Morgunblaðið - 09.01.1997, Page 13

Morgunblaðið - 09.01.1997, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 13 FRÉTTIR Flugmálastjóri telur ekki að tekjur tapist vegna þungatakmarkana í Vatnsmýri Sjaldgæft að stórar flugvélar lendi á Reykj avíkurflugvelli ÞORGEIR Pálsson flugmálastjóri segir að tilmæli öryggisnefndar FÍA þess efnis að loka Reykjavíkurflug- velli fyrir stærri þotum, vegna slæms ástands, hafi ekki mikil áhrif á tekj- ur af lendingargjöldum þar sem slík- ar vélar lendi mjög sjaldan á vellin- um. „Þetta hefur hins vegar áhrif á það hversu vel hann nýtist sem vara- flugvöllur, sem flugrekendur þurfa að skoða út frá rekstrarsjónarmiði," segir hann. Ójöfnur eru á flugvellinum sums staðar og jafnframt safnast vatn á tilteknum stöðum. „Tillögur öryggis- nefndar FÍA eru á sama veg og Flug- málastjórn hefur sett fram áður. Þessi mál eru í athugun og þegar byijað að bæta upplýsingagjöf um pollamyndun á flugvellinum. Síðan verður metið hvort og að hve miklu leyti þurfi að takmarka umferð um hann,“ segir flugmálastjóri. Samkvæmt uppiýsingum frá Flugmálastjórn lentu 1.250 flugvél- ar á Reykjavíkurflugvelli í fyrra og tekjur af lendingargjöldum síðustu 11 mánuði ársins námu rúmum 33 milljónum. Leyfilegur þungi véla fyrir Reykjavíkurflugvöll er skil- greindur með tilteknu gildi sem ekki hefur verið breytt með tilliti til verra ástands vallarins þar sem staðall um styrk flugbrautarinnar er miðaður við burðarlagið undir malbikinu, sem ekki hefur breyst, að sögn Harðar Sveinssonar hjá Flugmálastjórn. Óveruleg áhrif Leifur Magnússon, framkvæmda- stjóri flugrekstrarsviðs Flugleiða, segir að ekki hefði mikil áhrif á starf- semi fyrirtækisins þótt Reykjavíkur- flugvöllur nýttist ekki sem varaflug- völlur. „Við skráum bæði Akureyri og Egilsstaði sem varaflugvelli og erum með eldsneyti fyrir þá líka í vélunum. Auk þess kemur það ekki fyrir nema í einstaka tilfellum að við þurfum að nota þá þannig að áhrifin eru óveruleg," segir hann. Leifur segir ennfremur að Flug- leiðir fljúgi þotum sínum til Akur- eyrar frá Keflavík. „Við tökum ekki þá áhættu að fá möl eða malbik af vellinum í hreyfla vélanna." Arn- grímur Jóhannsson, forstjóri Atl- anta, sagði að takmarkanir á umferð um Reykjavíkurflugvöll breyttu engu um starfsemi síns fyrirtækis. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Fjórir á slysadeild BIFREIÐ var ekið á ljósastaur við Sæbraut rétt fyrir klukkan tvö í gær og skemmdist bifreiðin mikið. Óku- maðurinn slapp ómeiddur en farþegi slasaðist iítillega og var fluttur á slysadeild. Skömmu síðar var keyrt aftan á bifreið við Rofabæ. Ökumaður aftari bifreiðarinnar er grunaður um ölvun. Á sjöunda tímanum varð árekstur á mótum Háateitisbrautar og Miklu- brautar. Barn sem var í öðrum bíln- um fékk í skurð í andlitið. Ökumenn- irnir reyndust hafa hlotið minnihátt- ar meiðsl en öll þijú voru flutt á slysadeild. FRÁ slysstað við Sæbraut eftir hádegi í gær. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Láka og Bjarni lofa veðurblíðuna Blönduósi. Morgunblaðið. BJARNI Pálsson og tíkin Láka léku á als oddi þegar fréttarit- ari Morgunblaðsins rakst á þau á morgungöngu á Blöndubökk- um síðasta dag ársins. Þakklát voru þau fyrir einmuna veður- blíðu sem verið hefur að undan- förnu og selur, sem að mestu hefur haldið sig í Blöndu síðast- liðna tvo mánuði, skemmti þeim sem öðrum sem leið áttu um Blöndubakka þennan morg- unfagra dag. -----»--»"4--- Kennslukon- um á Kefla- víkurflug- velli hótað BANDARÍSKUM kennslukonum sem starfa í herstöðinni á Keflavík- urflugvelli hafa borist hótanir í gegnum síma frá óþekktum karl- manni, bifreiðir þeirra hafa verið skemmdar og önnur skemmdar- verk unnin á híbýlum þeirra. Kon- urnar eru búsettar í Keflavík. Atvikin áttu sér stað fyrir nokkrum mánuðum en sökudólg- urinn hefur ekki fundist. Að sögn lögreglunnar í Keflavík var ís- lenskur karlmaður handtekinn í tengslum við málið en sleppt eftir yfirheyrslur. Rannsóknarlögregla sjóhersins og lögreglan í Keflavík og á Keflavíkurflugvelli hafa unnið að rannsókn málsins. ----♦-4—♦---- Flugvirkjar til sáttasemjara FLUGVIRKJAR liafa vísað kjara- viðræðum þeirra við vinnuveitend- ur til ríkissáttasemjara. Þar með hafa tíu kjarahópar vísað viðræð- um til sáttasemjara. Þórir Einars- son sáttasemjari hefur boðað deilu- aðila til fundar, en viðræður eru það skammt á veg komnar að óvist er um niðurstöður. ----» ♦ ♦---- Bílvelta við Torfalæk BÍLVELTA varð við Torfalæk skammt vestan Blönduóss um klukkan tíu í gærkvöldi. Farþegar sluppu ómeiddir og litlar skemmdir urðu á bílnum. Að sögn lögreglu á Blönduósi var mikil ísing á vegin- um þegar slysið varð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.