Morgunblaðið - 09.01.1997, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 09.01.1997, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Happdrætti Hí færir háskólunum gjöf Fullkominn tækjabúnaður til fjarkennslu Morgunblaðið/Kristján TONI heitir í höfuðið á manni, sem raunar heitir Hjalti, en aldrei kallaður annað en Toni, sem dregið er af uppáhalds knattspyrnuliði hans Everton. Hér er hann á ferðinni i túninu við Grýtubakka en þau Stefán og Juliane koma í humátt á eftir honum. Annar af heimilishundunum á bænum, Trítla fylgir húsbændum sínum hvert fótmál. Svanurinn Toni í góðu yfirlæti á Grýtubakka HAPPDRÆTTI Háskóla íslands hefur gefið Háskólanum á Akureyri og Háskóla íslands fullkominn tækjabúnað til notkunar við fjar- kennslu. Gísli Jónsson umboðsmaður HHÍ á Akureyri afhenti Þorsteini Gunnarssyni rektor Háskólans á Akureyri og Sveinbirni Björnssyni rektor Háskóla íslands gjafabréf því til staðfestingar við athöfn í Háskól- anum á Akureyri. Ragnar Ingimarsson forstjóri HHÍ sagði við afhendinguna að góð menntun væri mikils virði og þyrftu íslendingar að leita allra leiða tii að halda í við aðrar þjóðir á því sviði, en fámennið gerði að verkum að ekki væri hægt að halda úti mörgum stórum menntastofnunum. Fjar- kennslan væri ein leið og vænti Ragnar þess að þekking sérfræðinga háskólanna nýttist nemendum þeirra sem best í framtíðinni. Sjónvarpað milli háskóla Búnaðurinn gerir kleift að sjón- varpa kennslu á báða vegu milli háskólanna með fullum gæðum í gegnum fjarskiptakerfi landsins. NÝR Steinway-flygill, sem keyptur var nýlega til Akureyrar, var notað- ur í fyrsta skipti á nýárstónleikum í Glerárkirkju um helgina, en þá var m.a. frumflutt nýtt, íslenskt tónverk eftir Snorra Sigfús Birgisson, tón- skáld og píanóleikara. Píanókonsert- inn samdi Snorri Sigfús að beiðni Fjarskiptin sjálf verða væntanlega felld undir rannsóknarsamvinnu Háskóla íslands og Pósts og síma hf. í hvorum skóla verður flar- kennslustofa og með hinum nýja útbúnaði verður unnt að kenna nem- endum beggja háskólanna á einum stað og samnýta þannig þekkingu færustu sérfræðinga. I kjölfarið verður unnt að spara verulega í mannahaldi og ferðakostnaði auk þess að tryggja nemendum beggja skólanna bestu menntun sem völ er á. Tækjabúnaðurinn kostar um þijár milljónir króna. Sveinbjörn Björnsson sagði há- skólana smám saman hafa verið að byggja upp samstarf sem vafalaust myndi vaxa í framtíðinni. Eftir að tækjabúnaðurinn yrði komin í gagn- ið yrði hægt að efna til sameigin- legra námskeiða og skipti ekki leng- ur máli hvort nemarnir væru á Akur- eyri eða í Reykjavík. Þorsteinn Gunnarsson sagði gjöf- ina sýna stórhug, nútímatækni yrði nú nýtt í þágu menntunar í landinu. Ekki væri fráleitt að hugsa sér að háskólinn tengdist menntasetrum fyrir austan og vestan. Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á síðasta ári og tileinkaði hann kon- sertinn stjórnanda hljómsveitarinn- ar, Guðmundi Óla Gunnarssyni. Höfundurinn lék einleik í verkinu, en á myndinni, sem tekin var eftir flutning þess, takast þeir í hendur, Snorri Sigfús og Guðmundur Óli. Ber að dyrum til að fá brauðbita SVANURINN Toni hefur dvalið í góðu yfirlæti á bænum Grýtu- bakka í Höfðahverfi frá því í fyr- rasumar. Þau Stefán Kristjánsson og Juliane Kauertz á Grýtubakka skutu yfir hann skjólshúsi og leyfa honum að gista fjárhús sitt. Toni verður tveggja ára næsta sumar, hann fæddist við Kálf- borgarvatn í Engidal í Bárðardal og var merktur þar sumarið 1995, en hann er með merkið A-2517. Var hann minnsti fuglinn sem var merktur og vart hugað líf. Hann braggaðist þó og flaug suður á land. Lenti hann við bæinn Næf- urholt, skammt frá Hellu. I fyrstu hélt hann sig í nágrenni við sauðf- éð, en þegar fór að snjóa leitaði hann skjóls í skurði. Ofeigur Ófeigsson bóndi tók hann þá heim og hýsti hann þá um veturinn. Dálítið uppáþrengjandi Greinilegt er að Toni hefur vilj- að taka þátt í hátíðarhöldum þjóð- hátíðardagsins norður í landi, því 17. júní hóf hann sig til flugs og flaug í einum rykk alla leið til Grenivíkur. Heimamenn tóku honum vel og þótti hann skemmtilegur. Reynd- ar bara til að byrja með, glansinn fór fljótt af þegar hann var farinn að gogga í bílana þeirra og vart þótti þeim hann skárri þegar hann byrjaði að bíta börnin. Reyndu menn að koma honum af höndum sér, óku honum út í sveit og skildu eftir en hann kom ævinlega til baka. „Hann var farinn að vera dálítið uppáþrengjandi," sagði Stefán. Einhverju sinni þegar þau voru að koma úr hestaferð sáu þau að svanurinn var í túninu við bæinn. Þau gáfu honum brauðbita og hefur hann ekki farið síðan. Tona var gefið úti fram á haust, en þegar fór að snjóa í nóvember hýstu þau hann í fjárhúsinu þar sem hann kann vel við sig. Þegar hann verður svangur bankar hann bara á hurðina og bíður eftir brauðbita. A góðviðrisdög- um er honum hleypt út til að viðra sig, hann spókar um á hlaðinu, hefur sig jafnvel til flugs ef hann er í góðu skapi og kannar mann- og dýralífið á næstu bæjum. Einfari „Ætli hann verði ekki hjá okkur til vors, þá sjáum við til. Hann er mikill einfari, vill ekki vera með öðrum fuglum, þannig að ég er hræddur um að hann geti ekki bjargað sér einn og sjálfur úr þessu,“ sagði Stefán. Morgunblaðið/Kristján Sinfóníuhljómsveit Norðurlands Nýr íslenskur píanó- konsert frumfluttur Fasteignasala með rólegasta móti undir lok ársins en fer vaxandi á nýju ári Skortur á iðnaðarhúsnæði FASTEIGNASALA á Akureyri var með allra rólegasta móti síðustu tvo mánuði síðasta árs, samkvæmt því sem fram kemur hjá fasteignasölum sem Morgunblaðið ræddi við. Árið í heild kom hins vegar ágætlega út og heildarsala var svipuð og síðustu ár. Hins vegar er nokkur skortur á iðnaðarhúsnæði í bænum, bæði til kaups og leigu og þá er skortur á íbúðarhúsnæði til leigu og leiguverð mjög hátt. Fasteignasalar eru hins vegar bjartsýnir á líflega söiu á þessu ári. Mikið um fyrirspurnir Pétur Jósefsson, hjá Fasteigna- og skipasölu Norðurlands segir að fasteignasala sé frekar róleg síðustu mánuði hvers árs en síðustu tveir mánuðirnir í fyrra voru þó óvenju- slakir. „Salan þessa mánuði var léleg en þó töluvert um fyrirspurnir, sem gefur góð fyrirheit fyrir þetta ár. Það er þó farið að vanta iðnaðarhús- næði og það er mikið hringt og spurt eftir slíku húsnæði. Nú gefst dugleg- um mönnum upplagt tækifæri til að byggja 1000-2000 fermetra iðnaðar- húsnæði, bæði til að selja eða leigja." Ágústa Ólafsdóttir, hjá Fast- eignasölunni Byggð, segir að upp úr miðjum nóvember hafi fasteigna- sala dregist saman en salan hafi verið lífleg fram að því. Hún segir að salan hafi dregist saman fyrr en venjulega en hins vegar hafi árið í heild komið vel út. „Eg held að árið 1997 verði gott og að markaðurinn taki kipp þegar kemur fram í febr- úar. Mesta salan er í mars, apríl og maí og svo aftur í ágúst, september og október.“ Vantar ódýrari eignir á skrá Ágústa segir að framboð á íbúð- arhúsnæði sé nokkuð gott en þó vanti ódýrari eignir á skrá. Bæði vanti tveggja herbergja íbúðir í sölu og eins eignir í kringum 3 milljónir króna. „Yngra fólkið sem er að kaupa sína fyrstu íbúð er mikið að leita að þessum ódýrari eignum." Tryggvi Pálsson, hjá Fasteigna- sölunni Holti, tekur í sama streng og þau Pétur og Ágústa og segir að salan hafi verið á rólegri nótunum undir lok ársins, eftir óvenju líflega sölu fyrri hluta ársins. Hann segir nóg framboð af íbúðarhúsnæði nema á Syðri-Brekkunni, í kringum Menntaskólann, Fjórðungssjúkra- húsið og Verkmenntaskólann. „Þessi markaður á Akureyri ligg- ur í heildarsölu á 400-500 eignum á ári og þannig hefur það verið til margra ára. Nýbyijað ár Ieggst vel í mig en þó finnst mér bærinn ekki standa sig nógu vel við lóðaúthlut- anir. Hér vantar lóðir fyrir einnar hæðar íbúðir, einbýlishús, parhús og raðhús. Nú er farið að vanta iðnaðar- húsnæði og það getur orðið til þess að verð á slíkum eignum hækki.“ Tryggvi segir að til viðbótar sé leiguíbúðamarkaðurinn að verða sér- stakt fyrirbrigði í bænum. Hann segir mjög erfitt að fá húsnæði til leigu og leiguverð sé jafnvel hærra en í Reykjavík. Dalvík Jón Helgi kveður JÓN Helgi Þórarinsson sókn- arprestur kveður Upsasöfnuð á Dalvík næstkomandi sunnu- dag, 12. janúar. Hann hefur verið ráðinn sóknarprestur í Langholtskirkju og tekur við störfum þar innan skamms. Barnamessa verður í Dal- víkurkirkju á sunnudag kl. 11. Messa verður kl. 14. Eftir messuna verður efri hæð safn- aðarheimilisins tekin í notkun og mun sr. Birgir Snæbjörns- son blessa húsið. Prestshjónin verða í safn- aðarheimilinu til kl. 19 á sunnudag og einnig frá kl. 16 til 19 næstkomandi þriðju- dag.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.