Morgunblaðið - 29.09.1996, Síða 10
10 E SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Besti nafnamiðlarinn
Því hefur verið haldið fram að íslensk hugbúnaðarfyrirtæki
geti helst náð inn ó heimsmarkað með því að vera
hugmyndarík og fljótari til en risarnir. Menn og mýs
heitir lítið hugbúnaðarfyrirtæki í Tæknigarði sem slegið
hefur Apple risanum við í þróun ó nafnamiðlara fyrir
Macintosh-tölvur.
Aðstandendur Músa og manna í húsnæði fyrirtækisins í Tækni-
garði. Frá vinstri: Sigurður Ragnarsson, Snorri Guðmundsson,
Pétur Pétursson og Sigurður Ásgeirsson.
MENN og mýs ehf. var stofnað
árið 1990 vegna þróunar á Stund-
vísi, forriti fyrir skólastjórnendur.
Helstu verkefni fyrirtækisins í dag
eru QuickDNS, nafnamiðlari fyrir
Macintosh tölvur og Stundvísi,
upplýsingakerfi fyrir skóla (Mac-
intosh og Windows). QuickDNS
er nær emgöngu dreift erlendis
en Stundvísi alfarið innanlands.
Menn og mýs ehf. er í eigu
tveggja tölvunarfræðinga frá
Akureyri, Jóns Georgs Aðalsteins-
sonar og Péturs Péturssonar. Hjá
fyrirtækinu starfa einnig Sigurður
Asgeirsson (forritari), Sigurður
Iijgi Ragnarsson (forritari) og
Snorri Guðmundsson (markaðs-
fræðingur). Fyrir tveimur árum
hóf fyrirtækið sókn inn á erlenda
niarkaði. Fyrst fór í dreifingu deili-
hugbúnaðurinn (e. shareware)
Desktop Strip. Skráðir notendur
að Desktop Strip eru um 1.500
en ætla má að a.m.k. tíu sinnum
fleiri noti forritið.
Þriggja mánaða verkefni
tók átján mánuði
Pétur Pétursson segir að í apríl
1995 hafi vinna hafist við smíði á
nafnamiðlara (e. Domain Name
Server) fyrir Macintosh tölvur.
„Einkatölvur (Windows/Macint-
osh) voru þá byijaðar að hasla sér
völl sem alnetsmiðlarar, en nafna-
miðlara vantaði fyrir Macintosh
tölvur. Við áætluðum að það tæki
ekki nema þijá mánuði að setja
saman slíkan miðlara og slógum
því til. í febrúar sl. létum við frá
okkur fyrstu útgáfu forritsins og
nú í september dreifum við fyrsta
fullbúna nafnamiðlaranum sem
fáanlegur er fyrir Macintosh tölv-
ur. Þriggja mánaða verkefnið tók
því átján mánuði. Útkoman er hins
vegar hraðvirkasti og besti nafn-
amiðlarinn fyrir Macintosh tölv-
ur.“
Pétur segir að helsti keppinaut-
ur fyrirtækisins sé stórfyrirtækið
Apple Computer, Inc., framleið-
andi Macintosh tölvanna. „Þeir
hófu smíði á sínum nafnamiðlara,
MacDNS, um svipað leyti og við
en eru ekki tilbúnir með fullbúna
útgáfu. í janúar sl. hófu þeir tak-
markaða dreifingu á ófullgerðri
útgáfu af MacDNS og í maí fóru
þeir að dreifa forritinu án endur-
gjalds. Okkar forrit hafði þá öðl-
ast sess á markaðnum sem hrað-
virkur og áreiðanlegur nafnamiðl-
ari og seldist áfram, þrátt fyrir
samkeppnina frá Apple.“
Góð umfjöllun í MacWEEK
Góð umfjöllun í tímaritinu
MacWEEK hefur hjálpað Mönnum
og músum mikið til við sölu á for-
ritinu, að sögn Péturs. „Alls eru
u.þ.b. 1.200 eintök af QuickDNS í
notkun í dag og við ættum brátt
að ná 1% markaðshlutdeild í nafna-
miðlurum á alnetinu. Við höfum
þegar selt QuickDNS vítt og breitt
um heiminn og tekjur fyrirtækisins
koma orðið að mestu frá útlöndum.
Helstu markaðssvæði fyrir Qu-
ickDNS eru Bandaríkin og Japan
en sala innanlands er um 0,2%.
Það kemur til með að
styrkja sölu forritsins í
Japan að í næsta mán-
uði fer í dreifingu jap-
önsk útgáfa forritsins
í samvinnu við dreif-
ingaraðila þar.“
Liður í markaðs-
setningu QuickDNS er
að Menn og mýs komu
sér upp eigin netþjóni í Bandaríkj-
unum og Pétur segir að það auki
rekstraröryggið og gefi hraðvirk-
ari miðlun upplýsinga til erlendra
viðskiptavina. „Bandbreidd er of
dýr og rekstraröryggi alnetsins
hér heima er óviðunandi. Það besta
sem stjórnvöld gætu gert fyrir
upplýsingaiðnaðinn væri að opna
trausta „upplýsingahraðbraut“ til
annarra landa á viðráðanlegu
verði. Hlutverk stjórnvalda er að
leggja „vegi“ en ekki að sjá um
aksturinn á þeim. Einokunartil-
burðir ríkisfyrirtækisins Pósts og
síma hf. gefa manni ekki góðar
vonir um framhaldið."
Einskonar símstöðvar
fyrir alnetið
Spurður um tilgang QuickDNS
segir Pétur að nafnamiðlarar séu
einskonar símstöðvar fyrir alnetið.
„Tölva sem tengd er við alnetið á
sér nafn og númer. Nafnamiðlar-
arnir sjá um að breyta nöfnum í
númer og númerum í nöfn fyrir
notendur netsins. Nafnamiðlarar
koma á sambandi milli
tölva en annast ekki
samskiptin að öðru
leyti. Þetta hljómar
e.t.v. einfalt en er
frekar flókið í fram-
kvæmd.
Tenging fyrirtækja
við alnetið krefst m.a.
nafna-, vef- og póst-
miðlara. Nafnamiðlarar hafa lítið
breyst síðustu 25 árin. Lengst af
voru þeir eingöngu til fyrir stærri
og dýrari tölvur (t.d. UNIX) en
krafa dagsins í dag er að þessi
forrit vinni á ódýrum einkatölvum.
Við lásum okkur til um það hvern-
ig nafnamiðlarar eiga að vinna og
smíðuðum QuickDNS."
Að sögn Péturs stendur Macint-
osh tölvan ágætlega að vígi sem
alnetsmiðlari „og QuickDNS hefur
tvímælalaust styrkt stöðu hennar
enn frekar. QuickDNS stenst allan
samanburð við nafnamiðlara fyrir
önnur stýrikerfi“.
Alnetið veitir
einstakt tækifæri
Menn og mýs fást við ýmislegt
annað en nafnamiðlara, því Pétur
segir að fyrirtækið þrói forritið
Stundvísi fyrir skóla landsins og
fáist einnig við þýðingar á hugbún-
aði. „Auk þess að sækja fram á
við með QuickDNS erum við að
velta fyrir okkur nokkrum nýjum
hugmyndum. Við skrifum fyrst og
fremst forrit sem hægt er að selja,
sama hvað stýrikerfið heitir.“
Eins og áður er getið hafa Menn
og mýs nýtt sér alnetið og Pétur
segir að á alnetinu skipti stærð
fyrirtækisins ekki máli. „Með lít-
illi fyrirhöfn getum við sett upp
vefsíður sem standast samanburð
við vefsíður þúsundfalt stærri hug-
búnaðarfyrirtækja. Okkar við-
skiptavinir sjá aldrei annað af fyr-
irtækinu en vefsíðurnar. Staðsetn-
ing fyrirtækisins skiptir heldur
ekki máli, þar eð alnetið er heimur
út af fyrir sig. Alnetið veitir því
íslenskum hugbúnaðarfyrirtækj-
um einstakt tækifæri til sóknar á
erlenda markaði."
Alnetið veitir
því íslenskum
hugbúnaðarfyr-
irtækjum ein-
stakt tækifæri
til sóknará er-
lenda markaði.
Þarftu að
endurnýja?
Tíminn er afstæður þegar bækur eru
annars vegar. Sumar verða sígildar
á meðan aðrar rykfalla í gleymsku.
Þekkingarleitin hefst hjá okkur í
nútima bókaverslun með fjölbreytt
úrval fræðibóka, handbóka og
timarita. Auk þess er sérpöntunar-
þjónusta okkar í tengslum við yfir
5.000 bókaforlög viðs vegar um
heiminn. Þú getur pantað bækur í
verslun okkar, eða beint af
heimasíðunni
http://www.centrum.is/unibooks
bók/aia. AúóerdK
Við Hringbraut • 101 Rvk.
Sími 561-5961 Fax 562-0256
http://www.centrum.is/unibooks/
JAVA-forritunarmálið frá Sun
setti allt á annan endann í tölvu-
heiminum á síðasta ári og sér
ekki fyrir endann á þeirri þróun.
Það hefur margt sér til ágætis,
meðal annars það að Java-forrit
keyra á nánast öllum tölvum, enda
hafa allir framleiðendur stýrikerfa
skuldbundið sig til þess að styðja
það á sínum vettvangi. Þannig eru
menn ekki bundnir af því hvaða
vélar og stýrikerfi þeir velja sem
þróunarumhverfi; geta sem hæg-
ast valið þá vél sem hentar eða
býður uppá besta umhverfið með
þeirri vissu að forritin eiga eftir
að ganga á hvaða gerð sem er.
Fyrir stuttu kom út frá bandaríska
fyrirtækinu Metrowerks þróunar-
umhverfi fyrir Java forritun sem
kennir um leið að forrita í Java.
Metrowerks er meðal annars
þekkt fyrir CodeWarrior þróunar-
tól sín fyrir Macintosh sem ætluð
eru forriturum sem eru ýmist að
semja fyrir Makka eða PC sam-
hæfðar tölvur. í hveijum Code-
Warrior pakka fylgir sérsniðið þró-
unarumhverfi sem nota má við
hvaða forritssmíði sem er; hvort
sem samið er fyrir Makka, Pésa
eða BeBox, en hægur leikur er
að sníða umhverfið að þörfum
hvers verkefnis með því að bæta
við það einingum sem fylgja. Einn-
Java kennsla
á geisladisk
ISrn FRÉTTIR míM
■PRENTARAR verða sífellt
ódýrari og þannig kosta leysi- eða
bleksprautuprentarar, sem seld-
ust á 40—50.000 kr. á síðasta ári,
ekki nema 15—20.000 krónur nú.
Fyrir vikið eru prentarar að
verða jafnalmenn eign og einka-
tölvur, enda má segja að það
standi ekki lengur í nokkrum
tölvueiganda að kaupa sér líka
prentara. Prentaraframleiðendur
eru og mjög kátir þessa dagana
og sjá fram á mikla hagnað-
araukningu í framtíðinni því
smám saman hefur prentara-
markaður breyst í rekstrarvöru-
markað, þ.e. aðalhagnaður fyrir-
tækjanna felst í því að selja vörur
sem þarf til að reka prentara,
blekhylki, prentduft, pappír og
álíka. Álagning á prentara er
mjög lág vegna harðrar sam-
keppni, en aftur á móti má hagn-
ast vel á bleki og dufti, því þar
getur álagning hæglega farið í
70% frá framleiðanda. Nú er svo
komið hjá helsta prentarafram-
leiðanda heims, Hewlett Packard,
að rekstrarvörur fyrir prentara
eru 12% af áætluðum hagnaði
fyrirtækisins á þessu ári, 50%
aukning frá því fyrir þremur
árum. Sagan hermir að frammá-
maður fyrirtækisins hafi svarað
því til þegar hamast var að honum
fyrir hátt verð á dufthylkjum:
„Við setjum það upp sem markað-
urinn þolir!"
■MIKLAR sviptingar eru í vænd-
um á einkatölvumarkaði vestur í
Bandaríkjunum í haust. Bæði er
að ráðsettir framleiðendur herða
samkeppni sín á milli með alls
kyns aukahlutum og svo að ýmis
fyrirtæki stefna inn á þennan
markað af fullum þunga. Þannig
hefur Toshiba, sem unnið hefur
sér orð fyrir afbragðs fistölvur
og reyndar verið brautryðjandi á
því sviði, sent frá sér fyrstu borð-
tölvurnar. Á fistölvumarkaðnum
er líka nóg að gerast því Hitachi
og Fujistsu stefna inn á Banda-
ríkjamarkað, en síðarnefnda fyr-
irtækið hefur náð góðum árangri
í fistölvusölu í Japan. Toshiba
hyggst leggja áherslu á fylgihluti
í borðtölvum sínum og lítur þá til
DVD-tækninnar sem fyrirtækið
tók drjúgan þátt í að þróa. Annað
fyrirtæki, sem ekki hefur sent frá
sér einkatölvur áður, er Sony sem
kynnti í vor fyrstu borðtölvurnar.
Sony hyggst leggja höfuðáherslu
á hljóð- og myndvinnslugetu sinna
tölva. Þeir sem fyrir eru á mark-
aðnum taka þessu ekki þegjandi,
því þeir hlaða aukabúnaði í tölvur
sínar sem mest þeir mega. Þannig
hyggst Hewlett Packard láta lit-
skanna fylgja einni tölvugerð
sinni, Acer hefur símtól innbyggt
í tölvuna og svo mætti lengi telja.
ig eru C og C++ þýðendur í pakk-
anum, sem skila tölvukóða fyrir
68K Makka, PowerPC Makka,
Win32/x86, þ.e. hvaða Windows-
tölvu sem er, svo framarlega sem
hún styður Win32, Magic Cap
umhverfi og Be stýrikerfið, Object
Pascal þýðandi og Java þýðandi
sem skilar Java kóða.
Grúi verkfæra
Grúi verkfæra annarra og tóla
fylgir pakkanum, en í sérstakri
útgáfu af CodeWarrior, Discover
Programming with Java, er einnig
að finna ýmislegt sértækt kennslu-
efni fyrir Java forritun, þar á
meðal allan texta bókarinnar Le-
arn Java on the Macintosh. Ymis-
legt kennsluefni annað er á diskn-
um tengt Java-forritun og sérstök
tól til að létta þá vinnu.
Treknet hefur umboð fyrir
Metrowerks á íslandi og dreifir
hugbúnaði fyrirtækisins. Frekari
upplýsingar má finna á slóðinni
http://www.treknet.is/ en Code-
Warrior gerir þær kröfur til vél-
búnaðar að í tölvunni sé MC68020,
MC68030 eða MC68040 örgjörvi
eða PowerPC, 8 Mb innra minni,
Kerfi 7.1 eða yngra og geisladrif.
Þó þetta séu lágmarkskröfur er
mælt með MC68040 örgjörva eða
PowerPC og 16 Mb innra minni.