Morgunblaðið - 28.04.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1996 B 21
ATVINNVJA UGL YSINGAR
Læknaritari
óskast í afleysingu í sjö mánuði, frá 1. júní
1996 til 1. janúar 1997. Um er að ræða 100%
starf.
Upplýsingar gefur Kristín iæknafulltrúi í síma
567-7700 milli kl. 13.00 og 15.00.
1. stýrimaður
1. stýrimann vantar strax á nóta- og togveiði-
skipið ex Drangur SH-511. Skipið er nú í slipp
og endurbótum á Akranesi og verður tilbúið
til síldveiða 10. maí nk.
Upplýsingar gefnar á skrifstofu Jökuls hf.,
Raufarhöfn, sími 465-1200, í farsíma
854-5756 og 852-1065 og um borð í skipinu
hjá Haraldi Jónssyni og á kvöldin og um
helgar heima í síma 465-1212.
Matreiðslumaður
sumarvinna
Óskum eftir að ráða matreiðslumann til
starfa yfir væntanlegt sumartímabil. Starfið
felur í sér umsjón og ábyrgð og þá aðallega
er tengist eldhúsi. Leitum að ábyrgum og
útsjónarsömum matreiðslumanni.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist afgreiðslu Mbl. merkt-
ar: „M - 99“.
Veitingaskálinn Brú, Hrútafirði.
Atvinna - kennsla
Sérkennara eða kennara með kennslu-
reynslu vantar að Heppuskóla, Höfn. í skól-
anum eru 8.-10. bekkur með um 120 nem-
endur. Skólinn er einsetinn.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 478-
1348/1321 eða félagsmálastjóri í síma 478-
1702/1814.
Skólastjóri.
Ritstjóri
Stúdentablaðsins
Stúdentaráð Háskóla íslands auglýsir lausa
til umsóknar stöðu ritstjóra Stúdentablaðs-
ins. Hann verður ráðinn frá 15. júní nk. til
eins árs. Ritstjóri ber ábyrgð á útkomu
Stúdntablaðsins sem er gefið út reglulega
yfir vetrartímann af Stúdentaráði. Leitað er
að dugmiklum og áhugasömum einstaklingi
með nokkra reynslu af útgáfustörfum eða
blaðamennsku.
Umsóknir skulu berast skrifstofu SHÍ, Stúd-
entaheimilinu við Hringbraut fyrir 1. júní nk.
Allar nánari upplýsingar fást í síma 562-1080
eða í tölvupósti: shi@vortex.is.
Heimaþjónusta
Starfsmaður óskast til starfa í heimaþjón-
ustu. Um er að ræða 60% starf á heimili hjá
fötluðum einstaklingi auk helgar og kvöld-
vinnu 7. hverja viku. Starfið er fólgið í per-
sónulegri aðhlynningu og léttum heimilis-
störfum. Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst. Laun eru skv. kjara-
samningi starfsmannafélagsins Sóknar.
Frekari upplýsingar veitir forstöðumaður í
síma 566-8060 kl. 11.00 til 12.00 virka daga.
Félagsmálastjóri.
AKRANESKAUPSTAÐUR
Leikskólar
Laust er til umsóknar starf leikskólastjóra
við leikskólann Akrasel frá 1. ágúst nk.
Einnig eru laus til umsóknar störf leikskóla-
kennara við leikskóla Akraneskaupstaðar og
70% staða þroskaþjálfa.
Umsóknarfrestur er til 3. maí nk.
Upplýsingar veitir leikskólafulltrúi í síma 431
1211.
Leikskólafulltrúi,
félagsmálastjóri.
ÍSLAND
GETUR LEITT
HEIMINN INN
f NÝIA ÖLD
segir Vestur-íslendingurinn
Steve Thorlaksson, með því að virða
Lög Móses sem LÖG LANDSINS
Hagnýtt nám með alþjóðlegu yfirbragði
Útflutningsskólinn í samstarfi við Danska útflutningsskólann
Sumarskóli 10. júní - 21. júlí
ORIENT
Vönduð
fermingarúr
Verð
kr.ll.900.
Morgunblabib
fœst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
-kjarni málsins!
• Starfar þú við útflutning?
• Hefur þú áhuga á að
vinna við útflutning?
• Hefur þú áhuga á að
bæta þekkingu þína?
Veittir verða a.m.k. þrír námsstyrkir,
auk þess sem í boði eru sérstök
námslán hjá Búnaðarbanka íslands.
Að námi loknu verður a.m.k. tveim
nemendum boðin aðstaða hjá
íslenskum fyrirtækjum erlendis eða
sendiráðum íslands til þess að vinna að
markaðsmálum fýrir íslensk fyrirtæki.
Meöal kennara verður skólastjóri og fjórir kennarar Danska útflutingsskólans:
Útflutningsskólinn í samstarfi við „Den
Danske Eksportskole" býður 6 vikna sumar-
skóla á Sauðárkróki þar sem þekktir erlendir
og íslenskir sérfræðingar munu kenna.
Lögð verður áhersla á hagnýtt nám fyrir
þá sem starfa eða hafa áhuga á að starfa
við útflutning.
Kennt verður í hinu glæsilega skólahúsi
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki.
Nemendur munu gista í húsnæði FNV
mánudag til föstudags og um helgar
ef þeir óska.
Kennt verður á ensku og íslensku.
Bakhjarlar: B&mmwSlmfBmm
3 SAUOÁRKRÓKI - HOFSÓSI - VARMAHLÍO - FLJÓTtM
4
VERSLUNARRAÐ
ÍSLANDS
Mogens Blume Schmidter
skólastjóri Danska útflutnlngsskólans.
Hann starfaði lengi sem markaðsstjóri og
framkvæmdastjóri hjá dönskum
útflutningsfyrirtækjum og síðar sem
ráðgjafi og framkvæmdastjóri hjá danska
ráðgjafafyrirtækinu PA Consulting Group.
Hr. Schmidt tók við starfi rektors DDE á
sfðasta árl.
Vijay P. Jain er margreyndur
fræðimaður og ráðgjafi um markaösmál
og alþjóöaviðskipti. Hann hlaut
menntun slna (þrem löndum og hefur
starfaö vlða um heim. Hr. Jain er
danskur rfkisborgari og hefur kénnt við
Danska útflutningsskólann síöan 1979
jafnframt þvf að starfa sem ráðgjafi um
alþjóölega markaðsfærslu. Hr. Jain er
litríkur og hrffandi persónuleiki með
óvenju vlðtæka reynslu og bakgrunn.
Mogens Brock er
aðstoðarskólastjóri Danska
útflutningsskólans. Hann hefur sérhæft
sig á sviði stefnumörkunar og stjórnunar.
Hr. Brock er reyndur kennari við æðri
menntastofnanir auk þess sem hann
hefur tekið þátt í stjórnun og
stefnumörkun danskra fyrirtækja.
June da Fonseca erfædd
(Goa, þá portúgalskri nýlendu í
Indlandi. Hún starfaði 113 ár f
indverska sendiráöinu f
Kaupmannahöfn, lengst af sem
viöskiptafulltrúi. Hún hefur kennt
við Danska útflutningsskólann
sfðan 1989 aðallega á sviði
alþjóðlegra samsklpta.
Barry O'Loughlín erlri með mikla
alþjóðlega reynslu f viðskiptum og
fræðistörfum. Hann starfaöi í (rska
sendiráðinu I Danmörku f nokkur ár sem
viðskiptafulltrúi þar sem hann sérhæfði sig
í að styrkja viöskiptasambönd Ira á
Norðurlöndum. Barry O'Loughlin og June
da Fonseca eru hjón meö alþjóðlegu
yflrbragðl sem hafa valið sér heimili I
Danmörku. Þau hafa tekið sér frf frá kennslu
viö DDE I eitt ár til þess að stunda
framhaldsnám á Iriandi.
Upplýsingar í símum 568 7677 & 453 6281