Morgunblaðið - 29.09.1996, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.09.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996 E 19 Nýjungar í þrívíddargrafík ONNO ehf. er nýlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í CAD, þrívíddargrafík og myndbandsvinnslu. Eigendurnir, Rúnar Unnþórsson og Þórður Magnússon, eru að ljúka námi i vélaverkfræði og hafa unnið við tölvugrafík í nokkur ár með skóla. Þeir Rúnar og Þórður segja að stafseminni megi skipta í þrjú meg- insvið: Sölu á vél- og hugbúnaði tengdum CAD, grafík og mynd- bandsvinnslu, kennslu og þjónusta við vél- og hugbúnað og vinnslu á verkefnum í CAD, þrívíddargrafík og myndbandsvinnslu. Þeir félagar segjast leggja mesta áherslu um þessar mundir á teikni- forritið 3DStudio MAX, sem er nýjasta útgáfa 3DStudio forrits frá Autodesk sem yfir 65.000 eintök hafa selst af. Að sögn þeirra er Autodesk 4. stærsti hugbúnað- arframleiðandi í heimi og framleiðir meðal annars AutoCad teikniforrit- ið, sem mikið er notað hér á landi, og þess vegna er auðvelt að flytja teikningar frá AutoCad yfir í 3D- Studio MAX. Skrifað upp á nýtt Að sögn þeirra félaga hefur 3D- Studio MAX verið skrifað upp á nýtt frá grunni fyrir 32bita vinnslu í Windows 95/NT umhverfi sem gerir það mjög hraðvirkt. „Til þess að vinna á 3DStudio MAX þarf PC tölvu, helst hraðvirka Pentium eða Pentium Pro með a.m.k. 32 mb vinnsluminni, skjákorti/skjá með amk. 800x600x256 upplausn, mús og geisladrifi. Það er því ljóst að ekki þarf að kaupa sérstaka tölvu til að nota 3DStudio MAX, hún nýtist vel í öðrum forritum eins og Photoshop, Office95, o.fl.“ Þeir segja að sé 3DStudio MAX keyrt á Windows NT geti það nýtt sér fleiri en einn örgjörva séu þeir til staðar. Hægt er og að nota aðr- ar nettengdar vélar til þess að vinna myndaramma (render) án þess að kaupa annað leyfi af 3DStudio MAX. Allt að 10.000 vélar geta hjálpast að við sama verkefnið, þá sér ein vél um að skipta milli þeirra myndarömmum. Vélarnar þurfa ekki að vera á sama stað, hægt er að stjórna þessu öllu yfir alnetið (TCP/IP). Öll vinnsla í sama gluggaviðmóti Öll vinnsla fer fram í sama gluggaviðmóti, þ.e. ekki eru lengur 5 aðskilin forrit eins og í 3DStudio 4. „í 3DStudio MAX er bæði hægt að byggja módel og búa til myndir af þeim, þ.e. hér er um heildarlausn að ræða í einum pakka,“ segja þeir og bæta við að auðvelt og fljótlegt sé að ná tökum á vinnsluumhverfinu þar sem það er algerlega Windows samhæft og einnig séu handbæk- urnar sem fylgja forritinu mjög góðar. „Forritið er stöðulaust (modeless) og sjást allar breytingar um leið og þær eru slegnar inn. Ótakmarkað „undo“ tryggir að allt- af er hægt að komast til baka og breyta. Einnig er svokallaður að- gerðahlaði (modifier stack) sem geymir allar upplýsingar og aðgerð- HUGBUNAÐUR FYRIR WINDOWS FRÁBÆR ÞJÓNUSTA gl KERFISÞRÚUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 ir sem hafa verið gerðar á hveijum hlut. Með hlaðanum er hægt er að fara til baka og breyta einstökum atriðum í sköpunarsögu hlutar og þannig framkalla breytingar án þess að þurfa að vinna allan hlutinn upp á nýtt.“ Viðbætur og fleira Til viðbótar því að selja 3D- Studio MAX, hyggjast þeir ONNO- menn einnig bjóða til sölu hinar ýmsu viðbætur við 3DStudio sem koma á markaðinn frá aðilum eins og Digimation, Positron, o.fl. Einn- 'g hyggjast þeir selja búnað frá Digital Processing Systems sem er fyrirtæki sem sérhæfir sig í búnaði fyrir sjónvarpsvinnslu. Meðai þess sem það framleiðir er Perception myndbandsvinnslukort. Á Percepti- on kortinu er SCSI stýring sem við eru tengdir hraðvirkir SCSI diskar og þurfa myndgögnin því ekki að fara í gegnum örgjörvann og PCI gagnabrautina til þess að komast út á myndbandstækið. Þetta þýðir að hægt er að spila efnið hiklaust út þótt verið sé að vinna í öðru á vélinni. Um það bii 4 mínútur af myndefni í sjónvarpsupplausn og fullum útsendingargæðum komast fyrir á 1 gb af diskplássi. Með því að bæta við svokölluðu „capture" korti er síðan mögulegt að taka inn myndefni af mynd- bandstæki og vinna síðan með það á Perception kortinu. Perception kortið, eins og allar vörur frá DPS, uppfyllir Pal B/G CCIR-624 staðal- inn um myndgæði og er fyllilega hæft í atvinnu myndbandsvinnslu Þrívíddarmynd sem unnin er í 3DStudio MAX-forritinu. að sögn þeirra félaga. Onno hyggst einnig selja hug- búnað frá IrnSync, sem er hugbún- aðarfyrirtæki sem býr til forrit fyr- ir klippivinnslu á tölvu. „Helsta söluvara fyrirtækisins er er Speed Razor Mach III (SR) forritið," segja þeir og bæta við að SR geti notað beint það skráaform sem notað er á Perception kortinu og vinnur bæði á PC og Alpha tölvum. Þeir félag klykkja út með að ONNO ehf. muni sýna m.a. 3D- Studio MAX, Perception, Speed Razor á „Prentmessu“ 96. S. 588-3338/f. 588-3132 INTERNET X.400 INMARSAT I SKÍMA tengir tölvupóstkerfi fyrirtækja viö INTERNET, INMARSAT og X.400 | SKÍMA býöur fyrirtækjum nettengingar viö INTERNET I SKÍMA býður fyrirtækjum hönnun og vistun heimasíðna á INTERNET cc:Mail DaVinci Lotus Notes 'MHS MS Mail OpenMail Öryggi Hraði Sparttaður Hagræðing Margmiðlunartölva Reiknaðu dæmið til enda Eínstakt tækifæri til að eignast öfluga More tölvu og Microsoft Office Pro / mmm^m 100 Mhz örgjörvi 16MB vinnsluminni. 8 hraða geisladrif Powerpoint. 15" ViewSonic litaskjár ---850MB harður diskur Excel Þú færð líka: Word 6. Schedule. • Ofluga hátalara • Windows 95 stýrikerfi á geisladiskum • Músarmottu • 10 vinsæla leiki Access Windows 95 samhæft lyklaborð __Þriggja hnappa mús Ífcal t l lafc.lli.bfc.lklt l | | lfc?.» HFWljt iww\ J Ein með öllu! kr. 189.900,- eða kr. 152.530,- án vsk. Verðlistaverð á þessum búnaði er kr. 288.780,- Kynntu þér möguleika ISDN BOÐEIND ViewSonic issgg Hlnrkiimi ti • Sfmi HNN 21161 • l’av 588 2062 Nctrang: bo(l(Mn(l@mmcilia.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.