Morgunblaðið - 05.06.1996, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
Hvernig stendur á því Ég er ekki viss ... ég held
að fjölskylda þín á hud, að þetta sé einhvers konar
en ég ekki? könnun...
BREF
TEL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329
• Netfang: lauga@mbl.is
David Bowie á íslandi
Frá Halldóri R. Lárussyni:
TUTTUGASTA júní nk. heldur stór-
stjarnan David Bowie tónleika í
Laugardalshöllinni, það er með ólík-
indum hvað lítið hefur farið fyrir
þessum stórviðburði í íslenskum fjöl-
miðlum. Það hefur verið reynt í all-
mörg ár að fá Bowie til landsins til
tónleikahalds, það er fyrst nú sem
það hefur tekist og eiga þeir aðilar
sem þar eru að verki heiður skilinn
og óska ég þeim alls góðs. David
Bowie er einn af risunum í rokkinu,
lifandi goðsögn sem hefur óhræddur
farið ótroðnar slóðir og oftar skapað
nýjar tónlistarstefnur og strauma
en fylgja íjöldanum.
Það eru ófáir ungir tónlistarmenn
sem eiga David Bowie ekki lítið að
þakka í gegnum tíðina, maður heyr-
ir áhrif Bowies á hverjum degi á
hvaða rás sem er, en frummyndin
er alltaf best, ein besta hylling sem
Bowie hefur fengið er útsetning
Kurt Coabains og félaga í Nirvana
á lagi hans The Man who sold the
World, af Unplugged in New York,
þetta ágæta lag mun Bowie vænt-
anlega flytja í höllinni. Ég hef hlust-
að á og fylgst með Bowie í tuttugu
og fjögur ár, og séð hann á hljóm-
leikum fjórum sinnum, nú síðast í
Dublin í nóvember sl. Ég vil leyfa
mér að fullyrða að hann hefur sjald-
an eða aldrei verið jafnáhugaverður
og skemmtilegur. Nýi diskurinn 1.
Outside er gegnumheilt eyrnakonf-
ekt þar sem ekki er slegin ein ein-
asta feilnóta, og Bowie lofar einni
plötu á ári, í beinu framhaldi fram
til aldamóta.
En aðalástæða þess að ég rita
þetta bréf er sinnuleysi fjölmiðla á
hingaðkomu þessa tilvonandi ísland-
svinar, Stöð tvö sýndi einn laugar-
dag fyrir stuttu stuttan þátt um
Bowie og gerð nýju plötunnar, fínn
þáttur en á hræðilegum tíma og
hefði farið fram hjá mér ef einn fé-
þaginn hefði ekki hringt og látið vita.
Ég frétti að Rás tvö hefði spilað
nýlegar tónleikaupptökur með hon-
um, það mætti gjarnan senda þann
þátt út aftur og auglýsa hann bet-
ur. Ég veit að það er til hellingur
af efni um Bowie bæði í rituðu
máli og myndbönd og hljómleikar,
ég er viss um að þeim sem lítt þekkja
til mannsins þætti fengur í slíku
efni rétt eins og okkur hinum. MTV
hefur verið að sýna nokkrum sinnum
hljómleika með Bowie tekna upp í
Frakklandi í mars, er ekki hægt að
auglýsa þetta í útvarpi eins og t.d.
hefur verið gert með samtalsþætti á
Fjölvarpinu?
• Það er staðreynd að David Bowie
er að koma til Islands, það er nærri
uppselt á tónleikana, það væri gam-
an næstu vikurnar að þurfa ekki
bara að lesa og horfa á forsetafram-
bjóðendurna (gangi ykkur vel, eruð
þið búin að fá ykkur miða?) hjá öll-
um fjölmiðlunum, nóg verður nú
samt.
Að lokum vil ég hvetja alla sanna
tónlistaraðdáendur til að fjölmenna
í höllina, ekki síst unga fólkið, því
það eru fáir tónlistarmenn í jafnrétt-
um takti og Bowie er og á hljómleik-
um er hann engum líkur, nema sjálf-
um sér.
Ég tel að koma David Bowie hing-
að til lands sé stærsti tónlistarvið-
burður sem hér hefur átt sér stað
síðan Led Zeppelin komu hér á sínum
tíma (með fullri virðingu fyrir öllum
sem hafa sótt okkur heim í millitíð-
inni). Ég missti af Zeppelin og mig
svíður það enn (ég þekki þó strák
hvers bróðir fékk trommukjuða
Bonsós í höfuðið á þeim tónleikum).
Sjáumst í Höllinni, ég verð þessi
með kökkinn í hálsinum.
P.s. Það væri gaman að heyra frá
Bowie aðdáendum á netinu ég er
með netfang dorilaritreknet.is, svo
vil ég benda áhugasömum á að skoða
eftirfarandi netfang:
http://www.treknet.is/bowie.
HALLDÓR R. LÁRUSSON,
Skipasundi 39, Reykjavík.
Trjábeð í vanhirðu
við Perluna
Frá Óla Gunnarssyni:
ÖSKJUHLÍÐIN er mikil náttúru-
perla og þangað leggja margir leið
sína ekki hvað síst á góðviðrisdög-
um, en þeir hafa verið margir slíkir
sem af er sumri. Stærsti hluti þeirra
sem koma til að njóta útivistar og
útsýnis í Öskjuhlíðinni koma akandi
og leggja bílum sínum á bílastæðum
Perlunnar. Þessi bílastæði eru ágæt-
lega úr garði gerð og er skemmti-
Iega skipt með nokkrum tijábeðum.
Sá galli er á gjöf Njarðar að þessi
tijábeð eru í mikilli vanhirðu. Sér-
staklega á þetta við um beðið sem
fjærst er Perlunni, en það er að verða
ein illgresisflækja. Sannast sagna
stingur þetta mjög í augu þeirra fjöl-
mörgu sem þarna eiga leið um og
er þeim til vansa sem um ættu að
hirða.
Nú veit ég ekki hvort það er Hita-
veita Reykjavíkur eða rekstraraðili
Perlunnar sem á að sjá um þetta
mál, en það getur varla kostað mikla
fjármuni að halda þessu sæmilega
snyrtilegu.
Fyrst ég er farinn að stinga niður
penna á annað borð get ég ekki lát-
ið hjá líða að lýsa yfir hryggð minni
með skemmdarverkin á ljósastaur-
um þeim sem eru meðfram stígnum
milli Loftleiðahótels og Perlunnar.
Þarna hafa einhverjir lagt mikið á
sig við að mölbijóta ljósakúpla og
þeirra innihald á þó nokkrum ljósa-
staurum meðfram fyrrnefndum stíg.
Það væri út af fyrir sig verðugt
verkefni sálfræðinga eða annarra
slíkra að finna út hvað það er sem
er að plaga sál þeirra sem virðast
hart knúnir til að fremja skemmdar-
verk. Ég hef það sterklega á tilfinn-
ingunni að skemmdarfýsn sé út-
breiddari hérlendis en víða erlendis
- vonandi hef ég ekki rétt fyrir mér
í þessu efni.
Með þökk fyrir birtinguna.
ÓLI GUNNARSSON,
Fögrubrekku 42, Kópavogi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigi.r fyrirvari hér að lútandi.