Morgunblaðið - 29.12.1996, Side 12
12 B SUNNUDAGUR 29. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
DÆGURTÓNLIST
RICHARD D. James, sem kallar sig yfirleitt
Aphex Twin, er einn af helstu spámönnum
breskrar danstónhstar. Hann sló í gegn bráð-
ungur, var farinn að leika tónlist sína á diskótek-
um þrettán ára gamall, og hefur haldið þeirri öf-
undsverðu stöðu að vera í fremstu röð alla tíð síðan,
sent frá sér grúa frumlegra og sérkennUegra laga,
eins og má tU að mynda heyra á nýjustu breiðskífu
hans, Richard D. James Album.
ó flestir þekki James
sem Aphex Twin hef-
ur hann gefið út tónlist
undir grúa annarra
nafna, má nefna AFX,
Analogue Bubblebath,
Caustic Window, Solt
Diceman, Bluecalx og
Polygon Window svo fátt
eitt sé nefnt.
Iðulega grípur
hann til nýs
nafns ef hann er
að fást við nýja
gerð tónlistar, en
dulnefnunum
hefur fækkað .
með tíð og tíma e"'r*[no
og í seinni tíð er Matthiosson
það nánast eingöngu Ap-
hex Twin sem ertir eyru
tónlistarunnenda.
Framan af ferlinum
lék James það sem kalla
má hefðbundið techno/-
house, sneri sér síðan að
ambient tónlist en í sein-
ni tíð má segja að hann
sé að reyna að brjótast
úr viðjum hefðbundinna
skilgreininga á tónlist.
Frægt er þegar hann fór
í tónleikaferð um Banda-
ríkin með matvinnsluvél
og sandpappír einan að
vopni, og þeir sem
heyrðu í James á Uxa-
tónleikunum á síðasta
ári minnast eflaust sér-
kennilegs tónlistarhrær-
ings þar sem ægði sam-
an barnapoppi, teikni-
myndahljóðum, brotnum
hrynklösum, sirkustón-
list og auglýsingastef-
um. A plötu sem kom út
snemma á árinu og
James gerði með félaga
sínum Mike Paradinas,
sem kallar sig m-siq,
mátti heyra að hann var
við sama heygarðshorn-
ið, en á síðustu plötu sin-
ni stígur hann skrefið
enn lengra. Segja má að
hann sé að storka
áheyrandanum með því
að flytja honum tónlist
sem er á köflum ekki
tónlist, en inn á milli eru
einskonar bjarg-
hringir sem
hlustandinn
heldur dauða-
haldi í til að mis-
sa ekki glóruna.
Nú má ekki skil-
ja þetta sem svo
að tónlistin sé
eitthvert torf,
því hún er furðulega
grípandi á köflum.
Eins og getið er á
James sér íjölmörg dul-
nefni, og býr til ný þegar
svo ber undir, en gengur
helst undir nafninu Aph-
ex Twin. Fyrir skemmstu
kom svo skýring á þvi
þegar hann birti utan á
tólftommu mynd af leg-
steini sem á stendur Ric-
hard James, Nov 23 1968.
Margir töldu grátt gam-
an á ferð, en James var
ekkert að leyna þvi að
þetta væri mynd af gröf
bróður hans og nafna,
sem lést skömmu eftir
fæðingu: Þermur árum
fæddist annar drengui-
sem fékk sama nafn, með
D. í miðjunni, en D-ið
stendur fyrir Dick, stytt-
ingu á Richard. Þannig
má segja að tónlist Rich-
ard D. James/Aphex
Twins sé lykiltónlist ekki
síður en umbúnaður all-
ur, en ekki verður auð-
hlaupið að lesa úr öðrum
lyklum.
Jarðsími
RÉTT fyrir jól kom út breiðskífa
með rokksveitinni Tré, sem áður
hét Man. Undir nafninu Man náði
sveitin svo langt að
verða valin athyglis-
verðasta hljómsveit
Músíktilrauna Tóna-
bæjar en hvarf sjón-
um við svo búið.
Valdimar Krist-
jánsson,
trommuleikari Trés,
segir að þeir félagar,
en aðrir í sveitinni eru Steinar
Gíslason gítarleikari og söngvari
og Birgir Thorarensen bassaleik-
ari og söngvari, séu
lítið gefnir fyrir að
láta á sér bera, og
þannig hafi þeir
ekki nema leikið á
tvennum tónleikum
síðustu tvö ár. Hann
segir að þeir félagar
hafi leikið saman
síðastliðin fimm ár
eða svo og látið fátt
Jólatré Steinar
Gíslason, Birgir
Thorarensen
og Valdimar
Kristjánsson.
sér fyrir brjósti brenna í tónlist-
inni. Tilraunaverðlaunin fékk
sveitin fyrir sérkennilegar laga-
smíðar, en lögin sem þá voru á
dagskránni þótti þeim of gömul
þegar kom að því að taka upp
breiðskífu svo þeir hentu öllu
saman og sömdu nýjan laga-
skammt fyrir upptökurnar. Þegar
skífan var í aðsigi þurftu þeir fé-
lagar líka að taka upp annað nafn,
því endurútgáfur á rokksveitinni
gömlu Man stóðu sem hæst á þes-
su ári og eftir stuttar vangaveltur
kom Tré til sögunnar.
Hljómur á Jarðsíma er sér-
kennilegur og Valdimar segir að
þeir félagar kunni vel að meta
slíkan hljóm, en plat-
an er hljóðrituð á A-
DAT tæki í æfinga-
skúr sveitarinnar og
síðan brugðu þeir sér
í Studio Hvarf til að
leggja lokahönd á
verkið. Ekert voru
þeir að flýta sér um of
og segjast ekki bein-
línis hafa stefnt á
jólasölu, „ég veit ekki
hvort þetta sé eitt-
hvert jólatré, en við
höfum ekki áhyggjur
af einu eða neinu,
okkur hefur gengið
vel að selja diskinn
sjálfir og eigum sjálf-
sagt eftir að selja
hann áfram.“
Bófarappið
heldur velli
MARGIR hafa eflaust talið bófarappið búið að vera þegar Tupac Shakur
féll fyrir morðingahendi. I ljósi vinsælda nýjustu breiðskífu Snoops
Doggys Doggs á það töluvert eftir.
Snoop Doggy Dogg er einn helsti rappari síðustu ára vestanhafs, en
hann komst í sviðsljósið sem aðstoðarmaður Dr. Dre, og gerði sitt til
að gera The Chronic að einni helstu rappplötu áratugarins. Dre þótti al-
drei sérstakur rappari, en hann gat samið snilldarlög. Snoop er aftur á
móti einn besti rappari vestan hafs um
þessar mundir, með sérkennilega draf-
andi stíl og gott flæði í textum og fram-
sögn. Sólóskífa Snoops, Murder Was the
Case, var mikið meistaraverk að flestra
mati og seldist í bílförmum um heim allan.
Aður en lengra var haidið var hann kom-
inn í steininn ákærður fyrir morð.
Á endanum var Snoop sýknaður af
morðákærunni og tími til kominn að halda
í hljóðver, en í millitíðinni hafði Dre lent
upp á kant við Suge Knight, eiganda út-
gáfu þeirra félaga með þeim afleiðingum
að hann hvarf á braut. Knight stýrði þá
bara sjálfur upptökum á plötu Snoops, og
fyrir vikið kveður þar nokkuð við annan
tón. Ekki er þó að merkja annað er rapp-
unnendur kunni því hið besta og þó platan
hafi ekki vakið eins mikla athygli og síð-
asta sólóskífa, er ekki um að villast að
Bófi Snoop Doggy Dogg. bófarappið heldur velli og vel það.