Morgunblaðið - 28.04.1996, Síða 29
MORGUNBLÁÐÍÐ
SUNNUDAGÚR 28. APRÍL 1996 B 29
ENDUR fyrir löngu skrifaði ég lof-
grein um kaffið. Það var þá miklu
mikilvægara fyrir íslenzkt fólk og
annað, heldur en það nú er. Það
er svo margt, sem komið hefir fram
á sjónarsviðið í drykkjarmálum síð-
an þá, og er það reyndar einnig
þannig á öðrum sviðum í lífinu. Það
er allt of margt á boðstólum og úr
allt of mörgu að velja. Allir beijast
um að ná athygli okkar og helzt
selja okkur eitthvað. Og við erum
í vandræðum að ákveða okkur, eins
og máltækið segir: Sá á kvölina,
sem á völina. En áður fyrr skipaði
kaffið öruggan sess í hjörtum ís-
landsmanna, og maður þurfti ekki
að velja milli margra drykkja, eins
og ég greindi frá í greininni gömlu.
Rétt áður en ég og konan mín,
blessunin, giftum okkur, lallaði ég
mér við í Liverpool á Laugaveginum
og keypti kaffikönnu í búið. Yar
ég mjög ánægður með þau kaup,
og hefir sú kanna fylgt okkur alla
tíð síðan. Það var mikið hellt upp
á hana á íslandi, og sopinn úr henni
skerpti marga hugsun, hrakti burt
margan leiða, liðkaði margt mál-
beinið, hressti margan rykaðan
haus. Okkar kaffikanna skipaði
heiðurssess á heimilinu eins og tíðk-
ast á mörgum íslenzkum heimilum.
En nú, hérna í henni Ameríku,
hefir kaffikannan góða verið leyst
frá skyldustörfum sínum, a.m.k. í
bili, og kúrir nú uppi í efstu hillu
inni í eldhússkáp. Þegar við komum
hér, var hún strax tekin upp, saum-
aður nýr poki í hringinn, hann fyrst
soðinn í korg, og svo hafist handa
Kaffisopinn kætir og bætir
við að laga kaffi. Ætlunin var svo
sannarlega ekki að breyta kaffilög-
un heimilisins á hinn minnsta máta.
En einhvern veginn tókst könnunni
okkar góðu ekki að laga sig að stað-
háttum hér. Samt var það ekki
beinlínis hennar sök.
Hér eru næstum óþekktar kaffi-
könnur með mjóum stút, poka og
hring. Okkur gekk illa að fínna
kaffi, sem hentaði vel í uppáhell-
ingu. Sopinn varð einlægt gruggug-
ur og ekkert líkur því, sem hann
hafði verið uppi á íslandi, dökktær
og ilmandi. Eftir að hafa ráðgazt
við grannkonu, festum við kaup á
rafmagnskönnu, sem lagaði kaffi
að ameriskum sið. Maður lét í hana
vatn og kaffi og stakk svo í sam-
band. Auðvitað sauð hún svo vatnið
sjálf og hellti síðan uppá sig inn-
vortis. I tíu mínútur rumdi, kraum-
aði og bullaði í apparatinu, en svo
kviknaði rautt ljós og kaffið var
tilbúið.
En við að nota svona nýmóðins
tæki til að laga sopann er auðvitað
horfinn allur rómansinn af því að
búa til kaffið. Fátt getur jafnazt á
við að sitja á eldhúskolli við
vaxdúksþakið eldhúsborð, sem á er
svo sem ein skál af kleinum, svo
ég tali nú ekki um pönnukökur,
nýupprúllaðar með sykri, og spjalla
við húsmóðurina, þar sem hún
stendur við eldavélina með aðra
Þórir S. Gröndai
hönd á mjöðm, en með hinni hell-
andi úr hraðsuðukatlinum í pokann,
hálffylltan þessu indælis nýbrennda
og malaða kaffi. Stæði maður upp
til að athuga, hvernig niður sigi
vatnið, gæfi að líta þessa heillandi,
dularfullu liti ofan í pokanum. Alla
vega brúnar, lillabláar og himinblá-
ar kúlur myndast í froðunni, þégar
vatnið streymir yfir kaffið með
þessu sérkennilega, heillandi hljóði.
Eða þá ilmurinn!
Þá eru kaffídrykkjusiðirnir á ís-
landi mjög ólíkir því, sem hér tíðk-
ast. Ameríkaninn hefir tekið alla
rómantík úr kaffilöguninni, og svo
hefir hann ekki heldur neinar erfða-
venjur eða forna siði við sjálfa
drykkjuna. Hann notar ekki mola-
sykur, hann hefir engan kaffikúlt-
úr.
Mér frnnst notalegt að drekka
kaffi með íslendingum. Þeir hræra
lengi í bollanum, jafnvel þótt þeir
drekki bæði svart og sykurlaust. Svo
er blásið í hann þótt kaffið sé ekki
lengur heitt eftir alla hræruna. Þá
er molinn valinn úr karinu eftir
mikla umhugsun. Hann fer í munn-
inn og bollinn er borinn að vörum.
Oft mætir kaffiunnandinn honum á
miðri leið með því að beygja sig eilít-
ið yfir borðið. Næst heyrist þetta
notalega hljóð, sem kallað er sötur.
Svo kemur stunan, en þar næst
kemur molinn aftur í spiíið, og er
nú búið að hagræða honum einhvem
veginn uppi í viðkomandi þannig,
að hann verkar sem sía. Kaffið er
sogið í gegnum hann. Það er erfitt
að útskýra, hvað gerist innan-
munns, en utanfrá sjáum við, að
munnurinn fer í eins konar koss-stút
og kinnamar innhverfast. Loks er
kaffinu kyngt og þá er dæst.
Svona skrifaði ég um kaffið fyr-
ir meira en tuttugu árum, þegar
það var mikilvægasti drykkurinn í
lífi hvers Islendings. Þeir sem ekki
dmkku kaffi voru afar fáir, og vora
af flestum álitnir eitthvað skrítnir
og virtir til vorkunnar. Nýi tíminn
hefir breytt þessu öllu saman.
Kaffineyzla hefir dregizt saman á
íslandi sem í öðram löndum. Ýmsir
læknar hafa líka bannað sumum
sjúklingum sínum að njóta kaffis,
því það geti orsakað hraðan hjart-
slátt. Eg segi nú bara, að þegar
aldurinn færist yfir og hjartað berst
ekki lengur í bijóstinu vegna ástar-
skots, ættu allir að vera ánægðir
ef dælan tekur smá sprett fyrir tilst-
uðlan kaffisopa.
Allir mögulegir aðrir drykkir
hafa komizt í tízku qg kólafyrirtæk-
in hafa heilaþvegið milljónir ung-
menna til þess að hafna heitu kaffi
sem morgundrykk, en svelgja þess
í stað ískalt kóla og ropa á eftir.
Kaffiframleiðendur hafa mætt sam-
keppninni á ýmsan máta. Þeir hafa
aukið ijölbreytnina í úrvali og kom-
ið neytendum upp á að mala sínar
eigin baunir, sem hægt er að fá
með öllum mögulegum brögðum.
Svo er espresso kaffi og cappuccino
og ekki má gleyma koffínlausu
kaffi.
Svona er kaffimenningin orðin
flókin eins og reyndar allt blessað
lífíð. Það þarf samt ekki að þýða,
að ekki megi njóta góðs kaffís eins
og fyrr á tímum, en það er ekki
lengur sameiningartákn, eins og
það var á íslandi áður fyrr og eitt-
hvað, sem allir gátu notið saman.
Nú er algengt, ef sex manns fara
á veitingahús, að allir panti sinn
drykkinn hver. Einn pantar venju-
legj, kaffi, annar íste, sá þriðji koff-
ínlaust kaffi, sá íjórði espresso, sá
fimmti kóla og sá sjötti cappuccino.
Ég get ekki að því gert, að ég
sakna stundum kaffikönnunnar
okkar góðu. Þá tek ég hana niður
af hillu og heilsa uppá hana. Þegar
ég læt hana aftur inn í skápinn,
heyrist mér hún stundum andvarpa,
þá er ég loka skápnum.
I.O.O.F. 3 = 1784298 = Fl
I.O.O.F. 10 = 1774298= Dn
I.O.O.F. 19 = 1774298 = M.R.
□ GIMLI 5996042919 I Lf.
Hörgshlíð 12
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Nám í cranio sacral-
jöfnun
1. hluti af þremur 22.-28. júní.
Upplýsingar og skráning í síma
564-1803.
Frá Sálarrannsóknarfélagi
íslands
íslensku miðlarnir og huglaekn-
arnir:
Bjarni Kristjánsson, Guðrún
Hjörleifsdóttir, Flafsteinn Guð-
björnsson, Kristín Karlsdóttir,
Margrét Flafsteinsdóttir, Símon
Bacon og Þórunn Maggý Guð-
mundsdóttir verða öll að störf-
um hjá félaginu í apríl og maí.
Kristín Þorsteinsdóttir og María
Sigurðardóttir verða starfandi í
maí. Einnig er breski miðillinn
fris Hall væntanleg 26. maí og
verður til 16. júní. Velski miðillinn
Colin Kingshott verður hjá félag-
inu til 30. apríl. Daninn Kaare
H. Sörensen verður hér til 3.
maí en hann er með fyrirlífsupp-
rifjanir. Öll bjóða þau upp á
einkatíma.
Allar upplýsingar og bókanir eru
í síma 551 8130 milli kl. 10 og
12 og 14 og 16 og á skrifstof-
unni Garðastræti 8 milli kl. 9 og
12 og 13 og 17 alla virka daga.
Sálarrannsóknarfélag íslands.
Opið hugleiðslukvöld kl. 20.30,
Jórunn Oddsdóttir leiðir, í kvöld í
Sjálfeflisalnum, Nýbýlavegi 30,
Kópavogi, (gengið inn Dalbrekku-
megin). Aðgangseyrir 350 kr.
Allir velkomnir.
VEGURIIM
P Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Morgunsamkoma kl. 11.00.
Skipt í deildir. Unglingablessun.
Jón Gunnar Sigurðsson talar.
Kvöidsamkoma kt. 20.00.
Heimsókn frá Grace Vineyard.
Samúel Ingimarsson predikac.
Lofgjörð og fyrirbænir.
Allir hjartanlega velkomnir!
fcimhjólp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42 í dag kl. 16.
Mikill söngur. Samhjálparkórinn
tekur lagið. Vitnisburðir. Barna-
gæsla. Ræðumaður Óli Ágústs-
son. Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Samhálp.
H verfisgötu 105,1. hæð
Ert þú Guðrækinn eða trúræk-
inn? Seinni hluti. Hilmar Krist-
insson prédikar. Frelishetjurnar,
krakkakirkja kl. 10 sunnudags-
morgun. Fimmtudagskvöld
Kennslu- og bænastund.
Vertu frjáls - kíktu í Frelsið.
Velkomin í nýja húsnæðið okkar
á 1. hæð, Hverfisgötu 105.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma í dag kl.
16.30. Lofgjörðarhópur Fíladelf-
íu leiöir söng, ræðumaður Jó-
hannes Hinriksson. Barnagæsla
fyrir börn undir grunnskólaaldri.
Láttu sjá þig, þú ert innilega
velkominn.
Dagskrá vikunnar framundan:
Miðvikud.: Biblíulesturkl. 20.00.
Föstudagur: Krakkaklúbbur kl.
17.30, Skrefið kl. 19.00, ungl-
ingasamkoma kl. 20.30.
Dagsferð sunnud. 28. apríl
Kl. 10.30 Landnámsleiðin L8,
lokaáfangi, Bringur-Heiðarbær.
Verð kr. 1.200/1.400,-.
Dagsferð miðvikud. 1. maí
Kl. 10.30 Kristinarborg, Lónakot,
Óttarstaðir. Létt hringganga um
Almenning og með Ströndinni
sunnan Straumsvíkur. Hægt að
mæta á eigin bíl í ferðina. Verð
800/900.
Dagsferð sunnud. 5. maí
Kl. 10.30 Reykjavegurinn, ný
gönguleið, 1. áfangi: Reykjanes-
Bláa lónið.
Myndakvöld Útivistar verð-
ur haldið fimmtud. 2. maí
kl. 20.30.
Erla ivarsdóttir sýnir myndir af
þemasvæði Útivistar, Skaftár-
hreppi. Ægifagurt landslag og
gómsætar kaffiveitingar.
Útivist.
KROSSINN
Sunnudagur: Almenn samkoma
kl. 16.30. Barnagæsla er meðan
á samkomunni stendur.
Þriðjudagur: Biblíulestur kl. 20.30.
Föstudagur: Konunglegu her-
sveitirnar kl. 18.00. Barnastarf
fyrir 5-12 ára.
Laugardagur: Unglingasam-
koma kl. 20.30.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Sunnudagur 28. apríl
kl. 10.30. Skfðagönguferð á
Esju. Ný spennandi ferð. Farar-
stjóri: Gestur Kristjánsson. Verð
kr. 1.200.
Kl. 13.00 Keilir. Ekið að Hös-
kuldarvöllum og gengið þaðan.
Fagnið sumri með göngu á þetta
skemmtilega útsýnisfjall. Verð
kr. 1.200. Brottför frá BSÍ, aust-
anmegin og Mörkinni 6.
Kl. 14.00 Óskjuhlíð, sögu- og
minjaganga. Um 1-1,5 klst. fjöl-
skylduganga í fylgd Helga M.
Sigurðssonar, safnvarðar er
segja mun frá minjum í Öskju-
hlíð m.a. stríðsminjum, minjum
um búskap, Beneventum,
Landamerkjasteinum og fleira
skemmtilegu. Mæting við and-
dyri Perlunnar. Frí ferð. Ath. að
Öskjuhlíðargöngunar eru í tilefni
ferðasýningar í Perlunni.
Fararstjórar Ferðafélagsins,
munið fræðslukvöldið núna á
mánudagskvöldið 29. apríl kl. 20
í Mörkinni 6 (stóra sal). Fjallað
verður um leiðir og leiðarlýsing-
ar. Fjölmenniö.
Ferðafélag islands.
Samkoma í Breiðholtskirkju í
kvöld kl. 20. Friðrik Schram
prédikar. Lofgjörð og fyrirbænir.
Komum og lofum guð saman.
Allir hjartanlega velkomnir.
Grensásvegi 8
Samkoma og sunnudagaskóli í
dag kl. 11.00. Ásmundur Magn-
ússon prédikar. Allir velkomnir!
Sjónvarpsútsending á Omega
kl. 16.30.
Austurvegur ehf
Jákvæð uppbygging
mannsins
- Hinn kosturinn
Skráning stendur yfir í síma-
skrána/bókina „Jákvæð upp-
bygging mannsins - Hinn kost-
urinn". Þetta er skrá sem inni-
heldur uppl. um alla þá er stuðla
að uppbyggingu mannsins á já-
kvæðan hátt og án kemískra
efna. Þetta er skrá fyrir þá er
bjóða upp á nudd - miðlun -
heilun - yoga - reiki - verslun
- spálestur - grasalækningar -
huglækningar - og fyrir sjúkra-
nuddara, -þjálfa og -liða - nála-
stungur - sálfræðinga - seið-
menn - andlegar miðstöðvar -
jákvæð félagasamtök o.fl. i
þessum anda.
Þeir, sem áhuga hafa á að skrá
sig/auglýsa eða telja sig rétt-
komna í þessari bók eru beðnir
að hafa samband við Rafn/Guð-
rúnu í síma 565 2309. Skráningu
lýkur 31. maí '96 og skráin kem-
ur út 1. sept. '96.
Aðalstöðvar
KFUM og KFUK,
Holtavegi 28
Samkoma í dag kl. 17.00.
Ræðumaður:
Þórdís Ágústsdóttir.
Barnasamverur á sama tima.
Komum saman og lofum
Drottin.
Björgvinsborgarar og franskar
til sölu eftir samkomu.
Allir velkomnir.
§Hjálpræðis-
herinn
y Kirkjustræli 2
Kl. 20.00 Hjálpræðissamkoma, í
umsjá Áslaugar Haugland og
Katrínar Eyjólfsdóttur.
Allir velkomnir.
Mánudag kl. 16.00 Heimilasam-
band. Hilmar Símonarson talar.
Allar konur velkomnar.
Fjallið
Sænsk-íslensk fjallaráð-
stefna
verður haldin vikuna 6.-13. júlí
að Reykholti í Biskupstungum.
Þeir sem hafa áhuga, skrái sig
fyrir 30. apríl í sima 567 5458,
Ragnheiður, 553 8265, Þor-
björg, og 567 2717, Ólafía.
Ferðamenn athugið
Ódýr gisting í hjarta
Kaupmannahafnar.
Upplýsingar í síma 00-45-33-
253426.