Morgunblaðið - 09.01.1997, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 09.01.1997, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTU DAGUR 9. JANÚAR 1997 27 _______LISTIR____ „Utlendingar falla strax fyrir Requiem“ KÓRVERKIÐ Requiem eftir Jón Leifs komst í sviðsljósið eftir tónleika Deutsch- Skandinavische Jugend-Philharm- onie í Berlín fyrr í vikunni, þó ekki væri það á efnis- skrá, en að mati Andreas Peer-Kahler, aðalstjórn- anda hljómsveitarinnar, er það eitt fallegasta tónverk gjörvallra tónbók- menntanna. „Ég vil láta spila það yfir mér þegar ég dey,“ bætti hann við í samtali við Morgunblaðið að tónleikum loknum. Jón Leifs samdi Requiem til minn- ingar um Líf dóttur sína, skömmu eftir sviplegt andlát hennar árið 1947, að því er fram kemur í máli Hjálmars H. Ragnarssonar tón- skálds. Textinn er sóttur í ljóð Jónas- ar Hallgrímssonar og íslenskar þjóð- vísur. „Þótt Requiem sé, svo sem nafnið gefur til kynna, sálumessa er verkið öðrum þræði vögguvísa en hljóðfallið í því minnir jafnframt á öldur sjávarins, sem tengist greini- lega dauða Lífar.“ Að sögn Hjálmars höfðar Requiem beint til fólks — á mjög djúpan hátt. „Verkið er mjög óvenjulegt miðað við önnur verk frá þessum tíma, efnið er svo einfalt. Það má eiginlega segja að Requiem ein- kennist af mini- malisma, löngu áður en sú hreyf- ing varð til.“ Hjálmar er staddur í Þýskalandi um þessar mundir, þar sem hann flutti meðal annars fyrirlestur um Jón Leifs í Berlín 2. janúar síðastlið- inn. Var Requiem flutt við það tæki- færi af félögum úr Deutsch-Skand- inavische Jugend-Philharmonie. Að sögn Hjálmars, sem stjórnaði flutn- ingnum, var þó einungis um „mála- myndaflutning" að ræða, lítill tími hafi gefist til æfinga. „Viðstaddir gerðu þó góðan róm að frammistöðu tónlistarfólksins en mín reynsla er sú að- útlendingar falli strax fyrir þessu verki.“ Annars veit Hjálmar ekki til að kórverkið hafi verið flutt af erlendu tónlistarfólki á tónleikum en íslenskir kórar, svo sem Hamrahlíðarkórinn og Kór Langholtskirkju, hafi nokkr- um sinnum spreytt sig á því hér heima og á söngferðalögum erlendis. Hjálmar H. Ragnarsson SIGRÚN Sól bregður sér í hin ýmsu gervi í sýningunni. „Daman“ aftur á kreik SÝNINGAR á leikritinu Gefin fyrir drama þessi dama og öllum stendur svo innilega á sama eftir Megas hefjast að nýju laugardag- inn 11. janúar næstkomandi í Höfðaborginni. Áformað er að sýna þétt í janúar en að því loknu verður að hætta sýningum. „Sýningar hófust í september á síðasta ári og var sýnt sleitu- lausttil jóla, alls 26 sýningar. Leikritið, sem hlotið hefur mjög góðar viðtökur, jafnt hjá gagn- rýnendum sem öðrum leikhús- gestum, fjallar um ólíkar mann- eskjur úr ýmsum afkimum þjóð- félagsins. Verkið er fullt af kímni, sorg, drama, hæðni og mikilli meðaumkun,“ segir í kynningu. Sigrún Sól leikur öll hlutverk- in í sýningunni en Hörður Braga- son organisti hannaði hljóðmynd, jafnframt því sem hann tekur þátt í sýningunni og leikur á fjölda hljóðfæra. Leikstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir, leik- mynd og lýsingu hannaði Egill Ingibergsson og búninga Þórunn Elísabet Sveinsdóttir. Endurklœbum húsgögn. Gott úrval áklceba. Fagmenn vinna verkib. BólstnmÁsgríms, Bergstaðastræti 2, sími 551 6807 Langarþig ífrœðandi og skemmtilegan skóla eitt kvöld í viku? □ Langar þig að vita hvar látnir vinir og vandamenn hugsanlega og líklegast eru í dag og hversu meint samband við þá og þessa undarlegu heima er með aðstoð miðla? □ Langar þig f öðruvísi skóla þar sem reynt er á sem víðsýnastan hátt að gefa nemendum sem besta yfirsýn yfir hverjar hugsanlegar orsakir dulrænna mála og trúarlegrar reynslu fólks raunvenilega eru í víðu samhengi og í ljósi sögunnar? □ Og langar þig svona einu sinni á ævinni að setjast f mjúkan skóla eitt kvöld f viku þar sem flest þessi fræði eru kennd á lifandi hátt og skólagjöldunum er svo sannarlega stillt í hóf? Ef svo er þá áttu ef til vill samleið með okkur og fjöldamörgum öðrum ánœgðum nemendum Sálarrannsóknarskólans undanfarin ár. Tveir byrjunarbekkir hefja brátt nám í sálarrannsóknum 1 núá vorönn '97. Skráning stendur yfir. Hringdu ogfáðu allar nánari upplýsingar í símum skólans 561 9015 og 588 6050. Svarað er í síma skólans aðjafnaði alla daga vikunnarfrá kl. 14 til 19. Skrifstofa skólans er hins vegar opin alla virka daga kl. 16 til 19ogá laugardögum kl. 13 til 16. ASálarrannsóknarskólinn - skemmtilegasti skólinn - Vegmúla 2, símar 561 9015 og 588 6050. JANUARTILBOÐ TONIC þrektækl TG-702 PM Þrekhjól m. púlsmæli ★ Tölvu-púlsmælir ★ Newton þyngdarstillir ★ Breitt, mjúkt sæti Verð 26.306. NÚ 18.414. TG-1828 KHfurstigi Deluxe ★ Tölvumælir * Stillanleg hæð fyrir hendur ■k Mjög stöðugur Verð 31.460. Nú 22.022. Póstsendum um land allt Opið laugardaga kl. 10-14 ViSA SKEIFUNNI 11, SÍMI 588 9890. ...á stærstu og fjölbreyttustu útsölu landsins...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.