Morgunblaðið - 05.06.1996, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuter
Peres tekur á
móti Netanyahu
Jerúsalem. Reuter. ^
BENJAMIN Netanyahu, næsti for-
sætisráðherra ísraels, átti í gær
fyrsta fund sinn með Shimon Peres,
fráfarandi forsætisráðherra, eftir
kosningarnar. Ræddu þeir örygg-
ismál og valdaskiptin.
Hatrömm kosningabarátta virtist
gleymd þegar Netanyahu og Peres
tókust í hendur í viðurvist frétta-
manna og hétu því að starfa saman
að stjórnarskiptunum.
Netanyahu, sem sigraði Peres með
tæplega einu prósentustigi, ræddi við
Martin Indyk, sendiherra Bandaríkj-
anna í ísrael, á öðrum fundi. Sendi-
herrann sagði að fundinum loknum
að Netanyahu, leiðtogi Likud-banda-
lagsins, væri staðráðinn í að halda
áfram að vinna að friði með Palest-
ínumönnum þegar hann tæki við
völdum.
A myndinni sjást Peres og Net-
anyahu ræða við blaðamenn.
Stærsta dagblað Tékklands harðort í garð forsetans
Havel gagnrýndur
fyrir seinagang
Prag. Reuter.
STÆRSTA dagblaðið í Tékklandi
gagnrýndi Vaclav Havel, forseta
landsins, harðlega í gær fyrir að
skipa ekki hægrimanninn Vaclav
Klaus forsætisráðherra á ný eftir að
þriggja flokka samsteypustjórn hans
missti meirihluta á þingi í kosningun-
um um helgina.
I blaðinu Mlada Fronta Dnes sagði
að orðstír þjóðarinnar væri í húfi og
það gæti valdið óbætanlegu tjóni að
bíða með að skipa nýjan leiðtoga svo
vikum skipti. Skrif blaðsins þóttu
óvenju hörð gagnrýni á Havel, enda
sjaldan hallað á hann í fjölmiðlum.
„Það er óskiljanlegt að Vaclav
Havel forseti skyldi ekki veita Vaclav
Klaus umboð til að hefja viðræður
við samstarfsflokka og stjórnarand-
stöðu um myndun nýrrar stjórnar [á
mánudag]," skrifaði stjórnmálaskýr-
andinn Jiri Leschtina, sem er stuðn-
ingsmaður Klaus.
Leschtina gaf í skyn að staða Prag
sem eyja stöðugleika í krafti hægri-
stefnu væri í húfi, en allt í kring
réðu kommúnistar ríkjum.
Tékkneska fréttastofan CTK hafði
eftir heimildum innan stjórnarinnar
að Klaus hefði farið fram á að vera
skipaður forsætisráðherra á ný á
fundi með Havel á mánudag.
Havel sagði eftir fundinn að það
gæti tekið nokkrar vikur að velja
næsta forsætisráðherra, jafnvel þótt
viðræður um það hvernig komast
eigi úr sjálfheldunni, sem myndaðist
í kosningunum, gengju greiðlega.
Havel kveðst hlynntur því að sam-
steypustjórnin sitji áfram með ein-
hvers konar stuðningi jafnaðar-
manna, sem fengu meira fylgi í kosn-
ingnunum en búist hafði verið við
og áttu stærstan þátt í að stjórnin
missti meirihlutann.
Það verður ekki hlaupið að því að
mynda slíka stjórn þar sem Milos
Zeman, leiðtogi jafnaðarmanna, er í
nöp við Klaus og hefur sagst ekki
mundu styðja minnihlutastjórn með
hann í forystu.
Flokkur Klaus, Lýðræðislegi borg-
araflokkurinn, lýsti yfir því í gær að
það yrði gert að skiiyrði fyrir því að
flokkurinn sæti áfram í stjóm að
Klaus héldi forsætisráðherrastólnum.
Enginn skyldi þó útiloka slíka
stjórn því að Lýðræðislegi borgara-
flokkurinn og Jafnaðarmannaflokkur
Zemins hafa svipaða stefnu í efna-
hagsmálum, og greinir frekar á um
hraða umbóta, en markmið. Þá hafa
yfirlýsingar leiðtoga flokkanna verið
sýnu hófstilltari eftir kosningar, en
í hita kosningabaráttunnar.
Starfsmenn
Rauða
krossins
myrtir
Genf. Reuter.
ÞRÍR starfsmenn Alþjóðanefndar
Rauða krossins voru myrtir í Búr-
úndí í gær þegar óþekktir byssu-
menn hófu skothríð á bifreið starfs-
mannanna, að því er segir í yfirlýs-
ingu frá Rauða krossinum
Mennirnir þrír voru allir Sviss-
lendingar. Þeir voru á ferð í bifreið
merktri rauðum einkenniskrossi
samtakanna, á leið frá héraðinu
Cibitoke til Bajumbura, höfuðborg-
ar Búrúndí, þegar skotið var á þá,
nærri þorpinu Mugina.
í yfirlýsingu Rauða krossins er
árásin fordæmd, og einnig það virð-
ingarleysi sem merkjum alþjóða-
samtakanna hafi verið sýnt.
Einnig kemur fram að Rauði
krossinn veiti nú tugum þúsunda
íbúa Cibitoke-héraðs neyðaraðstoð,
þar sem skortur sé á vatni og lækn-
ishjálp. Miklir bardagar milli Hútu-
ættbálksins og Tútsa hafa geisað í
héraðinu.
Talsmaður Rauða krossins sagði
í gær að of snemmt væri að segja
til um hvort samtökin myndu kalla
heim fulltrúa sína í Búrúndí, en
þeir eru alls um 40.
-----*—♦—*---
Súdan
Mannskæð-
ur kóleru-
faraldur
Nairobi. Reuter.
KÓLERUFARALDUR hefur orðið
að minnsta kosti 700 manns að
bana í suðurhluta Súdans á síðustu
sjö vikum, að sögn alþjóðlegra
læknasamtaka í gær.
„Þetta er þó aðeins toppurinn á
ísjakanum þar sem starfsmenn
hjálparstofnana komast ekki á
mörg svæði í suðurhluta Súdans
vegna borgarastyrjaldarinnar,"
sagði í yfirlýsingu frá Læknum án
landamæra.
Meira en milljón manna hefur
flúið heimili sín í suðurhluta lands-
ins vegna borgarastyrjaldarinnar
sem hefur geisað frá árinu 1983.
Viðvörun frá Rauða krossinum
• •
Orbylgjuvopn
þrouð
Jakarta. Reuter.
VERIÐ er er að þróa örbylgju- og
hljóðvopn, þrátt fyrir nýlegt bann
við annarri tegund af vopnum sem
hafa skelfileg áhrif á menn, leysi-
geislum sem blinda þá er fyrir
verða. Þetta kom fram á ráðstefnu
sem Alþjóðanefnd Rauða krossins,
ICRC, stendur fyrir í Jakarta.
Louise Doswald-Beck, sem situr
í lögfræðideild ICRC, sagði að
vopnin sem fullyrt er að verið sé
að þróa, séu ógnun við núverandi
ástand í heimsmálum. „Nú fara
fram umfangsmiklar rannsóknir á
öflugum örbylgjuvopnum sem eiga
fyrst og fremst að hafa áhrif á
raftæki en margar spurningar
hafa vaknað um hvaða áhrif þær
kunna að hafa á menn.“ Sagði
Doswald-Beck að ýmislegt benti
til þess að slík vopn hefðu afar
slæm áhrif á heilann.
alaun
Þá nefndi hún hljóðvopn, sem
hún segir fjölda vopnaframleiðslu-
ríkja hafa þróað. Það eru vopn sem
senda frá sér hljóðbylgjur sem
hafa m.a. þau áhrif á eyru manna
að jafnvægisskyn þeirra brenglast.
„Menn missa jafnvægið og þeim
verður óglatt eftir skamma stund
en verði þeir fyrir miklum eða
langvarandi áhrifum, valda hljóð-
bylgjurnar dauða á svipaðan hátt
og sprenging.“
Doswald-Beck segir fjölmörg
iðnríki vinna að þróun á örbylgju-
og hljóðvopnum, þeirra á meðal
Bandaríkin, mörg Evrópuríki og
að öllum líkindum Rússar. Rauða
krossinum sé ómögulegt að krefj-
ast banns við þessum vopnum
vegna leyndarinnar sem umljúki
þróun þeirra.
Mistök á flotaæfingu
Skutu niður banda-
Reuter
Mikilvæg en illa
sótt ráðstefna
ÖNNUR Byggðaráðstefna Sam-
einuðu þjóðanna, HABITATII,
um lífið í stórborgum og þau
vandamál, sem þar er við að fást,
offjölgun, mengun og fátækt, er
nú haldin í Istanbul í Tyrklandi.
Talið er, að um 10.000 manns
muni sækja hana, miklu færri en
félagsmálaráðstefnuna í Kaup-
mannahöfn og kvennaráðstefn-
una i Peking á síðasta ári, og
lítið mun fara þar fyrir þjóðar-
leiðtogum. Er mikil óánægja með
þetta afskiptaleysi því að vanda-
málin, sem nú hrannast upp í
stórborgunum, geta haft alvar-
legar afleiðingar fyrir alla
heimsbyggðina. Mennirnir tveir
eru að virða fyrir sér veggmynd,
sem á að tákna eyðingu náttúru-
legs umhverfis. Páll Pétursson
félagsmálaráðherra flutti ræðu á
ráðstefnunni í gær fyrir hönd
íslendinga.
nska flugvél
Reuter.
AHOFN japansks tundurspillis
urðu á þau mistök í gær að skjóta
niður bandaríska herflugvél í sam-
eiginlegum flotaæfingum nokk-
urra ríkja vestur af Hawaii-eyjum.
Voru tveir menn í flugvélinni og
var báðum bjargað.
Bandaríska herflugvélin, árás-
arflugvél af gerðinni A-6E Intrud-
er, var skotin niður af áhöfn tund-
urspillisins Yugiris en hann ásaint
sjö öðrum japönskum herskipum
tók þátt í RIMPAC-flotaæfingun-
um, sem haldnar eru annað hvert
ár. Að auki tóku þátt í þeim skip
frá Suður-Kóreu, Chile, Ástralíu,
Kanada og Bandaríkjunum.
Talsmaður japanska varnar-
málaráðuneytisins sagði, að
bandaríska flugvélin hefði dregið
á eftir sér mannlausa flugvél eða
flygildi, sem átti að vera skot-
markið, en japönsku skytturnar
skutu hins vegar niður sjálfa drátt-
arflugvélina.
Flugmönnunum tveimur var
bjargað úr sjónum af báti frá
Yugiri og voru síðan fluttir með
þyrlu um borð í bandaríska flug-
móðurskipið Independent.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, sagði í gær, að flugmönnun-
um liði vel og hann og yfirmenn
bandaríska sjóhersins vildu gera
sem minnst úr þessum atburði.
Yfirvöld í Japan og Bandaríkjun-
um eru nú að kanna hvað fór úr-
skeiðis.