Morgunblaðið - 07.08.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
Robinson
og Rich-
mond óttuð-
ust Júgó-
slava
BANDARÍSKU körfuknatt-
leiksmennirnir David Robin-
son og Mitch Richmond eru
þeir einu úr hópi „Drauma-
liðsins" sem beðið liafa ósigur
í landsleik í körfuknattleik.
Þeir voru í bandaríska lið-
inu, sem varð að sætta sig við
bronsverðlaunin á Ólympiu-
leikunum í Seoul 1988 en þá
var atvinnumönnunum úr
NBA-deiIdinni enn meinað að
leika með Iandsliðinu.
Robinson og Richmond við-
urkenndu fyrir samherjum
sínum eftir úrslitaleikinn á
laugardagskvöld að þeir
hefðu verið logandi hræddir
við Júgóslavana því þeir fé-
lagar þekktu vel þá tilfinn-
ingu að sjá á eftir ólympíu-
gullinu í hendur einhverra
annarra. „Þegar Júgóslavarn-
ir voru yfir í fyrri hálfleik
litum við Mitch hvor á aiuian
og óttuðumst mjög að sagan
frá því í S-Kóreu væri að end-
urtaka sig,“ sagði David Rob-
inson að leik loknum og Mitch
Richmond bætti við: „Það er
þungu fargi af mér létt.“
Banda-
rísku
stúlkurnar
fetuðu í
fótspor
„Drauma-
liðsins11
Bandaríska kvennalandsliðið í
körfuknattleik fetaði á sunnu-
dagskvöld í fótspor „Draumaliðs-
ins“ þegar það lagði lið Brasilíu að
velli, 111:87, í úrslitaleik Ólympíu-
leikanna í Atlanta og tryggði sér
þar með ólympíumeistaratitilinn í
greininni.
Bandarísku stúlkurnar, sem biðu
nauman ósigur fyrir Samveldinu í
úrslitaleik Ólympíuleikanna í Barc-
elona fyrir fjórum árum, léku hrein-
lega við hvern sinn fingur á sunnu-
daginn og náðu þær með sigrinum
að koma fram hefndum fyrir ósigur-
inn á heimsmeistaramótinu í Ástral-
íu 1994 þegar þær biðu lægri hlut
fyrir heimsmeisturum Brásilíu í
undanúrslitaleik.
Fögnuður bandarísku stúlknanna
var taumlaus í leikslok á sunnudag-
inn og hoppuðu þær og skoppuðu
um alla höll af gleði en aldrei hefur
kvennalandslið náð að skora jafn
mörg stig í úrslitaleik á Ólympíu-
leikum og það bandaríska gegn
Brasilíu.
Lisa Leslie var sem fyrr stiga-
hæst heimamanna með 29 stig,
Sheryl Swoopes gerði 16 og Ruthie
Bolton 15 en stigahæst þeirra bras-
ilísku var Janeth Arcain með 24
stig.
I leik um þriðja sætið báru svo
Ástralir sigurorð af Úkraínu, 66:56,
og var ástralska stúlkan Michelle
Brogan stigahæst í leiknum með
19 stig.
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 D 17
QSiP ATLANTA ’96
Morgunblaðið/Kristinn
REGGIE Miller treður boltanum í körfuna eftlr hraðaupphlaup
bandaríska liðsins.
Fyrsta
ólympíugull
Afnkuþjóðar
í knattspymu
Nígeríumenn urðu á laugardags-
kvöld fyrstir Afríkuþjóða til
þess að fagna sigri í knattspyrnu-
keppni Ólympíuleikanna þegar þeir
lögðu að velli Argentínumenn í
hörkuspennandi og bráðfjörugum
úrslitaleik, 3:2.
Argentínumenn fengu að vísu
óskabyijun þegar Claudio Lopez
kom þeim yfir strax á 2. mínútu
en eftir það tóku Afríkubúarnir öll
völd á vellinum
KNATTSPYRNA
hans voru hins vegar á allt öðru
máli og það voru því Nígeríumenn,
sem stigu trylltan sigurdans í leiks-
lok því ólympíugullið var þeirra en
Argentínumenn gátu hins vegar
vart leynt vonbrigðum sínum og
gengu sumir þeirra af velli með
tárin í augunum.
„Þetta er ekki eingöngu stór sig-
ur fyrir Nígeriumenn heldur knatt-
spyrnuna í heild því í þessum leik
sannaðist að
og um miðjan
fyrri hálfleik
náði Celestine
Babayaro að
jafna metin með
laglegum skalla
eftir auka-
spyrnu.
Argentínu-
menn komu svo
mun ákveðnari
til leiks eftir leik- _____________
hlé og þegar um
stundarfjórðungur var liðinn af síð-
ari hálfleik kom markahrókurinn
mikli, Hernan Crespo, þeim yfir á
ný með marki úr mjög svo um-
deildri vítaspyrnu. Nígeríumenn
neituðu þó að gefast upp og á 74.
mínútu náði Daniel Amokachi að
jafna metin og örfáum mínútum
fyrir leikslok kom svo varamaðurinn
Emmanuel Amunike þeim yfir, 3:2,
en Argentínumenn mótmæltu há-
stöfum og töldu Amuniké hafa ver-
ið rangstæðan.
Pierluigi Collina, dómarinn góð-
kunni frá Italíu, og aðstoðardómari
Varamaðurinn
Emmanuel Amunike
skoraði sigurmark
Nígeríu á elleftu
stundu, 3:2
sóknarknatt-
spyrna er það
sem gefur best-
an árangur og
hún er einnig
skemmtilegust á
að horfa,“ sagði
þjálfari Nígeríu-
manna, Hollend-
ingurinn Jo Bon-
frere, að leik
loknum og þjálf-
ari Argentínu-
manna, Daniel Pasarella, hrósaði
Nígeríumönnum í hástert og sagði
leikinn hafa verið frábæra viðureign
tveggja frábærra liða.
I leik um þriðja sætið báru svo
heimsmeistarar Brasilíumanna sig-
urorð af Portúgölum, 5:0, þar sem
þeir Ronaldo og Flavio Conceiaco
gerðu sitt markið hvor á upphafs-
mínútum leiksins og Bebeto bætti
síðan við þremur mörkum í síðari
hálfleik og varð hann þar með
markahæsti leikmaður Ólympíu-
leikanna, ásamt Crespo hinum arg-
entínska, með sex mörk.
OPNA
MOTIÐ
Golfklúbbur Reykjavíkur gengst fyrir opnu golfmóti í Grafarholti
fyrir alla kylfinga, 15 ára og eldri, dagana 10. og 11. ágúst 1996.
Leikin verður punktakeppni - Stableford - með 7/8 forgjöf, tveir og tveir leika saman betri bolta.
Hámarksgefin forgjöf er 18.
25 efstu sætin gefa verðlaun. 10 utanlandsferðir auk ýmissa nytsamlegra og fallegra hluta.
FORD ESCORT bifreið að verðmæti kr. 1.200.000.- fyrir þann sem fer holu í höggi á 17. braut. ■
úthJf i
Glassibæ. simi BV92?
Jddi
Fjðldi aukaverðlauna.
Þátttökugjald er kr. 5.000,- á mann. Tveir skrá sig saman í lið.
Skráning og pantanir á rástímum er í síma 587 2215.
Skráningu lýkur föstudaginn 9. ágúst kl. 16.00.
íMJ
MállMlog menning
□ HÓTEL ÖDK
POSTUR OG SIMI
KJARNAFÆDIHF.
primavera
RISTORANTE
(IRVALUTSYN
FLUOLEIDIR
Goft tólk h/é ifutlu léisgi
Olíufélagiðhf
Laxinn hf.
H3§
SMITH&
NORLAND
SIEMENS
___EINKAUMBOO
BRIMB0RG
JAPISð
/ÓgU(
TEPPABDÐIN
V 1 L ] I • V E 1. L í 1) A N
Samvinnuterdir - Landsýn
AUSUlHStn* »1 t? SIMAR ?707 7 A 78099
J
SKRIFVELINHF
ÖPNINN
GOLFVERSLUN
Sigurdar Bólurssonar
OMarhoiti Ki-ykj.ivik