Morgunblaðið - 09.01.1997, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MIKIÐ góðæri var í hrossaviðskiptum á liðnu ári . . .
>_
FIB-trygging boðar
samkeppni í skilmálum
HALLDÖR Sigurðsson vátrygginga-
miðlari hjá Alþjóðlegri miðlun ehf.,
sem annast rekstur FÍB-tryggingar
í samstarfi við Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda, segir að FÍB-trygging
muni ekki keppa við önnur trygg-
ingafélög um svokallaða „pakka“,
þ.e. afslátt af iðgjöldum ef fleiri en
ein tegund tryggingar eru teknar
hjá sama félagi. Unnið er að því hjá
félaginu að bjóða upp á nýja skil-
mála I kaskótryggingu sem Halldór
segir að hafi í för með sér meiri
bætur en önnur tryggingafélög
bjóði. Hann segir að samkeppni hafi
ekki ríkt í skilmálum íslensku trygg-
ingafélaganna.
Alþjóðleg miðlun er nú í viðræðum
við fjögur erlend tryggingafélög inn-
an og utan Lloyd’s tryggingasam-
steypunnar og verður eitt þeirra að
líkindum bakhjarl nýs trygginga-
félags sem Húseigendafélagið stend-
ur að. Félagið mun bjóða upp á
húseigenda- og innbústryggingu á
lægra verði en nú er í boði, að sögn
Halldórs. Ráðgert er að starfsemi
þess heijist um miðjan janúar.
Halldór segir að ökutækja- og
húseigendatryggingar verði því ekki
boðnar í einum pakka hjá FÍB-trygg-
ingu, eins og tíðkast hjá mörgum
hérlendum tryggingafélögum. Hins
vegar bjóðist vátryggjendum að
tryggja hjá sjálfstæðum einingum
og vonandi á hagstæðara verði en
annars staðar.
Sveiflur framundan í
ökutækjatryggingum
Talið er að hátt I 40% allra vá-
tryggjenda bfla verði með lausar
tryggingar 1. mars næstkomandi.
Halldór segir að vátryggingastofn
Skandía verði laus öðrum hvorum
megin við næstu helgi en þar hafi
verið tryggðir á bilinu 11-12 þúsund
bílar þegar VÍS yfirtók félagið.
„Allir sem tryggðu hjá Skandía
eru samkvæmt vátryggingalögum
lausir undan tryggingunni I 30 daga
eftir formlega yfírtöku VÍS á Skand-
ía. Viðskiptavinimir geta farið með
viðskipti sín til annars tryggingafé-
lags á þessum tíma. Samkvæmt gam-
alli hefð var endumýjunardagur
ávallt 1. mars en öll vátryggingafé-
lögin fóru árið 1991 að dreifa þessu
yfír árið eftir því hvenær bíllinn var
keyptur nema Tryggingamiðstöðin
sem er með 15-16% markaðarins.“
Halldór segir að FÍB-trygging
stefni að því að ná viðskiptum við
hluta af þessum vátryggjendum. Á
næstunni verði kynntir nýir skilmálar
í ökutækjatryggingum I þessu skyni
sem einkum munu ná til kaskótrygg-
ingar.
„Það er í vinnslu núna að víkka
skilmálana út, sérstaklega í kaskó-
tryggingunum, þannig að fólk fái
meira bætt en það hefur séð áður
hjá tryggingafélögum hér á landi.
Ábyrgðartryggingar eru bundnari að
því leyti að þá er oftast verið að
greiða viðskiptavinum annarra trygg-
ingafélaga tjón sem okkar viðskipta-
vinir eiga aðild að,“ sagði Halldór.
Mikil ásókn í laxveiðileyfi
MIKIL ásókn er í laxveiðileyfi
fyrir komandi sumar. Sums stað-
ar er þegar uppselt og komast
færri að en vilja. Stangaveiðifé-
lag Reykjavíkur hefur sent frá
sér verðskrá fyrir sumarið 1997.
Þar kemur fram að öll svæði að
tveimur undanskildum eru með
óbreytt verð frá síðasta sumri.
Aðeins veiðileyfi í Norðurá og
Hítará hækka óverulega.
„Það hefur þegar borist tals-
vert af umsóknum um veiðileyfi
og miðað við hversu mikið er um
fyrirspurnir sýnist mér að mikil
umferð verði í dag, en menn
verða að skila umsóknum fyrir
fimmtudagskvöld. Mér sýnist
straumurinn vera sterkastur í
Norðurá og neðstu svæði Stóru
Laxár og einnig virðist vera mun
meira sótt um leyfi í Elliðaárnar
heldur en i fyrra. Má þakka það
að kýlaveikin lét ekki á sér kræla
VEIÐIMAÐUR með afla neð-
an Laxfoss í Norðurá. Mikil
eftirspurn er nú eftir veiði-
leyfum í ána.
síðasta sumar,“ sagði Bergur
Steingrímsson, framkvæmda-
sljóri SVFR, í samtali við Morg-
unblaðið.
Að sögn Friðriks Þ. Stefáns-
sonar, formanns SVFR, eru
helstu breytingarnar í verðskrá
frá fyrra ári þær að „smávægileg
hækkun er á veiðileyfum á besta
tíma á aðalsvæði Hítarár og verð-
skrá Norðurár hækkar litillega
eftir óbreytt verð á undanförn-
um árum“, eins og Friðrik kemst
að orði. Þá er septemberveiði í
Norðurá aflögð.
Dýrustu veiðileyfi í verðskrá
SVFR eru júlídagar í Norðurá,
en dagurinn er þá seldur á
48.900. Norðurá er föl á margs
konar verði, þannig eru ódýr-
ustu dagarnir í ánni 11.500. Á
aðalsvæði Hítarár er verð veiði-
leyfa á bilinu 7.900 til 25.200
krónur.
Sálarbætandi skemmtanahald
Nýstárlegur
nýársfagnaður
Steinþór Þórðarson
ÆSTKOMANDI
sunnudag verður
haldinn „nýárs-
fagnaður kristinna manna“
á Hótel íslandi í Reykjavík.
Þar verður ijölbreytt
skemmtidagskrá og veislu-
kostur á borðum.
Meðal þeirra sem koma
fram á skemmtuninni eru
einsöngvaramir Bjami
Arason, Guðrún Gunnars-
dóttir, Guðný Einarsdóttir,
Hulda Guðrún Geirsdóttir,
Iris Guðmundsdóttir, Jó-
hann Friðgeir Valdimars-
son, Miriam Óskarsdóttir,
Reynir Guðsteinsson og
Alda Ingibergsdóttir. Ómar
Ragnarsson flytur gaman-
mál, Halldór Ólafsson verð-
ur með eftirhermur, Rósa
Þorsteinsdóttir syngur vís-
ur og Davíð Ólafsson syng-
ur í léttum dúr. Léttsveit
Tónlistarskóla Keflavíkur
og gospelhljómsveitin Nýir menn
spila, Lofgjörðarhópur Fíladelfíu
syngur með hljómsveit og sýndir
verða dansar. Fjögurra manna
hljómsveit leikur undir borðhaldi,
tónlistarstjóri er Óskar Einarsson
og séra Pálmi Matthíasson stýrir
veislunni.
Þessi nýársfagnaður er haldinn
er undir nokkuð öðrum formerkj-
um en flestar skemmtanir hér á
landi. Hver er kveikjan að þessu?
„Ég hef í nokkur ár haldið
námskeið um spádóma Biblíunn-
ar, með áherslu á Opinberunar-
bókina í Nýja testamentinu og
Daníelsbók í Gamla testament-
inu,“ segir Steinþór Þórðarson,
en hann hefur verið í forystu
þeirra sem undirbúa nýársfagn-
aðinn. „Fyrir fjórum árum var
hópur fólks, sem hafði sótt nám-
skeið hjá mér í Hafnarfirði, sem
vildi halda áfram að lesa Biblíuna
og fræðast meira. Upp úr þessu
spratt lítill söfnuður sem kom sér
upp safnaðarheimili að Hóls-
hrauni 3 í Hafnarfirði, kallað
Loftsalurinn. Við keyptum þarna
430 fermetra fokhelt húsnæði
fyrir ofan Veitingahúsið Skútuna.
Þetta innréttuðum við og eigum
skuldlaust í dag, með Guðs hjálp
og góðra manna. Við eigum samt
eftir að kaupa húsgögn og stóla
í salinn og þess vegna höldum við
þennan nýársfagnað í fjáröflunar-
skyni.“
Er það ekki frekar óvenjuleg
fjáröflunarieið í kirkjulegu starfi,
að efna til fagnaðar á stærsta
skemmtistað landsins?
„Jú, vissulega, við höfum ekki
gert þetta fyrr. Ég er vanur að
fara ótroðnar slóðir og hef aldrei
verið hræddur við það. Þetta er
nýjung og gefur okkur tækifæri
til að kynnast nýju fólki og njóta
glæsilegrar dagskrár þar sem frá-
bært tónlistarfólk og aðrir
skemmtikraftar koma fram.
Þarna gefst okkur tækifæri til að
kynna orð Guðs betur á meðal
landsmanna og ná til fleiri en
Hafnfirðinga einna. Við viljum
kynna okkur og kynnast öðrum.“
Hvað með vínveitingar?
„Við höldum okkur frá áfengi
og tóbaki svo barirnir
verða lokaðir. Þetta
verður því áfengislaus
skemmtun."
En verða reykingar
bannaðar?
„Við bönnum fólki ekki neitt,
ef einhverjir þurfa að fá sér reyk
þá geta þeir gert það í friði fyrir
okkur. Við fordæmum ekki aðra
fyrir það sem þeir gera.“
Þið bjóðið upp á mjög viða-
mikla dagskrá?
► Dr. Steinþór Þórðarson
fæddist á Sandi á Snæfellsnesi
29. ágúst 1937. Hann flutti til
Ytri-Njarðvíkur sex ára gamall
og ólst þar upp. Að loknu
skólanámi hér á landi lagði
Steinþór stund á sögu og guð-
fræði við Andrews University
í Michigan i Bandaríkjunum.
Hann lauk BA-prófi 1964 og
MA-prófi frá sama skóla 1968.
Þá gerðist Steinþór prestur í
söfnuði aðventista og starfaði
víða hér á landi í 14 ár. Héðan
fór hann til höfuðstöðva að-
ventista í Nígeríu og veitti um
fjögurra ára skeið forstöðu
starfsemi safnaðarins í River
State fylki í suðaustur hluta
landsins, næst Kamerún. Stein-
þór hafði meðal annars umsjón
með starfi 200 safnaða í hérað-
inu. Þaðan fór Steinþór aftur
til Bandarikjanna og lauk dokt-
orsprófi (Doctor of Ministry) í
guðfræði 1985. Að því loknu
starfaði Steinþór í þrjú ár sem
prestur í Zimbabwe í Afríku.
Árið 1988 sneri Steinþór aftur
heim og hefur starfað hér síð-
an, aðallega við fyrirlestra- og
námskeiðahald.
„Já, hún verður bæði vönduð
og skemmtileg. Mér þykir mjög
skemmtilegt að sjá hve breið sam-
staða náðist og hvað margir úr
hinum ýmsu trúfélögum hjálpast
að og leggja okkur lið. Fólk úr
Aðventsöfnuðinum er í miklum
minnihluta þeirra sem koma fram.
Þarna kemur fram fólk úr þjóð-
kirkjunni og þar fer séra Pálmi
fremstur í flokki, sönghópur og
tónlistarfólk hvítasunnumanna og
tónlistarfólk úr Hjálpræðishem-
um skemmtir svo nokkuð sé nefnt.
Við viljum gjarnan blanda geði
við annað fólk og eiga góðar
stundir með því. Við bjóðum
kristnu fólki, hvar í flokki sem
það stendur, að koma og eiga
með okkur skemmtilega stund.
Þetta er fyrir alla og þarna ættu
allir að finna sig heima. Ég legg
áherslu á að þótt fólk
sé kristið þá þarf það
ekki að hengja haus og
vera með súran svip!
Við eigum gott með að
gleðjast. Svo verður
boðið upp á frábæran veislumat.“
Verður framhald á skemmt-
anahaldi af þessu tagi?
„Við erum að gera tilraun og
vonum að hún takist vel. Það eru
engin áform um frekara fram-
hald.“
Kristið fóik
er ekki með
súran svip