Garðarsson, leik- skólastjóri í síma 552 2438. í 50% starf e.h. Kvistaborg v/Kvistaland. Upplýsingar gefur Helga Hallgrímsdóttir, leikskólastjóri í síma 553 0311. Eldhús Aðstoðarmanneskju vantar í eldhús í leik- skólann Jöklaborg v/Jöklasel. Upplýsingar gefur Elín Pálsdóttir, leikskóla- stjóri í síma 557 1099. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími552 7277. Hjúkrunarfræðingar athugið Hjúkrunarfræðing vantar til sumarafleysinga á Heilsugæslustöðina og Hjúkrunarheimilið Sundabúð Vopnafirði. Nánari upplýsingar veita, Adda Tryggvadótt- ir, vinnusími 473 1225, heimasími 473 1108 og EmmaTryggvadóttir, vinnusími473 1320, heimasími 473 1168. ÍSLAN DSBAN Kl Lánasérfræðingur íslandsbanki hf. auglýsir stöðu lánasérfræð- ings við útibú bankans við Lækjargötu, Reykjavík, lausa til umsóknar. Helstu verkþættir lánasérfræðings eru: • Lánasérfræðingur vinnur að útlánamálum til fyrirtækja í sam- vinnu við útibússtjóra. • Vinnur að setningu markmiða er varða þjónustu bankans við fyrirtæki. • Gerir úttektir á fjárhagsstöðu og vinnur tillögur um úrlausn einstakra mála auk skýrslugerðar og ráðgjafar um mál sem varða þjónustu bankans við fyrirtæki og stofnanir. Umsækjandi. þarf að hafa viðskiptafræði- menntun, góða skipulagshæfileika og eiga gott með að umgangast samstarfsmenn og viðskiptavini bankans. Hann þarf auk þess að vera jafnvígur á hópvinnu og sjálfstæði í vinnu- brögðum. Bankinn býður upp á góða vinnuað- stöðu, frekari menntun og góðan starfsanda. Hér er því um líflegt og skemmtilegt starf að ræða hjá traustum vinnuveitanda. Nánari upplýsingar veitir Árni Gunnarsson, útibússtjóri, Lækjargötu. Umsóknir sendist Guðmundi Eiríkssyni, starfsmannaþjónustu íslandsbanka hf., Kirkjusandi, 155 Reykjavík, fyrir 13. maí 1996. Lausar stöður við Grunnskólann á ísafirði Á næsta skólaári eri lausar nokkrar kennara- stöður við Grunnskólann á ísafirði. Meðal kennslugreina eru: Almenn kennsla á yngra og miðstigi. Danska á unglingastigi. Náttúrufræði á unglingastigi. íþróttir pilta. Heimilisfræði. Handmennt. Tónkennsla. Sérkennsla. Vélritun/tölvufræði. ísafjörður er bæjarfélag með um 3.500 íbúa. Þar er margháttuð þjónusta og atvinnustarf- semi auk þess sem Vestfirðir eru rómaðir fyrir sérstæða náttúru og fjölbreytt tækifæri til útivistar og íþróttaiðkunar. Með samein- ingu sex sveitarfélaga á norðanverðum Vest- fjörðum hefur myndast öflugt sveitarfélag þar sem lögð verður áhersla á menntun og uppbyggingu skóla. í skólanum á ísafirði og útibúi í Hnífsdal eru um 580 nemendur. Húsnæðismál skólans eru í endurskoðun og sama er að segja um faglegt starf innan skólans. Skólinn hefur afnot af glæsilegri íþróttamiðstöð bæjarins. Allar kennslustofur á unglingastigi eru búnar samtengdum tölvum sem verið er að tengja við Internet. Hér er því um spennandi tæki- færi að ræða fyrir áhugasama og duglega kennara. Við bjóðum flutningsstyrk og hagstæða hú- saleigu. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri, Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson í síma 456 3044.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.