Morgunblaðið - 29.09.1996, Side 6
6 E SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
PETER Scharstein var hingað
kominn til að tala á ráðstefnu
Skýrslutæknifélags ísiands, Net-
tengd framtíð, en hann kom hing-
að til lands á vegum Teymis,
umboðsfyrirtækis Oracle á íslandi.
Scharstein er tölvunarfræðingur
að mennt og hefur margra ára
reynslu í þróun stærri hugbúnað-
arkerfa. Hann hefur starfað hjá
Kauphöllinni í Kaupmannahöfn,
AmbraSoft og Oracle síðustu tvö
ár, auk þess sem hann kennir og
heldur fyrirlestra.
Þegar nettölvan var kynnt var
það mál margra að Larry Ellison,
forstjóri Oracle, sem þykir yfirlýs-
ingaglaður, hafi sett hugmyndina
fram til þess eins að storka Micro-
soft og Intel, sem sumir spyrða
saman sem Wintel, því segja má
að nettölvan ógni því steinbítstaki
sem þessi fyrirtæki tvö hafa á
einkatölvumarkaðnum. Eftir því
sem fram hefur liðið hafa aftur á
móti æ fleiri tekið hugmyndina
upp á sína arma og fyrstu nettölv-
urnar frá ýmsum framleiðendum
eru að koma á markað um þessar
mundir.
Peter Scharstein segir það gefa
augaleið að nettölvan sé raunhæf
hugmynd sem alnetið hafi gert
mögulega; nettölvuhugmyndin
hafi kviknað vegna vinsælda al-
netsins, sem þeir nettölvuvinir vilja
líta á sem tölvu, eins og segir í
frægri auglýsingu: Netið er tölvan.
Seharstein segir að nettölvan sé
boðberi nýrra tíma í tölvuheimin-
um en hún komi ekki í stað einka-
tölvunnar; það sé frekar að þessar
tölvur eigi eftir að dafna samtím-
is; nettölvan er viðbót við þær tölv-
ur sem fyrir eru að mati Schar-
steins.
Of dýr ritvél
eða rápforrit
Peter Scharstein segir sitt mat
að einkatölvan sé of dýr ritvél eða
rápforrit, ekki síst þegar fólk þarf
að kaupa dýra tölvu til að nota
aðeins lítið brot af möguleikunum
sem felast í dýru ritvinnsluforriti.
„Nettölvunni er ætlað að leysa úr
þessu, ekki síst fyrir fyrirtæki, þar
sem starfsmenn geta notað net-
tölvu til að skrifa bréf eða skýrsl-
ur, kallað á gagnagrunn eftir þörf-
um eða hluta af töflureikni, notað
hann á meðan þess gerist þörf og
hent honum síðan. Dýr fistölvan,
sem ég ferðast með um heiminn,
nýtist mér vissulega til að flytja
kynningar eða skrifa bréf, en ég
Nettölvan er boð-
beri nýrra tíma
Fótt er meira rætt manna á milli en svonefnd nettölva
sem forstjóri Oracle huqbúnaðarfyrirtækisins kynnti fyrstur
manna á síðasta ári. Nú berast freqnir af því að
nettölvur streymi á markað oq Pete Scharstein,
ráðqjafi hjá Orade, seqir að þeim sé ætlað að verða
eins oq hvert annað heimilistæki.
blómaskeiði miðlægra netþjóna,
byggðist allt á því að fyrirtæki
keypti tölvur og hugbúnað frá ein-
um framleiðanda og varð síðan
að sækja aila þjónustu til hans og
var bundið honum um hvaðeina,
aukinheldur sem það var iðulega
vandkvæðum bundið að skiptast á
gögnum. Nettölvan byggir aftur á
móti á opnum stöðlum, alnets-
stöðlum, og viðskiptavin-
urinn getur leitað
til hvaða fyrirtækis
sem er um hug- eða
vélbúnað, keypt
tölvur frá ólíkum
framleiðendum,
keyrt hvaða hug-
búnað eða blöndu
af hugbúnaði sem
er og deilt því
sem hann er að
gera með hveij-
um sem er.“
nota hana ekki nema hluta dags;
mikinn meirihluta ársins stendur
hún ónotuð og þannig er með flest-
ar einkatölvur sem eru í notkun í
dag. Það er svo algengt að menn
kaupi sér öflugar tölvur til að geta
keyrt þung og erfið forrit öðru
hvoru. Lausnin á því hlýtur að
vera að hafa ódýra tölvu sem
sækir bara forritið eða hluta þess
þegar hún þarf á því að halda.“
Bandbreidd er vandamál sem
allir kannast við sem reynt hafa
fyrir sér á alnetinu, en Scharstein
segir íslendinga búa svo vel að
hér sé búið að leggja ljósleiðara
um land allt og því draumastaða
til að byggja upp net-
tölvuvætt þjóðfélag
þar sem fólk getur
fengið aðgang að
leikjum, sjónvarps-
efni, alnetstengingum
og gagnaflutningum
án þess að þurfa að
búa við tafir sem víða
eru á þessum sam-
skiptum. „Þær tafir
eiga þó ekki eftir að
standa nettölvunni
fyrir þrifum, enda
fleygir þjöppunar-
tækni óðfluga fram og
helst í hendur við
framfarir í gagna-
flutningum. Oracle
hefur lagt sitt af
mörkum og við munum kynna á
næstunni myndbandssendingu í
gegnum 28.800 mótald, að vísu
ekki fullkomna útsendingu en við
nálgumst markið.“
Peter
Scharstein
Scharstein segir
væntanlega velgengni
nettölvunnar byggjast
að öllu leyti á því að
hún sé það auðveld í
uppsetningu og notk-
un, „að hver sem er
geti stungið henni í
samband og byrjað að
nota hana án þess að
þurfa að velta vöngum
yfir uppsetningu eða
tengingum. Henni er
ætlað að verða eins
og hvert annað heimil-
istæki og í framtíðinni
verður hún líklega innbyggð til að
mynda í sjónvörp.“
Scharstein leggur áherslu á að
innan fyrirtækja sé bandbreiddin
yfirleitt ekki vandamál og þau eigi
örugglega eftir að taka
nettölvunni vel og nota
innranet fyrirtækisins með
ódýrum nettölvum. „Mér finnst
líklegt að fólk eigi eftir að fá net-
tölvur innbyggðar í sjónvarpstæki
eða ókeypis frá fyrirtækjum sem
vilja selja þjónustu á alnetinu. Al-
mennur markaður á eftir að skipta
meginmáli þegar fram líður, enda
er það markaður fyrir tugmilljónir
tölva á meðan fyrirtækjamark-
aðurinn tekur kannski við milljón
tölvum eða svo.
Því að hafa miðlægan netþjón
fylgja margir kostir, ekki síst sá
að allt viðhald hugbúnaðar er auð-
veldara, öryggi gagna er tryggara
en ef menn eru að geyma þau
hver fyrir sig, kerfið er ódýrara í
uppsetningu, nettölvurnar, eða
útstöðvarnar, hafa lengri líftíma
en einkatölvur og svo mætti lengi
telja.
Mörgum finnst þetta án efa
skref afturábak, en áður fyrr, á
Nettölvur verða kynntar á veg-
um Oracle í haust, þar á meðal á
íslandi, en Scharstein leggur
áherslu á að fyrirtækið hyggist
ekki framleiða eða selja vélbúnað-
inn, nettölvur, sjálft. „Segja má
að við séum að selja hugmynd,
hugmynd sem á eftir að hafa áhrif
á það hvernig fyrirtæki eiga eftir
að starfa í framtíðinni og það er
nokkuð sem við höfum alltaf gert.
Forstjóri Oracle, Larry Ellison, er
hugsjónamaður, hann fær hug-
mynd og fylgir henni eftir til enda.
Það hefur skilað fyrirtækinu mikl-
um hagnaði og velgengni og með-
al annars fyrir þá sök má segja
að við séum hálfu öðru ári að
minnsta kosti á undan keppinaut-
unum og búnir að leysa ílest þau
vandamál sem þeir eru að glíma
við í dag. Netþjónn okkar hefur
ýmislegt fram að færa sem aðrir
hafa ekki enn náð, til að mynda
í verslun á netinu, öryggismálum
og fleira mætti telja.“
InnbratS",
öryggis- og
brunaksrfl
ELFA-GRIPO
ein mest seldu öryggiskerfin
í Evrópu.
Samþykkt af viðurkenndum
prófunarstofnunum og
fjarskiptaeftirliti rikisins.
Mjög hagstætt verð.
Kapalkerfi frá kr. 11.610.
Þráðlaus kerfi frá kr. 22.050.
Úrval aukahluta:
Reykskynjarar, sírenur,
símhringibúnaður, fjarstillingar.
Ódýr og örugg heimilisvernd.
Tæknileg ráðgjöf - auðvelt í
uppsetningu.
I KK önar
SSS | FarestveÉt&Co.hf.
Borgartúni 28 • Símar 562 2901 og 562 2900
Söluumboð Akureyri: LJósgJafinn
Tekist á um einkaleyfi
Arnold Freilich
ÞRÓUN tækni og búnað-
ar er kostnaðarsöm og því
ekki nema von að menn
vilji fá eitthvað fyrir sinn
snúð; fá einkaleyfi á bún-
aði eða hugmynd nógu
lengi til að ná inn þróun-
arkostnaði og ríflega það.
Oftar en ekki eru menn
aftur á móti ósammála
um það hver var fyrstur
með hugmynd eða lausn
og iðulega lenda slík mál
fyrir dómstólum.
Vestur í Bandaríkjun-
um takast lögmenn nú á
um það hvort bandarískt
smáfyrirtæki hafi einka-
rétt á gagnaflutningi um
símalínur.
Fyrirtækið E-Data,
sem er í eigu íjármála-
spekúlantsins Arnolds
Freilichs, sem var dæmd-
ur fyrir hlutabréfasvindl 1978,
heldur því fram að fyrir þrettán
árum hafi uppfinningamaðurinn
Charles C. Freeny fengið einka-
leyfi á hugmynd um flutning á
tölvugögnum um símalínur.
Freilich eignaðist einkaleyfi Freen-
ys upp úr 1990 og stofnaði E-Data
til þess að ná inn fé út á það. Að
sögn BusinessWeek hafa ýmis
stórfýrirtæki eins og IBM og ,
Adobe samið við Freilich um að '
greiða fyrir afnnotarétt af hug-
myndinni, enda kostar það þau
mun minna er dýr málssókn.
Smærri fyrirtæki vilja aftur á
móti ekki beygja sig undir það ok
og hafa nú bundist samtökum um
að höfða ógildingarmál til
að hnekkja einkaleyfinu á
þeirri forsendu að tæknin
hafi almennt verið þekkt
löngu áður en einkaleyfið
var veitt og benda á máli
sínu til stuðnings á fyrir-
tækið Telephone Softw-
are Connection sem bauð
áskrifendum að sækja
hugbúnað í Apple II tölv-
ur um símalínur þegar
árið 1980. Að sögn Busi-
nessWeek er næsta víst
að Freilich muni tapa
málinu, en blaðið bendir
á að enn séu margir end-
ar lausir í einkaleyfismál-
um; þegar hafi verið veitt
nærfellt 30.000 einkaleyfí
sem snerta tölvutækni og
mörg þeirra veitt á svip-
aðan hátt og það sem
cjeilt er um, því einkaleyf-
isstofur hafi hvorki aðstöðu né
mannskap til að tryggja að ekki
sé verið/að veita einkaleyfi á lausn
sem þegar sé til.
Það íer þvj' óhætt að gera ráð
fyrir stórauknum umsvifum einka-
leyfislögmanna sem eiga eftir að
maka krókinn, en ýmsir óttast að
þetta verði framþróun fjötur um fót.
■MEÐ AL helstu ástæðnaþess að
alnetsstaðlar Iögðu undir sig sam-
skiptaheiminn er að þeir eru svo-
kallaðir opnir staðlar. Lengi hafa
menn reyndar deilt um hvenær
staðlar geti kallast opnir, en fyrir
skemmstu greip Microsoft til þess
ráðs að skipta um nafn á OLE-
tækni sinni, útfæra hana frekar
og kalla ActiveX. Til að gera Act-
iveX að opnum staðli hefur fyrir-
tækið síðan gripið til ýmissa ráð-
stafana og á morgun hefst vestur
í Bandaríkjunum fyrsti fundur
þeirra aðila sem lýst hafa yfir
stuðningi við staðalinn, en mark-
mið fundarins er að koma af stað
því ferli að ActiveX breytist úr
Windows staðli sem er í eigu Mic-
rosoft í opinn staðal sem er óbund-
inn vélbúnaði. í fyllingu tímans
verður staðallinn siðan afhentur
óháðri stofnun sem tryggja mun
viðgang hans og þróun.
■ÖRG J ÖRV AFR AMLEIÐ AND-
INN National Semiconductor hef-
ur lýst þeirri ætlan sinni að setja
á markað x86-örgjörva sem verð-
ur með Java-stýrikerfi Sun, Java-
OS, innbyggt. Orgjörvinn, sem
kallast NS486 og er 32 bita, mun
styðja Java-stýrikerfi það sem
undirfyrirtæki Sun, SunSoft, er
með í smíðum og er ætlað að
auka hraða Java-forrita, þar á
meðal í nettölvum. Samkvæmt
fréttum frá National Semic-
onductor kemur örgjörvinn á
markað á næsta ári, en um það
leyti á JavaOS að líta dagsins ljós.
c
€
G
«
C
C
I
í
í