Morgunblaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 12
12 B ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Verðskuldaður sigur
Allir voru sammála um
að Akumesingar hefðu
verið betri í leiknum á
sunnudag. Edwin
Rögnvaldsson og Stef-
án Stefánsson ræddu
við ýmsa viðstadda að
leik loknum.
„SIGURINN var verðskuldaður,"
sagði Ásgeir Elíasson fyrrum
landsliðsþjálfari eftir leikinn. „Ég
held að pressan hafi verið meiri á
KR-inga því Skagamenn þekkja
hvað það er að vinna á meðan
Vesturbæingar hafa verið að bíða
í einhveija áratugi, en þeir hafa
líka á móti sér að hafa spilað erfið-
an leik í vikunni. Og ekki var betra
fyrir þá hve völlurinn var erfiður.
Þó að Skagamenn hafi þurft að
blða í viku eftir leiknum er það
þó betra. Annars voru Skagamenn
lengi vel ekki að skapa sér hættu-
leg færi þó að hætta hafi skapast
í til dæmis hornspymum þeirra,
en ég hefði viljað sjá KR-ingana
spila boltanum meira. Þeir tóku
ekki áhættu svo það lá í loftinu
að Skagamenn myndu skora.“
Okkar langbesti lelkur
„Þetta var frábært hjá okkur,
gat ekki verið betra,“ sagði Bjarni
Guðjónsson leikmaður IA. „Það
gekk allt mjög vel enda spiluðum
við okkar langbesta leik og langt
er síðan ég hef spilað svona vel.
Það var einnig samstaða hjá okkur
kém
FOLX
■ ÞAÐ gekk illa að ákveða hvort
ÍA eða KR ætti að byrja með bolt-
ann á sunnudaginn. Varpa varð
hlutkesti þrívegis því peningurinn
lenti uppá rönd í fyrstu tvö skipt-
in, enda var völlurinn gljúpur og
blautur.
■ SKAGAMENN voru að vonum
kátir eftir leikinn og sungu lagið
úr Iottó-auglýsingunni oft og lengi,
en ÍA leikur í fatnaði og skóm frá
fyrirtæki sem ber sama nafn, ít-
alska íþróttavöruframleiðandanum
Lotto. Sigursteinn Gíslason
bætti síðan um betur og benti rétti-
lega á að nú væri hann „tvöfald-
ur“, fyrst ÍA hefði unnið bæði ís-
landsmótið og bikarkeppnina.
■ DÓMARI leiksins, Guðmundur
Stefán Maríasson, þurfti þrívegis
að hnýta skóþveng sinn í leiknum.
„Ég er nú aðallega feginn að ég
skyldi vera í takkaskóm, því ann-
ars hefði maður verið á hausnum
allan leikinn," sagði Guðmundur.
■ HANN sagðist hafa undirbúið
sig vel fyrir leikinn, farið snemma
að sofa á laugardaginn og sofið
vel. „Ég held ég sé nokkuð sáttur
við frammistöðu mína í dag,“ sagði
hann eftir leikinn.
■ ÞESS má geta að Guðmundur
Stefán sagðist myndi leggja fót-
boltaflautunni þegar hann kæmi
heim og draga fram körfubolta-
flautuna, en hann dæmir einnig í
körfuknattleiknum. Næsta vor
verður síðan skipt aftur.
■ ÓLAFUR Adolfsson sagði að
leikurinn hefði verið erfiður. „Það
er ekki á hveijum degi sem ég fæ
sinadrátt í leik, en ég fann fyrir
honum undir lokin,“ sagði Ólafur.
um að taka báðar dollumar og nú
var úrslitaleikur." Bjami sagðist
hafa verið stressaður, „en það var
ekki beint mikil pressa á okkur
þessa viku, við höfum tekið góðar
æfingar og nært okkur vel.
Stemmningin á Akranesi hefur
verið mjög góð en stuðningsmenn
okkar voru hræddari en við um
að tapa. Ég gat ekki séð að Evr-
ópuleikurinn hafi haft áhrif á þá,
við gerðum það sama og spiluðum
okkar Evrópuleiki í miðju móti og
þetta er bara hluti af þeirra tíma-
bili.“
Sterkasta hliö Guöjóns að
ná mönnum upp á taernar
„Við höfðum engu að tapa. Það
er búið að blása út í sumar að
KR-ingar séu með sigurstrangleg-
asta liðið svo að pressan var öll á
þeim og að auki er sterkasta hlið
Guðjóns þjálfara okkar að ná
mönnum upp á tærnar fyrir mikil-
væga leiki,“ sagði Ólafur Adolfs-
son, sem skoraði fyrsta mark
Skagamanna á sunnudaginn.
„Við erum vanir þessu en stuðn-
ingsmenn á Akranesi era búnir að
vera á taugum alla vikuna," sagði
Ólafur, spurður um hvort leikmenn
hefðu verið óvenju spenntir fyrir
leikinn. „Þegar leikurinn hófst
sáust einnig strax þess merki að
KR-ingar hefðu leikið Evrópuleik
í vikunni áður og að þeir væra að
ganga í gegnum það sama og við
gerðum í sumar þegar álagið var
sem mest á okkur. Það er mjög
erfitt því ef menn eiga í vandræð-
um er ekki tími til að laga neitt
eða bæta úr göllum.“
Ætluðum ekki að bakka
„Ég get ekki mikið sagt núna
en það gengur bara betur næst,“
sagði Ásmundur Haraldsson leik-
maður KR, sem stundar nám í
Bandaríkjunum en kom sérstak-
lega til landsins til að spila leikinn.
„Okkur gekk ekki vel framan af
en ef við hefðum haldið út fyrri
hálfleikinn er aldrei að vita hvað
hefði gerst. Við ætluðum ekki að
bakka heldur spila okkar leik því
það fer enginn í leik til að halda
jöfnu. Þeir urðu að sækja en eins
og við vorum að spila hlaut að
koma að því að þeir skoraðu og
þegar við náðum síðan að setja
eitt mark sjálfir galopnast allt í
vörninni og þeir skora fljótlega
aftur,“ bætti Ásmundur við en
hann hélt til Bandaríkjanna í gær.
Líður ekki vel
Ríkharður Daðason, sem skoraði
eina mark KR í leiknum og tryggði
sér markakóngstitil 1. deildar með
Við getum engum um kennt
hvernig fór nema okkur sjálf-
um. Við lékum ekki eins og lagt
var fyrir okkur,“ sagði Guðmundur
Benediktsson vonsvikinn að leiks-
lokum. „Það skipti sköpum," bætti
hann svo við.
„Það var lagt upp með það sama
í farteskinu og fyrir aðra leiki -
að veijast og reyna að skora. Þetta
tókst ekki í dag, því miður."
Guðmundur sagði að fyrsta
markið rétt fyrir lok fyrri hálfleiks
hafi verið hálfgildings rothögg en
sér hafi fundist sem liðið hafi verið
að rétta örlítið úr kútnum um það
alls 14 mörk, var að vonum niður-
dreginn í leikslok. „Mér líður nátt-
úralega ekki vel. Þeir komust yfir
með því að skora úr því sem þeir
era sterkastir í - föstum leikatrið-
um, sem við vissum að vora hættu-
leg. Þegar við komumst aftur inn
í leikinn, 2:1, tókum við áhættu
enda ekki nema u.þ.b. tíu mínútur
eftir og síðustu tvö mörkin hjá
þeim skiptu engu máli. Ég er auð-
vitað svekktur, en ég verð að óska
Skagamönnum til hamingju. Þeir
vora betri aðilinn í þessum leik,“
sagði markakóngurinn.
Þriöja markiö gerði útslagið
„Þetta var alveg frábært, gerist
ekki betra. KR-ingamir gáfust
nærri upp þegar við náðum tveggja
marka forystu í stöðunni 2:0, en
fengu svo vítamínsprautu þegar
þeir skoraðu og minnkuðu muninn
í 2:1. Þriðja markið okkar gerði
að lokum útslagið og drap þá al-
veg. Það var lykilmarkið," sagði
leyti sem það minnkaði muninn í
2:1. Þá hafi hins vegar náðarhögg-
ið komið. „Þá var þetta búið. Við
tókum áhættu er Óskar [Þorvalds-
son] var færður framar. Við það
vorum við einum færri í vörninni
og þeir nýttu sér það strax.
En svona fór þetta og Skaga-
menn áttu sigurinn fyllilega skilið
og ég vil óska þeim til hamingju
með meistaratitilinn."
Skagamenn þekkja hvaö þarf
„Við leyfðum þeim að þróa leik-
inn sér í hag eins og þeir vildu,“
sagði Kristján Finnbogason, mark-
Þórður Þórðarson, markvörður ný-
krýndra íslandsmeistara, alsæll í
leikslok.
Stóðum saman þegar
mest á reyndi
Kári Steinn Reynisson lék mjög
vel fyrir Skagamenn eftir að hann
kom inná sem varamaður vegna
meiðsla Haraldar Hinrikssonar
þegar langt var liðið á fyrri hálf-
leik. „Ég lagði mig allan í leikinn
og það dugði sem betur fer. Ég
hélt að við værum búnir að vinna
þegar staðan var orðin 2:0, en
efasemdir gerðu örlítið vart við
sig þegar KR-ingarnir skoruðu.
Við náðum samt að klára þetta
og það var fyrst og fremst vegna
þess að við stóðum allir saman
þegar mest á reyndi," sagði Kári
Steinn lafmóður eftir sigurhring-
inn sem Skagamenn hlupu á
áhorfendasvæðunum í kringum
völlinn.
vörður KR. „Þeir vora mikið sterk-
ari en við í loftinu og þar lá einn
meginmunur á þessum liðum í dag.“
Kristján sagði ennfremur að síðari
umferð deildarkeppninar hefði ekki
verið nægilega góð hjá KR og mörg
stig tapast á klaufalegan hátt.
„Þriðja markið var kjaftshögg,
þá var þetta búið. Ég óska Skaga-
mönnum til hamingju, þeir þekkja
hvað þarf til að sigra og sýndu það
að þessu sinni,“ sagði Kristján, en
þess má geta að hann stóð í marki
IA árin 1992 og 1993 er félagið
varð Islandsmeistari, en skipti að
því loknum á ný heim í vesturbæinn.
Morgunblaðið/Ásdís
ÓLAFUR Þórðarson, fyrlrllðl Akurneslnga, hampar íslands-
blkarnum. Hann tók vlð honum þrlðja árlö f röð sem fyrlrllðl
en þetta var flmmta sklpti í röð sem fyrirlið! Skagamanna
tekur vlð þessum glæsllegan blkar að mótl loknu.
Guðmundur Benediktsson eftirað Skagamenn fögnuðu sigri
Lékum ekki eins og
fyrir okkur var lagt
Frændur
marka-
hæstir
TVEIR markahæstu leik-
menn 1. deildar; Ríkharður
Daðason, sem gerði 14 mörk
og Bjarni Guðjonsson, sem
gerði 13 mörk, eru frændur
og koma úr Vegamóta-ætt-
inni. Þeir eru fjórmenningar.
„Þetta er greinlega kott kyn.
Það er eitthvað í genunum
sem gerir þessa drengi mark-
heppnari en aðra. Það er
ekki bara æfingin," sagði
Guðjón Þórðarson, þjálfari
ÍA.
Stuttur
stans hjá
Ásmundi
ÁSMUNDUR Haraldsson,
leikmaður KR-inga, kom frá
Bandaríkj unum á sunnudags-
morgun tíl að taka þátt í
leiknum við ÍA. Hann fékk
því lítinn tima til að undirbúa
sig með liðinu því hann fór
beint upp á Akranes. „Ég
svaf ekki mikið, enda var ég
á ferðalagi í alla nótt,“ sagði
Ásmundur fyrir leikinn.
Hann kom inn á sem vara-
maður og lék í samtals 26
mínútur. Hann kom því langa
leið til að leika þessar mínút-
ur.
Fimm í
fimmta
skipti
FIMM leikmenn Akraness-
liðsins hafa verið í meistara-
liðinu siðustu fimm árin.
Þetta eru þeir Ólafur Adolfs-
son, Sigursteinn Gíslason,
Alexander Högnason, Har-
aldur Ingólfsson og Stur-
laugur Haraldsson. Ólafur
fyrirliði Þórðarson hefur
verið með síðustu fjögur ár
en fyrsta meistaraárið, 1992,
lék hann í Noregi.
Eyjamenn
í Evrópu-
keppni
bikarhafa
ÞAÐ réðist ekki fyrr en eftir
að úrslit lágu Ijós fyrir á
Akranesi á sunnudag, hvern-
ig íslensku liðin raðast i Evr-
ópukeppnina næsta keppnis-
timabil. Nú er Ijóst að Akur-
nesingar fara i Evrópukeppni
meistaraliða. Liðið hefur,
sem meistari, tekið þátt í
UEFA-keppninni undanfarið,
en reglunum verður breytt
aftur á næsta ári, þannig að
meistaralið allra landa kom-
ast aftur sjálfkrafa í keppni
meistaraliða.
Vestmannaeyingar verða
fulltrúar íslands i Evrópu-
keppni bikarhafa, sem taplið
í bikarúrslitum þar sem bik-
armeistararnir urðu einnig
íslandsmeistarar og KR-ing-
ar fara í UEFA-keppnina
vegna þess að þeir urðu í
öðru sætí deildarinnar.
Lið Leifturs frá Ólafsfirði
verður fulltrúi Islands i Int-
ertoto-keppninni svokölluðu.