Morgunblaðið - 09.01.1997, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 09.01.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ URVERINU FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 21 Loðnuvertíð fer vel af stað Vonast til að loðnan verði við út marsmánuð „BEITIR NK er að klára að landa hjá okkur fullfermi, um 1.100 tonnum, af loðnu og heldur síðan rakleiðis á miðin á ný og er þetta önnur löndunin frá áramótum, en í þeirri fyrri fékk hann líka full- fermi. Það er ekki hægt að segja annað en að loðnuveiðamar fari vel af stað á nýju ári og hér ríkir mikil bjartsýni á að loðnuvertíðin geti staðið út mars, eins og hún hefur gert á síðustu árum,“ sagði Svanbjörn Stefánsson, fram- leiðslustjóri hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað, í samtali við Verið eftir hádegi í gær. Svanbjörn sagði að hluti loðn- unnar væri frystingarhæf, en mik- ill meirihluti færi í bræðslu. „Ætli við frystum ekki um það bil 150 tonn úr þessari löndun og hitt fer í bræðslu. Þessi loðna er ívið smærri en áður. Við getum aldrei fryst svona mikið magn í einu eins og skipin eru að koma með núna.“ Skipunum að fjölga á miðunum Beitir kom til heimahafnar klukkan 8 í gærmorgun með loðnufarminn og hafði þá verið að veiðum undanfarna tvo sólar- hringa. Jón Sigurðsson GK landaði hjá Síldarvinnslunni 900 tonnum í fyrradag og að sögn Svanbjörns var Þorsteinn EA að fylla sig um hádegisbilið í gær og var von á honum til löndunar með kvöldinu. Björg Jónsdóttir ÞH og Huginn VE lönduðu sömuleiðis fullfermi í gærmorgun. „Ég veit ekki ná- kvæmlega hversu mörg skip eru komin á miðin, en þeim fer örugg- lega fjölgandi miðað við aflabrögð- in,“ sagði Svanbjöm. „Veiðin hefur gengið mjög vel það sem af er nýju ári, að minnsta kosti hjá okkur sem erum með flot- vörpu. Við höfum verið að fá loðn- una um 60 mílur suðaustur af Norðfjarðarhorni sem er um fimm tíma stím frá Neskaupstað. Þau loðnuskip, sem þegar eru byijuð loðnuveiðar, um tíu talsins, eru öll á þessu svæði og fer þeim fjölg- andi,“ segir Siguijón Valdimars- son, skipstjóri á Beiti. Eins og það væri hásumar Hann sagði loðnuna hafa verið töluvert duglega að færa sig úr stað og flakka á milli svæða. Fyr- ir jólastopp hafi hún haldið sig austur af Gerpi, en væri nú komin talsvert langt frá þeim stað. „Við erum mjög bjartsýnir og nú er alltaf blíða eins og það sé hásum- ar. Það er óvenjulegt á þessum árstíma. Menn eru að vonast til þess að vertíðin geti staðið lang- leiðina út mars.“ Ný ísverk- smiðja rís í Nes- kaupstað Neskaupstað. Morgunblaðið. ÞESSA dagana er unnið af full- um krafti við byggingu nýrrar ísverksmiðju á Neskaupstað. Það er hlutafélag í eigu hafnar- sjóðs og Síldarvinnslunnar sem stendur að byggingunni. ísverk- smiðjan, sem staðsett er við höfnina við hlið nýja frystihúss- ins, mun framleiða um 60 tonn af ís á sólarhring og í henni verður geysmlurými fyrir um 200 tonn. Kostnaður við bygg- inguna nemur um 53 milljónum og er áætlað að hún verði tilbú- in um miðjan febrúar. Skagfirðing- ur selur í Bremerhaven SKAGFIRÐINGUR SK seldi 174 tonn af karfa í Bremerhaven á mánudag og þriðjudag. Aflinn var seldur í tveimur hlutum, 105 tonn á mánudag og fengust þá 150 krón- ur fyrir kílóið. 69 tonn voru seld á þriðjudag en þá fengust 170 krónur fyrir kílóið. Heildarverðmæti aflans var því um 27.2 milljónir króna. Skagfirðingur var í 13 daga að veiðum yfir hátíðirnar áður en siglt var til Bremerhaven. Málþing um starfs- umhverfi vélstjóra VÉLSTJÓRAFÉLAG íslands verð- ur með málþing um starfsumhverfí vélstjóra næstkomandi laugardag. Á þinginu verður fjallað um helztu þætti í starfsumhverfinu, einkum þó þær hættur, sem þar fínnast. Helgi Laxdal, formaður VSFÍ, setur málþingið, en að því loknu ávarpar Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis- ráðherra, þingið. Vilhjálmur Rafns- son, yfirlæknir, fjallar um áhættu- þætti í starfsumhverfi vélstjóra, þar með talin hætta á krabbameini, Steingrímur Davíðsson, húðsjúk- dómalæknir flytur erindi um húð- sjúkdóma, Einar Sindrason, yfír- læknir, fjallar um hávaða og heyrn- arskemmdir. Guðmundur Eiríksson, vélfræðingur, fjallar um reglur og viðhorf Vinnueftirlits rikisins, Kristinn Ingólfsson, tæknifræðing- ur, fer yfír reglur og viðhorf Sigl- ingamálastofnunar og Guðbjartur Einarsson, vélfræðingur, flytur er- indi um vistvæn skip. Málþinginu verður svo slitið að loknum fyrir- spurnum og umræðum. Málþing VSFI verður haldið í Borgatúni 18 næstkomandi laugar- dag. Það hefst með skráningu þátt- takenda klukkan 12.30 og áætluð lok þess eru klukkan 17.30 síðdegis. Windows, Word og Excel 96025 Töívu- og verkfræðiþjönustan TölvurSðgjöf • námskeið • útgáfa Grensásvegl 16 • ® 568 80 90 ' Mc. GORDON 2SIK DRESS MANN MUNIÐ OPNUNARTIMANN: MAN - FOS. 09-20 - LAU. 09-18 LAUGAVEGI 1 8 B REYKJAVIK
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.