Morgunblaðið - 29.09.1996, Blaðsíða 2
2 E SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
"" # Morgunblaðið/Þorkell
PRENTVELIN sem Hjörtur Guönason hallar sér aö þykir vera tímaskekkja í samanburði við tölvu-
tæknina, en prentiðnaðurinn hefur á fáum árum gengið í gegnum stórstígar tæknibreytingar.
Upplýsingar í æð
„PRENTMESSA" heitir mikil sýn-
ing sem Prenttæknistofnun hefur
skipulagt í Laugardalshöll og hefst
á föstudag. Þar sýna ýmsir ýmis-
legt prentkyns, sem er nánast allt
um leið tölvukyns, nokkrir helstu
tölvusalar landsins og ýmis fyrir-
tæki önnur. Forsvarmaður Prent-
tæknistofnunar og um leið skipu-
leggjandi sýningarinnar er Hjörtur
Guðnason.
Fyrsta „Prentmessan" var haldin
á Hótel Lofleiðum í apríl 1994. Þar
kynntu 20 stofnanir og fyrirtæki
þjónustu sína og ýmsir fyrirlesarar,
innlendir sem erlendir, sögðu frá því
helsta sem var á seyði á þeim tíma
og spáðu í spilin með framtíðina.
„Prentmessa" þessa árs er öllu
fyrirferðarmeiri og þótti mönnum
Ijóst að Hótel Loftleiðir myndi frá-
leitt duga undir það sem menn vildu
sýna því þörfin er brýn. Hjörtur
segir að menn innan prentiðnaðar-
ins reyni sjálfsagt að vera með allt
á hreinu hvað varðar tækniframfar-
ir og nýjungar. „Samt getur það
reynst erfitt því að svo miklar breyt-
ingar eru að gerast í prentiðnaðin-
um að þeð getur reynst erfitt að
fylgjast með öllu sem er að gerast.
A „Prentmessu" geta menn á einum
stað kynnst flestu því nýjasta sem
er að gerast. Þarna mun fólki gef-
asttækifæri til að „þreifa á“ hlutun-
um og tala við umboðsmenn og
tæknimenn og fá þannig upplýs-
ingar beint í æð.“
Þær raddir gerast æ háværari
að prentverk eigi eftir að Iúta í
gras; fyrirsjáanlegt sé að bóka- og
blaðaútgáfa eigi eftir að breytast í
aðalatriðum og jafnvel eigi heilu
stéttimar eftir að hverfa af sjónar-
sviðinu eftir því sem „fúskurum"
Qölgar, þ.e. þeim sem náð hafa það
góðum tökum á tölvutækni og um-
brotsforritum, að fagmanna verði
ekki lengur þörf. Hjörtur felst ekki
á svo myrka framtíð, en segir þó
að hlutverki og stöðu prentmiðla
sé nú ógnað í fyrsta sinn í ríflega
400 ára sögu prenttækninnar.
„Prentun er núna aðeins einn af
mörgum valkostum við val á miðl-
um. Það er rétt, margir eru famir
að útbúa sitt efni sjálfir og skila
því, að þvi þeir halda, tilbúnu til
prentunar. Þegar á hólminn er kom-
ið er verkið oftast ekki
nema hálfkarað. Mikill
fjöldi forrita og van-
þekking á notkun þeirra
gerir það að verkum að
prentiðnaðarfólk þarf að fylgjast
vel með og auka þekkingu sína.
Oft fer mikill tími í að lagfæra það
sem átti að vera tilbúið til prentun-
ar frá ómenntuðum „riddurum skjá-
borðsins“.
Það er ekki tölvan sem er að
reyna að ganga af prentlistinni
dauðri heldur fyrmefndir riddarar
skjáborðsins sem þeysa á ótemjum
sínum yfir týpógrafíuna og aðra
prentlist. Allar týpógrafískar hefð-
ir eru brotnar og gerir það oft að
verkum að það prentverk sem er
hannað af vankunnáttu riddarar-
anna er ólæsilegt og misheppnað
þegar upp er staðið. Þeir sem
standa uppi að lokum verða lærðir
prentsmiðir sem kunna að rata
hinn gullna meðalveg prentlistar
o g frumleika,“ segir Hjörtur
ákveðinn.
Margmiðlun
á „Prentmessu“
Á „Prentmessunni“ verður
margmiðlun kynnt meðal annars
og Hjörtur segir að hún sé miðill
sem prentiðnaðarfólk hljóti að
kynna sér eins og aðra sambærilega
miðla. „Prentverk er
miðlun og ekki er langt
að bfða að geisladiskur
komi til með að fylgja
bókum sem sjálfsagður
fylgihlutur. Fólk getur haldið áfram
að grípa í bókina hvar sem það er
statt en getur svo sest fyrir framan
tölvuna og skoðað lifandi myndir
og hljóð er varðar efni bókarinnar.
Margmiðlunardiskar verða viðbót
við hönnun bókarinnar og prentiðn-
aðarfólk mun sjá um hönnun hvors
tveggja," segir hann og bætir við
að að sínu mati hafi Prenttækni-
stofnun staðið sig vel í því að endur-
mennta prentiðnaðarfólk. „Mörg
fjölbreytt námskeið eru haldin og
prentiðnaðarfólk er duglegt við að
sækja þessi námskeið og þar mun
ekkert lát verða á.
Eins og alltaf gerist þegar ein-
hveijar nýjungar koma er mikill
hasar í kringum þessa nýjung og
ýmsu er spáð. Þama gefst blaða-
mönnum tækifæri að skrifa um eitt-
hvað sem almenningur hefur áhuga
á eða er talinn hafa áhuga á. Sjáðu
öll skrifín sem eru búin að vera um
alnetið. Það hlýtur að vera komið
upp í hvers manns rúm eða hvað?
Ég tel að bókin muni lifa en hún á
eftir að breytast, það er enginn vafí.
Það er vissulega áhyggjuefni
hvað ungt fólk les minna en þeir
sem eru fullorðnir í dag gerðu á
sínum unglingsárum en á meðan
skólar nota ennþá bækur til kennslu
held ég að það hjálpi mikið til. Það
er spuming hvort skólar þurfi að
koma því i kennslu sína að nemend-
ur lesi meira einfaldar sögubækur
svo að ímyndunaraflið deyi ekki út.“
Miklar breytingar
framundan
Eins og áður hefur komið fram
er Hjörtur á því að miklar breyting-
ar eigi eftir að ganga yfir prent-
stéttina og hann segist telja að
helstu breytingamar verði í tíma-
rita- og blaðaútgáfu; meðal annars
muni eflaust fleiri ókeypis blöð
verða gefm út. „Við þekkjum blöð
eins og Sjónvarpshandbókina, Fast-
eignablaðið og Myndbönd. Allt blöð
sem em litprentuð og dreift ókeyp-
is. Næsta skrefíð verður ömgglega
ókeypis dagblað. Tímaritin og dag-
blöðin munu því lifa en í breyttu
formi."
Hjörtur segir það helst komið
undir prentarastéttinni hvort henni
tekst að halda í við þróunina og
breytast með breyttri tækni.
„Allt fer það eftir því hversu
framsækin prentarastéttin verður
og dugleg við að halda við þekk-
ingu og endurmennta sig. I ljósi
mikillar þátttöku á námskeiðum
Prenttæknistofnunar hef ég ekki
miklar áhyggjur. En þetta veltur
líka á prentfyrirtækjunum sjálfum,
það hefur verið einhver lenska hér-
lendis með einni undantekningu,
að prentfyrirtæki auglýsi ekki. Það
er kominn tími til að menn breyti
þeim hugsunarhætti því sam-
keppnin á eftir að harðna mikið
og ef fyrirtækin vilja ekki missa
verkefnin heim í stofu til fólks
þurfa þau að staldra við og hugsa
sinn gang.“
Meðal þeirra fyrirtækja sem þátt
taka í sýningunni að þessu sinni
em ACO, Apple-umboðið, Árvík,
Félag bókagerðarmanna, Félags-
bókbandið Bókfell, Hans Petersen,
Jóhann Ólafsson & Co, Markús Jó-
hannsson, Morgunblaðið, Nýheiji,
Ottó B. Arnar, Prentsmiðjan Oddi,
Prentþjónustan, Sturlaugur Jóns-
son & Co, Umbúðamiðstöðin, Ólafur
Þorsteinsson, Rauði dregillinn,
Heimilistæki, Offsetþjónustan, Opt-
ima, Hugbúnaður, Prentsmiðjan
Grafík, Bolur og Kerfisgerðin. Sýn-
ingin „Prentmessa" 96 hefst 4.
október næstkomandi og stendur
til 6. október.
Nýr
Stólpi
STÓLPI er algengur viðskiptahug-
búnaður sem fram til þessa hefur
yfirleitt verið keyrður í DOS-
umhverfi. Breyting þar á er í vænd-
um, því Kerfisþróun ehf. kynnir nú
nýja útgáfu af Stólpa fýrir
Windows.
Kerfisþróun var stofnað 1984 af
Bimi Viggóssyni og Kristjáni Gunn-
arssyni og sérhæfir sig í gerð við-
skiptahugbúnaðar sem heitir Stólpi.
Kerfin spanna flest svið atvinnu-
rekstrar og em notuð í yfir 1.000
fyrirtækjum. Flestir viðskiptavina
em með DOS útgáfuna af Stólpa
en nú er verið að setja á markaðinn
nýja í Windows.
Að sögn Björn Viggóssonar er
stefna fyrirtækisins að hanna og
prófa hugbúnaðinn áður en almenn
dreifing hefst „og því leggjum við
áherslu á staðlaðar lausnir. Með
þessu móti fá viðskiptavinir í hend-
ur reyndan búnað sem virkar full-
komlega. Nýjungar era sendar á
þriggja til sex mánaða fresti til allra
sem em með viðhalds- og þjónustu-
samning, en það em flestir við-
skiptavinir okkar.“
Á síðustu missemm hefur orðið
bylting í hugmyndum manna um
tölvusamskipti, einkum með til-
komu alnetsins. Björn segir að
Kerfisþróun hafí tekið þátt í þess-
ari þróun, m.a. með því að hanna
búnað til samskipta við innheimtu-
þjónustu bankanna. „Úr Stóipa er
hægt að prenta innheimtuseðla og
fara upplýsingar um kröfurnar
sjálfvirkt til Reiknistofu bankanna.
Bankakerfið sér um útreikning
vaxta um leið og greitt er. Með því
að láta Stólpa hringja í bankann
koma til baka upplýsingar um inn-
borganir sem lesnar em sjálfvirkt
inn í bókhaldið. Fyrir utan tíma-
spamaðinn sem er mikill verður
bylting í öryggi því innsláttarvillur
hverfa," segir Bjöm og bætir við
að sem stendur bjóði fyrirtækið
tengingu við íslandsbanka, Lands-
bankann og Búnaðarbankann.
Stólpi fyrir
Windows
Bjöm segir að í nýrri útgáfu af
Stólpa fyrir Windows bókhaldskerf-
ið verði bókhaldsgögnin aðgengileg
í Microsoft Office. „Stólpi fyrir
Windows er hannaður í Microsoft
Access og nýtir því til möguleika
sem bjóðast í Microsoft Office, s.s.
ritvinnsluna Word, töflureikninn
Excel og tölvupóst," segir Björn,
en hann segir að Stólpi fyrir
Windows sé til í Access 2.0 (16-
bita), Access 7.0 (32-bita) og fyrir
Microsoft SQL Server 6.0. „Kerfið
er hannað fyrir Windows fyrir
Workgroups, Windows95, Windows
NT, biðlara/miðlara vinnslu og SQL
gagnagrannstækni og vinnur á
Novell og sambærilegum netkerf-
um.“
Að sögn Björns er fmmútgáfan
af Stólpa frá MTX og er fyrsti bók-
haldshugbúnaðurinn sem er sam-
þykktur af Microsoft sem samhæfð-
ur Microsoft Office.
H
1
!
»
»
t
i
b
5
I.
i
TÖLVUNÁMSKEIÐ eru umfangsmikill þáttur í starfi
Prenttæknistofnunar, enda er höfuðhlutverk hennar
að auka verkþekkingu og kenna ný vinnubrögð í nýrri
tækni. Stofnunin býður upp á sjötta tug námskeiða í
haust og vetur. Meðal þess, sem í boði verður, má
nefna námskeið í Macintosh-grunni, sem auðvelda á
þátttakendum að hefja notkun ýmissa forrita, svo sem
ritvinnslu-, umbrots- og myndvinnsluforrita, og er
nauðsynlegur forsmekkur að öðrum tölvunámskeiðum
á snærumPrenttæknistofnunar.
■ Þrjú námskeið fjalla á einn eða annan hátt um Qu-
arkXPress forritið og eiga þau að veita mönnum grund-
vallarkunnáttu og færni í töl vuumbroti og auðvelda
þeim að taka á móti texta úr mismunandi ritvinnslu-
kerfum til umbrots og bijóta um prentgripi, svo stikl-
að sé á stóru.
■ Markmið námskeiða um Photoshop-grunn er að gera
Tölvunámskeið
Prenttæknistofnunar
þátttakendur færa um að lagfæra skannaðar myndir
með þessu myndvinnsluforriti annars vegar og gera
þeim kleift að hanna myndverk með þvi, þar sem
áherslan hvílir á skapandi myndvinnslu og grafískri
hönnun.
■ Einnig má nefna tvö námskeið um gæðastýringu í
prentun, m.a. til að koma í veg fyrir tilviljanakenndar
sveiflur á gæðum og kenna mönnum aðferðir sem
byggjast á mælingum i stað einstaklingsbundins mats.
■ Alnetið hefur rutt sér mjög til rúms hérlendis á
undanförnum misserum og fyrir þá sem hafa ekki
fylgst ítarlega með umræðu þar að lútandi, er boðið
upp á námskeið um upplýsingaleit á alnetinu.
■ Þessu skylt er námskeið um heimasíður á alnetinu,
en þar á að kenna fólki að búa til slíkar síður með
blöndu af texta, myndum, hreyfimyndum og hljóði, og
tengja þær síðan við veraldarvefinn.
■ Þá má nefna námskeið um bókbandshönnun, nýjar
hreinsiaðferðir í prentiðnaði, eiginleika og meðferð
pappírs, gagnasnið, verkstjórn og þjónustu í prentiðn-
aði. Einnig verður haldið námskeið um auglýsinga-
hönnun, þar sem leitast er við að kynna þátttakendum
undirstöðuatriði sem gilda á þeim vettvangi og raunar
í allri grafískri hönnun, svo að þeir geti skipulagt
betur og búið til útlitsteikningar að auglýsingum og
auglýsingabæklingum.
;
3