Morgunblaðið - 29.09.1996, Síða 8
8 E SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
■EITT AF sérkennum banda-
rísku t eiknimyndahetjunnar Dick
Tracy var farsimi sem komst fyr-
ir í armbandsúri. Upp frá því
hafa fjölmargir spreytt sig á
álíka úri en engum tekist. Þá var
það að japanska símafyrirtækið
NTT ákvað að leggja fé í slíka
hönnum og afraksturinn leit
dagsins ljós fyrir skemmstu. Sím-
ann þann má nota sem armband-
úr, enda er
NÝR firðsími
NTT sem sæk-
ir innblástur
til Dick Tracy.
hann örsmár
og ekki nema
70 grömm að
þyngd. Not-
andinn hringir
með því að
segja simanum
hvert eigi að
hringja, en raf-
hlaða og loft-
net eru inn-
byggð í ólina.
NTT-menn eru
enn að endur-
bæta símann
UERRLDRRUEFURINN
og lýstu því yfir fyrir skemmstu
að 1988 verði komin á markað
svo öflug rafhlaða að nota megi
símann með GSM-símakerfi. Ann-
að fyrirtæki, að þessu sinni
bandarískt, telur sig hafa fundið
lausn á farsimamálum og þá án
þess að hendurnar séu bundnar.
Fyrirtækið, Aural Communicati-
ons, hefur hannað síma sem er i
tveimur hlutum og er annar hlut-
inn heyrnartól með örmjóum
armi til að tala í. Hinn hlutinn
er svo eiginlegur sendir sem bor-
inn er í vasanum, en hann sendir
upplýsingar í heyrnartólið smáa
með segulbylgjum og eyðir fyrir
vikið mun minna rafmagni en ef
útvarpsbylgjur væru notaðar. Að
sögn forsvarsmanna fyrirtækisins
eru fyrstu fjöldaframleiddu tækin
væntanleg á næsta ári, en þeir
segja símann smáa ekki síst hugs-
aðan sem staðgengil fyrir firð-
síma á heimilum og skrifstofum.
■KANADÍSKA hugbúnaðarfyr-
irtækið Corel lætur ekki deigan
síga og sækir nú fram í alnets-
búnaði. Síðsumars samdi það við
JavaSoft, undirfyrirtæki Sun, og
hefur fengið leyfi til að nota Java
Virtual Machine, sem Corel
hyggst fella inn í CorelDraw 7,
Corel Ventura og WordPerfect,
en með því móti geta þessir hug-
búnaðarpakkar keyrt Javaforrit.
Að auki hyggst Corel smíða Java-
skoðara sem gerir kleift að keyra
forrit til reynslu og breyta ef
þarf.
■NÝ VÍSINDASTOFNUN í Was-
hington hefur lagt inn pöntun á
öflugustu IBM-tölvu sem sett hef-
ur verið saman. Tölvuna hyggst
stofnunin nota til rannsókna í
kjarneðlisfræði og til að leita
lausna á mengunarmálum. Tölv-
an er RS/6000 Scalable POW-
ERparalIel og þegar uppsetningu
hennar verður lokið á næsta ári
keyrir hún 472 örgjörva og
vinnslugetan er áætluð ríflega
200 GigaFlop.
Uppáhalds-
handavinnan
íslendinqar hafa tekið alnetinu oq veraldarvefnum vel
oq þeqar eiqum við ýmsar vefsíður sem þykja með
)ví besta sem sést ó vefnum, þar ó meðal vefsíður
tímaritsins lceland Review ó slóðinni
http://www.centrum.is/icerev/.index.html. Vefari hjó lce-
land Review heitir Elín Jónsdóttir oq hún seqist
hafa hellt sér út í tölvurnar ó sínum tíma til að daqa
ekki uppi eins oq hvert annað nótttröll með ritvél.
ELÍN Jónsdóttir vefari hjá Iceland Review í vinnunni.
ELÍN segir að fyrstu tölvurnar hafi
komið á ritstjórn Iceland Review
árið 1986. „Þær voru nú lítið meira
en ritvéiar og voru notaðar sem
slíkar,“ segir Elín. „Ein „ofurtölva"
var þó keypt líka, með 20mb hörð-
um diski - en hinar höfðu enga
harða diska. Ég fór fljótlega að fikta
við þessi tæki, bæði vegna þess að
í starfí mínu sem framleiðslustjóri
var gott að geta notað tölvu, og svo
komst ég fljótt að því að mér fannst
svolítið spennandi að eiga við þær.
Ég fór að leika mér við að slá inn
allskonar upplýsingar sem komu
mér að gagni í vinnunni, eins og
efnisyfírlit Iceland Review aftur í
tímann, skrár yfír auglýsingar í blöð-
unum og þessháttar.“
Tölvuótti er vel þekkt fyrirbæri,
sérstaklega hjá fólki sem þegar
hefur mótað sér vinnuháttu þegar
tölvurnar koma til sögunnar. Elín
segist þó aldrei hafa skilið slíkan
ótta, tölvur sér bara vélar. „Ætli
þetta sé ekki bara afsökun hjá fólki,
það er miklu auðveldara að segja
„ég get ekki, ég kann ekki“ í stað-
inn fyrir „ég nenni ekki, ég vil ekki“
- eða einfaldlega, „ég hef ekki
áhuga“,“ segir Elín ákveðin.
Engin sérstök menntun
Elín segist ekki hafa búið yfir
neinni sérstakri menntun sem hafi
auðveldað henni að skilja tölvur eða
ná tökum á þeim; „ég tók stúdents-
próf frá öldungadeild MH árið 1978,
og fór svo í ensku og almenna bók-
menntafræði í Háskólanum," segir
hún og blasir við að slíkt nám er
ekki beint hagnýtt fyrir tölvunar-
fræðin. „Ég lærði mest með því að
fikta mikið, en ég hef líka farið á
mörg mjög gagnleg námskeið.
Tæknibreytingar í útgáfustarf-
semi hafa verið miklar frá því ég
hóf störf hjá Iceland Review haust-
ið 1978 og ég áttaði mig á því að
ef ég reyndi ekki að fylgjast með
yrði ég fljótlega lítils virði á vinnu-
markaði. Svo uppgötvaði ég líka
Premium
PC
Besfu kaupin í tölvu í dagl
Turnkassi
Pentium 133 örgjörvi
16MB EDO minni
1280MB diskur
2MB PCI S3 skjákort
8 hraða CD-drif
Soundblaster 16VE
10W Hátalarar
15" hágæða litaskjár
Lyklaborð og mús
Windows 95 uppsett
Aðeins kr. 144.900 stgr.
Digital á íslandi
Vatnagarðar 14-104 Reykjavík
Sími 533-5050 - Fax 533-5060
að ég hef mjög gaman af að „leika“
mér á tölvu. Ég viðurkenni meira
að segja að ég fer oft í tölvuleiki
heima hjá mér. Ekki þó bardaga-
leiki, heldur leiki á borð við gamla,
góða Tetris. Mér finnst líka geysi-
lega gaman að prófa mig áfram
með hin og þessi forrit. Ég er alsæl
ef ég kemst yfir nýtt forrit. Þessa
dagana er ég mjög upptekin af
Photoshop. Ég er samt enginn sér-
fræðingur, bara fiktari - og ég ber
afskaplega mikla virðingu fyrir öll-
um tölvugúrúum og forriturum. Ég
hef ekki átt neitt við forritun sjálf,
það er eitt af því sem ég get vel
hugsað mér að læra.“
svo til daglega. Svo flakka ég líka
oft um af einni síðu á aðra og bara
skoða. Slík ferðalög eru miklir tíma-
þjófar því ég á það til að gleyma
mér algjörlega. Einnig sæki ég mér
hugbúnað og allskonar gagnlegar
upplýsingar, bæði varðandi vefsíðu-
gerð og allt mögulegt annað. Ég
nota líka tölvupóst mikið, ég hef
eignast marga góða vini sem ég
skrifast reglulega á við, og ég kíki
líka stundum inn á spjallrásirnar.
Svo er ég á ýmsum póstlistum, t.d.
um vefsíðugerð, um páfagauka og
á einum brandaralista.
Stöðugt fleiri heimsóknir
Mikil PC-manneskja
Elín segist alltaf hafa verið mik-
il PC-manneskja, sé með Tulip 486
margmiðlunarvél heima, en á skrif-
stofunni vinnur hún á Power Mac-
intosh.
„Nú orðið finn ég lítinn mun á
því við hvora vélina ég sit. Forritin
sem ég nota mest eru það samhæfð
að ég get mjög auðveldlega tekið
vinnuna með mér heim án nokkurra
vandkvæða. Það kemur oft fyrir að
ég sendi sjálfri mér verkefni heim
í tölvupósti, ef mér tekst ekki að
klára þau í vinnunni eða vil Ijúka
þeim í næði,“ segir Elín og fer ekki
á milli mála að hún er tengd við
umheiminn að heiman, segist
reyndar nota vefínn geysilega mik-
ið. „Þetta er aðal áhugamálið eins
og er og ég er alveg hætt að snerta
á nokkurri annarri handavinnu. Það
er langskemmtilegast að „vefa“
netsíður."
Inn á vefinn segist Elín sækja
allt mögulegt, en bætir við að hún
sé fréttafíkill. „Ég skoða síðurnar
hjá öllum stærstu fréttamiðlunum
Elín segir að útgáfa Iceland Re-
view á netinu gangi hratt og vel
fyrir sig þó hún verði seint sjálfvirk.
„Blaðamenn Iceland Review
skrifa fréttirnar á morgnana, og
síðan tek ég við þeim, breyti í
HTML-skjöl og sendi inn á vefinn
okkar. Þetta er svona klukkutíma-
törn hjá mér - fréttirnar fara inn
klukkan 11 á morgnana. Síðan
fylgja þessu auðvitað mikil sam-
skipti við lesendur fréttanna - þeir
eru duglegir að senda okkur tölvu-
póst með ýmiskonar fyrirspurnum.“
Elín segir að heimsóknum inn á
vef Iceland Review fjölgi stöðugt
og sjálfsagt hafi viðurkenningarnar
sem þau hafa fengið fyrir útlit síðn-
anna eitthvað að segja. „Að jafnaði
lesa um það bil 5-600 manns frétt-
irnar á hveijum degi. Fréttaþjónust-
an er ókeypis, en auglýsingatekjur
fara vaxandi. Miðað við þá vinnu
sem við leggjum í þetta þá gengur
dæmið upp. Það eru ýmsar hug-
myndir á döfinni um breytingar og
viðbætur, en þetta verður allt að
haldast í hendur, vinnuframlagið
má ekki fara fram úr tekjunum.“
IBM hleypti einkatölvubylting-
unni af stokkunum, en fataðist
svo flugið og önnur fyrirtæki
hrifsuðu af risanum markaðs-
hlutdeild og frumkvæði í tækni-
málum. Hægt og bítandi hafa
IBM-liðar sótt í sig veðrið og
undanfarið hefur fyrirtækið
fengið fyrirtaks dóma fyrir tölv-
ur sína, sérstaklega fyrir fistölv-
urnar, en borðtölvunum hefur
einnig verið vel tekið. Fyrir
stuttu kom á markað frá IBM
ný lína sem kallast Aptiva og
Flaggskip
frá IBM
þykir um margt vel heppnuð fyr-
ir útlit og þægindi í uppsetingu.
Flaggskipið í þeirri röð er IBM
Aptiva 392 turntölva sem er með
200 MHz Pentium örgjörva, 16
Mb vinnsluminni, 2 Gb harðan
disk, 2 Mb skjákort með 3D skjá-
Elín segir að útgáfa Iceland Revi-
ew á vefnum hafi farið smátt af
stað, en hún hafi þegar heillast af
miðlinum. „Þegar við fengum al-
netstengingu og ég fór að skoða
þetta fyrirbæri, áttaði ég mig á að
þetta var eitt af því skemmtilegasta
sem ég hafði nokkurntíma kynnst.
Ég varð fljótt forfallin og fór að
prófa mig áfram við að gera vef
fyrir Iceland Review; byrjaði á að
setja inn allar útgáfur forlagsins,
tímarit og bækur, ásamt pöntunar-
og áskriftarformum. í apríl 1995
ákváðu svo forráðamenn útgáfunn-
ar að setja inn daglegar fréttir til
að fjölga heimsóknum á vefinn. Svo
hefur þetta aukist smátt og smátt,
æ meira af efni tímaritanna fer
inn, og við erum með ýmislegt fleira
til sölu, svo sem boli og geisla-
diska. Ég sé líka um vef tímaritsins
Tölvuheims, sem við hleyptum af
stokkunum á síðasta ári, en fengum
svo öðrum í hendur í vor.“
Vefurinn kemur aldrei í
staðinn fyrir prentað mál
Það er i tísku að spá því að ver-
aldarvefurinn gangi af prentmáli
dauðu, en Elín tekur ekki undir það.
„Ég sé ekki að vefurinn komi
nokkurn tímann í staðinn fyrir
prentað mál - ekki frekar en útvarp-
ið og sjónvarpið gerðu það. Ég les
mikið af tímaritum og bókum, og
það er þægilegast að gera í góðum
hægindastól eða uppí rúmi - ekki
fyrir framan skjá. Veftímarit eru
annars eðils, eiginlega allt annar
hlutur. Þau eiga ekkert að vera að
reyna að vera skjáútgáfur af papp-
irsmiðlum. Þetta er bara hrein við-
bót við allt sem er í boði, fólk velur
og hafnar í þessum efnum eins og
öðrum.“
hraðii, IBM G70 17“ lággeisla lit-
askjá, IBM MWave margmiðluna-
rörgjörva, síma, símsvara, sím-
bréfstæki og alnetssíma, 8 hraða
geisladrif, 16 bita SB hljóðkort,
40 w hátalara og bassabox, hljóð-
nema og MPEG-stuðning. Til við-
bótar við vélbúnaðinn er
Windows 95 og grúi leikja og
forrita, þar á meðal kennslufor-
rit fyrir óvana tölvunotendur,
teikniforrit, MS Works 4.0, Enc-
‘arta, Netscape 2.0 Mech Warrior
II og svo mætti lengi telja.
i
í
í
(