Morgunblaðið - 29.09.1996, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996 E 29
UIÐSKIPTI
FRETTIR
Fjármálaupp-
lýsingakerfi
Dow Jones
DOW JONES & Company er leið-
andi fyrirtæki á sviði alþjóðlegra
fjármálaupplýsinga. Fyrirtækið
rekur skrifstofur í meira en 80
löndum og starfa þar um 10 þús-
und manns. Meginhlutverk og
stefna fyrirtækisins er að miðla
hvers konar viðskiþtaupplýsingum
hvert sem er og hvenær sem er.
Heildarvelta Dow Jones á síðasta
ári var yfír 150 milljarðar króna,
en fyrirtækið hefur miðlað við-
skiptaupplýsingum um víða veröld
allt frá árinu 1882. Fyrir þremur
árum hóf Stengur hf. samstarf við
Dow Jones Telerate um að miðla
flármálaupplýsingum hingað til
lands.
Dow Jones Telerate er hluti af
upplýsingadeild Dow Jones &
Company og í fréttatilkynningu
frá Streng kemur fram að það er
leiðandi í miðlun viðskiptaupplýs-
inga um leið og þær verða til,
hvaðanæva og hvert sem er í heim-
inum. Þá býður fyrirtækið forrita-
lausnir til ákvarðanatöku á upplýs-
ingagrundvelli, viðskiptakerfí fyrir
markaði og millifærsluþjónustu
fyrir fjármálastofnanir.
„Meðal viðskiptavina Dow Jon-
es Telerate má nefna leiðandi
banka og fjármálafyrirtæki víða
um heim,“ segir í tilkynningunni.
„Telerate er nú keyrt á meira en
100 þúsund útstöðvum og færslur
eru taldar í milljónum daglega.
Höfuðáhersla er Iögð á að miðla
hágæðaupplýsingum sem eru ein-
stakar í sinni röð, nýjustu tækni
í samskiptum og fyrsta flokks
þjónustu við viðskiptavini."
Beintenging við fjölda
markaða
„Rauntímaupplýsingar Dow
Jones Telerate eru sóttar til 130
alþjóðlegra fjármálamarkaða og
2500 sérhæfðari markaða að auki.
Fréttir og fréttaskýringar koma
m.a. frá 3500 fréttamönnum
Associated Press-fréttastofunnar
(AP), AP-Dow Jones og Dow Jon-
es Telerate, auk þess sem yfir 100
utanaðkomandi aðilar koma upp-
lýsingum á framfæri gegnum Tel-
erate. Áskrifendur að kerfínu hafa
aðgang að meira en 60 þúsund
blaðsíðum af viðskiptatengdum
upplýsingum.
Samhliða Telerate í upplýsinga-
deild Dow Jones & Company er
að fínna upplýsingaþjónustuna
Dow Jones Newswire. Þar er m.a.
miðlað fréttum af ljármálamörk-
uðum, fréttum fyrir Qárfesta auk
frétta frá AP. Dow Jones Telerate
Margmiðlunar-
kennsluefni
CÖ»-
í ensku.
Ármúla 40,108 Reykjavík, Iceland
Tel: +354568-9750,
Fax: +354568-9754,
Email: brefask@ismennt.is
hefur einkarétt á dreifíngu mikils
hluta upplýsinga Newswire.
Gegnum Dow Jones Business
Information Services, sem er hluti
af upplýsingadeild fyrirtækisins,
má slá upp í og skoða fjölbreytt
útgáfuefni er tengist íjármálum.
Mest notuð er hin svonefnda
News/Retreival-þjónusta þar sem
nálgast má efni og leita í meira
en 2900 titlum.“
Flaggskip útgáfudeildar
Dow Jones
„Hið víðlesna ijármálablað The
Wall Street Joumal er flaggskipið
í viðskiptaútgáfudeild Dow Jones &
Company. Að meðtöldum The Wall
Street Joumal Europe sem gefið
er út í Bmssel og The Asian Wall
Street Joumal sem gefið er út í
Hong Kong, er heildarupplag
blaðsins 1,9 milljónir eintaka á dag.
Af öðrum viðskiptaritum sem
Dow Jones gefur út má nefna
Barrons, Far Eastem Economic
Review, National Business
Employment Weekly, The Asian
Wall Street Joumal Weekly, the
Wall Street Joumal Classroom
Edition, SmartMoney og American
Demographics. Þá gefur dóttur-
fyrirtæki Dow Jones út 21 al-
mennt dagblað í 11 ríkjum Banda-
ríkjanna.
Dow Jones & Company hefur
látið til sín taka í sjónvarpi og
rekur m.a. Asian Business News,
sem er fyrsta gervihnattasjón-
varpsstöðin í Asíu sem einvörð-
ungu flytur viðskiptafréttir. í
Bandaríkjunum er starfrækt Dow
Jones Business Network, sem
miðlar sérstöku fréttatengdu efni,
svo sem viðtölum við forstjóra og
stjómmálamenn, Ijármálafréttum
og fréttatilkynningum. í Evrópu
er starfrækt European Business
News (EBN) og miðlar það m.a.
upplýsingum úr Dow Jones Teler-
ate í sjónvarpi, ásamt fréttum og
viðtölum."
ipnj m
GRAFÍ K
UMBROT
SETNING
ÚTKEYRSLA
MAC / PC
FILMU OG
PLÖTUGERÐ
ÖLL ALMENN
PRENTUN
BÓKBANO
PAPPÍRSSALA
LJÓSRITUNARPAPPÍR
TÖLVUPAPPÍR
REIKNIVÉLARÚLLUR
FAXRÚLLUR
GRAFIK
Sími: 554 5QOO
■UNIX er ekki síst vinsælt fyr-
ir öflugan innbyggðan öryggis-
þátt. Framleiðendur Unix eru
aftur á móti fjölmargir og þó
grunnþættir séu þeir sömu er
víða brugðið útaf, endaþykir
hverjum sinn fugl fagur. Santa
Cruz Operation, SCO, framleið-
ir UnixWare og hefur gert allt
frá því Novell gaf það frá sér.
Það var SCO nokkurt áfall að
komast að því fyrir skemmstu
að gat var á öryggisneti stýri-
kerfisins, því í ljós kom að hver
sem hafði á annað borð aðgang
að kerfinu gat komist í kerfis-
skrár eða skrár annarra not-
enda. SCO hefur gefið út leið-
réttingarviðbót sem finna má á
slóðinni ftp://ftp.sco.COM/
UW2—l/ptf3063.txt, en þetta á
við um SCO UnixWare 2.0.x og
2.1.0.
■SHARP hefur stórsókn inn á
fistölvumarkaðinn á næstu dög-
um þegar fyrirtækið kynnir
nýja gerð af fistölvum með stór-
bættum kristalskjá sem er að
auki mun breiðari en skjáir á
sambærilegum tölvum. Að sögn
talsmanna fyrirtækisins er ætl-
unin að notandi geti til að
mynda skoðað tvær vefsíður
samtímis, en hlutföll skjásins
eru 16:9 og minna á kvikmynda-
tjald. Fyrstu tölvurnar byggjast
á 133 MÍHz Pentium örgjörvum,
en Sharp byijar á tveimur gerð-
um með mismunandi skjátækni,
ýmist Passive eða Active Matr-
ix.
Viltu styrkja stöðu þína
Námið er 260 kennslustunda skipulagt starfsnám og er
sérhannað með þarfir atvinnulífsins í huga. Nemendur
útskrifast sem tölvu- og rekstrartæknar að námi loknu.
Markmið námsins er að útskrifa nemendur með hagnýta
þekkingu á tölvunotkun, bókhaldi, tölvubókhaldi og rekstri
Námið hentar þeim sem vilja :
r Styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum
O Annast bókhald fyrirtækja
||;1? Öðlast hagnýta tölvuþekkingu WWKOMUffAÐ
© Auka sérþekkingu sína cnviidu
rajl Starfa sjálfstætt
Umsagnir nemenda um námið:
Var byrjandi á tölvur, vinn nú í tolvuumhverfi“
..Frábært nám og frábær kennsla"
Tölvu- og rekstrarnámið gerði mér kieift að skipta um starf “
..Ég sýndi lokaverkefnið mitt í viðtaiinu og fékk vinnuna"
..Sé um bókhald i' fyrirtækinu, gat það ekki áður"
hafin
'fyrír vorönn
1997
Boðið er upp á morgun- og kvöldtíma.
Sveigjanleg greiðslukjör.
Upplýsingar og innritun enj hjá:
Rafiðnaðarskólinn VIDSKIPTASKÓLINN
Sími 568 5010 Sími 562 4162