Morgunblaðið - 28.04.1996, Side 30

Morgunblaðið - 28.04.1996, Side 30
30 B SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ i MARGMIÐLUN Tölvugeisladiskar CINEMANIA OG ALL MOVIE GUIDE MEÐ hveijum deginum sem líður setur margmiðlunarbyltingin æ meira mark sitt á daglegt líf og störf. Flest gott um það að segja, þó bóka- ormum þyki miður að sjá gamla kunningja hverfa úr umferð og safna ryki. Kvikmyndageirinn hefur ekki farið varhluta af breytingunum, nú eru t.d. fáanlegir hér á markaðnum tveir geisladiskar, Cinemania og All Movie Guide, þrungnir upplýsingum um tugþúsundir mynda og kvik- myndagerðarmenn, sannkallað draumaumhverfí kvikmyndaunn- enda. Þetta aðgengilega og skemmtilega form hefur nú þegar höggvið skarð í útgáfu kvikmyndahandbókanna og auðséð hvert stefnir. Hér verður litið á innihald þessara yfirgripsmiklu gagnabanka og efni þeirra kynnt í aðalatriðum. Fyrir nokkrum árum markaðs- etti risaveldið Microsoft Cinema- niu, fyrstu „kvikmyndahandbók- ina“ í tölvutæku formi. í dag er tæpast seld einkatölva án geisla- drifs (CD-ROM) sem voru fáséð og rándýr þegar Microsoft kynnti þessa nýjung. Móttökurnar voru frábærar, enda vel að hlutunum staðið. Um tíma var Cinemania nær einrátt á þessu sviði og fékk ekki umtalsverða samkeppni fyrr en kanadíski hug- búnaðarrisinn Corel, kom með AU Movie Guide á síðasta ári. Til allrar blessunar eru þessir tveir gagna- bankar að ýmsu leyti frábrugðnir. Cinemania er því orðin talsvert sjóaðri, og það sýnir sig. A markað- inn er komin fjórða útgáfa disksins, Cinemania ’96, með þeim breyting- um helstum að framvegis geta eig- endur „yngt hann upp“ með nýju viðbótarefni. Það verður gefið út mánaðarlega á diskum og eins er hægt að taka það beint upp af Alnet- inu. Cinemania er ekki margflókin, einn valkosturinn er stutt skoðunar- ferð þar sem notandinn getur kynnt sér innviði og uppbyggingu disksins (sami möguleiki er, á All Movie Gu- ide). Fyrirferðarmest innihaldsins er stuttorð gagnrýni Leonards Maltin, röskir 20.000 kvikmyndadómar úr Maltin’s Film and Video Guide. Maltin er miðjumaður sem hittir í mark hjá fjöldanum og hefur fallið í kramið hjá íslendingum. Eftir Ro- ger Ebert ( Siskel og Ebert) eru tæplega 2000, langar umsagnir. Úr smiðju Pauline Kael er boðið uppá 2600 dóma, flesta stytta, úr safninu ■ 5001 Nights at the Movies. Úr Cine Books er að finna mörghundruð, ít- arlegar umsagnir um nýjar jafnt sem gamlar myndir Æviágrip á 5. þúsunds listamanna úr öllum greinum kvikmyndagerðar- innar eru fengin úr Baselineog Ep- hraim Katz Film Encyclopedia . Þá geymir diskurinn um 1000 orða- og hugtakaútskýringar eftir James Monaco. Verðlaunaskrá („Award List“) telur allar helstu Óskarsverðlaunatil- nefnigar og -verðlaunahafa frá upp- hafi. Gallerybýður uppá kyrrmyndir, atriði og andlit, úr þúsundum mynda, fræg myndskeið úr nokkrum tugum og hundruð fleygra setninga og tilsvara. Einn valkostanna er gerð óska- myndalista, en diskurinn er ekki síst ætlaður myndbandaleigjendum. Býður Cinemania uppá margbreytta aðstoð, einkum er varðar gagnasöfn- un (varist vafasamar ábendingar!). Heimilisföng myndbandaleiga og -sala, þvers og kruss um N-Ameríku eru hér í tugatali Á „Yfirsýn - Overview", fyrstu valmyndinni sem birtist á skjánum, blasa öll herlegheitin við. Nú koma fyrir sjónir efnisflokkarnir, hægt að velja um myndir, menn, orðaskýring- ar, hugtök, ofl. Veljum þekkta mynd, t.d. Stjörnustríð. Þá byijum við á því að slá nafn hennar inn í þar til gerða stiku. Eftir að myndin er kom- in fram er skipt yfir á aðalvalmynd- ina. Þar birtist lengd hennar (121 mín.), flokkun Bandaríska kvik- myndaeftirlitsins (PG), hvort hún er 4 lit, fáanleg á myndbandi eða öðrum útgáfum. Hnappavalið sýnir að hægt Draumaumhverfi kvikmyndafíkilsins movn* 000 an«‘ i'/cm ■Vhe.f*K' er að skoða umsögn allra, fjögurra gagnrýnend- anna, skoða stuttan filmubút (las- ersverðaslaginn fræga), hlusta á samtals- og tónlistarbút úr þessari feykivinsælu ævintýramynd og fá fram á skjáinn mynd af þeim görp- um, Obi-Wan Keobi og Luke Skyw- alker. Hér er boðið uppá alla helstu valkosti disksins, í flestum tilfellum er umsögnin hans Maltins látin nægja. Millivísum („cross refer- ence“), er skemmtilegur kostur í gagnabönkum, Cinemania og All Movie Guide er engar undantekning- ar. Þau orð sem eru lituð eða undir- strikuð (,jump-text“) bjóða uppá þennan möguleika, sem gjarnan leið- ir af sér mikið „ráp“ milli manna- nafna og myndatitla. Nafnalistinn er langur, hægt að slá upp rösklega 4000 nöfnum leik- ara, leikstjóra, tökustjóra, osfr. Mað- ur hefur nafnaleitina á sama hátt og kvikmyndirnar, slær inn nafninu á leitarstikuna. Kíkjurn á gamla, góða Paul Newman. í ljós kemur að karl er liðlega sjötugur, kominn af verslunarmönnum í Ohio en hugn- aðist ekki að taka við sportyöruversl- unarrekstri ættarinnar.. Rakinn fer- ill hans frá því hann lék í Silfurkal- eiknum, sinni fyrstu mynd (og mis- tökum) árið 1954, til dagsins í dag. Báðir diskarnir sem hér er fjallað um bjóða uppá útprentun á efninu - æviágrip Newmans er t.d. tæpar tvær blaðsíður (A4). Á nafnaval- myndinni eru tveir möguleikar; ævi- ferill og myndalisti hlutaðeigandi. Einnig Öskarsverðlaunaskrá - ef slík er fyrir hendi. Hana er að fínna hjá Páli, margútnefndum manninum og hlaut hann að Iokum verðlaunin árið 1986, fyrir frammistöðu sína í The Color of Money Aðrir helstu valkostir á Cineman- ia eru hugtaka- og orðaskýringar („Topics"). Þar er að finna upplýs- ingar um jafn óskyld umfjöllunarefni og Noreg: (ekki orð um ísland !); langt mál um kvikmyndagerð þeirra og -menningu, allt frá Rasmus Bru- stein til Nils Gaup; og nítrat: (stór- hættulegt, eldfimt efni, notað í filmugerð allt til ársins 1950), og ýmislegt fróðlegt þar á milli. Smekkvísin er einkenni Cinema- niu en stórhugurinn er aðaltromp Corel’s All Movie Guide. Hann stær- ir sig af því að vera heimsins stærsti kvikmyndagagnabanki með upplýs- ingar yfir 90.000 myndir á disknum - og yfir milljón uppflettiorð. Mikið rétt. Gallinn hinsvegar sá að ærið mörg gefa lág- marks upplýsingaar, vík að því síðar. 90.000 myndir og annað eftir því! Hvorki fleiri né færri en 156.608 mannanöfn koma við sögu, allt frá kunnustu leikstjórum til óþekktra sviðsmanna. Orða- og hugtakaút- skýringar skipta þúsundum og er virkilega lofsverður hluti þessa mis- jafna gagnabanka. Leitarstöðin er þríþætt. Fyrst af öllu nokkurhundr- uð aðalleitarorð, t.d. Kvikmynda- og dreifíngarfyrirtæki (“Film Producti- on and Distribution Company). Ef sú lína er slegin inn kemur á skjáinn á sjötta tug uppflettiorða. Tökum sem dæmi 20th Century Fox; eftir að það hefur verið slegið inn birtist ítarleg saga kvikmyndaversins, frá frumkvöðlinum William Fox til nú- verandi eiganda þess, fjölmiðla- kóngsins Ruperts Murdoch. Hér get- ur kvikmyndafíkillinn unað sér tímunum saman. Aðgangurinn að All Movie Guide er tvíþættur. Á aðalvalmyndinni ber mest á þremur gluggum. Einn er leitarskjár, á öðrum birtast upplýs- ingamar sem flett er upp, á þeim þriðja stjörnugjöf, lengd og fram- leiðsluár. Ekki ósvipað umhverfi og Cinemania, þó fullmikið af gagnslitl- um óþarfa sem tefur fyrir nýgræð- ingum. Hér er slegið inn uppfletti- orðið og upplýsingar, hliðstæðar þeim á Cinemaniu, birtast. Af öðrum möguleikum á þessari valmynd má nefna 7 hnappa til hjálpar við val á leigumyndum, eigin stjörnugjöf og óskalista. Prentskip- unarhnappur og hjálparhnappur jafnan við hendina. Einn hnappurinn nefnist „Store", hann leiðir okkur inn í aðra valmymd. Nafngiftin liggur í augum uppi, hann leiðir notandann fram fyrir afgreiðsluborð á myndbandaleigu, öll dýrðin blasir við. Myndirnar í hillunum eru flokkaðar í 16 hópa; nýjar myndir, vestra, sjónvarpsefni, barnaefni, ljósbláma. Bak við borðið eru nokkrir valkostir; leikstjóralisti, stjörnulisti, spurningaleikur og listi yfir mynda- og manna- nöfn sem innnhalda kyrr- myndir, viðtöl eða kvik- myndabúta. Neðan við borðið er lína með margvíslegum upplýsingalyklum og hjálpar- tólum. Svosem afmælisdaga- bók kvikmyndagerðarmanna, þar sem m.a.kemur í ljós að ekki ómerkari menn en Dean Martin og Ken Loach hafa ástæðu til að samfagna lýðveld- inu 17. júní! Hér er einnig lykill- inn að hinu verklega orðasafni og frábærum verðlaunalista. Þar er hægt að finna verðlaunahafa allra helstu kvikmyndahátíða í jarðkringlunni í gegnum árin. Einn valkosturinn er landaval, þar sem litla ísland á nokkra fulltrúa, svo- sem „Hrafa“ Gunnlaugsson. Aðrir hnappar bjóða uppá slakari kosti einsog „Hughrif - Mood“, þar sem maður getur flett uppá flokkum einsog „Dagar víns og rósa, Veru- leikaflótti, Allt fyrir föðurlandið11... Þetta hjálpar kannski einhveijum. Báðir hafa diskarnir sína kosti og galla. Öll vinna og frágangur er til fyrirmyndar á Cinemaniu, hún nýtur þess að hafa þróast í nokkur ár. Aðföngin eru yfir höfuð vönduð. Maltin er vel til þess fallinn að velja ofaní flöldann, þó hann sé oft vafa- samur í nærskoðun. Hafði t.d lengi ýmigust á Eastwood, eða allt til þess tíma er JJnforgiven færði hon- um fjölda verðlauna og alheimslof. Ebert fellur í kramið hjá mörgum Bandaríkjamönnum og Kael og höf- undar Cine Books eru vandanum vaxnir. Tilvitnanir í Katz og Monaco skýrar og stuttorðar. Á hinn bóginn er uppflettiorðalistanum þröngur stakkur sniðinn, engar upplýsingar að finna um íjölda aukaleikara og tæknimanna. Millivísunin mikið fá- tæklegri en hjá keppinautnum frá Corel. Erfitt að átta sig á hvað það er sem skapar vægi í augum rit- stjóra Cinemaniu, þar fá smástirni einatt viðameiri umfjöllun en þekkt- ari nöfn og margir, mætir menn komast ekki á blað. Þeir hafa ekki þá afsökun að verkið sé að koma út í fyrsta sinn Það geta Coral-menn hinsvegar, og veitir ekki af, því það sem sting- ur mest í augun í All Movie Guide er afleitur prófarkalestur og skortur á -upplýsingum með fjölda mynda og persóna. Corel kippir því vafa- laust í liðinn í næstu útgáfu. Annað sem þeir mættu gjarnan endurskoða er allt húmbúkkið sem er til trafala og „myndbandaleiguumhverfið" er heldur ódýrt. Á hinn bóginn prýða hana heilmiklar upplýsingar um smámyndir, lítt kunna leikara, tæknimenn, kvikmyndatökumenn, osfrv., sem gleður augu fíklanna en skipta almenning kannske ekki eins miklu máli. Þá telja sumir það sjálf- sagt til galla að gagnrýnin á All Movie Guide felst eingöngu í stjörn- ugjöfinni. Öðrum mun þykja það kostur. í það heila tekið eru báðir disk- arnir hinir eigulegustu gripir, og kosta minna en innbundinn doðrant- ur; All Movie Guidekr. 3.139.-, en Cinemaniakr. 4.199.-. Uppsetningin sáraeinföld. Windows útgágáfan þarfnast 8 mb innra minnis og a.m.k. 386DX PC tölvu. Apple kemst af með 5mb minni og sys 7.0. Ég mæli með Cinemaniu fyrir hinn al- menna notanda en All Movie Guide fyrir kvikmyndafíkilinn. (Þeir eru ekki i rónni fyrr en þeir eiga báða...) Stjörnugjöf: Cinemania ★ ★ ★ ‘/2 All Movie Guide ★ ★ ★ Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.