Morgunblaðið - 09.01.1997, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 09.01.1997, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREIIMAR Að berja njóla og rótarstinga Bréfkorn til borgaryfirvalda HROSSAGAUKUR, lóa og spói, að ég tali nú ekki um ein virðuleg grágæsarhjón, hafa í seinni tíð verið ná- grannar mínir hér á Laugarnestanganum. Á liðnu sumri, um miðja stekktíð, þegar fuglabörn voru sum hver nýskriðin úr eggi og önnur rétt að kom- ast á legg, þá birtist hópur vélsláttumanna í gamla bæjartúninu og þessir vélsláttumenn létu sér ekki nægja að berja grasið af Laug- arnestúninu, heldur réðust þeir af hvað mestri hörku á gamla bæjarhólinn þar sem stelkur og grágæsapar bjuggu. Skeilinöðru- orfin drundu daglangt og komu slíkri styggð á ungana, að um nóttina horfði ég á sorpvarginn tína upp þessa ófleygu hnoðra af berangri, við mikinn harmagrát foreldra sinna — þar var ekkert skjól að finna leng- ur, allt hafði verið slegið niður í rót. Ekki skrifa þessir varnarlausu nábúar mínir bréf, eða hringja í borgarstjóra, þótt vígreifir sláttu- menn með hvæsandi vélaorf vinni hervirki á heimilum þeirra og hreki ugana út í dauðann, þeir fá ekkert annað gert en að kvaka og tísta í skelfingu gegn þessum atvinnubóta hersveitum — ég vona því að mér fyrirgefist þetta bréf — og fer þess á leit að það fái umijöllun af þeim stofnunum, nefndum, ráðum og embættismönnum er vald hafa yfir örlögum þessara smávina minna. Eflaust má færa fyrir því skrif- borðsrök að Laugarnestúnið sé bú- setulandslag og frá upphafi búsetu hafi tún verið slegin ár hvert og úthagi beittur, en það var þá gert með vélarlausum amboðum og ekki rústar beit úthaga. En hervirkjunum var ekki lokið, því dag- inn eftir birtist sveit grafara með fram- lengdar stunguskóflur og járnkarla, sem fór mikinn. Að kvöldi lágu njólarætur í haugum á víð og dreif um svæðið og svo harkalega hafði verið gengið fram í því að rótarstinga og rífa upp þessa stórhættu- legu plöntu að mold var gengin um allt tún. Ekki var látið þar við sitja heldur var hvönnin í bakkanum hér fyrir Hrarn 0fan rórarstungin af Gunnlaugsson sömu útrýmingarsveit. Hvar hefði þessari helför lokið hefðu útrýmingarsveitirnar átt í höggi við hina alræmdu lúpínu sem er á góðri leyð með að eyðileggja séríslensk rofabörð og uppblásna frostmela? Slíka landsógn hefði mátt ræða á Alþingi. Orsakasamhengið fyrir þessum skelfílega dugnaði borgaryfirvalda í vélknúinni sláttumennsku er sögð til komin af ótta þessara yfirvalda við að Laugarnestúnið fari í órækt og jafnframt að loðið gras muni hindra fijálsa leiki borgarbúa. Trúlega kem- ur þar fleira til og má vera að eftir- farandi atriði varpi nokkru ljósi á málið: Öldum saman voru íslendingar blautir í fæturnar og kvefaðir. Þeir kenndu votlendinu um, en ekki skó- búnaðinum, og höfðu slíka and- styggð á votlendi, að strax og véla- öld gekk í garð var ráðist með stór- virkum vinnuvélum á nánast hvern einasta mýrarfláka í landinu og hann ræstur fram og þurrkaður upp í nafni nútímalegra búskaparhátta og nýræktar. Þessari herferð lauk með því að tekist hafði að skera vatns- æðakerfi landsins á púls og uppræta nærri öll varplönd íslenskra mó- íslendingar hafa lært að hatast við allar þær jurtir sem vilja gróa hjá þeim, ótilneyddar og af sjálfsdáðum og kalla þær illgresi, segir Hrafn Gunnlaugsson, en dá og elska hins veg- ar innflutt pjatt og puntblóm. fugla. Svo hart var gengið fram að nokkrum tegundum stafar enn hætta af útrýmingu og nú gerast pólitíkusar vistvænir forkólfar með því að borga búandkörlum stórfé fyrir að moka aftur ofan í þessi svöðusár. Ekki veit ég hvort stjórnendur Reykjavíkur eru svo nýfluttir úr sveit að þeir megi ekki sjá gras án þess að þurfa óðir og uppvægir að beija það og ekkert skal fullyrt um það, að þessi árátta sé af svipuðum toga og votlendiseyðingarherferðin og til- komin vegna þess að öldum saman var heyfengur í landinu svo rýr að búpeningur féll á hörðu vori, og borgaryfirvöld því að forðast órækt og afla sem mestra heyja, þegar góðærið ætlar allt að drepa. Kannski er þetta barasta gert í fegrunar- skyni! Búandkarlar hafa löngum dáðst að slegnum túnum og talið voðaverk að vaða út i slægjuna. Kannski eru borgaryfirvöld að forða því að Reykvíkingar vaði út í slægj- una og geti þess í stað dáðst að þeim brúnan grassverði og sviðnu jörð sem vélasláttusveitirnar skilja eftir sig. Ég kom í þorp úti á landi í sumar þar sem umferðareyjar voru kafloðn- LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR 1897-1997 Söngleikur eítir Karl Ágúst Úlfsson, byggður á ljóðum Tómasar Guðmundssonar. Tónlist eftir Gunnar Reyni Sveinsson. | ...UIIJ.LUIU.JJLIIJI. ' ..II .• [L :r-jjf-7V^jvWv1^^c->-m»;ita|LguM;.MU ..u: < 100 ára afrnœli Leikfélags Reykjavíkur | f Leikcndur: Þórhallur Gunnarsson, Jóhanna Jónas, María Ellingsen, Margrét Helgajóhannsdóttir, Sóley Elíasdóttir, Pétur Einarsson, Kjartan Guðjónsson, Dofri Hermannsson, Ellert A. Ingimundarson, Alexander Óðinsson, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Ásta Amardóttir, Hinrik Ólafsson, Björn Ingi Hilmarsson, Tlieodór Júlíusson, Ámi Pétur Guðjónsson, Jón Hjartarson, Helga Braga Jónsdóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Hljóð: Baldur Már Arngrímsson. Lýsing: Lánis Björnsson. Tónlistarstjóri: Kjartan Valdemarsson. Söngstjóri: Jóhanna V. Þórhallsdóttir, söngkona. Leikmynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson. Leikstjórn: Brynja Benediktsdóttir. Frumsýning á Stóra sviðinu laugardaginn 11. janúar kl. 20.00. Uppselt. 2. sýning 16. janúar. ar í safaríku grasi og blóm fengu að skarta blómkrónum sínum í friði; það var dýrleg sjón í miðju malbik- inu og góð tilfinning. Mér var tjáð af sveitarstjórnarmanni, að þessi ósómi væri til kominn vegna þess að unglingar hefðu nóga vinnu í fiski og bæjarfélagið gæti ekki keppt við bónusinn þar. Þess vegna æði þetta helvítis illgresi yfir allt og væri bæjarbúum til háborinnar skammar. Trúlega tók maðurinn til máls á þennan hátt, vegna þess að Islend- ingar hafa lært að hatast við allar þær jurtir sem vilja gróa hjá þeim, ótilneyddar og af sjálfsdáðum og kalla þær illgresi, — en dá og elska hins vegar innflutt pjatt og punt- blóm. Og takist mönnum með ærinni fyrirhöfn að halda lífi í innfluttum jurtum sem vilja alls ekki gróa á íslandi og neyða þær til þess með því að setja þær í gjörgæslu, þá er það er kallað skrautblómarækt og verðlaun veitt fyrir þann garð þar sem flestar tegundir þessara þraut- píndu jurta hjara. Hvort þessi ofannefnd atriði skýra offorsið í vélsiáttumennsku inn- fæddra læt ég aðra dæma um, en bið nágrönnum mínum griða næsta sumar og hvet borgaryfirvöld til að beina atvinnubótavélasveitunum eitthvert annað, helst upp í sveit, þar sem þær gætu safnast í lið bænda við góðan orðstír og lamið allt það gras sem fer í taugarnar á landsmönnum og rótarstungið þær jurtir sem gerst hafa sekar um að vaxa á íslandi ótilneyddar. íslendingar hafa unnið að því hörðum höndum allt frá landnáms- öld að gera ísland sem óbyggiiegast og hafa eytt fugli og ferfætlingum, landi og gróðri, allt í nafni landnýt- ingar og verndunar. Menn eru verð- launaðir fyrir að hundelta tófuna og murka úr henni lífið og hefur tófan unnið sér það helst til sakar að fækka þeim mörbólgna ullarbitvargi sem er að naga upp síðustu leifarnar af gróðurlendi íslands. Og nú er það illgresið sem ógnar og lúpínan. Þeim stöðum fækkar í Reykjavík hvar enn má finna villta hvönn, mjaðuijurt, maríustakk, engjarós og nýrunninn njóla og ilmsterkt rán- fang, svo spurningin er hvort ein- hver staðar þurfi ekki þetta vonda illgresi að vera. Eins væri yndisauki ef stöku sóley fengi að blómstra í almenningsgörðum og á umferða- reyjum, — ég er næstum viss um að það myndi ekki skaða blessaða unglingana sem allar þessar gáfuðu eftirlitsstofnanir hafa svo miklar áhyggjur af og hafa nú att út í að beija gras á sumrum með skelli- nöðruorfum. Höfundur er rithöfundur og kvikmyndaleikstjóri. Laun og lífeyris- greiðslur verða að hækka VIÐ afgreiðslu fjár- laga fyrir jólin gaf rík- isstjómin tóninn um stefnu sína í þeim kja- rasamningum sem nú er unnið að á vegum aðila vinnumarkaðar- ins. Ekki verður sagt að sú stefnumörkun sé uppörvandi fyrir þá sem erfiðast eiga með að ná endum saman í rekstri heimilanna. Stefnumörkun ríkis- stjórnarinnar við af- greiðslu fjárlaga fólst í því að ákveða að hækka lífeyris- greiðslur og aðrar bætur almannatrygginga um aðeins 2% fyrir árið 1997 og að skattleysis- mörkin og persónuafsláttur frá skatti skyldi standa óbreyttur í krónutölu allt þetta ár, sem í reynd Ég held að stjórnvöld, og fleiri í landinu hafi ekki viljað viðurkenna þá staðreynd, segir Ólafur Jónsson, að um verulega og vaxandi fá- tækt sé að ræða. er lækkun frá fyrra ári. Ljóst er því að lágtekjufólk og lífeyrisþegar geta ekki tekið undir með formanni Vinnuveitendasambandsins, Ólafi B. Ólafssyni, þar sem hann segir í Morgunblaðinu á gamlársdag að góðærið hafi skilað sér til ailra í þjóðfélaginu. Þvert á móti virð- ist nú áfram vera stefnt að vax- andi misskiptingu launa og ann- arra lífskjara í landinu. Ég held að stjórnvöld og fleiri aðilar í landinu hafi ekki viljað við- urkenna þá staðreynd að um veru- lega og vaxandi fátækt sé að ræða í okkar allsnægtaþjóðfélagi. Við vorum þó alvarlega minnt á þá stað- reynd af góðgerðar- stofnunum nú um há- tíðarnar. Til viðbótar þeim áminningum vil ég minna á aðrar upp- lýsingar sem fram hafa komið frá starfsmönn- um félagsmálastofn- ana í Reykjavík og í Kópavogi að undan- förnu, en þeir starfs- menn annast málefni þeirra samborgara okkar sem við erfiðast- ar aðstæður búa. Samkvæmt upplýs- Ólafur ingum frá Félagsmála- Jónsson stofnun Reykjavíkur- borgar hefur ú'árhags- aðstoð við einstaklinga og fjölskyld- ur aukist mjög á siðastliðnu ári; umsóknum fjölgaði verulega og nærri fjórði hver umsækjandi reyndist vera lífeyrisþegi með fullar bætur frá almannatryggingum. Hjá þeim voru erfiðastar greiðslur vegna húsnæðiskostnaðar og lyfja- kaupa. í viðtali við blaðið Voga segir félagsmálastjóri bæjarins í Kópa- vogi, Aðalsteinn Sigfússon, frá ástandi þessara mála þar í bænum. Þar kemur fram að aukin hagsæld birtist ekki hjá þeim íbúum bæjarins sem lægst hafa launin. Kostnaður við framfærslumál hefur aukist til muna á síðastliðnu ári og jafnvel barnlausir einstaklingar hafa þurft á íjárhagsaðstoð að halda til þess að leysa margvísleg vandamál vegna alltof lágra launa, þó að þeir hafi vinnu eða lifeyrisbætur. Álykt- un félagsmálastjórans var sú að í landinu byggju tvær þjóðir og að önnur vildi ekki af hinni vita. Af þeim dæmum sem hér hafa verið nefnd má ljóst vera að íjöl- mennir hópar fólks búa við allt of erfiðar aðstæður. Láglaunastefnan er að skapa hættulegt ástand í þjóð- félaginu. Laun lágtekjufólksins og lífeyrisgreiðslur trygginganna verða að hækka verulega. Höfundur er formadur Landssambands aldraðra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.