Morgunblaðið - 09.01.1997, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.01.1997, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 MORGUN BLAÐIÐ Christopher í aðalstöðvum SÞ Clinton hyg-gst greiða skuldina Sameinuðu þjóðunum. Reuter. WARREN Christopher, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær, að það yrði eitt af forgangs- málum ríkisstjórnar Bills Clintons forseta á þessu ári að greiða skuld- ir ríkisins við Sameinuðu þjóðirnar. Kom þetta fram á fréttamanna- fundi, sem Christopher átti með Kofi Annan, nýkjörnum fram- kvæmdastjóra samtakanna. Bandaríkjastjórn skuldar SÞ um 80 milljarða ísl. kr. og ýmsir telja, að Clinton muni leggja til, að öll skuldin verði greidd á þessu ári. Ekki er þó talið líklegt, að meiri- hluti repúblikana á þingi samþykki það. Með heimsókninni var Christop- her meðal annars að undirbúa vænt- anlegan fund Annans með Clinton í Washington en hann verður síðar í mánuðinum. Greinir á um umbætur Þótt Bandaríkjastjórn hafi stutt Annan er ágreiningur með þeim um það í hveiju umbætur á starfsemi SÞ eigi að felast. Bandaríkjamenn vilja fækka mikið í starfsliði sam- takanna en Annan vill fyrst og fremst stokka starfsemina upp til að gera hana skilvirkari. Fred Eck- hard, talsmaður SÞ, segir, að Ann- an vilji vissulega skera niður en ekkert í líkingu við það, sem sumir bandarískir þingmenn leggi til. í viðræðum þeirra Annans og Christophers lagði sá fyrrnefndi mikla áherslu á mikilvægi þróunar- aðstoðar á vegum SÞ en kostnaður við hana er um 335 milljarðar ísl. kr. á ári. Framlög einstakra ríkis- stjórna til þessa starfs hafa hins vegar farið minnkandi. Gæéateréii1 á einstöku HibeásMeBfði f/uiríba/ta/' Siglingar á vinsælustu skemmtiskipum heimsins: Carnival - Fascination Páskasigling með 40% afslætti og vikuframlenging. Brottför 23. mars. Önnur sigling uppseld. footniniAuna fegursta eyja Karíbahafs. Heillandi páskaferð 23. mars, 12 dagar, ótrúlegt verð. Gisting í New York, Santo Domingo og Puerto Plata - allt innifalið. Einstakt tækifæri undir leiðsögn Ingólfs. Fá sæti laus. Nokkur sæti laus í jan. og feb. Islenskur fararstjóri. Besti valkostur um vetur. FERÐASKRIFSTOFAN , ?ma* béFTOP Austurstræti 17,4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564 ERLEIMT Irönum kennt um sprengjuárás í Bagdað Irakar segja hana hafa beinst gegn írönskum stj órnarandstæðingum Bagdað. Reuter. ÍRAKAR sögðu í gær að þremur sprengjum hefði verið varpað að höfuðstöðvum íranskrar stjórnar- andstöðuhreyfingar í Bagdað á þriðjudagskvöld með þeim afleið- ingum að einn maður lést og fjöldi annarra særðist. Var skuldinni skellt á stjórnvöld í íran. í yfirlýsingu frá íraska upplýs- ingaráðuneytinu, sem send var ír- söku fréttastofunni INA, sagði að yfirvöld hefðu „hafíð rannsókn á árásinni til að ná árásarmönnun- um“ og að allt benti til að „íranska stjórnin [væri] viðriðin hryðju- verkaárásina“. Sprengjurnar lentu nokkra metra frá höfuðstöðvum hreyfing- arinnar Mujahideen Khalq, sem hefur herstöðvar nærri landamær- um íraks að íran og hefur heitið því að steypa klerkastjórninni í Teheran. Ein sprengja lenti á götu við sjúkrahús og eyðilagðist rannsókn- arstofa í því. Onnur lenti á bygg- ingu íraska rithöfundasambands- ins og eyðilagðist hún. Sú þriðja sprakk í lofti. Þeim var skotið af um 700 m færi. „Sjúklingur á sjúkrahúsi skammt frá fékk hjartaáfall og lést í áfallinu, sem hann varð fyrir vegna sprenginganna," sagði Hassan Nidham al-Mulki, talsmað- ur Mujahideen Khalq. „Tólf manns særðust, nokkrir alvarlega og þurfti að taka fót af einum þeirra og handlegg af öðrum. Árásarmennirnir flúðu Mulki og hópur íraskra embætt- ismanna sýndu blaðamönnum flutningabíl, sem á stóðu þrjár stórar sprengjuvörpur. Sögðu þeir að þær hefðu verið notaðar til að skjóta sprengjunum. Arásarmenn- irnir hefðu notað tímastilli og flú- ið áður en árásin átti sér stað. Leiðtogar Mujahideen Khalq skelltu einnig skuldinni á ráða- menn í íran og skoruðu á íraka I að loka íranska sendiráðinu í ) Bagdað vegna sprengjuárásarinn- . ar. Samtökin halda því fram að írönsk stjórnvöld hafi gert 43 árás- ir á höfuðstöðvar og liðsmenn Mujahideen Khalq frá árinu 1993. Tíu manns hefðu látist í þessum árásum og margir særst. Reuter HREINSAÐ til á rannsóknarstofu sjúkrahúss í miðborg Bagdað eftir sprengjuárásina á þriðjudag. Einn maður Iést og tólf særðust. Klerkastjórninni í Iran hefur verið kennt um tilræðið. Arekimeð , 300 manns Sydney. Reuter. FARÞEGASKIP með nærri 300 námsmenn og verkamenn frá eyj- unni Kiribati rak stjórnlaust fyrir veðri og vindum á miðju Kyrra- . hafi í gær eftir að eldur hafði komið upp í skipinu. Hjálparbeiðni barst frá skipinu, | MV Maasmond, sem er 1.000 tonn, aðfaranótt miðvikudagsins en þá hafði eldur orðið laus í vélarrúm- inu. Tókst skipveijum að slökkva hann en skipið er vélarvana um 800 km austur af Tarawa, einni af Kiri- bati-eyjunum. Flaug Orion-björg- unarflugvél frá nýsjálenska hern- um yfir skipið í gær og var búist t við, að dráttarbátur yrði kominn á vettvang eftir tvo daga. Skipið var á leið frá Tarawa til Jólaeyjar. | Enginn meiddist er eldurinn kom upp og ekkert amar að far- þegum. í skipinu eru vistir til fjög- urra daga. Tilraun bresks auðkýfings til hnattflugs í loftbelg varð endaslepp Loftbelgiu- ínn hrapaði í náttmyrkri London. Reuter. BRESKI auðkýfingurinn Richard Branson sagðist í gær ánægður með að vera lifandi eftir að tilraun hans til að fljúga viðstöðulaust umhverfis jörðina í loftbelg endaði með ósköpum í alsírskri eyðimörk tæpum sólarhring eftir flugtak í Marokkó. Belgfarið hringsnerist er það steyptist til jarðar en fyrir snar- ræði eins belgfarans tókst á síðustu stundu að draga úr fallinu. Stjórnandi belgflugsáætlunar- innar, Mike Kendrick, sagði ekki vitað nákvæmlega hvað olli því að hætta varð við hnattflugstilraunina en þó virtist vandamálið snúast um sambandið milli þunga farsins og lyftigetu helíumbelgsins, sem var hluti af loftbelgnum. Innan í loftbelgnum var helíum- blaðra til að lyfta belgfarinu upp í 30.000 feta hæð en það dregst saman þegar sólar nýtur ekki við og þykir líklegast, að brennarar í munni aðalbelgsins hafi ekki haft undan að hita upp loftið til að vega upp á móti næturkælingunni. Gert var ráð fyrir að belgfarið legði að baki um 30 þúsund kíló- metra i hnattfluginu en komst þó aldrei nema 640 kílómetra frá flug- taksstaðnum. Kom það niður í eyði- mörk skammt frá borginni Bechar í Alsír. Minnstu munaði að illa færi er belgfarið steyptist á ógnarhraða til jarðar og lendingin yrði all harka- leg. Á síðustu stundu tókst einum belgfaranna þriggja, Alex Ritchie, með fallhlíf á bakinu, að klifra upp á þak belghylkisins í svartamyrkri og aftengja tvo kjölfestutanka. Við það léttist farið og dró úr fallinu. „Alex er hetja dagsins," sagði Reuter ÞRÖNG á þingi í stjórnstöð belgflugsáætlunar Richards Bran- sons, í London í gærmorgun. Fréttamenn hlusta á og taka upp samtal Mikes Kendricks, stjórnanda áætlunarinnar (neðst til hægri), við Branson rétt eftir lendingu í alsírskri eyðimörk. Branson um samferðamann sinn í símasamtali við stjórnstöð ferðar- innar í London, „hann bjargaði lífi okkar.“ Meðan Ritchie klifraði upp á þakið reyndi Branson að létta farið með því að fleygja fyrir borð matarkössum og eldsneytishylkj- um. Hann sagði lendinguna hafa verið „all skelfilega“. Branson var spurður að því hvort hann væri sneyptur svaraði hann: „Það er dásamlegt að vera lifandi, það skiptir öllu núna.“ Kunnugir töldu, að hann myndi gera aðra hnattflugstilraun yrði einhver annar fyrri til. Var hann í keppni við tvö önnur lið um að verða fyrstur til að svífa umhverfis jörðina í loftbelg. Annars vegar við Bandaríkjamann- inn Steve Fosset, sem búist er við að freisti flugtaks í St. Louis í Misso- uri í Bandaríkjunum einhvern næstu daga. Hins vegar við leiðangur Belgans Wim Verstraeten og Sviss- lendings Bertrands Piccards, sem áætla að freista hnattflugs næst- komandi mánudag með flugtaki í borginni Chateaux D’Oex í Sviss. I s I I I I L f í í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.