Morgunblaðið - 09.01.1997, Side 10

Morgunblaðið - 09.01.1997, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ 7 0 þúsund farþegar með Heijólfi Vestmannaeyjum - Árið 1996 varð enn eitt metárið í flutningum Herjólfs milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar. Á árinu voru fluttir 70.105 far- þegar sem er 7% aukning frá því sem flutt var árið 1995, og er þetta langmesti farþegafjöldi sem Heijólfur hefur flutt á einu ári. Þá var einnig sett met í bílaflutn- ingum á árinu því fluttir voru 21.103 bílar sem er 12% aukning frá árinu 1995. Flutningar með Heijólfi hafa aukist jafnt og þétt frá því nýja skipið tók við siglingum af gamla Heijólfi árið 1992. Arið 1992 voru fluttir 48.554 farþegar og 12.859 bílar. Aukningin í farþegaflutning- um frá árinu 1992 er því rúmlega 44% og bílaflutningar hafa aukist um rúmlega 64%. 280.000 farþegar Frá því núverandi Heijólfur hóf siglingar milli lands og Eyja í júní árið 1992 til ársloka 1996 hefur skipið flutt tæplega 280.000 far- þega og 80.000 bifreiðar. 70.000 farþeginn á árinu sigldi með Heij- ólfi frá Þorlákshöfn til Eyja á gamlársdag og við komuna til Eyja var tekið á móti honum með blómum og gjöf frá Heijólfi. ífr ÁSBYRGI Suóurlandsbraut 54 «1S Fo*oUn, 108 Roykiovik. sími 564-2444, fox: 566-2446. INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali. .Sölumaður: Eiríkur t signasali. r Oli Árnasorr/ EFSTASUND 2ja herb. 48 fm góð íbúð á 1. hæð í góöu og virðu- legu timburhúsi. Stór lóö. Áhv. byggsj. og húsbr. 2,0 millj. Verð 4,3 millj. 8351 LAUGAVEGUR - NÝLEG Falleg ca 80 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð í nýlegu fjórbýli. Mikil lofthæð. Miklir gluggar. Suðursvalir. Þessa þarf að skoða. Hún er öðruvísi. Áhv. 5,0 millj. byggsjlán. Verö 7,4 millj. 8059 VESTURGATA - LAUS Falleg 94 fm 3ja herbergja íbúö á 2. hæö i nýlegu fjölbýli. Vandaöar inn- réttingar. Stórar suö-vestursvalir. Góö sameign. Laus. Lyklar á skrifst. Áhv. 1,5 millj. Verö 8,2 millj. 7512 ÆSUFELL - FRÁB. VERÐ 5 herbergja 105 fm íbúð á 1. hæð í nýviögeröu lyftuhúsi. 4 svefnherb. Mikiö skápapláss. Mikið útsýni. Laus. Lyklar á skrifst. Verð aöeins 5,9 millj. 8610 FISKAKVÍSL - LAUS Glæsileg 5 herbergja 120 fm íbúö á tveimur hæðum í nýlegu húsi. 3 til 4 svefnherb. Góðar stofur. Vandaöar innróttingar. Mikið útsýni yfir borg- ina. Verö 10,4 millj. 7872 REYKAS Mjög góð 6 herbergja íbúð á tveimur hæöum í góðu fjöl- býli. 5 svefnherbergi. Stór stofa. Tve.inar svalir. Vandaðar innrétt- ingar. Bílskúrsplata. Áhv. 5,3 millj. Verö 10,3 millj. 8078 KLEPPSVEGUR - LAUS Falleg 4ra herbergja 98 fm íbúö á 3 hæð í góðu fjölbýli. Parket á gólf- um. Sórþvottahús í íbúö. Suöur- svalir. Laus. Lyklar á skrifstofu. Verö aöeins 6,3 millj. 5394 DALSEL - LAUS. góö 107 fm 4ra herb. endaíbúð á 2. hæð ásamt aukaherb. í kj. og stæöi í bíl- skýli. Hús klætt að hluta. Laus. Lyklar á skrifst. Áhv. 5,0 millj. Verð 7,8 millj. 5087 I SMIÐUM LITLAVÖR - KÓP. Fallegt parhús á tveimur hæðum um 182 fm meö innb. 26 fm bílskúr. Stór stofa. 4 svefnherb. Afhendist fullbúiö aö utan og tilb. til innr. 6560 STARENGI 98-100 Falleg, vönduö 150 fm raöhús á einni hæð með innb. bilsk. Húsin skilast full- búin að utan ómáluö, en aö innan eru gólf flögð og útveggir tilb. til sandspörtlunar. Lóð grófjöfuö. Til afh. strax. Verö frá 8,0 millj. 5439 FRÉTTIR Verðlag á ökutækjum, rekstri þeirra, flutninga-, póst- og símaþjónustu í nokkrum ríkjum samanborið við meðaltal 15 ríkja ESB, 1994 ESB15 = 100 Danmörk Noregur Finnland írland Portúgal ísland Grikkland Holland Pólland Austurríki Frakkland Bretland Lúxemborg 96 Svlss 96 Þýskaland 93 Ítalía 90 ESB 15 = 100 Danmörk I H124 Sviss Sviss H124 Danmörk Svíþjóð ■■121 Þýskaland Þýskaland ■ 110 Noregur Finnland ■ 110 ísland Noregur ■ 109 Frakkland Frakkland 1104 Svíþjóð Austurríki 1104 Belgía Holiand 1103 Holland ESB15 = 100 ESB15 = 100 Italía Bretland Belgía </) Austurríki Bretland Finnland Þýskaland írland Austurrík) Sviss Belgía Noregur Finnland Spánn Danmörk - Frakkland Portúgal Bretland 971 891 851 Spánn ■ 102 m ísland 92p 3 m írland 99j c Holland 80 ■ 1 fc- i Svíþjóð 99 j írland 88|ð % H Lúxemborg 88^ wwm ítalfa CtfíKiAA 78 ■ =j Spánn Grikklanc Portúgal PóHand Italía 73 H i o * Portúgal 'rnmmm 3 Grlkkland E 69 ■■ i Js Grikkland ■ 42 ísland 0 55 l[£í :0 Pólland [37 IL Pólland m Verðsamanburður milli íslands o g landa Evrópusambandsins Verðlag á fjar- skiptaþjónustu hagstæðara en í ESB-löndum Verðlag á neysluvörum og þjónustu á Islandi 1994, samanborið við meðaltal 15 ríkja ESB VORUR OG ÞJONUSTA Föt og skór MWl....... Skór ESB 15 = 100 Húsnæði Hiti og ratmagn Húsgögn og heimilisbúnaður Húsgögn og teppi Vefnaðarvörur Heimilistæki Annar heimilsbúnaður Samgöngur, póstur og sími Rekstur ökutækis Flutningaþjónusta Póstur og sími Tómstundaiðkun, menntun og menning Tækjabúnaður Tómstundaiðkanir Bækur, blöð og timarit Menntun _______________ Ymsar vörur og þjónusta Veitingast., kaffihús, hótel Aðrar vörur og þjónusta Gengið frá kaupum Eim- skips á Hofsjökli VERÐLAG á fjarskiptaþjónustu er hagstætt á Islandi ef marka má verðsamanburð milli landa sem birtur var í skýrslu nefndar sem kannaði framfærslukostnað heim- ilanna. Hvergi nema í Grikklandi er verðlag á þeirri þjónustu jafn lágt, eða 40% undir meðaltali Evr- ópusambandsins. Þegar á heildina er litið er kostnaður hér á landi við flutn- ingatæki og samgöngur nálægt meðaltalinu í ESB-löndum. Við nánari sundurgreiningu kemur í ljós að einstakir liðir í þeim flokki koma misvel út í samanburðinum. 8% ódýrara að reka einkabíl á Islandi Kostnaður við einkabílinn og kaup á flutningaþjónustu er þann- ig 20-30% yfir meðaltali en á hinn bóginn er 8% ódýrara að reka bíl- inn hér á landi en annars staðar. Samanborið við önnur ríki Norður- landa reynist rekstarkostnaður við bílinn fjórðungi lægri hér á landi. Verðlag á fjarskiptaþjónustu er að mati skýrsluhöfunda mjög hag- stætt hérlendis. Verðlag á hótelum og veitingahúsum mun hærra Verðlag á hótelum og veitinga- húsum er hærra en í öllum löndum ESB, 42% yfir meðaltali. í þessu efni skera Norðurlöndin sig úr með hæsta verðið en ísland trónir á toppnum með 16% hærra verðlag en í öðrum ríkjum Norðurlanda. Verð á fatnaði 23% yfir meðaltali í flokki þar sem verð á fatnaði og skófatnaði er borið saman kem- ur í ljós að þær vörur teljast dýrar hér á landi. Fatnaður er 23% yfir meðaltali ESB og aðeins og í Lúx- emburg er hærra verð. Samanburður á skófatnaði er hagstæðari og er verðlag hér að jafnaði 13% hærra en í ESB. Húsbúnaður nærri meðaltali Evrópusambandsins Verðlag á húsgögnum og hús- búnaði er nærri meðaltali Evrópu- sambandsins, en í þeim flokki er verðlagið 6% hærra hér. Við nán- ari sundurliðun kemur í ljós tiltölu- lega hátt verð á heimilistækjum sem hækkar meðaltalið en þau eru að jafnaði 28% dýrari hér. Vefnaðarvörur eru aðeins 1% yfir meðaltali, húsgögn og gólf- teppi 6% og annar heimilisbúnaður 7% yfir meðaltalinu. EIMSKIP og Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna hf. (SH) hafa gengið frá samningum um að Eimskip taki að sér flutninga á afurðum SH til Norð- ur-Ameríku. Jafnframt var undirrit- aður samningur um kaup Eimskips á flutningaskipinu Hofsjökli, skipi Jökla hf., dótturfyrirtækis SH. Gert er ráð fyrir að flutningar Eim- skips fyrir SH til Norður-Ameríku nemi um 20 þúsund tonnum á ári. Stærstur hluti flutninganna mun fara til Coldwater, dótturfyrirtækis SH í Everett. Með þessum samningi trygg- ir Eimskip framleiðendum SH hálfs- mánaðarlega flutningaþjónustu með gámaskipi til markaða í Norður- Ameríku, segir í frétt frá félaginu. Fyrirhugað er að nota Höfsjökul til frystiflutninga á Norður-Atlants- hafi, allt frá Norður-Noregi til aust- urstrandar Norður-Ameríku. Eim- skip hóf sl. vor rekstur frystiskips í siglingum milli þessara tveggja markaðssvæða og hefur fram til þessa notað leiguskipið Ice Bird í það verkefni. Flutningaskipið Hofsjökull var smíðað fyrir 23 árum og er rúmlega 2.900 brúttórúmlestir að stærð. Und- anfarin ár hefur Hofsjökull farið um 13 ferðir á ári milli Islands og Banda- ríkjanna með afurðir SH. -----♦ -------- * Arekstur við Þverá TVEIR fólksbílar lentu saman við nyrðri endann á brúnni yfir Þverá sunnan við Hvolsvöll í gær. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli voru ökumenn einir á ferð og sluppu ómeiddir en bílarnir eru míkið skemmdir. Hálka var þegar árekstur- inn varð og hafði annar bíllinn náð að stöðva við brúarendann en bíllinn á brúnni rann áfram án þess að öku- maður fengi við nokkuð ráðið. Að sögn lögreglu hafa áður orðið árekstrar á og við brúna, sem er ein- breið og virtist sem yfirsýn væri ekki nógu góð. Reykjavíkurvegi 60, SÍMIs 565-5522 Fax: 565-4744. Vorum að fá í sölu traust og gott fyrirtæki á sviöi veislu- þjónustu og veitingarekstrar. Fyrirtækið rekur matsölu, þjónar traustum og góðum fyrirtækjum og stofnunum með þakkamat og annast veislur og erfidrykkjur ásamt fleiru. Ársuppgjör síðasta árs liggur fyrir og sýnir trausta af- komu. Fyrirtækið hefur verið í rekstri í 20 ár. Fyrirtækið er rekið í eigin 640 fm húsnæði á mjög góðum stað og er húsnæðið einnig til sölu. Mögulegt er að selja reksturinn sér. Upplýs ingar veitir Sverrir Albertsson á skrifstofu Hóls — Hafnarfirði. Ath: Væntanlegir kauþendur geta fengið aðstoð rekstraráð- gjafa og lögmanna er Hóll hefur fengið til aðstoðar. Sverrir Albertsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.