Morgunblaðið - 29.09.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996 E 11
Kort í tölvu-
tæku formi
AÐAL TÖLVUTÆKNI er að fást
við upplýsingar og vinna úr þeim
og skiptir þá litlu um hvaða upp-
lýsingar er að ræða, hvort sem eru
tölfræðilegar staðreyndir eða kort,
eða þá að steypa þessu tvennu
saman eins og gert er í landupplýs-
ingakerfisbúnaði þeim sem Sam-
sýn er með umboð fyrir og flestar
opinberar stofnanir og mörg stór-
fyrirtæki hafa notað með góðum
árangri.
Óskar J. Óskarsson hjá Samsýn
ehf., sem er með umboð fyrir
ESRI Arclnfo, segir að 1986 hafi
menn hjá mælingadeild borgar-
verkfræðings rætt um leiðir til að
koma kortum í tölvutækt form,
því þau úreldast svo fljótt og einn-
ig til að auðvelda upplýsinga-
vinnslu. „Ég starfaði þá hjá KOS
að selja Digital tölvur og þeir leit-
uðu þangað eftir aðstoð við að
finna hugbúnað. Ég var í sam-
bandi við McDonnell Douglas og
GPS-kerfi frá því fyrirtæki var
fengið til reynslu í tvö ár. Það
þótti ekki henta og því var leitað
að öðru kerfi og fyrir valinu varð
GIS- eða landupplýsingakerfi.
Niðurstaðan varð síðan sú að
keypt var kerfí frá Bandaríkjun-
um, svonefnt ESRI-kerfí. Það var
sett upp 1989 og keyptur vélbún-
aður, sem var mjög dýr. í dag er
þetta kerfi keyrt á PC-samhæfð-
um tölvum og byggir allt á opnum
stöðlum.
Upplýsingar liggja
á bak við kortin
Munurinn á landupplýsingakerfí
og korti, sem teiknað er í hvaða
tölvu sem er, er að í þessu kerfí
liggja upplýsingar á bak við kort-
in,“ segir Ólafur og nefnir dæmi
um fyrirtæki eins og Domino’s
Pizza hér á landi sem fékk kort
yfír sitt svæði með öllum húsum
á svæðinu og húsnúmerum, „Ár-
bæjarsafn notar þetta kerfí til að
fylgjast með brúnsteini til að geta
tekið hann þegar götur eru teknar
upp, Sjálfsbjörg lét teikna inn á
hvar þarf að bæta aðgengi fatl-
aðra, umferðardeild borgarverk-
fræðings notar kerfið til að fylgj-
ast með „svörtum blettum" í um-
ferðinni og svo má lengi telja,“
segir Óskar, en einnig nefnir hann
að Slökkvilið Reykjavíkur noti
landupplýsingarkerfíð með góðum
árangri, á það séu skráðar allar
helstu leiðir aukinheldur sem þar
séu vitanlega öll hús í Reykjavík
með götunúmerum, staðsetning
HNITUf-U)
Bygn 4 gðgœm UIXR
IMateUailUvSiLaaatnbi.
Hfr. J.SMM
VNNID1ARCVIEW SPATIAL ANAI.YST
KORT af Reykjavík þar sem sjá má íbúaþéttleika.
brunahana, húsateikningar, skrá
yfir spilliefni eða eldfim. Þegar
tilkynnning berst um eldsvoða
þeysa slökkviliðsmenn af stað og
á sama tíma eru slegnar inn í tölvu
upplýsingar um staðsetningu
brunans. Tölvan varpar síðan á
skjáinn öllum þeim upplýsingum
sem komið geta að gagni. Þess
má geta að nýting á ArcView í
Reykjavík hefur verið framleið-
andanum og seljendum tölvubún-
aðar, Hewlett Packard, dijúgt til-
efni auglýsinga og kynninga, enda
þykir það sanna í eitt skipti fyrir
öll notagildið og hagræðið.
Ný útgáfa
Ólafur segir að þjónusta Sam-
sýnar felist helst í því að menn
geti leitað til fyrirtækisins og
fengið kort yfír afmarkaða þætti,
ýmist eftir gagnagrunnum sem
liggja hjá fyrirtækinu eða gagna-
grunnum frá öðrum.
Kort Samsýnar eru gerð í Arc-
View GIS hugbúnaði, en ný út-
gáfa var kynnt fýrr á árinu og í
henni eru ýmsar endurbætur, þar
á meðal nýtt viðmót sem gefur
kost á að bæta við sértækum for-
ritsbútum eftir þörfum, gagna-
vinnsla er mjög endurbætt og
einnig teiknitól, aukinheldur serh
fleiri útlitsmöguleikar gefast fyrir
viðkomandi kort.
Verð:
38.000 kr. m.vsk
HP DeskJet 820 Cxi
Tæknilegar upplýsingar:
Prenthraði: alit að 6,5 blaðsíður
á mín. í sv/hv, allt að 4
blaðsíður á mín. i lit.
Prentar undir Microsoft Windows
(95, 3.1).
600x600 dpi í sv/hv.
600x300 dpi í lit.
C-REt tækni og Color Smart sem
hámarkar litagæðin.
'H h uet ju ^Jdewfett ^acLard
meót heypti prentari í liei
Einmitt það sem mig va
er
Sterkustu rökin fyrir að kaupa HP DeskJet 820 Cxi prentara
færðu þegar þú berð hann saman við aðra prentara.
Prentaðu i lit eða svart/hvítu á venjulegt Ijósritunarblað með HP 820 Cxi prentaranum -
þú veist um Leið að hann er rétti prentarinn! Prófaðu síðan að prenta sama skjalið á
sambærilegan pappír með öðrum prentara. Þegar þú berð saman gæði, prenthraða og
rekstrarkostnaó verður þér Ijóst að HP 820 Cxi prentarinn á í reynd engan keppinaut.
Gerðu kröfur -HP DeskJet 820 Cxi uppfyUir þær!
Viðurkenndir sölu- og þjónustuaðilar -------------------------------
eimi
HEWLETT
PACKARD
© AC0, Skipholti 17, s. 562 7333
aco
BOÐEIND Boðeind, Mörkinni 6, s. 588 2061
Heimilistæki hf
Tæknival
Einar 3. Skúlason, Grensásvegi 10, s. 563 3000
Heimilistæki, Sætúni 8, s. 569 1500
Tæknival, Skeifunni 17, s. 550 4000
Upplýsingatækni, Ármúla 7, s. 550 9090
HP býður glæsilegt úrvaí
af bleksprautuprenturum
allt frá 20.000 kr.