Morgunblaðið - 09.01.1997, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 19
NEYTENDUR
Nautatunga seldist upp fyrir jólin
Er ódýr og þykir
góð sem álegg
NAUTATUNGA er illfáanleg um
þessar mundir og mun ástæðan
vera sú að hún seldist upp fyrir
jólin. Ýmsir veitingastaðir höfðu
hana á hlaðborðum sinum í desem-
ber og líklegt að margir hafi kynnst
henni þar. Þegar grennslast var
fyrir um verð á nautatungu í vik-
unni kom á daginn að hún var illfá-
anleg, fékkst hvorki hjá 10-11,
MM búðunum, Fjarðarkaupum,
Hagkaupi, Nóatúni, Gallerí Kjöti
né í Bónus. Að sögn kaupmanna
hefur verið erfitt að fá vöruna und-
anfarið en það mun þó standa til
bóta.
„Við höfum orðið varir við aukna
eftirspurn og núna sérstaklega fyr-
ir jólin,“ segir Árni Ingvarsson hjá
Hagkaupi. Jónas Þór hjá Gallerí
Kjöti tekur í sama streng og segir
vinsældir hennar miklar um þessar-
mundir, fólk hafí þetta á borðum
um jólin, annaðhvort sem forrétt
eða á hlaðborði.
Kílóið af nautatungu var fyrir
jólin selt á frá fimm hundruð krón-
um og upp í um sjö hundruð krón-
ur. Sé nautatunga notuð sem álegg
verður það að teljast fremur ódýrt
þar sem algengt verð á tilbúnu
kjötáleggi er oft á bilinu 1.300-
2.500 krónur kílóið.
Þarf langa suðu
- En hvernig á að matreiða
nautatungu?
„Yfirleitt er nautatunga soðin og
hún þarf töluvert langa suðu við
vægan hita eða allt að tveimur eða
þremur klukkustundum. Best er að
setja hana í ylvolgt vatn og láta
suðuna koma upp hægt og rólega,"
segir Árni. „Þá er ráðlegt að taka
af henni himnuna á meðan hún er
vel volg og láta hana síðan kólna
undir hreinum bómullarklút. Árni
segir að ef nautatunga sé borðuð
heit gangi allt meðlæti með sem
yfirleitt passar með reyktu kjöti,
hvít sósa, kartöflur og grænar
baunir.
Þeir Jónas Þór og Árni segja pip-
arrót passa mjög vel með nauta-
tungu og þá er oft gott að hræra
hana ferska út í sýrðan rjóma og
majónes. Árni bendir á að með salt-
aðri nautatungu sé piparrótin góð
svo og súrmeti, salatblöð og tómat-
ar. „I flestum tilfellum er nauta-
tunga höfð köld og óhætt að mæla
með henni sem áleggi," segir Jónas
Þór.
Nautatunga
aó hætti Hönnu
Konur í saumaklúbbnum Gæsirnar
ræða oft uppskriftir sín á milli og
um daginn dró ein fram úr veskinu
uppskrift að nautatungu. Hún sagði
að nautatunga væri frábær matur
en einn hængur hefði verið á mat-
reiðslunni, þ.e. dætur hennar hefðu
skyndilega orðið pakksaddar um
leið og þær vissu hvað var í mat-
inn. Hún mælti því með að foreldr-
ar fyndu franska orðið yfir nauta-
tungu (sem er líklega „langue de
bouef“) og segðu börnunum það
heiti á nautatungunni ef þau spyrðu
hvað væri í kvöldmat.
1 meðalstór nautatunga
______________1 gulrót___________
2 laukar með negulnöglum
12 piparkorn
1 lárviðarlaufsemerbrotiðítvennt
4 allrahanda korn
______________sellerí____________
steinselja
Suðan látin koma upp og nauta-
tungan soðin þangað til hægt er
að fleyta froðunni af. Eftir að búið
er að gera það er kryddi og græn-
meti bætt í pottinn og nautatungan
soðin í 2-3 klukkustundir eftir
stærð tungunnar. I lokin ertungan
látin kólna aðeins í vatninu og
skinnið tekið af henni. Borið fram
með kartöflusalati og síðan er hægt
að borða hana kalda sem álegg. ■
Meistaraverk hlaðið
kostum sem þú nýtur
vel og lengi!
Þrjú þriggja
punkta belti og
tveir höfuðpúðar í
aftursætum.
Spegill með
sérstaklega víðu
sjónsviði.
Öryggisbelti með
strekkjurum og
dempurum.
Niðurfellanlegt
bak aftursætis,
40/60%.
Oflugt farþegarými
með tvöföldum
styrktarbitum í
hurðum og
sérstaklega styrktum
toppi og botni.
Bilstjorasæti
með
hæðarstillingu
Oflugt hemlakerfi
með gaumljósi fyrir
bremsuklossa í
mælaborði.
Loftpúðar fyrir
ökumann og
farþega í framsæti.
Lengd
4129 mm
Hjólahaf
2580 mm.
Vökva- og
veltistýri.
Litað gler
Rafdrifnar
rúður.
Fjarstýrðar
samlæsingar hurða
og skottloks ásamt
ræsivörn.
5 girar eða
4 þrepa
sjálfskipting.
Fjarstýrt utvarp og
segulband með RDS
og 6 hátölurum.
Upphituð
afturrúða með
stórri rúðuþurrku.
Tolvustyrðar
rúðuþurrkur aö
framan og aftan
Snunings-
hraðamælir.
Sparneytin og
öflug 1,6 I vél.
3 bremsuljós
Utihitamælirvarar
ökumanninn við
ísingarhættu.
Samlitir
stuðarar
Þokuljos
Þeir sem ekið hafa Renault Mégane vita að rökin fyrir kaupum eru mun fleiri en nefnd eru hér að ofan.
Því bjóðum við þér að kynnast Mégane í reynsluakstri.
RENAULT
FER OOSTUM
MEISTARAVERK
ÁRMULA 13, SlMI: 568 1200, BEINN SÍMI: 553 1236