Morgunblaðið - 05.06.1996, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Stóreignafólk í fyrirrúmi
sjö spurningar til ríkisstjórnarinnar vegna „fjármagnstekjuskatts“
i.
JAÐARSKATTARá
almennar launatekjur
eru mjög háir og geta
verið frá 42% og upp
í 60 - 70% þegar bóta-
skerðingar eru með-
taldar. Samkvæmt
frumvarpi um skatt á
fjármagnstekjur verð-
ur jaðarskattur á arð,
'vexti og söluhagnað
10%. Ríkisstjómin hef-
ur skipað nefnd sem á
að kanna leiðir til þess
að lækka jaðarskatta.
Telur ríkisstjórnin það
brýnt forgangsverk-
efni að lækka jaðarskatt á tekjur,
sem fyrst og fremst er að finna hjá
stóreignafólki og hátekjumönnum
eins og gert er í stað þess að láta
eitt yfir alla ganga? Bæði Sjálf-
stæðisflokkur og Framsóknarflokk-
ur lýstu því í síðustu kosningabar-
áttu að brýnt væri að lækka jaðar-
skatta en kjósendum var ekki sagt
að stóreignafólk ætti að vera í fyrir-
rúmi og fá forgjöf.
Skattleysismörk hafa sífellt farið
lækkandi frá því að staðgreiðsla
skatta var tekin upp fyrir tæpum
áratug. Er svo komið að lág laun
eru skattlögð og skattleysismörk
einstaklings eru um 700 þúsund
krónur á ári og um 1,4 milljónir
hjá hjónum sem bæði vinna utan
heimilis. Samkvæmt frumvarpi um
skatt á fjármagnstekjur verða
.skattleysismörk fyrir vexti, arð,
húsaleigu og söluhagnað um 2.950
þúsund krónur á ári fyrir einstakl-
ing og um 5,9 milljónir króna fyrir
Ögmundur
Jónasson
hjón sem ekki stunda
launaða vinnu en lifa
af eignum sínum. Telur
ríkisstjórnin brýnna að
hækka skattfrelsis-
mörk þessa fólks en
þeirra sem vinna hörð-
um höndum fyrir lág-
um launum?
3.
Samkvæmt upplýs-
ingum Ríkisskattstjóra
munu breyttar reglur
um skattlagningu fyr-
irtækja skv. frumvarpi
um skatt á ljármagns-
tekjur geta leitt til þess
að tekjuskattur 40 tekjuhæstu
hlutafélaga landsins lækki um rúm-
lega 800 milljónir króna. Góð af-
koma fyrirtækjanna á m.a. rætur
að rekja til launasamninga með litl-
um launahækkunum á undanföm-
um árum þar sem launþegar hafa
orðið að taka á sig skerðingu tekna
en jafnframt verið sagt að þeir
myndu njóta þess síðar er aðstæður
í atvinnulífí bötnuðu. Telur ríkis-
stjórnin sanngjamt að þegar árang-
ur þessara fórna launþega kemur í
ljós í bættri afkomu atvinnurekstrar
og hækkuðum tekjum eigenda
fyrirtækja sé sköttum velt af þess-
um aðilum yfir á almennt launafólk
eins og gert er með frumvarpi um
skatt á fjármagnstekjur?
4.
Samkvæmt upplýsingum Ríkis-
skattstjóra mun skattstofn af arði,
söluhagnaði, lækka um 740 milljón-
ir króna. Þar af er lækkun skatt-
stofns þeirra 10% hjóna og einstakl-
inga, sem hæstar tekjur hafa um
Minmngargreinar
og aðrar greinar
FRÁ áramótum til 15. febrúar
sl. birti Morgunblaðið 890 minn-
ingargreinar um 235 einstakl-
inga. Ef miðað er við síðufjölda
var hér um að ræða 155 síður í
blaðinu á þessum tíma. í janúar
sl. var pappírskostnaður Morgun-
blaðsins rúmlega 50% hærri en á
sama tíma á árinu 1995. Er þetta
í samræmi við gífurlega hækkun
á dagblaðapappír um allan heim
á undanförnum misserum. Dag-
blöð víða um lönd hafa brugðizt
við. miklum verðhækkunum á
pappír með ýmsu móti m.a. með
því að stytta texta, minnka spáss-
íur o.fl.
Af pessum sökum og vegna
mikillar fjölgunar aðsendra
greina og minningargreina er
óhjákvæmilegt fyrir Morgunblað-
ið að takmarka nokkuð það rými
í blaðinu, sem gengur til birtingar
bæði á minningargreinum og al-
mennum aðsendum greinum. Rit-
stjórn Morgunblaðsins væntir
þess, að lesendur sýni þessu skiln-
ing enda er um hófsama tak-
mörkun á lengd greina að ræða.
Framvegis verður við það mið-
að, að um látinn einstakling birt-
ist ein uppistöðugrein af hæfí-
legri lengd en lengd annarra
greina um sama einstakling er
miðuð við 2.200 tölvuslög eða um
25 dálksentimetra í blaðinu.
í mörgum tilvikum er samráð
milli aðstandenda um skrif minn-
ingargreina og væntir Morgun-
blaðið þess, að þeir sjái sér fært
að haga því samráði á þann veg,
að blaðinu berist einungis ein
megingrein um hinn látna.
Jafnframt verður hámarks-
lengd almennra aðsendra greina
6.000 tölvuslög en hingað til hef-
ur verið miðað við 8.000 slö,g.
Sveinn
•••
Má benda þér á framhaldsnám
í idnfræði í bygginga-, véla-
og rafmagnsdeild.
Umsóknarfrestur er til 6. júni.
f
Leitið upplysinga í síma 577 1400.
tækniskóli fslands
Höfðabakki 9 -112 Reykjavík • Sími 577 1400
Bréfasími 577 1401 ■ Internet heimasíða: http://www.ti.is/
Telur ríkisstjómin það
forgangsverkefni, spyr
Ögmundur Jónasson,
að hækka skattfrelsis-
mörk stóreignafólks og
hátekjumanna?
465 milljónir króna og munu skatt-
ar þeirra lækka um rúmlega 200
milljónir króna og tekjur hins opin-
bera samsvarandi. Telur fjármála-
ráðherra sem beitt hefur sér fyrir
lækkun barnabóta og framlaga til
félagslegrar þjónustu að þessir 10%
tekjuhæstu þegnar landsins séu í
meiri þörf fyrir aðstoð af hálfu ríkis-
ins en barnafólk, sjúklingar og aldr-
aðir?
5.
Talið er að eigið fé Sameinaðra
verktaka, sem að mestu hefur verið
safnað í skjóli einokunaraðstöðu við
framkvæmdir á vegum varnarliðs-
ins, sé um 2,5 milljarðar króna.
Verðmæti þess fyrir hluthafana eft-
ir að hafa greitt skatt af söluhagn-
aði skv. núgildandi lögum er talið
vera um 1,5 milljarðar króna. Verð-
mæti þessara eigna fyrir hluthafana
mun hækka um 750 milljónir króna
eftir að hafa greitt skatt skv. frum-
varpi um skatt á fjármagnstekjur
og nýtt að fullu frestun á skattlagn-
ingu söluhagnaðar skv. þeim. Telur
ríkisstjórnin réttlætanlegt að auka
verðmæti hermangsgróða einok-
unaraðila með þessum hætti.
6.
Samkvæmt frétt í Morgunblað-
inu fyrr á árinu um Sjóvá-Almennar
var arður sem greiddur var 10 ein-
staklingum, sem tilgreindir voru í
fréttinni, 14,3 milljónir króna. Sam-
kvæmt gildandi lögum er skattur
þessara hluthafa af þessum tekjum
5,5-6,5 milljónir króna. Samkvæmt
frumvarpi um skatt á fjármagns-
tekjur mun þessi skattur lækka í 1
- 1,5 milljónir króna. Fjármálaráð-
herra hefur margoft lýst þeirri
skoðun sinni að þörf sé á að lækka
tekjuskatta. Telur hann og ríkis-
stjórnin að brýnast sé að bytja á
því verki með því að lækka skatta
stóreignafólks og hátekjumanna og
sérstaklega beini ég þeirri spurn-
ingu til Framsóknarflokksins hvort
það sé stefna hans að hafa stór-
eignafólk í fýrirrúmi?
Verðmæti hlutabréfa þeirra 10
einstaklinga, sem mest eiga í Sjóvá-
Almennum er talið vera um 1 millj-
arður króna miðað við markaðsverð
bréfanna og um 6-700 milljónir
króna eftir að greiddur hefur verið
skattur af söluhagnaði skv. núgild-
andi reglum. Með frumvarpi um
fjármagstekjuskatt mun verðmæti
eftir skatt af söluhagnaði hækka í
900 milljónir króna. Á undanförn-
um árum hefur misskipting eigna
í þjóðfélaginu aukist og þjóðarauð-
urinn færst á æ færri hendur. Telur
ríkisstjórnin ástæðu til að hraða
þessari þróun og auka þessa mis-
skiptingu enn frekar eins og gert
er með frumvarpi um skatt á fjár-
magnstekjur?
Höfundur er alþingismnður og
formaður BSRB.
Pappírsins virði
Jafnréttisáætlun Reykjavíkurborgar 1996-2000
UNGUR sagnfræð-
ingur, Kolfínna Bald-
vinsdóttir, skrifaði
prófritgerð við Háskóla
Islands um jafnréttis-
lögin sem hún nefndi
yEkki pappírsins virði“.
I viðtali við Mannlíf í
maí sl. fjallar hún m.a.
um þessa ritgerð og
segir að titillinn segi
allt sem segja þarf um
framkvæmd laganna.
Hún hafi orðið miður
sín yfír því hvað þessi
lög hafí verið iítils virt.
Hún tók lög sem banna
kattahald í fjölbýlishús-
um til samanburðar.
Þeim hafi verið framfylgt á stund-
inni. Kettirnir hefðu verir hrifsaðir
úr fangi eigendanna og drepnir
miskunnarlaust. Kolfinna segist
ekki skilja af hveiju sé ekki hægt
að framfylgja jafnréttislögunum af
sömu hörku. Engin viðurlög séu við
brotum á þeim.
Þessi frásögn er rifjuð hér upp í
tilefni þess að borgarráð samþykkti
samhljóða á fundi sínum 7. maí sl.
j afnréttisáætlun Reykj avíkurborgar
1996-2000. Miklar vonir eru bundn-
ar við þessa áætlun, að hún verði
raunverulegt tæki til að jafna stöðu
karla og kvenna. Á sama fundi í
borgarráði var ráðinn jafnréttisráð-
gjafí, en starfssvið hans hefur verið
skýrt afmarkað og gefíð mikið
vægi innan borgarkerfísins. Jafn-
réttisráðgjafinn er m.a. sérstakur
ráðgjafi borgarstjóra um jafnréttis-
mál og heyrir undir borgarritara,
æðsta embættismann borgarinnar.
Ennfremur hefur verið ákveðið að
borgarfulltrúi gegni í fyrsta sinn
formennsku í jafnréttisnefnd, en
ráðgjafmn vinnur í nánum tengslum
við nefndina. Með þessu breytta
fyrirkomulagi hafa jafnréttismálin
fengið þá stöðu sem þeim ber sam-
kvæmt lögum nr. 28/1991 um jafna
stöðu og jafnan rétt kvenna og
karla, því án vilja stjórnvalda verða
lögin einskisnýtt pappírsgagn.
Jafnréttisáætlunin tekur til
margra þátta, eins og starfsmanna-
mála, almennrar fræðslu, skóla-
mála, atvinnumála og fjölskyldu-
mála. En hvernig hyggjast borgar-
yfirvöld jafna stöðu karla og
kvenna? Hér verða nefndar nokkrar
aðgerðir samkvæmt áætluninni.
Stofnunum og fyrirtækjum borg-
arinnar er gert skylt að gera starfs-
Gerður
Steinþórsdóttir
áætlun í jafnréttismál-
um í upphafi hvers árs
í samvinnu við jafn-
réttisráðgjafa og
þurfa að gera jafnrétt-
isnefnd grein fyrir
stöðu mála í lok hvers
árs. Sú borgarstofnun
sem stendur sig best
það árið við að fram-
fylgja jafnréttisáætlun
borgarinnar hlýtur
viðurkenningu jafn-
réttisnefndar. Nefndin
úthlutar ennfremur
styrkjum til borgar-
stofnana vegna ein-
stakra verkefna sem
hafa það markmið að
jafna stöðu kynjanna.
Fjallað er í áætluninni um aug-
Breytt skipan jafnrétt-
isáætlana ber þess vitni,
segir Gerður Stein-
þórsdóttir, að borgar-
yfirvöld hafa vilja og
vald til að jafna stöðu
karla og kvenna.
lýsingar og ráðningar hjá borginni,
en þar segir m.a. að þegar ráða á
í stjórnunarstörf innan borgarkerf-
isins skuli hafa bæði kynin í huga
við gerð auglýsinga.
Til að auðvelda starfsfólki borg-
arinnar að samræma fjölskyldu-
ábyrgð starfi skal það eiga kost á
sveigjanlegum vinnutíma, hluta-
störfum eða annarri hagræðingu
vinnutíma, þar sem því verður við
komið.
Þá er í áætluninni kafli um
fræðslu og ráðgjöf. Þar er kveðið
á um að starfsmönnum borgarinnar
standi til boða aðstoð jafnréttisráð-
gjafa, bæði varðandi störf og starfs-
aðstæður eins og kjör og samskipti
á vinnustað, kynferðislega áreitni
og valdbeitingu. Ennfremur skal
jafnréttisráðgjafi veita borgarbú-
um, einstaklingum og hópum, að-
stoð við að leita réttar síns ef þeir
telja sér mismunað með tilliti til
kynferðis. Einnig er kveðið á um
jafnréttisfræðslu í skólum og á öðr-
um uppeldisstofnunum. Jafnréttis-
nefnd mun styðja sérstök þróunar-
verkefni í því skyni og veita fjár-
hagsstuðning og ráðgjöf þar að lút-
andi.
Nauðsynlegt er að gera kannanir
en mikilvægara að gera sér grein
fyrir tilgangi þeirra og notagildi. Á
þessu ári munu liggja fyrir niður-
stöður launakönnunar hjá Reykja-
víkurborg, en ljóst er að launamun-
ur kynja er töluverður. Þá er unnið
að starfsmannastefnu hjá borginni
og verður jafnréttisáætlunin höfð
til hliðsjónar við gerð hennar. Enn-
fremur verður unnið kynhlutlaust
starfsmat. Markmiðið með því er
að kanna hvort slíkt mat dragi fram
þætti í hefðbundnum kvennastörf-
um sem hingað til hafa verið van-
metnir. Þannig mætti lengi telja.
Hildur Jónsdóttir, nýráðinn jafn-
réttisráðgj afi Reykj avíkurborgar,
er fjölmiðlafræðingur að mennt.
Hún hefur víðtæka reynslu og þekk-
ingu af jafnréttismálum og er eld-
hugi mikill. Miklar vonir eru bundn-
ar við störf hennar hjá Reykjavíkur-
borg. Steinunn V. Óskarsdóttir tek-
ur við formennsku í jafnréttisnefnd
á fundi borgarstjórnar 6. júní.
Steinunn er skeleggur borgarfull-
trúi og fylgin sér.
Við gerð jafnréttisáætlunarinnar
leitaði jafnréttisnefnd álits margra
aðila innan borgarkerfisins sem
komu með gagnlegar ábendingar
og athugasemdir. Því ber að fagna
hversu víðtæk samstaða hefur
náðst um áætlunina.
Borgaryfirvöld hafa vilja og vald
til að jafna stöðu karla og kvenna
með sérstökum stjórnvaldsaðgerð-
um. Breytt skipan jafnréttismála
og framsækin áætlun ber þess
glöggt vitni.
Nú stendur fyrir dyrum kynning
á jafnréttisáætluninni. Áætlunin
mun fyrst birtast í heild í Borgar-
fréttum í þessum mánuði ásamt
kynningu á jafnréttisráðgjafa og
hlutverki hans. Borgarfréttir koma
inn á hvert heimili í Reykjavík og
eru borgarbúar eindregið hvattir til
að kynna sér jafnréttisáætlun
Reykjavíkurborgar 1996-2000 og
nýta sér hana. Markmið áætlunar-
innar er einmitt að flétta jafnréttis-
málin á þann hátt inn í starfsemi
borgarkerfisins og líf borgarbúa að
þau verði eðlilegur þáttur þess.
Höfundur á sæti íjafnréttisnefnd
Reykjavíkurborgar oggegndi
formcnnsku á tínmbilinu l.jimúar
til ö.júní 1996.