Morgunblaðið - 29.09.1996, Qupperneq 1
HUG V I T
SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996
0
>
LVUI
TftKNI
Hugbúnaðarsmíð er eina sviðið sem Islendingar geta látið verulega að sér kveða
Alvöru
hátækni-
iðnadur
ÍSLENDINGAR standa á tíma-
mótum nýrrar aldar, upplýsinga-
aldar. Hin öra þróun sem á sér stað
í miðlun upplýsinga og úrvinnslu
þeirra á sér rætur í tækniframför-
um og líkt og oft áður hafa Islend-
ingar brugðist hratt og vel við nýrri
tækni; eru þannig fremstir meðal
Norðurlandaþjóða að tileinka sér
alnetið.
Sóknarfærin eru til staðar
Oddur Benediktsson prófessor
við Háskóla Islands lýsti þeirri
skoðun sinni í viðtali við Morgun-
blaðið fyrr á þessu ári að hann teldi
að hugbúnaðarsmíð væri eina svið-
ið sem íslendingar gætu látið veru-
lega að sér kveða á alþjóðamarkaði
og fjölmörg íslensk fyrirtæki hafa
sannað að sóknarfærin eru til stað-
ar. Þannig gætu Islendingar byggt
upp öflugan hátækniiðnað sem
byggðist á hugviti en ekki hand-
verki; nóg er til af vinnuafli í tölvu-
heiminum en minna um hugmynd-
ir.
Stjórnvöld eiga
sitthvað ógert
í samtali í þessum blaðauka við
nokkra frammámenn íslenskrar
hugbúnaðargerðar, sem margir
hverjir hafa náð verulegum árangri
með fyrirtæki sín á alþjóðavett-
vangi, kemur fram að stjórnvöld
eigi sitthvað ógert til að tvyggja
samkeppnishæfi íslensks hugbún-
aðariðnaðar. Meðal atriða sem þeir
nefna er að of mikið er um að ríkis-
stofnanir og fyrirtæki láti vinna
hugbúnað innanhúss, í stað þess að
bjóða hann út. Það gefur augaleið
að það skiptir miklu máli að hægt sé
að reka fyrirtæki á innanlands-
markaði til að búa til vöru sem væn-
legt er að selja til útlanda. Fleiri at-
riði nefna viðmælendur um leiðir til
að tryggja samkeppnisstöðuna, en
hafna með öllu ríkisstyrkjum. Fram
kemur að oft skorti skilning á því að
hugbúnaðarfyrirtæki hefur jafnvel
litlar sem engar tekjui' af hugbún-
aði sínum á meðan hann er í þróun
og getur verið svo um árabil.
Meðal þess sem gefur íslending-
um færi á sókn inn á erlenda hug-
búnaðarmarkað er alnetið, því þar
era allir jafnir; ekki sést á heima-
síðunni hvort aðstandandi er al-
þjóðlegt milljarðafyrirtæki eða
stakur hugbúnaðarsmiður norður í
landi. Margir viðmælenda benda og
á að fyrirtæki þeirra hafi nýtt sér
alnetið með góðum árangri og
þannig dreifir eitt fyi-irtækið hug-
búnaði sínum nánast einungis á al-
netinu.
Sóknarfærin eru því fyrir hendi
og brennur á stjórnvöldum að taka
til hendinni.
► Pétur Pétursson hjá Músum og
mönnum segir frá því hvernig fyr-
irtækið sló Apple við ► 10
► íslenskur hugbúnaðariðnaður er
í uppsveiflu ► 16
L E I K I R
► Tölvuleikir eru vel til þess falln-
ir að hjálpa ungmennum að skilja
tölvur að mati Adolfs Björgvins
Kristjánssonar ► 22
► PMS hefur tekið í notkun nýja
tækni í ljósmyndavinnslu ► 27
► Stafrænar myndavélar ► 28
NET I Ð
► Elín Jónsdóttir, vefari hjá
Iceland Review, segir að vefurinn
sé uppáhalds handavinnan ► 8
► Innranet eða hópvinnukerfi
spyrja margir. Stefán Hrafnkels-
son hjá Margmiðlun segir að málið
sé ekki svo einfalt ► 30
PREMTVERK
► Hjörtur Guðnason, forstöðumað-
ur Prenttæknistofnunar, skýrir frá
markmiðum „Prentmessu 96“ ► 2
TÆKN I
► Ný tölvukortatækni nýtist vel
fjölmörgum ► 11
► Ný tækni í myndgeisladiskum er
framundan ► 21
► Utgáfa Islandskorta á geisla-
diski markar tímamót að mati
Kristjáns Gíslasonar hjá Radíómið-
un ► 24
► Framundan er seðlalaust þjóðfé-
lag ► 25
Tö L VUR
► Frank Soltis, einn aðalhönnuða
IBM, segir frá AS/400 fjölvinnslu-
umhverfinu vinsæla sem hann tók
þátt í að hanna ► 4
► Peter Scharstein segir frá net-
tölvu Oracle ► 6
► UNISYS stefnir inn á fslands-
markað og hefur meðal annars
gert stóran samning við Búnaðar-
bankann ► 12
ÞJÓMUST A
► Ný deild hjá EJS hf., MSF lausn-
ir, leggur áherslu á að fyrirtæki
nái tökum á upplýsingavæðingu
sinni ► 14
► tírlausn - Aðgengi hefur sérhæft
sig í þjónustu við lögmenn og þá
sem á lagatexta þurfa að halda,
meðal annars með útgáfu laga-
Tæ knival kynnir mest seidu fartölvur í heimi:
fjbss
mmi
4
TOSHIBA
á f I j ú g a n d i ferð!
B Tæknival
Skeifunni 17
105 Reykjavlk
Simi 550 4000
Fax 550 4001
Netfang:
mottaka@taeknival.is
Reykjavíkurvegi 64
220 Hafnarfjörður
Simi 550 4020
Fax 550 4021
Umboðsmenn
um land allt.