Morgunblaðið - 05.06.1996, Page 14
(t (FAjiLií-Ji).k.M
~rr::rT7TT*rTr7*
MORGUNBLAÐIÐ
tH—l'tTi' “T:rÍ"S'il Jl't,v-IIUT3CT13-
14 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Tjaldurinn
og hreiðrið
Grindavík - Tjaldinum er ekki
gefið um gesti sem koma of ná-
lægt hreiðurstæði hans. Þegar
ljósmyndari var á ferðinni í Bót
í Grindavík gætti hann sín ekki
nægilega og tjaldurinn bað hann
lengstra orða að koma sér á
braut. Skömmu seinna gekk ljós-
myndarinn fram á hreiður með
þremur eggjum í, sem var tilefni
óskarinnar.
Skólaslit í
Reykholti
Reykholt - Nemendur náðu
ágætum árangri á fyrsta ári sem
skólinn er rekinn af FVA.
Á síðastliðnu sumri gerðu
menntamálaráðuneytið og Fjöl-
brautaskóli Vesturlands með sér
samkomulag um að FVA byði
upp á eins árs nám á framhalds-
skólastigi í Reykholti.
Námið er skilgreint sem til-
raunaverkefni og hentar vel
nemendum sem eru óákveðnir í
vali á framhaldsnámi og miðast
við nemendur sem eru að byija
framhaidsnám eða eru skammt
á veg komnir í því.
Fyrsta starfsár ársnáms í
Reykholti lauk með útskrift
nemendanna 19. maí sl. Til að
standast ársnámið þurfa nem-
endur að taka samtals 18 eining-
ar á vetrinum.
Auk hefðbundinna kjarna-
greina er námið fólgið í náms-
og starfsfræðslu, samskiptum
Morgunblaðið/DP.
STEINUNN Einarsdóttir til
vinstri og Auður Helgadóttir.
og Ijáningu, ritvinnslu og ýms-
um valgreinum, ljósmyndun,
myndlist, hestamennsku, mat-
reiðslu o.fl.
Bestum námsárangri náðu _
þrír nemendanna, þau Ágúst Oli
Leifsson, Steinunn Einarsdóttir
og Auður Helgadóttir.
Skólastjóri í Reykholti er Þór-
unn Reykdal.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
ÞÁTTTAKENDUR í fyrstu málmsuðukeppni í framhaldsskóla sem haldin var á vegum FS.
Fyrsta málmsuðu
keppnin hjá FS
Keflavík - Nýlega fór fram í Fjöl-
brautaskóla Suðumesja fyrsta
málmsuðukeppnin á vegum fram-
haldsskóla og tóku 10 nemendur
þátt í keppninni.
Landsbanki íslands veitti vegleg
verðlaun til sigurvegaranna. Krist-
ján Jóhannesson, kennari og deild-
arstjóri málmiðnaðardeildar, stjórn-
aði keppninni sem var opin öllum
og sagðist hann vonast til að næst
yrðu enn fleiri þátttakendur og þá
jafnvel aðilar úti á vinnumarkaðin-
um.
Keppt var í 3 mismunandi suðum,
uppsuðu með pinna (PF kverksuðu),
láréttri logsuðu (PA) og láréttri
hlífðargassuðu (PA). Síðan átti að
sjónskoða suðurnar, bæði raufarhlið
og rót, og síðan átti að röntgen-
mynda þijár bestu suðurnar.
Sigurvegari varð Eiríkur Jóhann
Einarsson og fékk að launum 50.000
kr. frá Landsbanka Islands, í öðru
sæti varð Jens Karl ísfjörð og fékk
í verðlaun 30.000 kr. og í þriðja
sæti varð Kári Haraldsson sem fékk
10.000 kr. að launum. Aðrir þátttak-
endur fengu viðurkenningar fyrir
þátttökuna.
KOLBRÚN Hjartardóttir er
nemandi í grunndeild málm-
iðnaðar og var einn af þátt-
takendunum í suðukeppninni.
Sjómannadagurinn í Eyjum
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
ÞAÐ voru mikil átök í reiptoginu þar sem síldar-
skipstjórar tókust á við skipstjóra af
bátum ísfélagsins.
ÞEIR voru heiðraðir fyrir vel unnin störf til
sjós. Hreinn Gunnarsson, Grétar Þorgils-
son og Einar Hannesson.
Fjöldi fólks tók þátt
í hátíðarhöldunum
Vestmannaeyjum - Hátíðarhöld
sjómannadagsins í Vestmannaeyj-
um fóru fram með hefðbundnu
sniði. Skemmtidagskrá var við Frið-
arhöfn á laugardag en síðan var
dagskrá á Stakkagerðistúni á
sunnudag.
Við Friðarhöfn var keppt í kapp-
róðri, reiptogi, knattspyrnukeppni
var milli áhafna og síðan var svo-
kallað bílastökk þar sem ofurhugi
ók bifreið á mikilli ferð fram af
stökkp'alli við bryggjukantinn og
flaug langt út í höfn. Búið var að
útbúa bílinn sérstaklega fyrir þetta
ævintýri, styrkja hann, festa öku-
mannssæti sérstaklega og var öku-
maðurinn klæddur flotgalla og
hjálmi og vel ólaður niður í sætið.
Mörgum þótti þó þetta atriði full
glæfralegt en ökumanninn sakaði
ekki þótt bifreiðin hafi verið fljót
að sökkva eftir að hún lenti í höfn-
inni.
Á laugardagskvöld voru síðan
dansleikir á fjórum stöðum og því
mikill fjöldi að skemmta sér.
Á sunnudeginum hófst dagskráin
í blíðskaparveðri með afhjúpun
minnisvarða um björgunarafrek
Jóns Vigfússonar er hann kleif Of-
anleitishamar 13. febrúar 1928 og
sundafrek Guðlaugs Friðþórssonar
er hann synti til lands eftir að Hell-
isey VE sökk austur af Heimaey
11. mars 1984. Sjómannamessa var
síðan í Landakirkju eftir hádegið
og að henni lokinni minntist Snorri
Óskarsson, hrapaðra, drukknaðra
og þeirra sem farist hafa í flugslys-
um við minnisvarðann á lóð Landa-
kirkju og blómsveigur var lagður
að minnisvarðanum.
Hátíðarhöld voru á Stakkagerð-
istúni síðdegis. Benedikt Valsson,
framkvæmdastjóri Farmanna og
fiskimannasambandsins, flutti þar
ræðu dagsins, Lúðrasveit Vest-
mannaeyja lék, Samkór Vest-
mannaeyja flutti nokkur lög og
hljómsveitin Hálft í hvoru og María
Björk fluttu nokkur sjómannalög.
Viðurkenningar voru veittar fyrir
keppni laugardagsins við Friðar-
höfn og sjómenn voru heiðraðir af
félögum sínum fyrir vel unnin störf.
Þeir sem heiðraðir voru að þessu
sinni voru Hreinn Gunnarsson, frá
Sjómannafélaginu Jötni, Grétar
Þorgilsson af Verðanda og Einar
Hannesson af Vélastjórafélagi
Vestmannaeyja.
Að vanda var sjómannadagskaffi
í Alþýðuhúsinu þar sem konur úr
Slysavarnadeildinni Eykyndli sáu
um kaffisölu.
Sj ómannadagurinn
á Húsavík
Húsavík - Sjómannadagurinn
var hátíðlega haldinn á Húsa-
vík með hefðbundnum hætti
og hófst með messu í Húsavík-
urkirkju þar sem sr. Sighvatur
Karlsson messaði.
Þótt bjart væri var svo kalt
að hátíðarhöldunum sem vera
áttu við höfnina var frestað.
Tveir aldraðir sjómenn voru
heiðraðir, þeir Helgi Bjarna-
son, sem stundað hefur sjó
mestan hluta ævi sinnar, og
Siguijón Kristjánsson, sem
stundar sjóinn enn þótt sjötug-
ur sé.
Slysavarnakonur gengust
fyrir kaffisölu í Félagsheimil-
inu og mættu þar á fjórða
hundrað manns, sem áttu þar
góða stund.
Morgunblaðið/Silli
ÞEIR voru heiðraðir, f.v. Siguijón
Kristjánsson og Helgi Bjarnson.
Ytri-Rangá við Helluþorp
Urbætur í
frárennsl-
ismálum
Hellu - í vor hafa staðið yfir fram-
kvæmdir við 1. áfanga í viðamiklum
úrbótum á frárennslismálum
Hellubúa. Nokkrar útrennslisrásir
við þorpið hafa verið sameinaðar
og útrennsli flutt neðar í ána en
tilgangurinn með því er að minnka
sjónmengun við þorpið.
Annar áfangi framkvæmdanna
verður á næstu misserum að koma
upp grófhreinsibúnaði við nýju út-
rásina. Þar mun síðar verða stað-
settur dælubrunnur sem mun dæla
frárennslinu í hreinsistöð sem áætl-
að er að reisa innan fárra ára.
„ Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
JÓHANN Bjarnason, verktaki
á Hellu, hefur haft umsjón
með verklegum framkvæmd-
um við nýju útrennslisrásirn-
ar við Hellu.