Morgunblaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996 9
FRÉTTIR
Róleg laxveiði -
hörkugóð silungsveiði
LAXVEIÐIN hófst ekki af þeim
krafti sem bjartsýnir veiðimenn
væntu, en skýringin var þó ekki lax-
leysi heldur kuldakast sem brast á
og hafði mest áhrif á laugardaginn.
Síðan hefur ástandið farið skánandi.
Silungsveiði hófst aftur á móti á
tveimur frægum svæðum 1. júní, á
báðum urriðasvæðum Laxár í Þing-
eyjarsýslu og í Litluá í Kelduhverfi.
í báðum ám veiddist mjög vel, eink-
um er mið er tekið af slæmum að-
stæðum.
Sátt stjórn
„Þeir eru sáttir stjórnarmennirnir,
lokatalan hjá þeim var 24 laxar og
skilyrðin hafa batnað eftir kuldann
framan af helgi. Laxinn hefur veiðst
víða og er kominn á fulla ferð fram
í á. Þeir voru að tala um að 100
laxar væru komnir á milli fossa og
í gærmorgun voru tíu fiskar á Berg-
hylsbroti. Þórólfur Halldórsson fékk
einn þar og það hefur ekki gerst að
lax veiðist svo ofarlega í ánni jafn-
snemma sumars. Laxinn er allur 8
til 12 pund,“ sagði Jóhannes Stef-
ánsson, kokkur í veiðihúsinu við
Norðurá, um hádegisbilið.
Metlaxinn stækkar!
„Laxinn hans Jóns Ingvarssonar
var stærri heldur en við sögðum þér
á laugardaginn. Hann var þá nýkom-
inn á land pg Jón hafði sett hann á
vasavigt. Á henni vóg laxinn 18
pund. Á húsvigtinni kom hins vegar
í ljós að laxinn var 19 pund og förum
við að sjálfsögðu eftir henni," sagði
Jón Ólafsson í samtali við Morgun-
blaðið.
Þá voru komnir 12 laxar á land
úr Þverá og margir höfðu sloppið.
Það sama var uppi á teningnum í
Norðurá. Vatn hefur minnkað í báð-
um ánum síðustu daga, snjóforði er
lítill eða enginn og árnar reiða sig
á rigningu sem lætur enn ekki á sér
kræla. Verði sumarið þurrviðrasamt
gæti vatnsleysi sett strik í reikning-
inn víða.
Auk Norðurár og Þverár hefur
laxveiði aðeins byijað í Laxá á Ásum,
en þar hefur lítið verið að gerast.
Menn hafa þó orðið eitthvað varir í
Dulsunum og dregið þar nokkra laxa
. Lítið hefur sést annars staðar, en
hlutirnir eru þó fijótir að brejdast í
laxveiði eins og menn vita.
Hörkugóð urriðaveiði
„Það var hálfgert gjörningaveður
á laugardaginn er veiðin hófst, 1-2
stiga hiti, svarta þoka og slydda.
Samt var veiðin með ágætum og
menn duglegir þrátt fyrir ill skil-
yrði. Það veiddust 40 fiskar þann
daginn og á sunnudaginn var einnig
góð veiði, enda hafði veðrið þá snar-
batnað. Þetta var feitur og fallegur
fiskur, allt að 4,5 pund og hann
veiddist víða á svæðinu. Mest í Hof-
staðaey og frá Geirastöðum í byijun,
en svo lifnaði yfir á öðrum svæðum.
Mýið er aðeins að taka við sér og
ástand fiska sem veiðst hafa bendir
til þess að lífríkið er í góðu ásig-
komulagi," sagði Hólmfríður Jóns-
dóttir veiðivörður í samtali við Morg-
unblaðið nú í vikubyijun. Veiðin var
tekin á ýmsar straumflugur, einkum
í stærðum 4 og 6.
Á urriðasvæðinu í Laxárdal var
einnig góð veiði, 25 fiskar lágu
fyrsta daginn og hátt í annað eins
á sunnudaginn. Björg Jónsdóttir,
bústýra í veiðihúsinu að Rauðhólum,
sagði megnið af aflanum vera fal-
lega 4-5 punda fiska. Fluguvalið var
„úr öllum áttum“ eins og Björg orð-
aði það.
Stórir fiskar í Köldukvísl
Veiðimenn eru aðeins farnir að
renna í Köldukvísl sem fellur til
Tungnár skammt frá Sigöldu. Sem
dæmi um árangur má nefna fjög-
urra manna hóp sem renndi í einn
dag fyrir skömmu. Aflinn var 11
fiskar, allt 3-6,5 punda bleikjur. Tók
fiskurinn bæði spón og maðk.
HIÍTEL ÍSLAXD KYXXIR EIXA BESTU TÓXLISTARDABSKRÁ ALLRA TÍMA:
*ooftr,'BB KYHISLOOim
4oU»«s,on SKBMMTIR SÉR
BESTU LÚG ÁRATUGARIXS / FRÁBÆRUM FLUTXIXGI SÚXGVARA,
BAXSARA BG IO MAXXA HLJÚMSVEITAR GUXXARS ÞÓROARSOXAR
* THeSe«rchers
Sonxvarar:
Bjiirgvin Halldórsson
l’úlmi Gunnarsson ÁA,,
Ari Jónsson BRi
BjamiArason
Söngsystur, ; Úi i
Dansarar .
Kynnir:
Þoígéii Ástvaídsson
llandrit, úllit og lciks
Bjiirn G. Bjiinisson
Næstu sýningar:
júm': 8. og 22.
BITLAVINAFELAGIÐ
lelkur lyrip dansi eftip syninguna
ATH: Enginn aðgangseyrir
á danslcik!
HÓTETi fTOND
Vinsamlegast hafið samband, sími: 568 7111
Sértilboð á hótelgistingu, sími 568 8999
Geisladiskur með tónlistinni koininn út!
Minkapelsar
á tilboðsverði
Gríptu tœkiíœrið
Vorum að fá minkapelsa.
Allar stœrðir - mörg snið.
Greiðslukjör PELSINN
vlð allra hæfl. Kirkjuhvoli • sími 552 0160
3RI$t0tttlÞIll|irÍk ■k|arni málslns!
Ráðgjöf til eigenda
spariskírteina ríkissjóðs
Þann 1. og 10. júlí nk. koma til innlausnar
þrír flokkar spariskírteina ríkissjóðs frá 1986:
Við ráðleggjum þérvið endurfjármögnun á spariskírteinum þínum
og önnur atriði varðandi spariskírteinaeign þína. Hverfisgötu 6,2. hæð, sími 562 6040, fax5626068.
Hvaö sem þú gerir - sparaöu meö áskrift aö spariskírteinum
1986 - 1A6
1986 - 1A4
1986 - 2A6
Komdu eða hringdu í ráðgjafa Þjónustumiðstöðvar
ríkisverðbréfa og leitaðu upplýsinga um
spariskírteini ríkissjóðs og bestu kosti við
endurfjármögnun þeirra. Sími 562 6040.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA