Morgunblaðið - 09.01.1997, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 09.01.1997, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR PIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 31 Allt fyrir frægðina KVIKMYNPIR Rcgnboginn SLÁ í GEGN (THE THINGS YOU DO) ★ ★ ★ '/2 Leikstjóri Tom Hanks. Handritshöf- undur Tom Hanks. Kvikmyndatöku- stjóri Tak Fujimoto. Tónlist Howard Shore. Aðalleikendur Tom Everetf Scott, Liv Tyler, Jonathan Schaech, Steve Zahn, Ethaii Randall, Tom Hanks. 110 mín. Bandarisk. 20th Century Fox 1996. SÁ GRUNUR læddist að mönnum er það spurðist út að Tom Hánks væri að leikstýra sinni fyrstu mynd að stjórnendur Fox væru með því að tryggja sér þennan vinsæla leik- ara uppá framtíðina. Og í leiðinni einn framleiðenda Slá í gegn, Jon- athan Demme. Hvað sem því líður þá kemur frumraunin hans Hanks skemmtilega á óvart. Enginn byij- endablær heldur virðist hann eiga jafn auðvelt með að starfa fyrir aft- an tökuvélarnar. Slá í gegn er að flestu leyti hnitmiðuð þroskasaga manna sem leita frægðar og frama auk þess sem hún gefur býsna góða innsýn í glerhálan poppheiminn. Skólahljómsveit úr sveitaþorpi í Pennsylvaniu dettur í lukkupottinn er That Thing you do, eitt lag henn- ar vekur athygli. Fyrst í heimahög- unum, síðan Pittsburg, og þá kemur umboðsmaðurinn White (Tom Hanks) til skjalanna. Ekki líður á löngu uns förinni er heitið til Kalifor- níu og lagið kemst á toppinn. Þá er aðeins ein leið til baka. Handritið hans Hanks er ekki síðra en leikstjórnin. Þar blasir við dæmigerð þróunarsaga þúsunda stjarna augnabliksins sem komast að því að ekki er allt sem sýnist og frægðin fallvölt. Það er tiltölulega einföld saga á bak við myndina en Hanks kryddar hana með skondnum persónum og það leynir sér ekki að hann hefur fínt skopskyn sem gerir Slá í gegn einstaklega skemmtilega. Myndin gerist á hinum eina og sanna sjöunda áratug. Hanks og sam- starfsmönnum hefur tekist að endur- skapa andrúmsloft þess ágæta tíma- bils með öllum sínum tryllitækjum, söngtríóum, þó fyrst og fremst tón- listinni sem minnir á bönd einsog Dave Clark Five eða Herman Herm- its. Svolítið tyggjókennd. Hann sýn- ir okkur líka sakleysið deyja, umrót- ið sem varð þess valdandi. Notalegt kæruleysið og gleðina sem ríkti hjá ungu fólki fyrir tíma mussulýðs. Muninn á hæfileikum og meðal- mennsku, ljómanum og myrkrinu, hráskinnsleikinn í poppheiminum þar sem þú ert aðeins jafngóður og síðasta lagið þitt. Líkt og Reykurer Slá í gegn lista- vel heppnuð í sínum margbrotna ein- faldleik. Hún ætti að eiga erindi til allra. Eini umtalsverði ljóðurinn er persónan Faye (Liv Tyler), sem hangir í lausu lofti og sambandsslit hennar við einn hljómsveitarmeð- limanna kemur einsog skrattinn úr sauðarleggnum. Hins vegar er allt annað að sjá Tyler hér, dauðyflis- bragurinn í Stolinni fegurð á undan- haldi. Leikhópurinn er fínn og einkar trúverðugur með Hanks í broddi fylkingar. Það er ekki aðeins unun að heyra og sjá þessa frumraun heldur fer hann vammlaust með at- vinnumanninn White. Nokkrum góð- um gestum bregður fyrir í aukahlut- verkum. Þau Rita Wilson, Kevin Pollak, Bill Cobbs og ekki síst Alex Rocco (frábær í smáhlutverki kolr- uglaðs plötuútgefanda) þétta og styrkja myndina. SIi í gegn er vönd- uð og fagmannlega unnin, lítil mynd sem kemur meiru til skila en flestar aðrar. Það verður ekki síður spenn- andi að fylgjast í framtíðinni með leikstjóranum/handritshöfundinum Hanks en leikaranum. Sæbjörn Valdimarsson Morgunblaðið/Árni Sæberg FRÁ fyrsta samlestri á Kátu ekkjunni. Káta ekkjan senn á fjalirnar ÍSLENSKA óperan hefur hafið æf- ingar á Kátu ekkjunni, óperettu eftir Franz Lehár við texta þeirra Viktors Léons og Leos Steins. Söngtextar eru í þýðingu Þorsteins Gylfasonar en um leiktexta og leikgerð sér Flosi Ólafsson. Leikstjóri Kátu ekkjunnar er Andrés Sigurvinsson og Páll Pampichler Pálsson stjórnar hljóm- sveitinni. Stígur Steinþórsson hannar leikmynd, Hulda Kristín Magnús- dóttir búninga, Björn B. Guðmunds- son lýsingu og Ástrós Gunnarsdóttir er dansahöfundur. Æfingastjórar eru Catherine Williams og John Beswick. „Káta ekkjan var frumsýnd í Vín- arborg árið 1905. Sögusvið óperett- unnar er París um síðustu aldamót. Káta ekkjan, Hanna, sem er vellauð- ug, er komin til borgarinnar frá heimalandi sínu, Svartfjallalandi. I París hittir hún Danilo greifa sem er gamall kærasti og kveikja endur- fundir þeirra kenndir í bijóstum beggja. Óperettan ijallar um ástar- brall af ýmsu tagi og tilraunir til að forða Svartíjallalandi frá gjaldþroti með því að finna réttan eiginmann handa ekkjunni ríku. Sagan er sett fram á leiftrandi hátt með leikandi léttri can can-, valsa- og vínartónl- ist,“ segir í kynningu. Það er Signý Sæmundsdóttir sem fer með hlutverk kátu ekkjunnar Hönnu og Garðar Coites með hlut- verk Danilos greifa. Með önnur stór hlutverk fara Sigurður Björnsson, Marta Halldórsdóttir, Þorgeir Andr- ésson, Jón Þorsteinsson, Stefán H. Stefánsson, Guðmundur Jónsson, Magnús Jónsson, Kristinn Hallsson, Sieglinde Kahlmann og Árni Tryggvason, ásamt kór og hljóm- sveit Islensku óperunnar. Káta ekkjan verður frumsýnd laugardaginn 8. febrúar. UTSALA fierra GARÐURINN Kringlunni atnadi med g Q - ^ Q Utsala e KRINGLUNNI M-kn SIMAR S33 1717 ◦didas (UPur T Vr BoUr jr peVsur 'ömubU*vur ,anaPu*ur íþróttafatnaður - strigaskór - gallabuxur - ulpur - bolir - hettupeysur pils - kjólar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.