Morgunblaðið - 09.01.1997, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Apótek ehf. kaupír
Háaleitisapótek
Morgunblaðið/Ásdís
Veisluborð og skreyttir réttir
APÓTEK ehf. hefur keypt Háa-
leitsapótek af Andrési Guðmunds-
syni lyfsala. Apótek ehf. er sam-
starfsvettvangur í eigu fjórtán
apótekara sem vilja mæta þeirri
samkeppni sem orðið hefur í lyfja-
dreifingu hér á landi með hagræð-
ingu. Andrés er einn af hluthöfun-
um fjórtán í Apóteki ehf. Fríða
Frisbæk, stjórnarformaður Apó-
teks ehf., segir að rekstrargrund-
völlur apóteka hafi breyst veru-
lega að undanförnu.
Andrés verður áfram lyfsölu-
leyfishafi Háaleitisapóteks og
rekstraraðili þess. Fríða segir að
lyfsöluleyfishafi Háaleitisapóteks
hefði samkvæmt lögum átt að
leggja inn lyfsöluleyfi sitt í lok
þessa árs og hefði hann þá jafn-
framt komið sínu fyrirtæki í sölu.
„Þessi leið var valin til þess að
styrkja stöðu þessara apóteka því
að sjálfsögðu gefur það ýmsa
möguleika til hagræðingar fyrir
alla aðila,“ sagði Fríða.
Hún sagði ekki loku fyrir það
skotið að Apótek ehf. eignaðist
með þessum hætti fleiri apótek
en engin ákvörðun hefði verið
tekin um frekari kaup. Hún sagði
að kaupverðið yrði ekki gefið upp.
„Það hafa verið lagðar byrðar
á lyfjadreifingaraðila og almenn-
ing. Ráðuneytið gerir sífellt aukn-
ar kröfur til apótekanna. Nú er
verið að koma á reglugerð sem
segir til um búnað og rekstur
apótekanna. Apótekum verður
Hjartavernd
Fólki beint
til heilsu-
gæslunnar
SAMKVÆMT nýjum þjónustu-
samningi ríkisins við Hjartavernd
getur almenningur ekki lengur
fengið skoðun hjá Hjartavernd að
eigin frumkvæði eins og tíðkast
hefur hingað til.
Auk vísindarannsókna á til-
teknum hópum sem hafa verið vald-
ir sérstakiega úr með tilliti til
áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum
hafa um tvö þúsund manns á ári
hvetju leitað til Hjartavemdar og
fengið þar skoðun sem greidd hefur
verið af Tryggingastofnun. Gert er
ráð fyrir að þeim skoðunum verði
hætt í þrepum á næstu fjórum árum
og þeim einstaklingum sem þeirra
þarfnast vísað til heilsugæslunnar,
sem siðan vísar þeim áfram í heil-
brigðiskerfinu ef þurfa þykir.
Fyrst til heimilislæknis
Kristján Erlendsson, skrifstofu-
stjóri í heilbrigðisráðuneytinu, segir
samninginn miða að því að Hjarta-
vernd einbeiti sér að grunnrann-
sóknum. Hingað til hafa grunn-
rannsóknirnar að hluta til verið fjár-
magnaðar af þeim tekjum sem
fengust af því að skoða þá tvö þús-
und einstaklinga sem sjálfir hafa
leitað til Hjartaverndar, auk þess
sem þær hafa notið ftjálsra fram-
laga og styrks frá heilbrigðisráðu-
neytinu.
Aðspurður um hvað þá verði um
þá einstaklinga sem sjálfir vilja
hafa frumkvæði að því að fara í
hjartaskoðun segir Kristján ráðu-
neytið telja eðlilegt að þeir snúi sér
fyrst til síns heimilislæknis, sem
síðan meti hvort yfirleitt er þörf á
skoðun. Heilsugæslan sé inngangs-
punkturinn í heilbrigðisskerfíð og
því sé eðlilegra að bytja þar.
Samtök apótek-
ara mæta aukinni
samkeppni
t.d. gert skylt að hafa ákveðinn
fjölda starfsmanna og lyfjafræð-
inga. Um leið er verið að gera
rekstur apótekanna ótryggari
með því að gefa rekstur þeirra
frjálsan, lækka álagningu og
lyfjaverð," sagði Fríða.
Tvöfalt eftirlit með
lyfjaafgreiðslu
Ráðgert var að reglugerð um
lyfjabúðir og starfsemi þeirra yrði
gefin út fyrir síðustu áramót en
drög að henni eru nú í lögfræði-
legri skoðun. Að því loknu verður
leitað afstöðu fagfélaga til ein-
stakra greina reglugerðarinnar.
Reglugerðin leysir af hólmi
eldri reglugerðir og tekur mið af
nýjum lyfjalögum. Einar Magnús-
son, skrifstofustjóri í heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytinu, segir
að reglugerðin hafi verið unnin í
nánu samstarfi við hagsmunaðila.
„Það hafa alltaf verið gerðar
miklar kröfur til þessarar starf-
semi en hún hefur breyst mikið.
Framleiðsia á lyfjum hefur
minnkað í apótekum en upplýs-
ingaþátturinn verið að eflast þess
í stað. Lyfjalögin kalla síðan á
enn frekari breytingar því með
þeim er verið að gefa að hluta til
þessa verslun fijálsa,“ segir Ein-
ar.
Hann segir að almennt hafi
verið gerð sú krafa til afgreiðslu
á lyfjum, bæði hérlendis og á
Norðurlöndum, að tvöfalt eftirlit
væri með allri lyfjaafgreiðslu. Það
hefði í för með sér að tveir lyfja-
fræðingar þyrftu að starfa í
hverju apóteki. Frá þessu þyrfti
þó að veita undanþágur, sérstak-
lega á minni stöðum úti á landi.
Hann vildi hins vegar ekki full-
yrða hvort þetta ákvæði yrði í
nýju reglugerðinni.
SAMKVÆMT upplýsingum frá
Rannsóknastofu Háskólans í
veirufræði hefur mjög mikið
greinst af svokallaðri Myco-
plasma-lungnabólgu meðal lands-
manna undanfarna mánuði eða
mun meira en venjulegt þykir.
Mycoplasma er nafn á bakteríu
sem herjar á öndunarfæri manna
og eru sjúkdómseinkenni hennar
mismikil; allt frá særindum í hálsi
og hósta upp í lungnabólgu og
hita.
Að sögn Guðrúnar Svanborgar
MARGT var um manninn á sýningu
á verkefnum í sveinsprófi í fram-
reiðslu og matreiðslu sem haldin
var í Hótel og matvælaskólanum í
Hauksdóttur, læknis hjá Rann-
sóknastofunni, er þó hugsanlegt
að tilfellum sé eitthvað að fækka.
„Mycoplasma herjar aðallega á
ungt fólk og miðaldra, en eldra
fólk er líklegt til að hafa fengið
þessa bakteríusýkingu oftar og
er þar af leiðandi með sterkari
vörn gegn henni,“ segir hún.
„Hægt er að fá sýklalyf gegn
þessari bakteríu, en annars er
bara að fara vel með sig.“
Inflúensufaraldur hefur einnig
herjað á landsmenn að undan-
Menntaskólanum í Kópavogi í gær
og í fyrradag. Sýnd voru listræn
veisluborð og skreyttir réttir úr
ýmsum hráefnistegundum.
förnu, bæði af A-stofni og B-
stofni.
Hægt að greina á milli
Þó einkenni inflúensunnar og
Mycoplasma séu gjarnan svipuð,
þ.e. særindi í hálsi, hósti og hiti
er oft hægt að greina þar á milli.
„Inflúensan byrjar jafnan mjög
snögglega og hellist yfir fólk, en
Mycoplasma byrjar yfirleitt rólega
og hitinn sem fylgir er oft og á
tíðum lægri,“ segir Guðrún Svan-
borg.
Ovenju mikið um bakteríu-
sýkingu 1 öndunarfærum