Morgunblaðið - 05.06.1996, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Viðræðum um sameiningu ÚA og þriggja dótturfélaga Samheija slitið
Ágreiningfur um verðmæti
og framtíðarmöguleika
Ekki frekari áhugi Samherja á
hlutabréfakaupum í ÚA
Veitustofnanir
Reykjavíkur
25 milljónir
sparast með
breyttri
innheimtu
VIÐSKIPTAVINIR veitustofnana
Reykjavíkurborgar, þ.e. Hitaveit-
unnar og Rafmagnsveitunnar,
greiða reikninga þessara stofnana
mánaðarlega frá og með september
eða október í haust. Sendur verður
út einn reikningur, þar sem sundur-
liðaður er kostnaður við notkun
vatns og rafmagns og sér Lands-
banki íslands um innheimtuna.
Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjórnar veitustofnana, sagði að bein
lækkun kostnaðar vegna tilboðs
Landsbankans í innheimtuna næmi
5 milljónum, en 20 milljóna sparnað-
ur til viðbótar næðist með betri skil-
um vegna mánaðarlegra afborgana.
Afskriftir, sem nú næmu um 50
milljónum á ári, ættu einnig að
minnka verulega.
ÞORSTEINN Már Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Samheija, hefur
slitið viðræðum við fulltrúa stjórnar
Útgerðarfélags Akureyringa og bæj-
arstjórann á Akureyri um hugs-
anlega sameiningu þriggja dóttur-
félaga fyrirtækisins, Strýtu, Söltun-
arfélags Dalvíkur og Oddeyrar og
Útgerðarfélag Akureyringa. Við-
ræður hafa staðið yfír að undan-
förnu, en þeim lauk formiega í gær.
Fyrir atbeina bæjaryfírvalda tók
stjóm ÚA ákvörðun um að heija
viðræður við forsvarsmenn Sam-
heija um hugsanlega sameiningu
félaganna og hafa fulltrúar beggja
aðila undanfarnar vikur lagt mat á
verðmæti fyrirtækjanna og afkomu-
möguleika. „Þegar verið er að meta
fyrirtæki þarf að meta stöðuna í dag
og framtíðarmöguleikana. Þetta er
alltaf stór óvissuþáttur en við metum
þessa hluti ekki á sama hátt og að
okkar mati stóð ekki til að um þessa
hiuti yrði deilt,“ sagði Þorsteinn Már
Baldvinsson, framkvæmdastjóri
Samheija.
Ekki lengur áhugi á
hlutabréfakaupum
„Sýn okkar er ekki sú sama um
virði fyrirtækjanna og við sáum ekki
ástæðu til að halda viðræðum áfram.
Það fínnast einhveijir aðrir mögu-
ieikar og við höldum okkar striki,“
sagði Þorsteinn Már.
Samhliða viðræðum um samein-
ingu fyrirtækjanna óskaði Samheiji
eftir því að kannaður yrði möguleiki
á að Akureyrarbær seldi hluta sinna
bréfa í ÚA til Samheija og annarra,
en þó með það að markmiði að bær-
inn yrði áfram sterkur eignaraðili.
Eftir að viðræðum um stækkun ÚA
er lokið hefur Samheiji ekki frekari
áhuga á hlutabréfakaupum í félag-
inu, þar sem þau skapa ekki nægi-
lega möguleika tii áhrifa á stjórnun
fyrirtækisins.
Af hálfu Samheija var hugmyndin
að koma á laggirnar öflugu sjávarút-
vegsfyrirtæki í fjölbreyttum rekstri.
„Til að sameining fyrirtækja með
þessum hætti nái fram að ganga
þarf að ríkja um það fullkomin sátt
af hálfu beggja aðila,“ sagði Þor-
steinn Már.
Of mikið bar í milli
Björgólfur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags Ak-
ureyringa, sagði að viðræðurnar
hefðu verið opnar og gagnlegar, en
of mikið borið í milli til að raunhæft
væri að árangur næðist. „Þegar við
hófum þessar viðræður áttum við
allt eins von á að upp gæti komið
ágreiningur um eignarmat fyrir-
tækjanna. Það gerðist og við urðum
sammáia um að það þjónáði ekki
tilgangi að halda viðræðum áfram,“
sagði Björgólfur.
Morgunblaðið/Kristinn
f.': satask
WmZ', * Áswnaffi 'MLJÍjt
Póstur o g sími
verður hlutafé-
lag um áramót
PÓST- og símamálastofnun verður
breylt í hlutafélag um næstu ára-
mót samkvæmt lögum sem Alþingi
samþykkti í gær. Verður gefið út
eitt hlutabréf í Pósti og síma hf.
sem verður í eigu ríkisins.
Lögin voru samþykkt með 30
atkvæðum þingmanna Framsókn-
ar- og Sjálfstæðisflokks gegn 12
atkvæðum þingmanna Alþýðu-
bandalags, Kvennalista og Jóhönnu
Sigurðardóttur Þjóðvaka. Þing-
menn Alþýðuflokks og tveir þing-
menn Þjóðvaka sátu hjá við at-
kvæðagreiðslu um lagafrumvarpið.
Stjórnarandstæðingar gagn-
rýndu frumvarpið á ýmsum for-
sendum. Þeir fullyrtu m.a. að með
því væri búið í haginn fyrir einka-
væðingu póst- og símaþjónustunn-
ar í landinu og áskilnaður um sam-
þykki Alþingis, kæmi til sölu á
eignum ríkisins, væri mjög óljós.
Þá væri staða 2.500 starfsmanna
Póst- og símamálastofnunar í upp-
námi og óvíst hver áhrif af form-
breytingunni verði á hag ríkissjóðs
og neytenda.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra lýsti því hins vegar ítrekað
yfir að ekki stæði til að selja hiuta;
fé ríkisins í Pósti og síma hf. Í
lögunum segir að ekki megi selja
hlutaféð nema að undangengnu
samþykki Alþingis.
Halldór hefur einnig sagt að
nauðsynlegt væri að breyta P&S
í hlutafélag til að gera stofnunina
betur í stakk búna til að mæta
sívaxandi samkeppni í fjarskipt-
um, ekki síst erlendis frá.
Símgjöld jöfnuð
Samhliða frumvarpinu um Póst
og síma hf. voru flutt frumvörp
um breytingu á póstlögum og fjar-
skiptalögum. Samþykkt var breyt-
ingartillaga við síðastnefnda frum-
varpið frá meirihluta samgöngu-
nefndar Alþingis um að notkunar-
gjaid fyrir talsímaþjónustu skuli
vera það sama allstaðar á landinu
ekki síðar en um mitt ár 1998 og
þá verði óheimilt að innheimta
sérstakt álag vegna langlínusam-
tala.
Utför Ivars
Guðmunds-
sonar
ÚTFÖR Ivars Guðmundssonar,
fyrrverandi blaðamanns, frétta-
ritstjóra og upplýsingafulltrúa,
fór fram frá Dómkirkjunni í
Reykjavík kl. 15 í gær. Vinir og
vandamenn báru kistu hans úr
kirkju. Nær eru Guðmundur Guð-
mundsson, Inga Vagnsdóttir og
Helgi Oddsson aftast. Fjær eru
Geir Borg, Fríða Ingvarsdóttir og
Hans Jóhannsson aftast. Prestur
var séra Jakob Ágúst Hjálmars-
son, dómkirkjuprestur.
MEÐ blaðinu í dag fylgir
fjögurra síðna auglýsingablað
frá BYKO.
Fleiri farþegar
í innanlands- o g
millilandaflugi
FARÞEGUM í innanlandsflugi
fjölgaði í fyrra frá árinu 1994 á
ölium helstu áætlunarflugvöllum
landsins nema einum, í Vestmanna-
eyjum, þar sem farþegum fækkaði
um 12% milli áranna. Mest var
fjölgunin á Akureyri, eða um 8%
og á Hornafirði nam hún 7%. Á
þremur flugvöllum, á ísafírði,
Húsavík og Egilsstöðum, fjölgaði
farþegum um 6% milli ára, 5%
aukning varð í Reykjavík og 4%
aukning á Sauðárkróki. Heildarfar-
þegafjöldi innanlands undanfarin
tíu ár hefur aukist að meðaltali um
2% á ári.
Þetta kemur fram í yfirliti Flug-
málastjórnar. Þar segir enn fremur
að í innanlandsfluginu hafi vöru-
flutningar dregist saman um 5% frá
1994 til 1995 og póstur um 10%.
Þessi samdráttur var hlutfallslega
mestur á Húsavík og Egilsstöðum,
eða 25% á hvorum stað, en á tveim-
ur stöðum varð aukning sem nam
2%, eða á Sauðárkróki og Akur-
eyri. Að meðaltali hafa vöru- og
póstflutningar dregist saman um
8% á ári sl. fimm ár.
Millilandafarþegum fjölgaði á
síðasta ári um 10% og töldust þeir
tæplega 700 þúsund. Þar af voru
242 þúsund, eða 26%, áningarfar-
þegar á Keflavíkurflugvelli. I fyrra
fjölgaði millilandafarþegum á Ak-
ureyrarflugvelli um 17% og 10% í
Keflavík, en 19% fækkun varð í
Reykjavík. Fjölgunin á Keflavíkur-
flugvelli nemur 7% á ári að meðal-
tali sl. fimm ár.
Þrátt fyrir samdrátt í innanlands-
flutningum á vöru og pósti jukust
slíkir flutningar í millilandaflugi um
13% árið 1995. Meðaltalsaukning
um Keflavíkurflugvöll undanfarin
fímm ár nemur 8%.
Flest flugskírteini í tíu ár
í ársbk 1995 voru 324 loftför
skráð á íslandi, en 313 ári áður og
nemur aukningin 4%. Þessi tala
gefur þó ekki alveg rétta mynd, þar
sem töluvert var um nýskráningar
og afskráningar vegna tímabund-
inna verkefna flugrekenda erlendis.
Um síðustu áramót voru 1.910
einstaklingsflugskírteini í gildi, sem
er mesti fjöldi skírteina sem verið
hefur í gildi frá árinu 1986. Mest
fjölgaði í hópi flugnema, eða 13%.
Óvíst um þinglok
EKKI var ljóst í gærkvöldi hvort
þinglok yrðu á Alþingi í dag eins
og stefnt hafði verið að.
Miðað hafði verið við að ljúka
umræðu í nótt um þau mál sem af-
greiða átti og hafa atkvæðagreiðslur
um þau í dag. En undir miðnættið
hafði málum lítið miðað.
Frumvarp sjávarútvegsráðherra
um úthafsveiðar var tekið á dagskrá
í gærkvöldi og flutti Sighvatur
Björgvinsson, Alþýðuflokki, nærri 3
klst. framsöguræðu um minnihluta-
álit sjávarútvegsnefndar, sem vill
vísa málinu til ríkisstjómarinnar.
Frumvarp heilbrigðisráðherra um
svæðisráð sjúkrahúsa var tekið til
fyrstu umræðu í gær þrátt fyrir
andmæli stjórnarandstöðu. Umræð-
unni var frestað í gærkvöldi og upp-
lýsti Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra að frestunin hefði verið
án samráðs við sig, en slíkt er mjög
óvenjulegt þegar stjómarfrumvarp á
í hlut. Til stóð að hefja umræðuna
á ný í nótt eða dag. Þriðja ágrein-
ingsmálið, sem ríkisstjómin vill af-
greiða fyrir þinglok, er frumvarp um
náttúruvernd.
Forseti áfram
skattfijáls
Ljóst varð í gærkvöldi að frum-
varp um að afnema skattfrelsi for-
seta íslands verður ekki afgreitt á
þessu þingi og mun meirihluti alls-
herjarnefndar leggja til að málinu
v'sað til ríkisstjórnarinnar.
Minnihluti nefndarinnar lagði í gær-
kvöldi fram nefndarálit og átaldi
harðlega að frumvarpið hefði ekki
fengið viðhlítandi umfjöllun í nefnd-
ínm. Æskilegast hefði verið að
nefndin sjálf hefði flutt málið á þann
hatt sem pólitísk samstaða næðist
U"V°R að minnsta kosti hefði átt
að taka a skattfrelsi maka forseta,
sem se að mati minnihlutans ekki í
anda nyrrar jafnræðisreglu stjórnar-
skrarinnar.